Morgunblaðið - 12.11.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2020
Samfylkingin er um margt sér-kennilegur flokkur og af-
skaplega ófarsæll. Hann var næst-
um þurrkaður út af þingi eftir
samfelldar árásir á hagsmuni þjóð-
arinnar í fjögurra
ára samstarfi við
Vinstri-græna sem
báðir sjá sennilega
eftir þó að lítið fari
fyrir iðrun eða yfir-
bót.
Fyrir bankahrun
sleikti flokkurinn
sig upp við þá sem fóru mest og
ógætilegast í viðskiptum hér en
ekki síður erlendis og þáði af þeim
mikið fé.
Eftir bankahrun reyndi hann aðnýta efnahagsáfallið til að
þröngva þjóðinni óviljugri inn í
Evrópusambandið og fá hana til að
samþykkja nýja stjórnarskrá í stað
þeirrar sem reynst hefur vel og
notið hefur mikils stuðnings alla
tíð. Þetta endaði eins og fyrr segir
með því að nánast allir þingmenn
flokksins hrökkluðust af þingi en
núverandi formaður náði þó inn og
sleikti sárin.
Nú er flokkurinn farinn aðmælast aftur með nokkurt
fylgi í könnunum og þá virðist
hann telja rétt að blása á ný til
sóknar gegn landsmönnum og það
í miðjum heimsfaraldri. Logi Ein-
arsson formaður sagði í gær að í
stjórnarskrármálum yrði „bara
hreinlega stál í stál í þinginu í vet-
ur“ og boðaði í þeim efnum „bara
fullt stríð“!
Á meðan stríðsdansinn dunarhjá Samfylkingu verður að
binda vonir við að aðrir og ögn
heilsteyptari flokkar taki höndum
saman um að sinna þjóðþrifa-
málum, ekki síst að koma landinu
klakklaust í gegnum kórónuveiruf-
araldurinn, í stað þess að sóa vetr-
inum í stríðsátök Samfylkingar.
Logi Einarsson
Stríðsyfirlýsing
Samfylkingar
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Komið hefur verið á reglulegu samráði milli Íslands
og Bretlands á sviði sjávarútvegsmála. Þetta er
meðal þess sem fram kemur í samkomulagi um
framtíðarsamstarf Íslands og Bretlands í sjávarút-
vegsmálum sem Kristján Þór Júlíusson, landbún-
aðar- og sjávarútvegráðherra, og kollegi hans, Vict-
oria Prentis, sjávarútvegsráðherra Bretlands,
undirrituðu í gær.
„Á hinum nýja samráðsvettvangi verða ekki sam-
þykktar bindandi fiskveiðistjórnunarreglur, enda
eru engir sameiginlegir fiskistofnar sem eingöngu
finnast innan lögsagna Íslands og Bretlands,“ segir
í tilkynningu frá atvinnuvegaráðuneytinu.
Tilgangur samráðsins er sagður vera að „við-
halda og efla gott samstarf ríkjanna á sviði sjávar-
útvegs eftir útgöngu Breta úr Evrópusambandinu“.
Þá munu íslenskir og breskir fulltrúar funda árlega
til að viðhalda nánum tengslum og ræða leiðir til að
efla samstarf tengt sjávarútvegi.
Stefnt er að því að nýta vettvanginn til samstarfs
„á flestum sviðum sjávarútvegs og tengdum grein-
um, svo sem skipti á reynslu og þekkingu á sviði
fiskveiðistjórnunar, hafrannsókna, útgerðar, fisk-
vinnslu og nýsköpunar“. gso@mbl.is
Samið við Breta um sjávarútveg
Engar bindandi reglur
um nýtingu fiskistofna
Samstarf Samkomulagið um sjávarútveg var
undirritað af ráðherrunum á fjarfundi í gær.
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
2
0
0
0
—
2
0
2
0
Eldhúsinnréttingar
Tímabundin opnunartími
vegna Covid–19
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga 11–15
Það var ófögur sjón sem blasti við
nemendum og starfsfólki Austur-
bæjarskóla á mánudaginn. Í hjóla-
geymslu við skólann höfðu ýmsar
niðrandi áletranir verið krassaðar
á veggi, kynþáttaníð og óhróður um
samkynhneigða. Kristín Jóhann-
esdóttir, skólastjóri Austurbæjar-
skóla, segir að svona krot sé ekki
liðið, enda hafi verið málað yfir það
um leið og það uppgötvaðist.
Samkvæmt upplýsingum frá
Reykjavíkurborg er almenna regl-
an sú að hreinsa eða mála yfir krot
á byggingum borgarinnar innan 48
tíma, verk séu ávallt sett í forgang
ef um er að ræða niðrandi efni eða
áróður. Krot sem þetta mun ekki
hafa aukist að undanförnu.
Umrædd hjólageymsla er annað
af tveimur skýlum á lóð Austurbæj-
arskóla. Skýlið er raunar gömul
kolageymsla sem hefur verið notuð
sem geymslurými en auk þess hafa
verið þar hjólastandar hin síðari ár.
Endurbætur eru þar fyrirhugaðar,
unnið verður að endurbótum á súl-
um, múrverki, endurnýjun á léttum
veggjum og hurðum og þak verður
þétt næsta vor. hdm@mbl.is
Ljósmynd/Aðsend
Ógeðfellt Það var ekki falleg aðkoma í hjólageymslu Austurbæjarskóla.
Ógeðfellt krot við
Austurbæjarskóla