Morgunblaðið - 12.11.2020, Blaðsíða 24
í 35 ár,“ sagði Páll. Geislun frá sólinni
hefur hins vegar verið lítið breytileg
síðustu tvær aldir.
Lengri ísaldir koma á jörðinni með
reglulegu millibili og nú er þeirri síð-
ustu lokið. Breytt afstaða jarðar til
sólar veldur ísöldunum. „Ef afstaða
jarðar og sólar veldur því að sólar nýt-
ur tiltölulega mikið á norðurhveli þá
verður hlýtt en þegar hennar nýtur
síður þar þá verður tiltölulega kalt um
alla jörð. Sú sveifla tekur ákaflega
langan tíma eða allt að því 100 þúsund
ár,“ sagði Páll. „Norðurhvelið hlýnar
tiltölulega mikið í 10-20 þúsund ár á
þessu tímabili og þá kemur hlýskeið
en annars er kalt á jörðinni þess á
milli.“ Páll sagði að fyrir um 12 þús-
und árum hefði skipt úr síðustu ísöld í
hlýskeið sem stendur enn. Spurningin
er hvað það varir lengi. Ljóst er að
það eru hlutfallslega afar stutt tímabil
sem menn geta almennt haft það gott
hér á jörðu. Á ísöldum er Ísland
lengst af að mestu þakið snjó og jökli.
Þá verðum við að flytja suður.
Sturlungaöld afleiðing kulda
Ísaldarjökullinn er miklu meiri á
suðurhveli en norðurhveli, að sögn
Páls. Hann er þar mjög stöðugur og
breytist lítið á löngum tíma. Það er
geysimikið hálendi og jökull allt árið á
Suðurskautslandinu. Suðurhvel er
annars að mestu hulið sjó. Hafið er
seint að bregðast við hitabreytingum
og jafnar þær meira út á suðurhveli
en á norðurhveli þar sem eru miklu
stærri landsvæði. Efsta lagið á
norðurhveli gleypir þess vegna í sig
mikið af hitageislum sólar. Yfirborð
jarðar hitnar því meira á norðurhveli
en á suðurhveli. Þess vegna verður
heitara þar að jafnaði en á suðurhveli.
Páll sagði að á okkar tíma hefðum
við bæði 70 ára sveiflur í lofthitanum,
það er tvö 35 ára skeið hlýnunar og
kólnunar, og einnig miklu lengri
sveiflur, en þó styttri en ísaldir. Að
jafnaði virðast þær sveiflur gjarnan
vara í allt að því 1.000 ár, auk ísald-
anna löngu. Til dæmis var tiltölulega
hlýtt á landnámsöldinni okkar fyrir
um það bil tíu öldum, og sú sveifla
virðist hafa oft endurtekið sig síðan á
ísöldinni sjálfri.
„Ég tel líka hugsanlegt að mann-
fjölgunin hafi haft talsverð áhrif til
hlýnunar. Maðurinn tók upp á því fyr-
ir ekki svo löngu, aðallega á 18. og 19.
öld, að grafa upp þessi ósköp af kolum
og olíu og brenna. Það jók sennilega
hlýnun og mannfjölgun, umbreytingu
frá þeim mikla kulda sem var áður,
það er frá því um árið 1200 og fram
undir árið 1900 eða þar um bil. Það
var kallað litla ísöld en þá var töluvert
kaldara en áður hafði verið,“ sagði
Páll. „Ég held að Sturlungaöldin hafi
verið mikið til afleiðing af kulda, hafís
og minni gróðri og minni velmegun
sem fylgdi kuldanum. Þá varð tölu-
vert mikil mannfækkun og þessir
miklu kuldar áttu líklega mestan þátt
í henni. Þetta olli mikilli baráttu Sturl-
unga um lífsgæði, og var líklega meðal
annars orsök þess að Gissur jarl taldi
hyggilegast að sameinast Noregi.
Eftir Sturlungaöldina var áfram
kalt og líklega kaldast á 17. öldinni
eða þar um bil. Ef til vill hefur 19. öld-
in orðið eitthvað skárri en ella vegna
þess að þá var farið að brenna kolum
og olíu og gasi.“
Áhrif aukinnar hlýnunar og losunar
koltvísýrings við brennslu jarðefna-
eldsneytis hafa stuðlað að auknum
gróðri. Páll telur að ef menn hefðu
ekki haft bein áhrif á loftslagið með
brennslu jarðefnaeldsneytis og mann-
fjölgun gæti loftslag nú kannski verið
líkara því sem það var á 19. öldinni,
það er talsvert kaldara en við eigum
að venjast. Hann segir að mögulega
geti þessi manngerða hlýnun orðið til
þess að seinka komu næstu ísaldar.
Hlýnun seinkar mögulega ísöld
Páll Bergþórsson veðurfræðingur hefur skoðað langtímasveiflur í veðurfari Ísaldir vara mun
lengur en hlýskeiðin á jörðinni Mannfjölgun og brennsla jarðefnaeldsneytis hefur valdið hlýnun
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2020
Páll Bergþórsson er 97 ára og
þriggja mánaða gamall. Hann
sagði að þessi hái aldur væri
gjöf og um að gera að njóta
hennar sem best. „Langlífi ligg-
ur mikið í ættum. Amma mín
varð 102 ára. Við vorum sjö
systkinin, og fjögur hafa orðið
meira en níræð og tvö af þeim
eru enn á lífi. Til viðbótar náðu
tvær systur níræðisaldri. Ég hef
hvorki reykt né drukkið og
þakka góðan aldur að einhverju
leyti bindindinu. Og svo eru
nokkuð mörg ár síðan ég hætti
að borða kjöt. Ég var áður oft
með kviðverki við og við, en
batnaði alveg eftir að ég hætti
því áti. Við erum nefnilega ekki
sköpuð til þess,“ sagði Páll.
Langlífið ligg-
ur í ættum
FÆDDIST ÁRIÐ 1923
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Veðurfræðingurinn Páll Bergþórsson hefur skoðað loftslag fyrri alda og hvers má líklega vænta næstu öldina.
VIÐTAL
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Grein Páls Bergþórssonar, veð-
urfræðings og fyrrverandi veð-
urstofustjóra, Loftslag frá 1975 og 100
ára spá, í Morgunblaðinu fyrir viku
vakti mikla athygli. Þar sýndi hann
línurit um loftslag á norðurhveli, suð-
urhveli, hitabeltinu og að meðaltali á
jörðinni frá árinu 1875 til nútíma.
Einnig spá um þróun veðurs næstu
öldina.
Páll sagði að Ísland væri á norður-
hveli jarðar og fylgdi almennt þróun
veðurs þar. En Ísland á áhrifamikinn
nágranna, veðurfarslega séð.
„Ég minntist ekki mikið á Græn-
land í grein minni, en Ísland er undir
sérstökum áhrifum frá Grænlandi,“
sagði Páll. Verði mikil bráðnun á
Grænlandsjökli vegna hlýinda flæðir
mikið af köldu fersku vatni, rétt um
0°C heitu, í hafið. „Þannig geta hlýindi
á Grænlandi stöku sinnum valdið
tímabundnum kulda hjá okkur og víð-
ar, þó að oftar fari saman hlýindi þar
og hér,“ sagði Páll.
Samkvæmt veðurathugunum frá
1875 og til okkar tíma urðu regluleg
umskipti í loftslagshita á 35 ára fresti.
Þannig skiptust á skeið hlýnunar og
kólnunar. Páll benti á að sama ná-
kvæmni í tímasetningu sveiflnanna
hefði staðið að minnsta kosti síðan fyr-
ir landnám samkvæmt borkjörnum úr
Grænlandsjökli.
„Ég tel að skýringin sé fyrst og
fremst geysimikil snjóasvæði á norð-
urhveli, Síbería og Kanada. Þau lönd
eru alþakin snjó mest af vetrinum en
mjög breytilega mikið. Snjórinn vex á
sama tíma og hafísinn. Þegar fer að
hlýna minnkar vetrarsnjórinn og þá
hlýnar ennþá meira. Það verður til
þess að það hlýnar í 35 ár og upp fyrir
meðallagið. Svo snýst þetta við og það
byrjar að kólna. Snjórinn vex og það
kólnar meira og niður fyrir með-
allagið. Hafísinn á líka dálítinn þátt í
þessu. Hann vex þegar kólnar eins og
snjórinn. Þetta ferli virðist vera ákaf-
lega stöðugt. Hlýnun í 35 ár og kólnun
Nú finnur
þú það sem
þú leitar að
á FINNA.is
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
Fékk bíllinn
ekki skoðun?
Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl
Sameinuð gæði
BJB-Mótorstilling þjónustar
flesta þætti endurskoðunar
anngjörnu verði og að
ki förum við með bílinn
n í endurskoðun, þér
kostnaðarlausu.
á s
au
þin
að
Kuldaskór
er .
Stærðir 36-42
Vatnsheldir • Innbyggðir broddar í sóla
SMÁRALIND
www.skornir.is
Netversl
un
www.sko
rnir.is