Morgunblaðið - 12.11.2020, Side 60
FÓTBOLTI
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
„Það sem ég hef lært af þessum
leikmönnum er að þeir eru ennþá
hungraðir. Ef þú hefur þetta hung-
ur þá skiptir aldurinn engu máli,“
sagði vígreifur Erik Hamrén, þjálf-
ari íslenska karlaliðsins í knatt-
spyrnu, á blaðamannafundi í Búda-
pest í gær fyrir hreinan úrslitaleik
Íslands og Ungverjalands um sæti á
EM næsta sumar. Leikurinn fer
fram á Púská Aréna klukkan 19:45 í
kvöld.
Hamrén var að svara spurningu
ungversks blaðamanns um hvort
þetta væri síðasti séns þessarar
kynslóðar íslenska landsliðsins að
komast á stórmót, það þriðja í röð
hjá þessum ótrúlega sigursæla hópi.
„Að mínu mati erum við að fara að
spila við mjög gott lið. Ungverjar
hafa verið sterkir í Þjóðadeildinni
sérstaklega og við eigum von á erf-
iðum leik,“ bætti Hamrén við. Ís-
lenska liðið er þó klárt í slaginn.
Tími til að láta verkin tala
Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar
Gunnarsson svaraði einnig spurn-
ingunni um framtíð hópsins: „Við er-
um ekki hættir, ekki nærri því. Ég lít
ekki á þetta sem einhvern síðasta
dans, það myndi bara setja of mikla
pressu á okkur,“ sagði fyrirliðinn.
Það verður nú samt að teljast líklegt
að leikurinn í kvöld, og mögulega
Evrópumeistaramótið næsta sumar,
verði einmitt það fyrir nokkra af
okkar reyndustu mönnum. Fimmtán
af þeim 23 leikmönnum sem skipa
hópinn eru þrítugir eða eldri. Kári
Árnason er 38 ára, Hannes Þór Hall-
dórsson 36, Birkir Már Sævarsson
35 og Ragnar Sigurðsson 34. En það
er líka akkúrat sú reynsla sem Aron
Einar vonar að dugi til að koma lið-
inu yfir línuna í kvöld.
„Við höfum reynsluna úr stóru
leikjunum sem komu okkur á EM og
HM og vonandi hjálpar það. Í svona
leikjum er þetta yfirleitt þannig að
sá sem gerir fæst mistök stendur
uppi sem sigurvegarinn.“
Ísland og Ungverjaland mættust
auðvitað á EM í Frakklandi sumarið
2016. Sá leikur fór 1:1 en Ungverjar
jöfnuðu metin seint eftir að Gylfi Þór
Sigurðsson kom Íslandi í forystu.
„Mótið var góð reynsla og við vilj-
um upplifa annað eins aftur. Þess
vegna viljum við vinna á morgun,
það verður erfitt en nú er kominn
tími til að láta verkin tala á vell-
inum.“
Þjálfari Ungverja ekki með
Marco Rossi, þjálfari ungverska
landsliðsins, verður ekki á hliðarlín-
unni í kvöld og ekki heldur annar af
aðstoðarmönnum hans, Giovanni
Constantino. Þeir eru báðir með kór-
ónuveiruna en á hliðarlínunni verður
hinn aðstoðarmaðurinn, Cosimo Ing-
uscio.
Rossi telur að fjarvera hans muni
engin áhrif hafa, enda þurfti hann
ekki að draga sig í hlé fyrr en á
þriðjudagskvöld. „Ég held að fjar-
vera mín muni ekki hafi áhrif á leik-
inn. Allur okkar undirbúningur gekk
snurðulaust fyrir sig. Ég var ekki
mikið frá leikmönnunum og ég verð
með þeim á morgun í anda,“ sagði
Ítalinn á blaðamannafundi Ungverja
og staðfesti að allir leikmenn hópsins
væru heilir heilsu og klárir í slaginn.
Íslensku
strákarnir
ekki hættir
Morgunblaðið/Eggert
Hungur Gylfi Þór Sigurðsson, Aron Einar Gunnarsson og Guðlaugur Victor
Pálsson fagna á Laugardalsvelli eftir sigurinn gegn Rúmeníu í október.
Úrslitaleikurinn gegn Ungverjum um
sæti á EM fer fram í Búdapest í kvöld
60 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2020
Anton Sveinn McKee og liðsfélagar
hans í Toronto Titans eru komnir
áfram í undanúrslit atvinnumanna-
deildarinnar í sundi sem fram fer í
Búdapest í Ungverjalandi þessa
dagana.
Toronto Titans hafnaði í sjöunda
sæti stigakeppninnar en alls kom-
ust átta lið áfram í undanúrslitin
sem hefjast 14. og 15. nóvember.
Anton stóð sig mjög vel í deildar-
keppninni, safnaði 87 stigum fyrir
sitt lið og var fimmti stigahæsti
sundmaður Toronto Titans af 32
liðsmönnum. bjarnih@mbl.is
Sá fimmti
stigahæsti
Ljósmynd/Simone Castrovillari
Góður Anton Sveinn McKee stendur
sig afar vel í Ungverjalandi.
Enska knattspyrnusambandið
reiknar með því að bresk yfirvöld
taki ákvörðun í dag um hvort leyfa
skuli íslenska karlalandsliðinu að
ferðast til Englands fyrir fyrirhug-
aðan landsleik þjóðanna í Þjóða-
deildinni á miðvikudag í næstu
viku. Óvíst er hvort England má
bjóða íslenska liðið velkomið þar
sem ekki má ferðast frá Danmörku
til Englands um þessar mundir og
Ísland leikur við Danmörku í Kaup-
mannahöfn þremur dögum fyrr.
Sambandið hefur beðið um undan-
þágu fyrir íslenska hópinn.
Morgunblaðið/Eggert
Faraldurinn Kári Árnason og Harry
Kane í einvígi á Laugardalsvelli.
Enskir taka
ákvörðun í dagVináttulandsleikir karla
Malta – Liechtenstein.............................. 3:0
Helgi Kolviðsson er landsliðsþjálfari
Liechtenstein.
Danmörk – Svíþjóð................................... 2:0
Ítalía
C-deild:
Perugia – Padova .................................... 3:0
Emil Hallfreðsson lék fyrstu 71 mínút-
una fyrir Padova.
Danmörk
Bikarkeppni:
Köge – Midtjylland .................................. 0:1
Mikael Anderson lék allan leikinn með
Midtjylland.
VSK Aarhus – Horsens ........................... 2:4
Ágúst Eðvald Hlynsson og Kjartan
Henry Finnbogason léku allan leikinn með
Horsens.
Slagelse – Lyngby ................................... 0:9
Frederik Schram lék fyrstu 73 mínút-
urnar fyrir Lyngby.
Nyköbing – Esbjerg ................................ 1:0
Andri Rúnar Bjarnason var ekki í leik-
mannahópi Esbjerg. Ólafur H. Kristjáns-
son þjálfar liðið.
Midtjylland, Horsens, Lyngby og Ny-
köbing eru komin áfram.
Noregur
Bikarkeppni:
Stabæk – Vålerenga................................ 1:2
Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leik-
inn með Vålerenga.
Vålerenga er komið áfram í undanúrslit.
Þýskaland
Magdeburg – RN Löwen .................... 31:33
Ómar Ingi Magnússon skoraði sex mörk
fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Krist-
jánsson eitt.
Ýmir Örn Gíslason skoraði ekki fyrir
Löwen og Alexander Petersson var ekki
með.
Lemgo – Balingen ............................... 26:32
Bjarki Már Elísson skoraði 10 mörk fyrir
Lemgo.
Oddur Gretarsson skoraði tvö mörk fyrir
Balingen.
Erlangen – Stuttgart........................... 34:25
Viggó Kristjánsson skoraði sex mörk
fyrir Stuttgart og Elvar Ásgeirsson ekkert.
Danmörk
Bikarkeppni:
Mors – Holsterbro ................................35:31
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði eitt
mark fyrir Holsterbro.
Aalborg – Bjerringbro/Silkeborg..... 30:27
Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal-
borg.
Mors og Aalborg eru komin í undanúrslit.
Ajax – Aarhus United.......................... 21:29
Thea Imani Sturludóttir skoraði eitt
mark fyrir Aarhus United.
Svíþjóð
Guif – Varberg..................................... 32:25
Daníel Freyr Ágústsson var ekki með
Guif.
Lugi – Alingsås .................................... 24:25
Aron Dagur Pálsson skoraði þrjú mörk
fyrir Alingsås.
Sviss
Kadetten – Basel.................................. 35:19
Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar lið Kadett-
en Schaffhausen.
Meistaradeild Evrópu
Zaragoza – Nizhnij Novgorod ........... 78:75
Tryggvi Snær Hlinason spilaði í 12 mín-
útur og tók tvö fráköst.
KNATTSPYRNA
EM U21 árs karla:
Víkingsvöllur: Ísland – Ítalía ...............13:15
Í KVÖLD!
Þegar Ísland og Ungverjaland mætast í leikn-
um mikilvæga í dag verður það í tólfta skipti
sem þjóðirnar mætast í A-landsleik karla í
knattspyrnu. Hafa Ungverjar sjö sinnum unnið,
Íslendingar þrisvar og einu sinni hefur orðið
jafntefli. Fjórir þessara leikja voru vináttuleikir
en hinir annaðhvort í HM eða EM.
Síðasta viðureign liðanna ætti að vera knatt-
spyrnuunnendum í fersku minni enda mættust
þau á EM í Frakklandi 2016. Í dag reyna liðin
einmitt að komast aftur í lokakeppni EM. Í
Frakklandi fyrir fjórum árum og fimm mán-
uðum betur gerðu þjóðirnar 1:1-jafntefli. Eina
skiptið sem þau hafa skilið jöfn var á stóra
sviðinu í Marseille. Gylfi Þór Sigurðsson skor-
aði markið úr vítaspyrnu og var leikurinn í 2.
umferð riðlakeppninnar.
Vippa Arnórs í Laugardal
Að öðru leyti hefur Íslendingum gengið illa
gegn Ungverjalandi á þessari öld og hafa Ung-
verjar unnið fjóra leiki af fimm.
Á tíunda áratugnum kom hins vegar kafli
þar sem Íslendingum gekk vel að snúa Ung-
verja niður. Sú skemmtilega hrina hófst þegar
Ísland vann heldur óvæntan sigur, 2:1, í Ung-
verjalandi í júní 1992 í undankeppni HM. Ís-
lenska landsliðið hafði heldur sjaldan unnið góð
lið á útivelli í mótsleikjum og vakti sigurinn
mikla athygli fyrir vikið. Þorvaldur Örlygsson
og Hörður Magnússon skoruðu mörkin. Kom
Rúnar Kristinsson þar við sögu, faðir Rúnars
Alex sem er í leikmannahópnum í dag. Mark-
vörðurinn varði skalla Rúnars eftir fyrirgjöf
Andra Marteinssonar en markanef Harðar
brást honum ekki og skoraði hann af stuttu
færi. Eina markið á landsliðsferli Harðar, sem
hafði hins vegar hrellt markverði duglega á Ís-
landsmótinu.
Í keppninni vann Ísland einnig heimaleikinn
og þá 2:0. Eyjólfur Sverrisson, faðir Hólmars
sem er í leikmannahópnum í dag, skoraði fyrra
markið og Arnór Guðjohnsen vippaði knett-
inum glæsilega í netið í síðara markinu.
Þriðji sigurinn kom á Laugardalsvelli í júní
1995 og var í undankeppni EM 1996. Ungverjar
komust 1:0 yfir en Ísland vann 2:1. Guðni Begs-
son, núverandi formaður KSÍ, og Sigurður
Jónsson skoruðu mörkin. Báðir skiluðu þeir af-
ar góðu verki fyrir landsliðið um langa hríð en
skoruðu sjaldan í landsleikjum og því athyglis-
vert að þeir skyldu skora í sama leiknum. Sig-
urður skoraði þrjú mörk í 65 landsleikjum og
Guðni eitt í 80 landsleikjum.
Guðni jafnaði og var æsingurinn svo mikill að
honum nægði ekki að koma boltanum einu sinni
yfir marklínuna með skoti heldur fylgdi á eftir
með skalla. Sigurður skoraði sigurmarkið af yf-
irvegun eftir skallasendingu Ólsarans Ólafs
Adolfssonar. kris@mbl.is
Sætur sigur Íslands fyrir 28 árum
Ísland vann Ungverjaland þrívegis á tíunda áratugnum Jafnt á EM 2016
Morgunblaðið/Kristinn
Skoruðu Guðni Bergsson (7) og Sigurður Jóns-
son (4) í landsleik á tíunda áratugnum.
Masters-mótið í golfi, eitt af risa-
mótum fjórum í karlaflokki, hefst á
Augusta National í Georgíuríki í
Bandaríkjunum í dag. Mótið fer ár-
lega fram á Augusta í apríl og er þá
ávallt fyrsta risamót ársins hjá
körlunum í íþróttinni.
Í apríl á þessu ári var mótinu hins
vegar frestað vegna kórónuveir-
unnar. Engir áhorfendur verða
leyfðir á mótinu og er það í fyrsta
skipti í sögu þess en mótið var fyrst
haldið árið 1934.
Óvenjuleg
tímasetning