Morgunblaðið - 12.11.2020, Qupperneq 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2020
Selmen -West Highland
Verð 14.995.- / Stærðir: 36-41
Vatnsheldir dömu gönguskór
með memory foam innleggi
FRÍ HEIMSENDING
SKECHERS
SMÁRALIND - KRINGLAN
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Söguefnin í fluginu eru óteljandi
og mér finnst gaman að koma þeim
á framfæri. Til slíks er hlaðvarpið
hentugt form og viðbrögð hlustenda
hafa verið bæði sterk og góð,“ segir
Jóhannes Bjarni Guðmundsson
flugstjóri. Hann setti nýlega í loftið
podcastsíðu með viðtölum við fólk
sem tengist fluginu eða starfar á
þeim vettvangi. Þætti þessa má
nálgast undir Spotify og Apple pod-
cast undir heiti þeirra sem Flug-
varpið.
Flugstjórar segja frá
Í fyrsta þætti var rætt við Jón
Þór Þorvaldsson, formann Félags
íslenskra atvinnuflugmanna, um at-
vinnuhorfur og stöðu mála. Í öðrum
þætti var rætt við Þórarin Hjálm-
arsson flugstjóra sem stýrt hefur
þjálfun áhafna á Boeing 737-Max-
þotum Icelandair. Enn annar við-
mælandi var Sigríður Einarsdóttir,
flugstjóri hjá Icelandair. Hún var
árið 1984 ráðin fyrst kvenna í starf
flugmanns hjá félaginu og markaði
því spor. Nú, 36 árum síðar, er hún
einn reynslumesti flugstjóri félags-
ins, en frá ferli sínum og fleiru seg-
ir hún í viðtalinu.
„Sem sakir standa er tilveran í
hlutlausa gírnum, mér var sagt upp
hjá Icelandair í haust og hef lítið
flogið síðustu mánuði. Ég dett af
launaskrá um áramótin, en vonast
til þess að komast á flug aftur í
vor,“ segir Jóhannes Bjarni sem
fyrr á árum var fréttamaður hjá
Ríkisútvarpinu. Var fyrst starfandi
á svæðisútvarpinu á Ísafirði en
seinna á Sjónvarpinu. Stefndi þó
alltaf á flugið og var ráðinn til Flug-
félags Íslands árið 1999, en fór svo
á þotur Icelandair. Var fyrst flug-
maður en svo flugstjóri, fyrst í af-
leysingum frá 2007 en svo nánast
sleitulaust frá 2012. Hefur verið á
Boeing 757, 767 og 737 Max sem
vænst er að fljúga megi aftur á
næstu mánuðum.
Sem sakir standa eru starfandi
flugmenn hjá Icelandair um 140, í
lok ársins lætur um helmingur
þeirra formlega af störfum og er
Jóhannes í þeim hópi. Fyrir um ári
voru flugmenn Icelandair hins veg-
ar nærri 600.
Flugbransinn fái byr
„Áhugi minn á fjölmiðlum og
starfi á þeim vettvangi hefur aldrei
horfið og nú gafst tækifæri til að
gera skemmtilega hluti þar. Um
flugið get ég sagt að enginn virðist
vita hvað átt hefur fyrr en misst
hefur. Þúsundir starfa við flugið
sem er einn hlekkur af mörgum í
stórri keðju. Áhugi á greininni og
því sporti að geta flogið um loftin
blá er líka mikill meðal almennings;
til dæmis ungs fólk sem stefnir á
flugnám,“ segir Jóhannes Bjarni og
heldur áfram:
„Nú vona ég að fari að rofa til og
fljótlega á nýju ári fái flugbransinn
aftur byr undir báða vængi. Í því
liggja miklir hagsmunir okkar Ís-
lendinga því flugið er hin sanna
stóriðja okkar finnst mér. Bóluefni
við kórónuveirunni er vonandi að
koma og svo gengur ekki til lengdar
að nánast loka landamærum svo
misserum skiptir. Lífið verður að
halda áfram.“
Fjalla um slysið á Sri Lanka
Meðal annarra viðmælenda Jó-
hannesar Bjarna í Flugvarpinu hafa
verið Steinn Logi Björnsson, fram-
kvæmdastjóri fraktflutningafélags-
ins Bluebird Nordic, og Guðmundur
Harðarson, flugstjóri hjá Cargolux.
Í gær fór svo í loftið þáttur um
flugslysið á Sri Lanka árið 1978,
þar sem DC-8-þota Flugleiða fórst
og með henni 183, þar af átta Ís-
lendingar sem voru starfsmenn
flugfélagsins. 79 komust lífs af frá
slysinu, þar af fimm Íslendingar.
Þeirra á meðal voru flugfreyjurnar
Oddný Björgólfsdóttir og Þuríður
Vilhjálmsdóttir og Harald Snæhólm
flugstjóri, og við þau er rætt í þess-
um þætti.
Flugið fái byr undir báða vængi
Flugstjóri og fyrrv. fréttamaður haslar sér völl með hlaðvarpi Fjölbreytt Flugvarpið með fróð-
leik og viðtölum Væntir þess að komast aftur í loftið með vorinu Flugáhugi landans er mikill
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Frásagnir Áhugi minn á fjölmiðlum og starfi á þeim vettvangi hefur aldrei horfið og nú gafst tækifæri til að gera
skemmtilega hluti þar, segir Jóhannes Bjarni, hér á Reykjavíkurflugvelli við vél úr flota Flugklúbbsins Þyts.
Frumherji Sigríður Einarsdóttir, sem hóf störf sem flugmaður árið 1984,
fyrst kvenna hjá Icelandair, er meðal viðmælenda í Flugvarpinu.
Flugvarpið Nýr miðill sem vakið
hefur athygli fyrir fróðleik.
Vantar þig
pípara?
FINNA.is