Morgunblaðið - 12.11.2020, Page 59

Morgunblaðið - 12.11.2020, Page 59
DÆGRADVÖL 59 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2020 www.danco.is Heildsöludreifing Fyrirtæki og verslanir Leikföng í úrvali Kynntu þér úrval á vefverslun www.danco.is Frozen skartskrín Stationery m/spegil LOL skartskrín Stationery m/spegil Frozen EGG Stationery Surprise OL EGG Stationery Surprise PawPatrol bakpoki Team 31x24x11cm Hlaupahjól LOL Abec5 Tjald Frozen ll 120x120x87cm Tjald Spiderman 120x120x87cm Spiderman jóladagatal m/dóti A4 Mega pack límmiðar PawPatrol bakpoki m/Glitter 31x24x11 cm unum,“ segir Guðrún og hlær. Síðan var hún í alþjóðasamtökum strand- veiðimanna og fiskverkafólks, þar sem hún var fulltrúi Íslands, og í gegnum það hefur hún ferðast víða og kynnst fólki úti um allan heim. Fjölskylda Eiginmaður Guðrúnar er Einar Guðbjartsson, f. 28.11. 1949, útgerð- armaður. Foreldrar hans eru Petr- ína Friðrika Ásgeirsdóttir hús- móðir, f. 7.6. 1904, d. 16.8. 1992, og Guðbjartur Sigurður Guðjónsson bóndi, f. 2.2. 1904, d. 10.2. 1992. Börn Guðrúnar og Einars eru 1) Kristján Friðrik, skipstjóri og hár- snyrtifræðingur, f. 8.1. 1970, kvænt- ur Hönnu Dís Guðjónsdóttur leik- skólakennara, f. 2.8. 1973. Börn þeirra eru Kári Freyr, Eva Sóley og tvíburarnir Einar Friðrik og Guðjón Daði. 2) Birkir Jónas skipstjóri og vélstjóri, f. 6.7. 1977, kvæntur Maríu Bjargey Davíðsdóttur leikskóla- kennara, f. 8.10. 1987. Börn þeirra eru Svala Katrín og Ingimar Davíð. 3) Steinunn Guðný, skipverji og ferðamálafræðingur frá Hólum og núna gæðastjóri hjá Arctic Fish, f. 1.1. 1983, gift Agli Ólafssyni, sjó- manni og verkefnisstjóra hjá Arctic Fish, f. 8.7. 1983. Synir þeirra eru Benedikt Einar og Brimar Helgi. Systkini Guðrúnar sammæðra eru 1) Elísabet Anna Pétursdóttir, f. 13.8. 1957; Ágúst Guðmundur Pét- ursson, f. 27.5. 1959; Baldur Pét- ursson, f. 28.11. 1961 og Sævar Ingi Pétursson, f. 28.9. 1964. Systkini Guðrúnar samfeðra eru Kristján, f. 23.1. 1944; Ingimundur, f. 1.4.1952 og Erna Ingibjörg, f. 27.10. 1955. Foreldrar Guðrúnar eru Jónína Sigríður Ágústsdóttir, f. 6.7. 1926, og Páll Einarsson, f. 16.8. 1917. „VIÐ GEYMUM LITAPRENTHYLKINN FYRIR BLEKSPRAUTUPRENTARANN ÞARNA.” „ÉG VIRÐIST BARA GANGA Í HRINGI ALLAN LIÐLANGAN DAGINN!” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að hafa stórt hjarta. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann EKKI ÁTTI ÉG VON Á ÞVÍ AÐ VERA GLAÐUR AÐ SJÁ HRÓLF! LEYFÐU MÉR AÐ GISKA… ÞÚ ERT BÚINN AÐ TÝNA LYKLUNUM! ALDREI BREYTAST PÚKI… VERTU EINS OG ÞÚ ERT, HVAÐ SEM ÞAÐ NÚ ER Ólafur Stefánsson yrkir „Átvagl-ið“ og skýrir sig sjálft: Hann snæðir geitur frá Gana gráðost af þjóðlegum vana, sagó úr skál eins savoy-kál, og Haítí-bardagahana. Guðmundur Stefánsson sendi mér póst: „Bárðdælingurinn séra Erlendur Þórðarson var ókvæntur þegar hann fékk veitingu fyrir Oddaprestakalli á Rangárvöllum. Sýslungi hans, Þura í Garði, orti“: Eiga vildi ég Erlend prest, yfirsæng og kodda, væna kú og vakran hest og vera frú í Odda. Gunnar M. Sandholt sendi mér póst: „Vegna vísu í Vísnahorni um Hólmgeir og andskotann rifjaðist upp fyrir mér önnur er rær á svipuð mið en þó öllu kristilegri: Snillingurinn Jón Þórisson, leik- myndahönnuður með meiru, var stundum kallaður Jón mínus þar sem hann vann lengi í Iðnó og hafði þann starfa að draga leiktjöldin frá! Sel það ekki dýrara en ég keypti það. Hitt veit ég að hann vann að uppsetningu margra merkustu safna og sýninga á landinu, m.a. Þórbergsseturs og Kjarvalsseturs- ins á Borgarfirði eystra. Á Vísnavef Skagfirðinga segir svo: (Hann) vann við gerð mynd- arinnar Land og synir norður í Svarfaðardal og þegar leið á sumar varð Jón æ villimannslegri, skeggj- aður og úfinn. Einu sinni sem oftar var Jón staddur á bensínstöðinni á Dalvík og orti til stúlknanna þar eft- ir að þær höfðu haft orð á því að hann liti út eins og Jesús Kristur“: Þó að líkir séum í sjón og svipuð birta af okkur lýsi. Þá er klárt að ég er Jón því Jesús greiðir öðru vísi. Á Boðnarmiði á þriðjudags- morgun orti Guðmundur Arnfinns- son og kallaði „Árdegi“: Djarfar fyrir dagsins brún, draumar sundur rakna, gleður auga geislarún, gott er enn að vakna. Guðmundur Beck svaraði: Arnfinnsson með alúð kyndir … aflinn bragar slynga. Aflar vel til óðar þinga ættasómi Breiðfirðinga. Hallmundur Kristinsson yrkir: Ég er fallega lagið sem flutt var í gær. Ég er fóturinn undir stólnum. Ég vera kann einnig hin vonglaða mær, sem vindur sér brátt úr kjólnum. Ég er bóndinn sem brosti í kampinn, í búri þótt ætti fátt. Ég er stúlkan sem prumpaði í stampinn. Ég er stefna í rétta átt. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Átvaglið og frúin í Odda

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.