Morgunblaðið - 12.11.2020, Qupperneq 61

Morgunblaðið - 12.11.2020, Qupperneq 61
FÓTBOLTI Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is U21-árs landslið Íslands í knatt- spyrnu er í sannkölluðu dauðafæri að komast á sitt fyrsta stórmót síðan ár- ið 2011 þegar liðið tryggði sér sæti í lokakeppni EM eftir umspil gegn Skotum. Íslenska liðið mætir Ítölum í dag í 1. riðli undankeppni EM karla á Vík- ingsvelli í Fossvogi en liðið leikur svo gegn Írlandi 15. nóvember í Dublin. Þá átti liðið að leika gegn Armenum á Kýpur 18. nóvember en þeim leik hefur verið frestað vegna stríðs- ástandsins í Armeníu og verður að teljast ólíklegt að hann fari fram. Ísland er með 15 stig í fjórða sæti riðilsins, jafnmörg stig og Svíar, en íslenska liðið á leik til góða á sænska liðið. Ítalía og Írland eru í efstu tveimur sætunum með 16 stig en Ís- land á leik til góða á Íra. Lokakeppni EM 2021 fer fram í Slóveníu og Ung- verjalandi. Þær níu þjóðir sem hafna í efsta sæti síns riðils fara beint á EM, sem og þær fimm þjóðir sem eru með bestan árangur í öðru sæti riðla- keppninnar, og íslenska liðið því með örlögin í sínum höndum fyrir leikina mikilvægu. Á réttri leið „Allir leikmenn liðsins eru frískir og klárir í slaginn gegn Ítölum,“ sagði Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska liðsins, í samtali við Morg- unblaðið. „Það eru fjögur lið í þessum riðli sem eiga mjög góða möguleika á því að fara áfram í lokakeppnina. Það verður að teljast líklegt að tvö lið úr riðlinum fari á EM og við viljum að sjálfsögðu vera annað þeirra. Eins og staðan er núna er afar ólíklegt að leikurinn gegn Armeníu fari fram og okkur yrði þá úrskurðaður sigur gegn þeim. Maður þarf þess vegna ekki að vera búinn með viðskiptafræði í HÍ til að átta sig á því að 4-6 stig gegn Ítölum og Írum ættu að setja okkur í efstu tvö sætin og það er frábært að geta sagt það upphátt. Markmiðið hjá mér, Eiði Smára Guðjohnsen og auðvitað strákunum, áður en undan- keppnin hófst, var að vera í barátt- unni um sæti í lokakeppninni eins lengi og kostur var og það hefur tek- ist,“ bætti Arnar við en hann tók við þjálfun U21-árs landsliðsins í janúar 2019. Styttri undirbúningur Ari Leifsson og Valdimar Þór Ingimundarsson, leikmenn liðsins og Strömsgodset í Noregi, þurftu að fara í sóttkví við komuna til landsins á mánudaginn síðasta þar sem liðs- félagi þeirra í Noregi greindist með kórónuveiruna. „Ari og Valdimar fóru í kórónu- veirupróf við komuna til landsins og svo aftur í gær. Bæði prófin reynd- ust neikvæð og eftir að læknir liðsins fór yfir atburðarásina með bæði ís- lenskum stjórnvöldum, sem og læknateymi Strömsgodset, varð ljóst að þeir geta tekið þátt í leiknum. Þeir losnuðu úr sóttkví í gær og gátu þess vegna æft með okkur í gærdag sem var ánægjulegt. Undirbúningurinn fyrir þessa tvo leiki hefur verið styttri en venjulega þar sem við spilum á fimmtudegi og flestir leikmenn liðsins spiluðu á sunnudaginn um síðustu helgi. Við tókum þá ákvörðun að fá strákana til landsins á mánudaginn og þetta hafa því verið tvær æfingar sem hópurinn hefur náð allur saman. Þeir sem spila á Íslandi æfðu reyndar á mánudaginn en restin á þriðjudag og miðvikudag. Ari og Valdimar hafa báðir verið í hópnum undanfarið eitt og hálft ár og vita því út á hvað þetta gengur og ég hef ekki áhyggjur af því að þetta muni hafa einhver áhrif á spilamennsku þeirra eða einbeitingu þegar út í leikinn gegn Ítölum er komið.“ Stjórnlausar aðstæður Leikurinn gegn Ítölum átti að fara fram í október en var frestað eftir að kórónuveirusmit greindist í þremur leikmönnum ítalska liðsins við kom- una til landsins. „Auðvitað hefðum við viljað spila í október þegar leikurinn átti að fara fram en þetta er nokkuð sem við get- um ekki stjórnað. Það er þess vegna ekki í boði að láta utanaðkomandi að- stæður eins og kórónuveirufarald- urinn trufla sig. Við höfum reynt að leiða þetta hjá okkur þótt ég geti al- veg viðurkennt að þetta er búið að vera erfitt fyrir alla á köflum. Þegar allt kemur til alls þá er gríð- arlega mikilvægt fyrir þessa ungu stráka að fá þessa leiki. Þetta fer beint í reynslubankann hjá þeim og kemur þeim upp í hærri gæðaflokk, fótboltalega séð. Leikmenn eins og Gylfi Þór [Sigurðsson], Aron Einar [Gunnarsson] og Jóhann Berg [Guð- mundsson] spiluðu svona leiki í loka- keppninni 2011 og við sjáum hvar þeir eru í dag. Þetta eru leikir á móti stórum þjóðum sem eru alveg á pari þannig séð við leiki í atvinnumennskunni eða A-landsleiki. Það eru mikil gæði og hraði og þetta er frábær áskorun fyrir þessa ungu knattspyrnumenn að fá svona stóra úrslitaleiki,“ bætti þjálfarinn við í samtali við Morg- unblaðið. Morgunblaðið/Eggert Þjálfari Arnar Þór Viðarsson ætlar sér á stórmót með U21-árs landsliðið. Leikirnir sem hjálpa mönn- um að taka næsta skref  U21-árs landslið Íslands mætir Ítalíu í úrslitaleik á Víkingsvelli í Fossvogi í dag ÍÞRÓTTIR 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2020 Ég reikna með því að landsliðs- þjálfarinn, Erik Hamrén, veðji á reynda leikmenn í leiknum mikil- væga gegn Ungverjalandi í Búda- pest í dag. Þrír þeirra leika með íslenskum félagsliðum; Hannes Þór Hall- dórsson og Birkir Már Sævars- son með Íslandsmeistaraliði Vals og Kári Árnason með Víkingi. Undanfarnar vikur hafa verið strangar sóttvarnaaðgerðir hér á landi með tilheyrandi samkomu- banni. Það þekkjum við öll sem hér búum. Þessir leikmenn hafa því ekki getað stundað hefð- bundnar fótboltaæfingar í lang- an tíma og síðast var keppt í efstu deild karla 4. október. Íþróttamenn venjast ákveð- inni festu þar sem æft er svo gott sem daglega og endalausar endurtekningar eru fram- kvæmdar til að hafa ýmis atriði í lagi. Þar af leiðandi er óheppilegt fyrir leikmenn að missa úr æf- ingar og detta út úr vanaferlinu. Menn geta orðið örlítið óörugg- ari fyrir vikið, sem getur haft áhrif á frammistöðu. Í þessu tilfelli hjálpar hins vegar mjög að leikmennirnir þrír eru þrautreyndir og eru nær fertugu en þrítugu. Eru því líklegri til að halda ró við þessar aðstæður og mér þykir því sennilegt að þeim verði teflt fram í dag. Þar að auki hefur íslenska landsliðið oft náð frábærum úr- slitum þótt á ýmsu gangi hjá mönnum með félagsliðum sín- um. Það virðist bara ekki skipta máli. Vonandi verður slíkt upp á teningnum varðandi þá sem hafa ekki getað beitt sér að ráði. Ísland komst á EM og HM án þess að fara í umspilsleiki sem þennan. Liðið tapaði fyrir Króat- íu í umspili 2013 og lærðu menn örugglega mikið af þeim leikjum. Til dæmis hvernig er að vera með heila þjóð á bakinu. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is Bjarki Már Elís- son skoraði tíu mörk úr ellefu skotum er Lemgo tapaði 26:32 á heimavelli gegn Oddi Gretarssyni og félögum í Bal- ingen í þýsku efstu deildinni í handknattleik í gærkvöldi. Oddur skoraði úr báðum skotum sínum fyrir heimamenn sem voru að vinna sinn fyrsta sigur á tímabilinu, eru í 19. og næstneðsta sæti með tvö stig eftir sjö leiki. Lemgo er í sjö- unda sæti með átta stig. Viggó Kristjánsson skoraði sex mörk en Elvar Ásgeirsson ekkert er Stuttgart tapaði á útivelli gegn Er- langen, 34:25. Stuttgart er í 5. sæti með níu stig en Erlangen í 11. sæti með sjö stig. Ómar Ingi Magnússon skoraði sex mörk og Gísli Þorgeir Kristjánsson eitt fyrir Magdeburg sem mátti þó þola 31:33-tap á heimavelli gegn RN Löwen. Ýmir Örn Gíslason komst ekki á blað hjá gestunum og Alex- ander Petersson var ekki með. Þá þurfti að fresta leik Flensburg og Melsungen. Guðmundur Þórður Guðmundsson þjálfar liðið. Unnu loks gegn tíu marka Bjarka Bjarki Már Elísson Ekki er útlit fyrir annað en Ísland mæti Slóveníu í undankeppni EM kvenna í körfuknattleik á Krít í Grikklandi í dag klukkan 15 þótt á ýmsu hafi gengið þar ytra. Þegar blaðið fór í prentun í gær- kvöldi voru alla vega ekki upplýs- ingar um annað. Fjögur lið dvelja á Krít og munu spila þar leiki í undan- riðlinum eins og fram hefur komið. Mbl.is greindi frá því í gær að kór- ónuveirusmit hefði komið upp í her- búðum hinna þriggja liðanna en ekki því íslenska. Þegar rætt var við Hannes S. Jónsson, formann KKÍ, í gær sagði hann KKÍ hafa mótmælt því að leik- urinn færi fram. Væri það í raun ítrekun því KKÍ var á móti því að keppni í riðlinum yrði haldið áfram með þessu fyrirkomulagi á þessum tímapunkti. Sagði hann KKÍ hafa mótmælt því bæði í september og október en án árangurs. Í gær hafði KKÍ verið tilkynnt um smit í herbúðum hinna liðanna en Ís- lendingarnir höfðu að öðru leyti litla vitneskju um hvort það væru allt leikmenn sem væru smitaðir eða fólk úr fylgdarliðinu. Í íslenska hópnum hafði enginn fundið fyrir einkennum sem fylgja veirunni. Mótmæli KKÍ breyta engu á Krít  Leikið gegn Slóveníu í dag þrátt fyrir kór- ónuveirusmit í herbúðum andstæðinganna Morgunblaðið/Hari Mikilvæg Sara Rún Hinriksdóttir í landsleik gegn Búlgaríu í fyrra. „Ég þekki Arnar mjög vel og þeir [Víkingar] spila frábæran fótbolta. Ég er ekki kominn hingað til þess að slaka á heldur er ég hérna til þess að berjast um þá titla sem í boði eru,“ sagði knattspyrnumað- urinn Pablo Punyed í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann er genginn í raðir Víkings frá KR og er það fimmta liðið sem Punyed spilar fyrir hérlendis en hann er frá El Salvador. Hann hef- ur einnig leikið með Fjölni, Stjörn- unni, ÍBV og Fylki frá því 2012. sport@mbl.is Pablo Punyed frá KR til Víkings Morgunblaðið/Árni Sæberg Reyndur Pablo Punyed varð meist- ari með Stjörnunni og KR. KR-ingar hafa fengið liðstyrk fyrir átökin á Íslandsmóti karla í knatt- spyrnu á næsta keppnistímabili. Framherjinn Guðjón Baldvins- son hefur gert tveggja ára samn- ing við KR en hann lék með liðinu á árunum 2008-2011 og varð tví- vegis Íslandsmeistari með því. KR greindi frá tíðindunum á vefsíðu sinni í gær. Tilkynnt var á dögunum að Guðjón væri á förum frá Stjörn- unni. Þar er hann uppalinn og sneri aftur í Garðabæinn árið 2015. Guðjón aftur í Vesturbæinn Morgunblaði/Arnþór Birkisson Baráttuglaður Guðjón Baldvinsson er harðduglegur á velli.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.