Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.03.1990, Síða 5

Bæjarins besta - 21.03.1990, Síða 5
BÆJARINS BESTA 5 Elliheimilið á Mánagötu: Eigum við að loka augunum áfram eða á loksins að gera eitthvað raunhæft til að leysa vanda vistmanna þar? Hlíf I verið vísað til öldrun- arráðs. Kosningamál í 20 ár Ráðið tók á fundi 5. mars jákvæða afstöðu til skýrslu nefndarinnar á almennan hátt og segir í fundargerð að ráðið telji „brýnt að fundin verði lausn á þeim mikla vanda er varðar málefni vist- manna á Elliheimilinu við Mánagötu" en gaf ekki út neina afstöðu til framkom- inna tillagna. Snorri Her- mannsson formaður öldrun- arráðs sagði í samtali við BB að á næstu fundum í ráðinu yrði fjallað um þær nánar og búast mætti við að eftir nokkrar vikur yrði óskað eft- ir nánari útfærslu á einhverri þeirra, þ.e. kostnaðar- og frmakvæmdaáætlunum. „Þetta er búið að vera kosn- ingamál f 20 eða 30 ár og margar tillögur hafa komið fram en ekkert hefur verið gert“ sagði Snorri. „Það eru engir peningar til. Við fórum fram á fjármagn, 1,5 m.kr. til endurbóta á eldhúsinu en því miður fékkst það ekki.“ Smári Haraldsson sagði í samtali við blaðið að ástæð- an fyrir því að þessi tillaga var felld væri sú að í skoðun væri að fá mat fyrir vistmenn elliheimilisins sendan frá sjúkrahúsinu eða Hótel ísa- firði og ekki þætti rétt að leggja mikið fé í eldhúsið ef af þvf yrði. Elliheimili eða sjúkrahús Að sögn þeirra bæjar- og öldrunarráðsfulltrúa sem BB hefur talað við er staðan nú sú að allir vilja leysa vand- ann með einhverjum hætti en tíma getur tekio að kom- ast að samstöðu um eina til- lögu. Fyrst og fremst þarf að sætta öndverð sjónarmið um hvort leggja eigi fé í einhvers konar húsnæði fyrir þennan hóp aldraðs fólks eða hvort réttar sé að leggja fólk sem þarf mikla aðstoð við dagleg- ar þarfir inn á legudeild sjúkrahússins, þ.e. þegar hún verður tilbúin innan ein- hverra ára. Það má því búast við því að enn á ný snúist umræðan um það hvort elli- heimili eigi rétt á sér eða ekki. Ýmsir telja að ekki sé þörf á sérstöku heimili fyrir þetta fólk þar sem það sé orðið það veikburða að það þurfi stöðugrar læknisþjón- ustu við og hópurinn sé ekki stærri en svo að legudeildin ætti að geta tekið við hon- um. Það er hins vegar skoðun margra, að aldrað fólk eigi rétt á að geta eytt síðustu árum ævinnar á heimili þar sem það nýtur persónulegrar og heimilislegrar umönnun- ar og legudeildir sjúkrahúsa séu ekki boðlegir kostir fyrir það fólk sem er andlega ernt þó líkaminn sé farinn að gefa sig. Nú eru kosningar í nánd enn á ný og vera má að vegna þeirra haldist þessi umræða vakandi enn um sinn og einhverjar ákvarðan- ir verði teknar. Það væri sorglegt til þess að vita að hún koðni niður jafnskjótt og þær eru yfirstaðnar. Vist- menn elliheimilisins hljóta að eiga meira skilið en það að eina framkvæmdin á ár- inu í málum þeirra verði sú að meindýraeyðir eitri fyrir skordýraplágunni í eldhús- inu á heimili þeirra fyrir vor- ATRAUSTUM GRUNNI HÖFUM Á LAGER: ALHLIÐA RUSLAKASSA, EINFALDA OG TVÖFALDA. Vélsmiðj a Bolungavíkur VERSLUN VÉLSMIÐJA BLIKKSMIÐJA BÍLAVERKSTÆDI RENNISMÍÐI BILAMÁLUN SMURSTÖÐ HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA © 7370

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.