Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.03.1990, Side 7

Bæjarins besta - 21.03.1990, Side 7
BÆJARINS BESTA Kjallaragrein: Kristni H. Gunnarssyni svarað Guðmundur B. Jónsson skrifar: IEINUM af fastaþáttum Kristins H. Gunnarssonar í fjölmiðlum, þar sem hann er að skrifa um gjafir á upp- fyllingu fyrir Vélvirkjann sf. tekur hann eftirfarandi með: „Mér þykir taka í hnúkana þegar forstjóri vélsmiðju ber bœjarfulltrúum á brýn nei- kvæð viðhorf. Sannar það að sjaldan launar kálfur ofeld- ið. Ég hef ekki séð annað en vélsmiðjur hér í bæ komist upp með að framvísa ótrúleg- um reikningum vegna vinnu við tæki bœjarins og félagar Víðis í bœjarstjórn hafa gleypt þá alla án þess að hafa „neikvœð viðhorf ‘ afneinum sérstökum þrótti. Mér finnst ekki sjálfsagt að borga V2 milljón fyrir viðgerð á tœki sem gera átti við fyrir 100 þús kr. Mér finnst heldur ekki sjálfsagt mál að borga 80 þús kr. fyrir viðgerð á vörubíls- hurð þegar ný hurð kostar 40 þús kr. svo ég nefni tvö dœmi og er af nógu að taka í þess- um efnum“ (Tilv.lýkur). Ég vil, að það komi fram, að Vélsmiðja Bolungavíkur hf. vann áðurgreind verk, en ekki aðrir. Eins og þetta er sett fram liggja allir undir þessu ámæli. Ég hvorki vil né get legið undir því að hafa stolið af bænum stórum upp- hæðum. Bæði er að ég var í hreppsnefnd, bæjarstjórn og ótal nefndum og ráðum fyrir Bolungavík og heildarsam- tök sveitarfélaganna, og ég hélt, að ég hefði leyst þau störf samviskusamlega af hendi og hefði enn trúnað. Nú er annað að koma í ljós eftir þessa grein og vil ég, að bæjarstjórn taki þessi við- skipti til athugunar og fái hlutlausa kunnáttumenn til að meta þessi verk, og ef þetta hefur verið of dýrt hjá okkur skulum við endur- greiða bænum þann mismun strax. Bærinn hefur ekki skipt mikið við okkur. í sambandi við Volvo vörubifreið og Cat vél, þá erum við þjónustuað- ilar fyrir bæði þessi tæki. Meðan á viðgerð stóð var oft haft samband við þá aðila sem sjá um viðhaldið og þeir ákváðu þessa viðgerð. Eftir- farandi verklýsing var send með reikningi: Bæjarsjóður CAT vél. 1. Smíða tjakkstangir, gert við auga. 2. Gert við álhús fyrir ás- þéttingu f. hjólöxul, soðið og rennt. 3. Réttur öxull fyrir bremsur í einu hjóli. 4. Gert við lok fyrir stjörnugír, soðið og rennt (mikið sprungið og viðgert áður og þá soðið með rústfrí- um vír og torveldaði það við- gerð nú). 5. Festiboltar fyrir tjakka viðgerðir. 6. Renndar 4. stk. bremsuskálar og stillt upp bakplan (mikið rifnar og seinrennt vegna þunga skál- anna og því seinunnið). 7. Tjakkar teknir úr, þétt- ingar endurnýjaðar og kom- ið fyrir. 8. Allar bremsur teknar, borðar hnoðaðir á og gengið frá. (Skálar voru mjög fastar á). 9. Aukinn tími við rennsli vegna þess að ekki var hægt að rífa öll hjól í einu. 10. Braket fyrir bremsu- öxla voru bogin, hituð og rétt. 11. Endurnýjaðar þétting- ar fyrir hjólnaf. 12. Sett olía á stjörnugíra og bætt á drif. Kostnaöaráætlun á nýja vörubílshurð: Hurð kr. 75.000., sprautun kr. 25.600, taka úr gömlu og setja í nýju hurðina (læsingu, rúður, innrabyrði o.fl.) kr. 18.500. Samtals kr. 119.200. Viðgerð á gömlu hurðinni: Ytra byrði kr. 15.000., sprautun kr. 25.700. Að auki var gamla byrðið tekið af, töluverð ryðbæting á hurð sem sást ekki fyrr en hún var tekin í sundur. Ryðvörn og fleira sem var gert um leið við bílinn. Samtals ca. kr. 80.000,- Vélsmiðja Bolungavíkur hf. gerði engin tilboð í þessi verk og var ekki beðin um þau. Eins og sjá má var ný hurð dýrari og bara tvær tjakkstangir í Cat vél kostuðu kr. 260 þúsund í Reykjavík. Þegar bæjarstjórn skoðar viðskipti bæjarins við Vél- smiðju Bolungavíkur hf. má skoða um leið t.d. útboð vegna nýja skólans o.fl. Mér telst til að þið hafið sparað 1.7 milljónir króna vegna þess hve við vorum ódýrari en önnur tilboð og kostnað- aráætlanir. Það er ágætt að hafa að- hald eins og sum málmiðn- aðarfyrirtæki hafa, hjá ein- um bæjarfulltrúanum sérstaklega, en sá sami er alltaf með blaðaskrif um að semja beri við einn aðila þegar um trésmíðavinnu er að ræða og verður mjög sncfsinn, þegar það er ekki gert. í sambandi við viðskipti bæjarins við Vélsmiðju Bol- ungavíkur hf. get ég upplýst, að s.l. 8 ár hafa þau verið 136 verk, frá þremur á ári upp í rúm 20. Meðaltal 19,4 eða 2,4 verk í mánuði. Hluti af viðskiptum við okkur er cfni, hjólbarðar o.fl., sem aðrir eru ekki með. Við- skipti bæjarsjóðs þ.e. við- gerðir o.þ.h. voru 3,75% af veltu Vélsmiðju Bolungavík- ur hf. á árinu 1989 og hafnar- sjóðs 1%. Það skal tekið fram, að söluskattur var greiddur af þessum upphæð- um og hleypir það verðinu mikið upp. Við getum ekki komist upp með neinn und- andrátt eins og bæjaryfirvöld eru sökuð um, en það er mál sem aðrir hljóta að rann- saka, ef bæjarsjóður lækkar vélar niður í hálft gjald þeg- ar það hentar. Það getum við ekki gert. Einnig vil ég segja, að allt uppfyllingarefni og annað sem við höfunt keypt af bæn- um hefur verið á fullu verði og þegar við byggðum nýj- ustu húsakynnin okkar á versta stað í bænum hvað grunn snertir á lóðinni næst Pósti & síma, þá var einnig port á lóðinni, sem við þurft- um að byggja upp á nýjum stað. Ég veit ekki um aðra, sem hafa þurft að leggja út í kostnað til að fá lóð. Síðast þegar ég heyrði, að Kristinn væri að fylgjast með rekstri smiðjanna og bíla- verkstæðanna, var hann að fá uppgefið hjá bæjarskrif- stofunni, hver viðskipti þeirra við bærinn væru. Nið- urstöður úr þeirri athugun voru, að það væru mjög svip- uð viðskipti við þessi fyrir- tæki og sætti Kristinn sig vel við það. Þegar könnunin var gerð var Vélsmiðja Bolunga- víkur hf. með 19 starfsmenn, en hin fyrirtækin með örfáa. Jafnaðarmennska það. Hann gleymdi að spyrja, hvað fyr- irtækin borguðu í bæjarkass- ann. Eftir könnunina, sem gerð var um árið, bauð ég Kristni að koma og fylgjast með hér hjá okkur. Hann hefur aldrei komið. Ég þykist vita, að hann treysti okkur. Svo vinna hér nánustu samstarfs- menn hans í Alþýðubanda- laginu, svo hann gæti fengið allar upplýsingar. Ég vona að Kristinn og aðrir bæjarfulltrúar komi og fái réttar upplýsingar, ef þeim liggur eitthvað á hjarta um viðskipti, sem bærinn á við Vélsmiðju Bolungavíkur hf. Mér leiðast svona skrif og þau fá mikið á mig. Enn- fremur jaðrar þetta við at- vinnuróg og við höfum alltaf haft viðskipti utan bæjarins einnig, en ég lái engum að skoða þau viðskipti, þegar menn sjá svona skrif, sem hljóta að skaða þetta fyrir- tæki, ef einhverjir taka mark á þessum skrifum. —frh. ♦ Útsölukjötið er komið aftur! Verslið hagkvœmt 0PIÐ: MÁNUDAGATIL FIMMTUDAGA KL. 9-18. FÖSTUDAGA KL. 9-19 LAUGARDAGA KL. 10-13. VÖRUVAL LJÓNINU SKEIÐI — SÍMI 4211 BÚÐ SEM STENDUR UNDIR NAFNI - ódýrara en þig grunar.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.