Bæjarins besta - 21.03.1990, Page 8
8
BÆJARINS BESTA
Ég mundi vilja snúa við
máltækinu, sem Kristinn
notar, og segja: Hvar væri
bærinn án íbúanna og þeirra
dugnaðar og skatta, sem þeir
greiða í bæjarkassann?
Ég vona að Kristinn og
aðrir bæjarfulltrúar skipti
áfram við okkur, eins og þeir
hafa alltaf gert.
Með þakklæti fyrir birting-
una.
f.h. Vélsmiðju
Bolungavíkur hf.
Guðmundur B. Jónsson,
fram kvæmdastj óri.
Hefur þú áhuga
á lifandi og
fjölbreyttu starfi?
Okkur vantar nú
þegar blaðamann
til starfa á
Bæjarins besta.
Allar nánari
upplýsingar veitir
Sigurjón í símum
4560 og 4570 eða !
4277 á
kvöldin
BÆJARINSBESIA
- lifandi blað.
Fyrstu verðlaun í samkeppni
um heiti á þennan furðufugl
eru 25.000 krónur.
Djúpferðir h.f.:
Kaupa Brimrúnu
á 6,8 m.kr.
Stofnfundur Djúpferða h.f.
verður haldinn á sunnudag
BOÐAÐ hefur verið til
stofnfundar Djúpferða
h.f. þann 25. mars á Hótel
Isafirði. Aðdragandinn að
stofnun þessa fyrirtækis er sá
að í byrjun desember boð-
uðu nokkrir áhugamenn um
bætta ferðaþjónustu til fund-
ar á Hótel Isafirði og var til-
gangurinn með fundarboð-
inu sá að kanna hug manna
til stofnunar hlutafélags í
þeim tilgangi að reka hrað-
skreiðan farþegabát.
Á fundinum voru stofnað-
ar tvær nefndir, bátakaupa-
nefnd og markaðs- og rekstr-
arnefnd, og hafa þær nú
skilað niðurstöðum. Álit
þeirra er að heppilegt sé að
festa kaup á bát Eyjaferða,
Brimrúnu, og að brúttóinn-
koma á bátinn geti orðið um
2,5 m.kf. með 40% nýtingu.
í kynningu frá væntanlegu
hlutafélagi segir að Brimrún
uppfylli þau skilyrði sem sett
voru hvað varðar verð og út-
búnað. Gert hefur verið til-
boð í bátinn að upphæð 6,8
milljónir króna með fyrir-
vara um stofnun hlutafélags.
Gerð hefur verið gróf
rekstraráætlun fyrir Djúp-
ferðir þar sem gert er ráð
fyrir að tekið verði kaup-
leigulán að upphæð 3,1
m.kr. til fimm ára og að
hlutafé nemi 4 m.kr. Áætlað
er að rekstrar- og lántöku-
kostnaður verði tæplega 2,4
m.kr. Áætlunin er byggð á
upplýsingum frá Hótel Isa-
firði, Ferðaskrifstofu Vest-
fjarða og Djúpbátnum h.f.
UMFI:
Hvað á fuglinn
að heita?
U.M.F.Í. býður grunnskólunum
til samkeppni um heiti á tákni
20. landsmótsins
20. LANDSMÓT UMFÍ
fer fram 12.-15. júlí í
sumar í Mosfellsbæ. í tilefni
þess hefur U.M.F.Í. boðið til
hugmyndasamkeppni um
nafn á tákn mótsins um allt
land.
Táknið er meðfylgjandi
teikning af furðufugli eftir
Halldór Baldursson og verð-
ur það notað í auglýsinga-
teiknimyndir og kynningar á
mótinu. Rétt til þátttöku
hafa allir grunnskólanemar á
landinu og heimilt er að
senda fleiri en eina tillögu
frá hverjum þátttakenda.
Skilafrestur er til 1. apríl.
Fyrstu verðlaun eru 25.000
krónur og auk þess verða
veitt 50 aukaverðlaun sem
verða bolir með tákni lands-
mótsins. Tillögur á að senda
til Landsmótsnefndar
UMFÍ, Tindastóli, Álafoss-
vegi, pósthólf 275, 270 Mos-
fellsbæ.
ER ÞITT FYRIRTÆKI MEÐ Á
NÓTUNUM?______________________
ÞJÓNUSTUSÍÐA BB ER ÁHRIFAMIKILL OG ÓDÝR
VETTVANGUR AUGLÝSENDA.
KANNAÐU MÁLIÐ!
Vigur verður væntanlega einn af viðkomustöðum Brimrúnar.
Isafjörður:
Námskeið í
næringarfræði
og mataræði
NÁMSKEIÐ í næringar-
fræði og matarræði
verður haldið á ísafirði dag-
ana 26.,27. og 28. mars n.k. í
Grunnskólanum. Á nám-
skeiðinu sem hefst kl. 20 alla
dagana verður rætt um alla
matarflokka, kolvetni, syk-
ur, prótein, eggjahvitu, fitu
og vökva.
Einnig verður rætt um
meltingu, upptöku og frásog
næringaefna í meltingarkerf-
ínu.
í lok námskeiðs verða síð-
an almennar umræður og
fyrirspurnir. Kennari og
leiðbeinandi verður Magni
Björnsson.
Allar nánari upplýsingar
um námskeiðið fást hjá
Hansínu og Helgu í síma
3621 sem einnig skrá þátt-
takendur.
Fréttatilkynning
F.O.S.Vest:
Fordæmir hækkanir
á vöru og þjónustu
STJÓRN Félags opin-
berra starfsmanna á
Vestfjörðum fordæmir
hækkanir á vöru og þjónustu-
gjaldskrám ýmissa opinberra
stofnana og fyrirtækja þ.m.t.
sameignafyrirtækja ríkis og
sveitarfélaga, sem átt hafa
sér stað þvert ofan í umsamin
markmið og algjörar for-
sendur þjóðarsáttar.
Forsvarsmenn aðildarfé-
laga að þessari þjóðarsátt
hafa lagt sig fram við að
sannfæra félaga sína um
nauðsyn þess að taka ábyrg-
an þátt í þessari tilraun í
trausti þess, að allir taki á sig
þá „frystingu óréttlætis“ sem
í henni felst, þrátt fyrir að
launanefnd geti fært gild rök
fyrir réttmæti leiðréttingar
launa.
Því er það skýlaus krafa að
þessar hækkanir verði þegar
í stað dregnar til baka og að-
ilar sýni þann drengskap að
standa við gefin fyrirheit.
Verði það ekki gert er ljóst
að forsendur samkomulags-
ins eru brostnar og hlýtur að
verða tekið mið af því við
fyrsta rauða strikið í maí
næstkomandi.
í Ijósi ofanskráðs lýsir
stjórn F.O.S.Vest. yfir full-
um stuðningi við afstöðu
Starfsmannafélags Selfoss og
yfirlýsingu viðræðunefndar
Samflots frá 1. maí 1990.
Stjórn F. O. S. Vest