Morgunblaðið - 17.12.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.12.2020, Blaðsíða 2
Jólabingó K100, mbl.is og Morgunblaðsins hefur slegið í gegn á aðventunni og hafa fjölmargir stytt sér stundir á fimmtudagskvöldum með því að spila bingó. „Þátturinn í kvöld verður í hátíðarbúningi enda slétt vika til jóla,“ segir Siggi Gunnars bingóstjóri. „Söngdívan Jóhanna Guðrún heiðrar okkur með nærveru sinni og kemur öllum í jólaskap með ljúfum jólalögum af nýrri jólaplötu sem kom út á dögunum og svo verður D.J. Stekkjastaur í settinu allt kvöldið og mun hann sjá til þess að allir verði í dillandi stuði,“ segir Siggi. „Svo er komið að stóru stundinni en fyrir tveimur vikum síðan tókst mér ein- hvern veginn að skora Evu Ruzu á hólm í keppni í Beyoncé-dönsum. Við mun- um sem sagt há danseinvígi í beinni útsendingu í anda Beyoncé og áhorfendur geta kosið hvor stóð sig betur í SMS-kosningu. Hvert SMS mun kosta 500 krón- ur og munu allur ágóði af kosningunni renna beint til Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur sem vonandi mun koma sér vel núna fyrir jólin. Við hvetjum því alla til að kjósa grimmt annað kvöld og um leið láta gott af sér leiða,“ segir Siggi, en til að taka þátt þarf að senda SMS í núm- erið 1900 og skrifa annaðhvort Siggi eða Eva, eftir því hvor stendur sig betur. Bingóið verður þó í aðal- hlutverki og verður fjöldi spenn- andi vinninga í boði. „Ég hvet fólk til þess að fara inn á mbl.is/ bingo og næla sér í spjald eða spjöld fyrir kvöldið. Svo er bara um að gera að fylgjast með í beinu streymi á mbl.is eða á rás 9 hjá sjónvarpi Símans kl. 19.00. Ég lofa góðri skemmtun og hátíðar stemn- ingu,“ segir Siggi Gunnars að lokum. Dansa Beyoncé fyrir mæðrastyrksnefnd Bingó Þau Eva Ruza og Siggi Gunnars keppa í Beyoncé-dönsum í kvöld. 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2020 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. HÁTÍÐARKRYDD landsmanna í 30 ár Hreinleiki krydds leggur grunninn að góðri og hollri matseld. Allar okkar vörur eru án auka- og íblöndunarefna og koma frá viðurkenndum birgja í Evrópu, sem styður vistvæna og sjálf- bæra framleiðslu kryddbænda víða um heim. Kalkúnauppskrift á www.pottagaldrar.is www.pottagaldrar.is • Sími 564 4449 Andrés Magnússon andres@mbl.is Allt útlit er fyrir að þinglok geti taf- ist fram á laugardag, en enn er þref- að á Alþingi um ýmis deiluefni og fjárlögin enn í vinnslu. Enn er deilt um eitt og annað í fjárlögum og fjáraukalögum, sem er mikið til hefðbundið en tafsamt samningaþref. Það skýrist að mestu af töfum á afgreiðslu fjárlagafrum- varps út úr nefnd milli 2. og 3. um- ræðu, en breytingar á því kalla á ýmsa tímafreka útreikninga, af- stemmingar og skjalavinnslu. Það ætti þó flest að skýrast ekki síðar en í dag, en gert er ráð fyrir að fjár- málafrumvörpin verði afgreidd á föstudag. Takist ekki að ljúka því öllu á föstudagskvöld, kunna þinglok því að frestast fram á laugardag. Þar falla ekki öll mál eftir flokka- línum eða milli stjórnar og stjórn- arandstöðu. Í gær var þannig t.d. fjallað um búvörulög, sígildri deilu um viðskiptafrelsi og vernd innlends landbúnaðar, en þar sem þingmenn Sjálfstæðisflokks eru ekki á eitt sátt- ir, nokkuð eftir búsetu. Athugasemdir Miðflokksmanna við frumvarp um kynrænt sjálfræði vöktu nokkra athygli og tóku tíma, en þar er deilt um læknisfræðileg inngrip vegna óhefðbundinna kyn- einkenna. Líklegt má telja að frum- varpið verði afgreitt í dag. Enn er deilt um fæðingarorlof, sem lengist í 12 mánuði, en hvernig þeir skiptist með foreldrum er óút- kljáð. Frumvarpið gerir ráð fyrir að hvort foreldra fái sex mánuði, en þó megi einn mánuður ganga á milli. Aðrir hafa talað fyrir meiri sveigj- anleika í skiptingunni, en ekki gætir mikils sveigjanleika í afstöðu þing- manna. Takist ekki að afgreiða frumvarpið nú tekur gildi bráða- birgðaákvæði um lengingu úr 10 mánuðum í 12, en að ráðherra ákveði hvernig þeir tveir mánuðir skiptast. Um þetta stinga þingmenn saman nefjum í hverju horni. Ýmsum málum var frestað fram yfir áramót, en þar eru frumvarp um Hálendisþjóðgarð og rammaáætlun veigamest, en eins má minna á frek- ar snubbótta meðferð frumvarps um styrki til einkarekinna fjölmiðla. Loks er alls óvíst um afdrif kosn- ingalagafrumvarps, sem var vísað til nefndar í fyrrakvöld, en þó það sé ekki flokkspólitískt mál þykir flest- um þeim alþjóðlegu stofnunum, sem fjalla um lýðræði og mannréttindi, varhugavert að breyta kosningalög- um svo skömmu fyrir kosningar. Þinglok gætu tafist fram á laugardag  Tæknileg úrvinnsla fjárlagabreytinga tafsöm  Ósamið um ýmis mál  Flokkslínur ekki alltaf skýr- ar  Deilt um skiptingu fæðingarorlofs milli foreldra  Fjárlög að líkindum afgreidd á föstudagskvöld Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Alþingi Jólaannir eru í þingsal og fundað í nefndum og í hverju horni. „Salan fer rólega af stað en aðal- sölutíminn er um næstu helgi og svo 21. og 22. desember,“ segir Geir Vilhjálmsson, eigandi fiskbúð- arinnar Hafbergs. Útlit er fyrir að minna verði um hefðbundnar skötu- veislur þetta árið vegna sam- komutakmarkana. „Það er óvissa. Fólk getur ekki haft stór skötuboð heima hjá sér og það eru miklar hömlur á veitinga- stöðum,“ segir Geir sem sjálfur hef- ur tekið á móti 250-300 manns á veitingastað sínum í búðinni á Þor- láksmessu undanfarin ár. Að þessu sinni getur hann í mesta lagi tekið á móti 75-100 manns. Eitt af því fáa sem kórónuveir- unni hefur ekki tekist að skemma er þó skatan sjálf. Veiran hefur greinilega ekki roð við kæstri, ís- lenskri skötu. „Skatan er baneitruð, hnausþykk og flott,“ segir Geir sem lærði að verka skötuna af föður sín- um, Vilhjálmi Hafberg. hdm@mbl.is Veiran vinn- ur ekki á kæstri skötu Morgunblaðið/Árni Sæberg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.