Morgunblaðið - 17.12.2020, Blaðsíða 45
UMRÆÐAN 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2020
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Sími 555 3100 www.donna.is
Honeywell
gæða lofthreinsitæki
Góð jólagjöf
Verð kr.
37.560
handapabba ogmömmu
og afa og ömmu
• Gistiheimili, sex fullbúin herbergi
• Veitingasalur ásamt fullbúnu eldhúsi
• Stórt tjaldsvæði ogmjög góð grill- og
eldunaraðstaða sem og hreinlætisaðstaða
• Fallegur skógarreitur til útivistar
• Stór hlaða innréttuð sem veisluaðstaða
• Hesthús ásamt beitarhaga
• 88m2íbúð fyrir leigutaka á staðnum
Einstakt tækifæri
- Gistiheimili við þjóðveg 1 til leigu
Húnavatnshreppur
hunavatnshreppur.is
Senda skal umsókn fyrir 22. janúar nk. á netfangið
einar@hunavatnshreppur.is.
Nánari upplýsingar:
Einar Krisján Jónsson sveitarstjóri í síma 455 0010
og 842 5800. Áskilinn er réttur til að taka hvaða
umsókn sem er eða hafna öllum.
Félagsheimilið Húnaver ásamt öllu sem því tilheyrir
Fulltrúar Vega-
gerðarinnar kynntu í
desember árið 2002
umhverfismat fyrir
nýja stofnbraut,
Arnarnesveg, þriðja
áfanga. Henni var
ætlað að létta á um-
ferð á þeim stofn-
brautum sem hún
tengir saman, Reykja-
nesbraut og Breið-
holtsbraut. Kynning
matsins var haldin í Salaskóla. Sú
staðsetning var ekki tilviljun, en
bæjarstjórn Kópavogs tók þá ótrú-
legu ákvörðun að stofnbrautin
myndi liggja í gegnum skóla-
hverfið og upp við skólalóðina.
Ákvörðun sem hafði ekki áður sést
í skipulagssögu höfuðborgarsvæð-
isins í nýju hverfi.
Stofnbrautir höfðu strax þarna
mælst við lögbundin heilsuvernd-
armörk svifryks, þær síðan þver-
brutu þau nokkrum árum síðar. Á
gráum dögum vilja sérfræðingar í
loftmengun að börn haldi sig fjarri
stofnbrautum og allir haldi sig frá
líkamlegri áreynslu við stofnbraut-
ir. Skólalóð við stofnbraut sam-
einar þessa ókosti; þar eru börn að
ærslast í frímínútum og soga að
sér mengun í takt við það. Veglína
stofnbrautarinnar var nokkuð laus
við vandamál að öðru leyti og því
ljóst að svifryk yrði flöskuhálsinn í
umhverfismatinu.
Hvernig komust skýrsluhöfund-
ar fram hjá svifryksmengun í um-
hverfismatinu? Þeir minnkuðu ein-
faldlega umferðargetu stofn-
brautarinnar úr um 55.000 bílum á
sólarhring niður í 9.000 til 15.000
bíla á sólarhring! Niðurstaða mats-
ins var að svifryks- og hljóðmeng-
un yrði ásættanleg vegna þessarar
litlu umferðar. Hvergi var minnst
á að umferðin gæti orðið meiri en
umferðarbilið sem var umhverfis-
metið, hvergi var minnst á raun-
verulega umferðargetu stofnbraut-
arinnar, það var hins vegar
tönnlast á litlu umferðinni alls sjö
sinnum í gegnum allt matið, mat
sem almenningur átti að koma með
athugasemdir við. Flestir myndu
kalla þetta blekkingar til að kom-
ast með stofnbraut upp að skóla-
lóð.
Vegagerðin virðist þó ekki hafa
áttað sig á því að þetta umhverfis-
mat gaf henni bara heimild til um-
ferðarmagnsins sem hún umhverf-
ismat: eða til tveggja akreina (1x1)
meðalskólavegar. Að Vegagerðin
og skipulagsyfirvöld skuli ekki
hafa áttað sig á því að þau geltu
fínu fjögurra (2x2) akreina hrað-
brautina sína niður í skólaveg í
þessu umhverfismati er í raun svo
vitlaust að það er eiginlega ekki
hægt að koma orðum að því.
Vegagerðin hefur farið mikinn í
öðrum áfanga veg-
arins, með lagningu
Arnarnesvegar frá
Reykjanesbraut að
skólanum. Búin að
sprengja gljúfur inni í
hverfinu sem aðskilur
sum börnin frá skól-
anum sínum, gera
fjögurra akreina und-
irgöng og brú og taka
frá mikið landsvæði,
allt gert á fölskum
stofnbrautar-
forsendum.
Umferðin við skólalóðina á Arn-
arnesvegi hefur nú náð neðri
mörkum umferðar í matinu, þar
með er ekki heimild til að klára
stofnbrautina með tengingu við
Breiðholtsbraut sem myndi leiða
til þungrar stofnbrautarumferðar
við skólalóðina. Umferðarkvótinn
sem eftir er myndi varla duga ein-
breiðri brú. Ég hef þráspurt Vega-
gerðina hvað hún ætli að gera ef
hún brýtur efri mörk umferðar í
umhverfismatinu. Fyrst spurt árið
2018. Þessu hefur Vegagerðin
komið sér undan að svara. Sama á
við um forstjóra Skipulagsstofn-
unar, bíð eftir svari frá honum.
Alþingi var eðlilega ekki upplýst
um að umferðarkvótinn í umhverf-
ismati Arnarnesvegar væri á þrot-
um þegar tenging við Breiðholts-
braut fékk fjármagn á þessu ári.
Alþingi hélt að það væri að fjár-
magna stofnbraut sem gæti létt á
Reykjanesbraut, en ekki skólaveg
sem mun ekkert aðstoða stofn-
brautakerfið, það hlýtur að þurfa
að senda þetta aftur til þingsins.
Hvað myndi Skipulagsstofnun
segja við Subba framkvæmdamann
sem ætlar að setja verksmiðju af
fjögurra ofna gerð í umhverfismat
en meta aðeins útblástur frá einum
ofni? Með þeim rökum að hann
ætli bara að gangsetja einn ofn
fyrst, en ætlar síðan að gangsetja
alla ofnana án þess að fara í nýtt
umhverfismat. Í þokkabót væri
verksmiðjan við grunnskóla.
Skipulagsstofnun myndi segja:
„Subbi minn, gleymdu þessu, að
sjálfsögðu þarftu að umhverf-
ismeta alla ofnana sem þú ætlar að
gangsetja, þar að auki erum við
ekki að fara að samþykkja mann-
virki sem brýtur heilsuvernd-
armörk við skólalóð.“
Skipulagsstofnun myndi þannig
hlæja að Subba fyrir að reyna
þetta, en af hverju er hún ekki að
hlæja að Vegagerðinni sem er að
reyna nákvæmlega það sama?
Vegagerð sem ætlar nú að gang-
setja ofn tvö utan umhverfismats?
Ég vil trúa því að umboðsmaður
barna, barnamálaráðherra og
menntamálaráðherra standi með
börnunum, umhverfismatið vernd-
ar skólalóðina fyrir stofnbrautar-
umferð og það skal standa. Þau
eiga rétt á heilsusam-
legri skólalóð sam-
kvæmt reglugerð (nr.
675/2009) og einnig rétt
á að þeim sé ekki mis-
munað eftir búsetu eins
og Barnasáttmáli Sam-
einuðu þjóðanna lögfest-
ur 2013 kveður á um.
Tveir af elstu skólum
höfuðborgarsvæðisins
eru við stofnbrautir eftir
að hafa sprengt utan af
sér eldra húsnæði. Ef
jákvæð niðurstaða
kemst í þetta mál mun
það efla foreldra þess-
ara skóla til að berjast
fyrir auknum loftgæð-
um. Þetta er fordæmis-
gefandi mál sem mun
hafa áhrif á þúsundir
barna er fram líða
stundir.
Frekari framkvæmdir
við Arnarnesveg eru
ekki innan heimilda um-
hverfismatsins. Alþingi
þarf að fá réttar upplýsingar um
stöðu mála og stöðva þessa fram-
kvæmd.
Eftir Hjalta Atlason
» Í umhverfismati
Arnarnesvegar mat
Vegagerðin aðeins
fjórðung af umferð-
argetu vegarins. Þar
með gelti hún stofn-
brautina niður í ein-
breiðan veg.
Hjalti Atlason
Höfundur er verkfræðingur og for-
eldri þriggja barna við Salaskóla.
hjalti.atlason@gmail.com
Vegagerðin án heimilda: Arnarnesvegur
Arnarnesvegur, þriðji áfangi er fyrirhuguð stofnbraut.
Mynd/Google Earth