Morgunblaðið - 17.12.2020, Side 69

Morgunblaðið - 17.12.2020, Side 69
ÍÞRÓTTIR 69 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2020 Darri Freyr Atlason, hinn ungi þjálfari karlaliðs KR í körfuknatt- leik, hefur birt áhugaverða til- lögu um hvernig hann sér fyrir sér að hægt sé að framkvæma Íslandsmótið á þessum erfiða kórónuveiruvetri. Darri skrifaði snarpa og vel rökstudda punkta um þetta á Twitter en í stuttu máli vill hann sjá hundrað daga Íslandsmót sem nái hápunkti í vor með hefð- bundinni úrslitakeppni. Deildakeppnin sjálf ætti hins vegar að taka sem stystan tíma. Hann segir sex vikur en það er kannski óþarflega stutt. Til að ná því væri aðeins spil- uð einföld umferð, ellefu leikir á lið, og fjögur neðstu liðin færu líka í úrslitaleiki að því loknu, annarsvegar um að komast í úr- slitakeppnina og hins vegar um að halda sæti sínu í deildinni. Darri leggur áherslu á að úr- slitakeppnin sé mikilvæg fyrir körfuboltaíþróttina þar sem hún standi að miklu leyti undir rekstri félaganna. Hann vill heldur ekki spila fram á sumar til að keppa um at- hygli við stórmót og Íslandsmót í fótbolta eða sumarfrí lands- manna. Miðað við að mótahald kom- ist af stað í janúar eða febrúar er þetta mjög góð tillaga hjá Darra sem eflaust má útfæra enn bet- ur. Þetta ætti handboltinn líka að taka til athugunar. Stytta deildakeppnina og taka frekar frá pláss fyrir úrslitakeppni í vor en að reyna að klára deilda- keppni í núverandi mynd og spila fram á sumarið. Fyrirkomulagið ætti að virka alls staðar, í úrvals- deildum karla og kvenna bæði í körfubolta og handbolta. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is SKÍÐI Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Skíðamaðurinn Hilmar Snær Örv- arsson átti viðburðaríkt ár en hann var útnefndur íþróttamaður ársins hjá Íþróttasambandi fatlaðra í höf- uðstöðvum ÍSÍ í Laugardalnum í vikunni. Hilmar, sem er tvítugur að aldri, er fyrsti skíðamaðurinn sem er út- nefndur íþróttamaður ársins hjá ÍF en hann vann Evrópumótaröð IPC, Alþjóðaólympíuhreyfingar fatlaðra, í alpagreinum í Króatíu í febrúar. Hann varð um leið fyrstur Íslend- inga til þess að vinna Evrópumóta- röðina en alls vann Hilmar til sjö gullverðlauna á mótaröðinni á tíma- bilinu. „Ég er fyrst og fremst stoltur að vera fyrsti skíðamaðurinn sem hlýt- ur þessa viðurkenningu,“ sagði Hilmar í samtali við Morgunblaðið í höfuðstöðvum ÍSÍ í vikunni. „Þetta er mikill heiður fyrir mig og auðvitað hvatning líka að gera enn betur á komandi árum,“ bætti skíðamaðurinn öflugi við en kórónu- veirufaraldurinn setti stórt strik í keppnistímabilið í ár hjá Hilmari, líkt og hjá öðru íþróttafólki. „Ég ætlaði mér að taka þátt í heimsbikarmótum í mars í Öre í Sví- þjóð og Lillehammer í Noregi en þeim var aflýst vegna kórónuveiru- faraldursins. Allt í einu var tímabilið svo bara búið og það er klárlega skrítin tilfinning að hafa ekkert keppt síðan í febrúar eftir sigur í Evrópumótaröðinni. Á sama tíma er ég virkilega spenntur að hefja leik að nýju og ég ætla mér að mæta tvíefldur til leiks eftir langa fjarveru. Það hafa alveg komið tímar þar sem ég hef átt í vandræðum með að gíra mig upp fyrir æfingar þar sem ég veit í raun ekkert hvenær ég get hafið keppni á nýjan leik. Að sama skapi hef ég reynt að horfa fram á veginn og einbeitt mér að því sem ég get gert, frekar en að hugsa um það sem er ekki hægt að gera eins og staðan er í dag.“ Hilmar var einungis átta ára gam- all þegar hann greindist með krabbamein í hné og þurfti að lokum að aflima hann. Hilmar notast við gervifót í dag. Finnur ekki fyrir pressu Það hefur hins vegar ekki stoppað hann í því að stunda skíðasportið af krafti og þrátt fyrir að hafa lítið get- að æft hefur hann verið duglegur að skella sér á fjallaskíði þar sem hann gengur á fjöll með skinn undir skíð- unum og rennir sér svo niður. „Ég náði einni æfingu núna í vetur áður en það kom stór lægð yfir land- ið og ég hef því ekkert getað skíðað síðustu vikur þar sem allt hefur ver- ið lokað. Ég vonast hins vegar til þess að ná góðum æfingum milli jóla og nýárs og ég er fyrst og fremst að einbeita mér að því að koma mér í gott skíðaform fyrir veturinn. Þótt ég hafi ekki keppt síðan í febrúar þá reyndi ég að halda mér í góðu skíðaformi með því að fara á fjallaskíði sem dæmi. Ég labbaði þá upp og renndi mér niður en fjalla- skíðasportið er aðeins frábrugðið svigskíðasportinu þar sem tæknin er öðruvísi. Ég fór aðallega í Skálafell, Blá- fjöll, Hengil og Botnsúlur og þetta voru allt mjög góðar þrekæfingar. Skíðafærið var fínt inni á milli en þetta var aðallega gott fyrir geð- heilsuna enda hægt að stunda fjalla- skíðasportið alveg fram á mitt vor. Vissulega tók þetta á enda getur það tekið á að labba upp brattar brekkur. Þetta var hins vegar fljótt að venjast og maður pældi lítið í þessu eftir því sem maður fór oftar á fjallaskíðin.“ Óvíst er hvenær Hilmar getur haf- ið keppni að nýju en hann er skráður til leiks á Evrópu- og heimsbikarmót í Veysonnaz í Sviss dagana 19.-23. janúar. „Ég hef lagt áherslu á að halda mér í góðu þrekformi undanfarna mánuði svo ég sé tilbúinn þegar ég get byrjað að skíða aftur af fullum krafti. Markmiðið fyrir næsta tíma- bil er að keppa á þeim mótum sem verða haldin og standa mig eins vel og kostur er auðvitað. Eins gaman og það var að vinna Evrópumótaröðina þá finn ég ekki fyrir neinni pressu fyrir komandi keppnistímabil, farandi inn í það sem ríkjandi meistari. Mesta press- an kemur frá mér sjálfum um að standa mig í hvert skipti sem ég renni mér af stað,“ bætti Hilmar Snær við í samtali við Morgunblaðið. Duglegur að fara á fjallaskíði  Hilmar Snær Örvarsson var út- nefndur íþróttamaður ársins hjá Íþróttasambandi fatlaðra í vikunni Ljósmynd/ifsport Bestur Hilmar fagnaði sigri á Evrópumótaröð IPC fyrstur Íslendinga. Glódís Perla Viggósdóttir og liðs- félagar hennar í Rosengård fóru vægast sagt auðveldlega áfram í sextán liða úrslit Meistaradeild- arinnar í knattspyrnu eftir 10:0- stórsigur gegn Lanchkhuti frá Georgíu í síðari leik liðanna í Sví- þjóð. Fyrri leiknum lauk 7:0 og 17:0 samanlagt. Glódís Perla var á sín- um stað í vörn Rosengård. Benfica átti litla möguleika gegn Chelsea og tapaði samtals 8:0. Chelsea vann í gær 3:0 en María Þórisdóttir var á varamannabekknum. Cloe Lacasse var í liði Benfica. sport@mbl.is 17:0 hjá Glódísi í Meistaradeildinni Morgunblaðið/Eggert Burst Glódís Perla og samherjar skoruðu tíu mörk í Evrópuleik. Berglind Rós Ágústsdóttir, fyrirliði Fylkis síðustu árin, er á förum frá Árbæjarfélaginu og er búin að semja til tveggja ára við sænska knattspyrnufélagið Örebro, sem hafnaði í sjöunda sæti úrvalsdeild- arinnar þar í landi í ár. Berglind er 25 ára og lék sinn fyrsta landsleik á þessu ári. Hún verður fimmti Ís- lendingurinn til að spila með liðinu en þar léku Edda Garðarsdóttir og Ólína G. Viðarsdóttir á árunum 2009 til 2011, María B. Ágústsdóttir var þar tímabilið 2011 og Anna Björk Kristjánsdóttir árið 2016. Fimmta sem leik- ur með Örebro Morgunblaðið/Íris Svíþjóð Berglind Rós Ágústsdóttir samdi til tveggja ára. Gylfi Þór Sigurðsson átti góðan leik fyrir Everton þegar liðið vann sinn annan leik í röð í ensku úrvalsdeild- inni í knattspyrnu gegn Leicester á King Power-vellinum í Leicester í gær. Leiknum lauk með 2:0-sigri Ever- ton en það voru þeir Richarlison og Mason Holgate sem skoruðu mörk Everton-manna í sitt hvorum hálf- leiknum. Gylfi Þór var í byrjunarliði Ever- ton og lék allan leikinn á miðsvæð- inu. „Föst leikatriði Gylfa voru mjög ógnandi allan leikinn og hann er alltaf líklegur til þess að búa til mörk úr bæði horn- og aukaspyrn- um sínum,“ sagði í umfjöllun Liver- pool Echo, staðarblaðsins í Liver- pool, um frammistöðu íslenska landsliðsmannsins. „Tvær af hans bestu frammistöð- um í bláa búningnum hafa komið í síðustu tveimur leikjum liðsins. Hann virkar miklu ákveðnari í öll- um sínum aðgerðum, eitthvað sem stuðningsmenn liðsins hafa beðið lengi eftir,“ sagði enn fremur í um- fjöllun Liverpool Echo en Gylfi fékk sjö í einkunn fyrir frammi- stöðu sína í leiknum. Leikurinn í gær var sjötti byrj- unarliðsleikur Gylfa í ensku úrvals- deildinni á tímabilinu en hann hef- ur skoraði eittmark í tólf leikjum á tímabilinu, ásamt því að leggja upp eitt mark. Everton vann fyrstu fjóra leiki tímabilsins í deildinni en var svo án sigurs í næstu fjórum leikjum sínum. Líkt og undanfarin ár hefur vantað upp á stöðugleika liðsins á tímabilinu.  Toppslagur Liverpool og Tott- enham fór fram í gærkvöld en þeim leik og tveimur öðrum var ekki lok- ið þegar Morgunblaðið fór í prent- un. Sjá nánar á mbl.is/sport/enski. Ljósmynd/FIBA Seigur Gylfi Þór hefur spilað mjög vel fyrir Everton í síðustu leikjum. Sjaldan spilað betur í bláa búningnum Þýskaland Magdeburg – Erlangen ...................... 36:26  Ómar Ingi Magnússon skoraði 11 mörk og gaf 5 stoðsendingar fyrir Magdeburg. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði 1 mark og gaf 2 stoðsendingar. Coburg – Göppingen........................... 21:29  Janus Daði Smárason skoraði 1 mark og gaf 1 stoðsendingu fyrir Göppingen. Bergischer – Ludwigshafen .............. 28:19  Arnór Þór Gunnarsson skoraði 6 mörk fyrir Bergischer. Ragnar Jóhannsson var ekki í leikmannahópnum. Staðan: Rhein Neckar Löwen 19, Flensburg 19, Kiel 18, Füchse Berlín 17, Leipzig 15, Stuttgart 15, Wetzlar 14, Göppingen 15, Lemgo 13, Magdeburg 12, Erlangen 12, Hannover-Burgdorf 12, Melsungen 11, Bergischer 12, Minden 7, Balingen 7, Nord- horn 6, Ludwigshafen 5, Essen 3. B-deild: Bietigheim – Lübeck-Schwartau ...... 28:19  Aron Rafn Eðvarðsson varði 11 skot í marki Bietigheim. Hannes Jón Jónsson þjálfar liðið. N-Lübbecke – Aue............................... 28:24  Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 3 mörk fyrir Aue. Sveinbjörn Pétursson varði 3 skot í marki liðsins. Rúnar Sig- tryggsson þjálfar Aue. Danmörk Mors – Aalborg .................................... 26:28  Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal- borg. Staðan: GOG 28, Aalborg 27, Tvis Holstebro 24, Bjerringbro/Silkeborg 21, Skjern 19, Kold- ing 17, SönderjyskE 17, Fredericia 14, Skanderborg 14, Mors 13, Aarhus 12, Ribe- Esbjerg 11, Ringsted 5, Lemvig 2. Frakkland Aix – Nantes......................................... 31:29  Kristján Örn Kristjánsson skoraði 1 mark fyrir Aix. 

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.