Morgunblaðið - 17.12.2020, Blaðsíða 62
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2020
Jóla- og áramótamatarpakkar
Jóla matarpakki #1
Hreindýra Carpaccio
pekan hnetur, kóngasveppa
majónes, gruyére ost
Grilluð Nautalund
m/ piparsósu, tvíbakaðri kartöflu,
steiktum villisveppum og rótargrænmeti
Jólabomba Matarkjallarans
m/ jarðarberjum, saltkaramellu og
möndlum
6.990 á mann fyrir 3 rétti
Jóla matarpakki #2
Koníaksbætt Humarsúpa
m/ steiktum humar og kryddjurtarjóma
Fyllt Kalkúnabringa
m/ piparsósu, heimagerðu rauðkáli,
tvíbakaðri kartöflu og waldorfsalati
Jólabomba Matarkjallarans
m/ jarðarberjum, saltkaramellu og
möndlum
6.990 á mann fyrir 3 rétti
Jólamatarpakkar afhentir 23. des. milli 14-18.
Áramótamatarpakki afhentur 30. des. milli 16-18 og 31. des. milli 12-14.
Áramóta matarpakki
Koníaksbætt Humar- og Kóngakrabbasúpa
m/ steiktum humar og kryddjurtarjóma
Hreyndýra Carpaccio
pekan hnetur, kóngasveppa majónes, gruyére ost
Fyllt Kalkúnabringa
m/ piparsósu, heimagerðu rauðkáli,
tvíbakaðri kartöflu og waldorfsalati
Hvít Súkkulaði og Lakkrís mús
m/ hindberjum og heslihnetum
9.990 á mann fyrir 4 rétti
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
Pantanir í s. 558 0000 og
á info@matarkjallarinn.is
Við pöntun þarf að taka fram:
Nafn, símanúmer, matarpakki,
fyrir hvað marga(lágmark 2),
greiðslumáti og sótt dags.
Maðurinn á bak við Mosfellsbakarí er súkku-
laðimeistarinn Hafliði Ragnarsson sem var
brautryðjandi á sínu sviði hér á landi en nú skín
sviðsljósið skært á tvær konur sem þar starfa
og þykja færari en flestir á sínu sviði.
Ólöf Ólafsdóttir er önnur þeirra en hún er
bakaranemi og segist stefna á sveinspróf í jan-
úar á næsta ári. Hún galdraði fram ómótstæði-
lega eftirrétti fyrir hátíðarmatarblað Morg-
unblaðsins þar sem henni var gefið fullt
skáldaleyfi og listaverkin létu ekki á sér standa.
Sjálf er Ólöf fagmanneskja fram í fingurgóma
með brennandi áhuga á bökunarlistinni. „Áhugi
minn byrjaði þegar ég var sjö ára gömul og
gerði minn fyrsta konfektkassa með mömmu
fyrir brúðkaup frænku minnar. Þetta voru
reyndar bara lítil súkkulaðihjúpuð jarðarber og
súkkulaðidropar en það varð ekki aftur snúið,“
segir Ólöf, sem hóf 17 ára gömul störf á Apótek-
inu undir leiðsögn Axels Þorsteinssonar. „Axel
opnaði augu mín fyrir eftirréttagerð og hvernig
á að vinna í eldhúsi. Að þeim tíma loknum hóf ég
nám í Zealand Business College í Ringsted í
Danmörku sem er betur þekktur sem „kondi-
torskólinn“. Við komuna heim hóf ég svo störf
hjá hinum eina sanna Hafliða Ragnarssyni
köku- og konfektmeistara.“
Ólöf segir það góðan skóla og að hún hafi lært
mikið af Hafliða enda sé hann mikill fagmaður.
Næst á dagskrá hjá Ólöfu, fyrir utan sjálft
sveinsprófið, er þátttaka í „Köku ársins 2021“
en hún er nú þegar komin í úrslit þar og verður
spennandi að sjá hvað hún galdrar fram.
„Draumurinn er svo að flytja út fyrir land-
steinana og læra meira um nýjar, spennandi og
öðruvísi aðferðir, nýtt og framandi hráefni og
læra meira um matarmenningu ýmissa þjóða.“
Ómótstæðilegir
eftirréttir Ólafar
Mosfellsbakarí hefur löngu getið sér gott orð fyrir afburða bakk-
elsi, bragðgóðar kökur, konfekt sem bráðnar í munni og súkkulaði-
listaverk sem fá áhorfandann til að taka andköf af hrifningu.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bragðgóð listaverk
Eftir Kung liggja ótrúlegir
gripir úr súkkulaði.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Spennandi efni Hægt er að
fylgja Ólöfu á Instagram en
notendanafn hennar er olofbakes.
Bakari Ólöf Ólafsdóttir fékk ung ást á bakstri.
Chidapha Kruasaeng eða Kung eins og hún er alla
jafna kölluð er flestum fremri í að búa til ævintýraleg
listaverk úr súkkulaði. Hún er menntaður eftirrétta-
kokkur frá The French Pastry School í Chicago með
sérstaka áherslu á súkkulaði og eftir hana liggja stór-
kostlegir skúlptúrar sem eingöngu eru gerðir úr súkku-
laði. Kung segir ekki ríka hefð fyrir notkun súkku-
laðis í skúlptúra eins og tíðkast víða erlendis en
víða er vinsælt að brúðhjónin séu úr súkkulaði.
Hún veit fátt skemmtilegra en að vinna með
súkkulaði og gerði þennan vígalega Trölla sem
sést hér til hliðar.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Súkkulaði-
drottningin Kung