Morgunblaðið - 17.12.2020, Side 16
16 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2020
Þessa dagana er sólargangurstuttur á norðurhveli jarðaren innan skamms fer daginn
að lengja. Nú eru vísbendingar um
að það sé lika að birta til varðandi
alheimsfaraldurinn sem heims-
byggðin hefur verið að kljást við
allt þetta ár. Síðustu daga hafa ver-
ið fá smit en ekki þarf mikið til að
út af bregði.
Bólusetningar
Það er ótímabært að tala um hve-
nær bólusetning hefst hér á landi,
þó að væntingar séu bundnar við að
hún geti hafist á fyrri hluta næsta
árs. Vonir standa til að nægt bólu-
efni berist til að allir geti fengið
bólusetningu. Skipulagning bólu-
setningar er í fullum gangi og verð-
ur fyrirkomulag kynnt þegar þar að
kemur.
Búið er að raða í tíu forgangs-
hópa samkvæmt tillögu sótt-
varnalæknis. Tilgangurinn er að
tryggja að þeir sem eru í mestri
áhættu eða eru í lykilhlutverki í
bráðaþjónustu fái bóluefni fyrst.
Allir munu fá boð í bólusetningu um
leið og kemur að þeim í röðinni og
enginn þarf að óttast að verða út
undan.
Lokaspretturinn
Sigurinn er samt ekki í höfn og
það er mikilvægt að við hægjum
ekki á nú þótt bólusetning sé í sjón-
máli. Forsenda þess að vel gangi,
og að bólusetning gangi vel fyrir
sig, er að samfélagssmit sé ekki
mikið. Því þufum við áfram að
passa einstaklingsbundnar sótt-
varnir, fara eftir tilmælum og
vernda viðkvæma hópa. Þótt
ástandið sé gott í dag sýnir reynsl-
an að það getur breyst á einni
nóttu.
Viðkvæmir hópar
um jól og áramót
Öll viljum við gleðja afa og ömmu
yfir hátíðirnar en nú er mikilvægt
að fara sérstaklega varlega til bera
ekki smit til þeirra. Við þurfum til
dæmis að fara eftir þeim reglum
sem hjúkrunarheimili setja um
heimsóknir í einu og öllu. Starfsfólk
heimilanna er reiðubúið að aðstoða
ættingja og vini við að hafa sam-
band með öðrum hætti.
Við sem bjóðum eldra fólki heim
til okkar um hátíðir þurfum að
passa okkur sjálf dagana á undan til
að minnka líkur á að við séum smit-
uð.
Andleg heilsa
Undanfarið ár hefur reynt mikið
á geðheilsu. Það er fullvíst að við
munum vera að fást við andlegar af-
leiðingar faraldursins lengi.
Þunglyndi virðist hafa aukist
meira hjá yngra fólki en öðrum hóp-
um. Það er því mikilvægt að við
höldum vel utan um unga fólkið
okkar. Þetta er hópurinn sem hefur
séð einna mesta röskun á sínu lífi og
framtíðarplönum. Ef við stöndum
saman og virðum tillögur sótt-
varnalæknis getur ástandið orðið
nánast eðlilegt í sumar og við hafið
uppbyggingu af fullum krafti til
eðlilegra samfélags.
Við hjá heilsugæslunni höfum
áhyggjur af því að Covid-19 hafi í
sumum tilfellum komið í veg fyrir
að fólk leitaði eftir nauðsynlegri
heilbrigðisþjónustu.
Önnur veikindi
Okkar tölfræði gefur vísbend-
ingar um hættuna á slíku á sumum
sviðum. Við höfum séð breytingar á
tíðni sjúkdóma í nágrannalöndum
okkar, t.d. á greindum krabbamein-
um. Ef greining krabbameins
dregst lengi eru minni líkur á að
það náist að lækna meinið. Við
brýnum því fyrir öllum að hika ekki
við að leita til heilsugæslunnar ef
þörf er á.
Við erum með opið virka daga yf-
ir jólahátíðina og utan afgreiðslu-
tíma heilsugæsustöðvanna er hægt
að leita til Læknavaktarinnar á höf-
uðborgarsvæðinu og vaktstöðva út
um allt land. Frábær samstaða hef-
ur verið meðal landsmanna um við-
brögð við Covid-19 og við verðum
að standa saman þangað til bólu-
setningu er lokið. Stoppum þennan
faraldur!
Hækkandi sól en ekki búið enn
Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir
Jólastemning Ljósadýrð loftin fyllir og gaman er að njóta. Bóluefnið kemur brátt og lífið færist í eðlilegt horf.
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðsins
Heilsuráð
Óskar Reykdalsson,
forstjóri Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins.
AFP
Sprauta Bólusetningar eru hafnar víða erlendis og væntingar eru miklar.
„Fallegir pensarar eru alltaf við hæfi.
Að halda öðru fram er líkt og að segja
að höfuð hæfi ekki búk,“ segir Karl
Örvarsson grafískur hönnuður. Hann
hóf á dögunum innflutning á sixpens-
urum frá Ítalíu, smekklegum tísku-
vörum sem fást nú í tólf útgáfum.
Mismunandi snið, litir og efni; hver er
með sínu lagi og týpurnar af sixpens-
urum sem bjóðast eru bóndinn,
gangsterinn, kavalerinn og sjarm-
örinn, svo eitthvað sé nefnt. Flestir
ættu að finna sína týpu. Allt er selt
og kynnt á vefnum sixpensari.is og
sýnishorn í versluninni Veiðiflugum
við Langholtsveg í Reykjavík.
„Kannski tengjum við sixpensara
sterkast við Bretland en þessi stíll er
alþjóðlegur. Yfirbragð manna með
pensara breytist og verður sterkara
hafi þeir slíkt höfuðfat,“ segir Karl,
sem er vel þekktur sem eftirherma
og leikari á sviði hins daglega lífs.
Karl selur sixpensara
Húfurnar hæfa
jafnan höfðinu
Húfumaður Stíllinn er alþjóðlegur,
segir Karl Örvarsson um höfuðfötin.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fulltrúar Heilsugæslunnar við Lág-
múla í Reykjavík og Mín líðan hafa
hafa samið um að aðgang skjólstæð-
ingaheilsugæslunnar að fjargeðheil-
brigðisþjónustu sem Mín líðan veitir.
„Samstarfið er mikilvægt á tímum
Covid þar sem eftirspurn eftir sál-
fræðiþjónustu hefur aukist samhliða
skertu aðgengi,“ segir Tanja Dögg
framkvæmdastjóri Minnar líðanar.
Boðið er upp á staðlaðar netmeð-
ferðir við einkennum þunglyndis, fé-
lagskvíða og lágs sjálfsmats þar sem
skjólstæðingar fá einstaklingsmið-
aða endurgjöf hjá sálfræðingi og gera
gagnvirkar æfingar. Mín líðan býður
einnig upp á fjarviðtöl.
Lágmúlastöðin og Mín líðan
Sálin á netinu
að sjálfsögðu líka nýjar,“ segir Þórdís
og heldur áfram:
„Ég hef fundið eftirspurn víða frá
eftir verslun eða markaði sem starfar
samkvæmt þeim áherslum sem hér
eru ráðandi. Við opnunina hér í vik-
unni var kominn saman fjöldi fólks
sem býr í miðborginni, Vesturbænum
og nærliggjandi slóðum. Mér finnst
einmitt sem margir sem tileinkað
hafa sér að velja endurunnar vörur,
fara leiða sinna fótgangandi, á reið-
hjóli eða með strætó og sleppa einka-
bílnum búi á þessum stað í borginni.
Það breytir samt ekki því að ég gæti
líka alveg hugsað mér að vera með
Verzlanahöllin, markaður þar sem
fólk getur leigt aðstöðu og selt ýms-
an varning, er á Laugavegi 26 í
Reykjavík og var opnuð síðastliðinn
þriðjudag. Farið er um gang frá fram-
hlið byggingarinnar og þar um stiga
upp á aðra hæð á markaðinn, sem
gengt er í frá Grettisgötu.
Alls er húsnæði markaðarins um
450 fermetrar og á staðnum eru
rekkar, básar og önnur aðstaða þar
sem fólk getur stillt vörum sínum
fram. Það geta verið föt, búsáhöld,
bækur, raftæki, grænmeti og svo
mætti áfram telja. Greitt er fyrir
varninginn við afgreiðslukassa og
seljendur þurfa ekki að standa á sín-
um bás og afgreiða þar, eins og ger-
ist á öðrum sambærilegum mörk-
uðum sem fólk ætti að þekkja.
„Hringrásarhagkerfið eflist og við
viljum taka þátt í þeirri áhugaverðu
þróun,“ segir Þórdís V. Þórhalls-
dóttur, kaupmaður í Verzlanahöllinni.
Með henni að þessum rekstri stendur
Sveindís systir hennar og móðir
þeirra, Vilborg Norðdahl. Opið verður
alla daga fram til jóla fram til 22 og á
Þorláksmessu klukkustundinni leng-
ur eins og hefð er fyrir í verslunar-
menningu Reykjavíkur.
„Endurnýting færist stöðugt í vöxt
og þar koma sjónarmið viðvíkjandi
umhverfismálum sterk inn. Ég hef
tengst ýmsum verkefnum í þeim dúr
og í vor ákváðum við mæðgurnar að
taka slaginn og opna þessa verslun
þar sem seldar eru notaðar vörur en
svona markað líka í úthverfunum, en
menningin virðist hins vegar vera
sterkust hér í 101 og þar í kring,“
segir Þórdís.
Í einu horni Verzlanahallarinnar er
Þórdís með Fermata, litla búð þar
sem hún selur hreinlætisvörur sem
framleiddar eru úr náttúrulegum efn-
um, svo sem matarafgöngum. Vax-
andi eftirspurn er eftir slíkum varn-
ingi og hugsunin er sú að fólk geti, ef
svo ber undir, komið með eigin ílát,
dósir og dalla, og fengið áfyllingu.
Farið svo með hreinsiefnin heim og
gert allt skínandi hreint, fínt og fal-
legt fyrir jólin.
Verzlanahöllin við Laugaveg var opnuð í vikunni
Hringrásarhagkerfið eflist á miðborgarsvæðinu
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Kaupkonur Systurnar Sveindís, til vinstri, og Þórdís Þórhallsdætur við fata-
rekkann í Verzlunarhöllinni. Vöruúrvalið er fjölbreytt og margt nýtt bætist við.