Morgunblaðið - 17.12.2020, Side 48
48 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2020
SÖLUAÐILAR
Reykjavík:
Gullbúðin, Bankastræti 6 s: 551-8588
Gilbert úrsmiður, Laugavegi 62 s: 551-4100
Meba Kringlunni s: 553-1199
Michelsen Úrsmiðir, Kringlunni s: 511-1900
Kópavogur:
Klukkan, Hamraborg 10 s: 554-4320
Meba Smáralind s: 555-7711
Hafnarfjörður:
Úr & Gull, Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar
s: 565-4666
Keflavík:
Georg V. Hannah úrsmiður, Hafnargötu 49
s: 421-5757
Akureyri:
Halldór Ólafsson úrsmiður, Glerártorgi
s: 462-2509
Akranes:
Guðmundur B. Hannah úrsmiður,
Suðurgötu 65 s: 431-1458
Egilsstaðir:
Klassík Selási 1 s: 471-1886
Selfoss:
Karl R. Guðmundsson úrsmiður, Austurvegi 11
s: 482-1433
Vestmannaeyjar:
Geisli, Hilmisgötu 4 s: 481-3333
Nú styttist í jólin og
sífellt erum við minnt á
að við eldra fólkið á Ís-
landi séum viðkvæmur
hópur. Við erum sann-
arlega misjafnlega
stödd með heilsu okkar.
En eitt er víst; við erum
langflest alveg ákveðin í
að láta þessi jól líða hjá
hægt og hljótt. Við
meinum að það er mun
mikilvægara að geta
komist í bólusetningu í janúar en stór
jólaboð. Að losna undan álögum veir-
unnar sem hamlar því að fólk geti
hist og fólk geti borðað í matsal með
öðrum eins og víða er gert, að fólk
geti verslað inn í matinn án grímu, að
fólk geti knúsað bestu vini sína og
fjölskyldu, að fólk geti fengið þjón-
ustu, að fólk geti verið virkt í daglegu
lífi. Er þetta ekki verðmiðinn á að
slaka á og finna innri frið án stórra
jóla eða áramótaboða? Við viljum fá
lífið til baka sem fyrst. Eldra fólk hef-
ur verið afar duglegt í þessu for-
dæmalausa ástandi og mun gera það
til enda. Því þurfa fjölmiðlar að hætta
að naggast út í þríeykið um
búbblurnar. Við skiljum þær alveg og
munum verða þau síðustu til að krefj-
ast stórra jólaboða. Löng lífsreynsla
skapar þekkingu og færni til að tak-
ast á við lífið.
Minnum frekar á hvernig er hægt
að styðja við þá sem búa einir og eru
einmana. Síminn er gott tæki til að
hringja í gamla vini og
gá hvernig þeir hafa
það eða frænkuna sem
býr ein. Hún þiggur
símtal. Munum líka eft-
ir hjálparsímanum.
Munum líka að í þess-
um hópi eru margir
sem eru auralitlir og
þurfa hjálp. Það færir
öðrum innri gleði að
hjálpa öðrum. Er það
ekki hinn sanni jóla-
andi? Gefum sannar
gjafir til að styðja við
þá sem minna mega sín. Áður en var-
ir er kominn janúar og daginn lengir
og bóluefnið kemur. Nú er bjartari
tíð fram undan þegar fólk getur farið
að hitta annað fólk og vera með. Takk
fyrir allt tónlistarflóðið og skemmt-
anir sem hafa verið færð heim í stofu
eða að heimilum eldra fólks. Það hef-
ur glatt æði marga. Að lokum. Jólin
koma en verum hófstillt og bjóðum
ekki veirunni í jólaboð. Það myndi
kæta hana mjög að smita okkur ef við
erum gálaus. Þetta er ekki alveg bú-
ið. Stöndum saman til enda.
Eldra fólk
og jólahald
Eftir Þórunni
Sveinbjörnsdóttur
Þórunn H.
Sveinbjörnsdóttir
» Við viljum langflest
hafa það rólegt um
jólin og forðast meira
Covid-19. Jólin koma
hvort sem er.
Höfundur er formaður
Landssambands eldri borgara.
Menning í sinni víðustu merk-
ingu dafnar meðal annars vegna
framlags einstaklinga og félaga
sem starfa í hinum ýmsu list-
greinum hennar. Víða á lands-
byggðinni skortir oft aðstöðu til
þess að menningin nái þar að vaxa
og dafna. Til að menningin nái að
efla samfélögin, auka víðsýni og
gefa þeim lit, íbúum þess og njót-
endum til yndisauka, þarf góða að-
stöðu.
Árið 1999 gerði þáverandi ríkis-
stjórn myndarlega samninga um
uppbyggingu menningarhúsa á
landsbyggðinni, í Vestmanna-
eyjum, á Egilsstöðum, Akureyri,
Sauðárkróki og á Ísafirði að
ógleymdri Hörpunni í Reykjavík
sem síðar fékk risaframlag frá rík-
inu.
Sú menningarlega skylda rík-
isins að leyfa landsmönnum öllum
að njóta verka Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands og Þjóðleikhússins
er mikilvæg, en eins og staðan er
nú getum við Sunnlendingar á
fastalandinu því miður ekki fengið
þessar menningarstofnanir í heim-
sókn til okkar með verk sín, vegna
aðstöðuleysis okkar.
Menningarsalur Suðurlands
Á Selfossi var skóflustunga tek-
in árið 1972 að hóteli, félagsheimili
og menningarsal en húsið var vígt
árið 1986. Þá var menningarsal-
urinn og félagsheimilishlutinn skil-
inn eftir til síðari tíma. Menning-
arsalurinn, sem hefur nú ratað
aftur í eigu sveitarfélagsins eftir
nokkur eigendaskipti undanfarna
áratugi, stendur enn fokheldur.
Salurinn er með hallandi gólfi fyrir
um 300 manns í sæti, stórt svið og
tónlistargryfju.
Menningarsalur Suðurlands mun
stuðla að því að þeir hæfileikar
sem nú þegar eru til staðar í okkar
samfélagi á Suðurlandi munu efl-
ast, vaxa og dafna. Við erum svo
heppin að pólitísk samstaða innan
sveitarstjórna á Suðurlandi í þessu
máli er til staðar sem og innan
Héraðsnefndar Árnesinga og bæj-
arstjórnar Svf. Árborgar eins og
margar ályktanir og áskoranir í
þeim efnum í gegnum tíðina gefa
til kynna.
Við höfum á liðnum tíu árum
farið með þingmannahópa sem og
ráðherra ríkisstjórna í salinn og
sýnt þeim möguleikana sem hann
býður upp á. Allir hafa verið sam-
mála um mikilvægi þess að koma
best geymda leyndarmálinu á Suð-
urlandi í gagnið hið fyrsta.
Alþingi samþykkti fyrir þetta ár
að leggja til fjármagn á móti fram-
lagi frá Svf. Árborg sem nægði til
undirbúnings á lokahönnun húss-
ins. Á haustdögum skipaði Svf. Ár-
borg byggingarnefnd um menning-
arsalinn, sem hefur nú unnið
hörðum höndum að þeim und-
irbúningi ásamt fulltrúum ráðu-
neyta og starfsmönnum sveitarfé-
lagsins. Byggingarnefndin hefur
átt marga fundi með ýmsum hönn-
uðum og hagaðilum og skoðað aðra
menningarsali í landinu svo hægt
verði að vanda sem best til verka.
Fjárlaganefnd Alþingis hefur nú
lagt til í frumvarpi sínu að fjárlög-
um nægt fjármagn á móti Svf. Ár-
borg til þess að á næstu tveimur
árum verði hægt að ljúka við
menningarsalinn og koma honum í
gagnið, menningunni á Suðurlandi
til heilla.
Menningarsalur Suðurlands
loks að verða að veruleika
Eftir Guðbjörgu Jónsdóttur,
Kjartan Björnsson og Tómas
Ellert Tómasson
» Allir hafa verið sam-
mála um mikilvægi
þess að koma best
geymda leyndarmálinu
á Suðurlandi í gagnið
hið fyrsta
Tómas Ellert Tómasson, Guðbjörg Jónsdóttir og Kjartan Björnsson
Höfundar eru nefndarmenn
í byggingarnefnd
Menningarsalar Suðurlands.
Allt um sjávarútveg