Morgunblaðið - 17.12.2020, Page 64
Það verður mikið um að vera í bingóþætti
kvöldsins í kvöld en um er að ræða sérstakan
jólaþátt, stútfullan af frábærum vinningum.
Þátttakendur geta meðal annars nælt sér í
skartgripi, þyrluflug, rafmagnstæki, fatnað og
matvörur.
Þá mun engin önnur en stórstjarna okkar
Íslendinga, söngkonan Jóhanna Guðrún, stíga
á svið sem sérstakur gestur Sigga.
Þess ber svo að geta að í þar síðasta bingó-
þætti mbl.is tók bingóstjórinn Siggi Gunnars
það augljóslega persónulega þegar Eva Ruza
var að líkja sjálfri sér við söngkonuna
Beyoncé.
„Það er ég sem er eins og Beyoncé, það er
svoleiðis. Ég skora hér með á þig í beinni út-
sendingu í Beyoncé-danskeppni, dance off.
Það er bara svoleiðis. Þetta er áskorun í
beinni útsendingu á þig,“ sagði Siggi á meðan
hann dansaði hinn fræga „Single ladies“-dans
Beyoncé.
Siggi mun ekki þurfa að bíða lengi eftir
áskorun sinni enda verður hún tekin með
pomp og prakt í bingóþætti kvöldsins í kvöld
inni á mbl.is en að sjálfsögðu skoraðist Eva
ekki undan áskoruninni og greindi hún frá því
í beinni útsendingu í síðasta þætti að hún
myndi sko klárlega vera með.
Í kvöld munu þau Eva Ruza og Siggi Gunn-
ars taka þetta alla leið og keppa um það hvort
þeirra sé betri Beyoncé. Við hvetjum ykkur til
þess að fylgjast með í beinni útsendingu í
kvöld klukkan 19:00 og að sjálfsögðu að taka
þátt í bingó í beinni.
Nóg um að vera í
bingóþætti kvöldsins
Söngkonan Jóhanna Guðrún stígur á svið sem sér-
stakur gestur Sigga í bingóþætti kvöldsins. Þá er til
mikils að vinna í sérstökum jólaþætti og munu þau
Siggi og Eva berjast um Beyoncé-titilinn.
Berjast um Beyoncé-titilinn og Jóhanna Guðrún stígur á svið
Stórsöngkonan Jóhanna
Guðrún stígur á svið sem
gestur Sigga í kvöld.
Siggi og Eva Hvor
þeirra ætli sé betri
Beyoncé-dansari?
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2020
Syngdu með Láru og Ljónsa inniheldur
eile l
unini iriu
ud
l
in i il
e n – rnin n
e
GEFÐU
GÓÐA
GJÖF
1. Barnabækur
7.-13. des. 2020
Frl
in Fiil i –
ll
d
r
lu www.forlagid.isLANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA