Morgunblaðið - 18.12.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 2020
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Það hefur sýnt sig að íslenska þjóðin stendur
saman, sýnir stuðning og samhug
eftir bestu getu.
Hægt er að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119
S. 551 4349, 897 0044, maedur@simnet.is
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
JÓLASÖFNUN
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ekki varð vart við bikblæðingar á hringveginum um
Vestur- og Norðurland í gær og virðast blæðingar hætt-
ar. Vegagerðin hafði síðdegis í gær fengið 59 tilkynn-
ingar um tjón á ökutækjum vegna blæðinganna og þar
fyrir utan eru þrif á bílum sem ekki hafa skemmst. Áætla
má að kostnaður við þrif og viðgerðir nemi tugum millj-
óna króna.
Tjón varð á fjórtán flutningabílum Vörumiðlunar á
Sauðárkróki, að sögn Magnúsar Einars Svavarssonar
framkvæmdastjóra, og jafnmörgum aftanívögnum.
Mesta tjónið varð á þeim bílum sem óku suður á sunnu-
dagskvöldið og til baka á mánudaginn en minna á þeim
sem fóru um vegina eftir það. Magnús segir að eftir sé að
meta tjónið. Verið er að hefja þrif á bílunum en það er
gert á verkstæðum sem Vegagerðin samþykkir. Áætlar
Magnús að tjónið nemi milljónum. Nefnir hann sem
dæmi að það kosti 250 til 300 þúsund að þrífa hvern
flutningabíl. Það megi margfalda með 14 í tilviki hans
fyrirtækis, eða jafnvel 28 þegar vagnarnir eru taldir
með. Þá þurfi að gera við brotin bretti og ljós og eitthvað
fleira. Vörumiðlun tókst að halda öllum sínum bílum
gangandi en einhverjir þurftu að stoppa.
Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar bárust
engar tilkynningar um bikblæðingar í gær og fáar í
fyrradag. Unnið var að því að hreinsa upp síðustu tjöru-
klessurnar. Var viðvörun tekin af vef Vegagerðarinnar
og aðvörunarskilti verða tekin niður í dag. Síðdegis í gær
höfðu 59 tilkynningar borist um tjón á ökutækjum. Þá
eru ótaldir þeir bílar sem aðeins þarf að þrífa en þeir
geta skipt tugum.
Lengi verið vandamál
Magnús hefur lengi verið í flutningum og rifjar upp að
blæðingar í klæðingum hafi verið í umræðunni við Vega-
gerðina á árunum 1997 og 1998. Segist hann eiga erfitt
með að skilja af hverju ekki sé búið að komast fyrir þetta
vandamál árið 2020. Segir hann að þótt blæðingar á
svona löngum köflum séu ekki á hverju ári séu stöðugar
blæðingar. Oft þurfi að þvo bílana með tjörusápu. „Von-
andi verður þetta til þess að einhver bót fæst á þessu
vandamáli, farið verði að vinna í því af alvöru,“ segir
Magnús.
Tjara Þrífa þarf fjölda bíla á kostnað Vegagerðarinnar.
Tjón og þrif gætu
kostað tugi milljóna
Tilkynningar um tjón á 59 bílum vegna blæðinganna
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ég get tekið undir eitthvað af
þessari gagnrýni. Hafnartorgið er
kalt og napurt og þar vantar gróð-
ur, tré og bekki. Við höfum þrýst á
lóðarhafa að breyta þessu,“ segir
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, for-
maður skipulags- og samgönguráðs
Reykjavíkurborgar.
Viðtal við þá Einar Sveinbjörns-
son veðurfræðing, Pál Líndal um-
hverfissálfræðing og Hilmar Þór
Björnsson arkítekt um Hafnartorg
í miðborg Reykjavíkur í Morgun-
blaðinu í gær vakti nokkra athygli.
Í viðtalinu gagnrýndu þeir hönnun
Hafnartorgs, meðal annars að vind-
göng myndist í Reykjastræti og
Kolagötu, að byggingar á svæðinu
séu of háar og að þjónusta sé of
einsleit sem stendur.
Að sögn Sigurborgar hefur sam-
tal við lóðarhafann og eiganda um-
ræddra gatna, Regin fasteigna-
félag, um umbætur staðið lengi
yfir. „Það hefur takmarkað verið
komið til móts við óskir okkar,“
segir hún.
Nágrennið hafi tekist vel
Sigurborg kveðst sjálf ekki hafa
upplifað áðurnefnd vindgöng á
Hafnartorgi. Hún segir að bygg-
ingamagnið á reitnum hafi verið
ákveðið við samkomulag ríkis og
borgar um sölu lóðarinnar á sínum
tíma. Það hafi mótast af því að ríkið
vildi fá sem mest fyrir lóðina. „Sjálf
vildi ég að þessar byggingar hefðu
verið einni hæð lægri.“
Hún bendir á að svæði í nágrenni
Hafnartorgs sem borgin hafi end-
urgert; Hafnarstræti, Bæjartorg
og Steinbryggjan hafi heppnast vel.
„Fólk sækir þangað enda eru þar
tré, bekkir og mismunandi yfir-
borð,“ segir Sigurborg sem vonar
að Hafnartorg muni verða líflegur
staður í framtíðinni. „Ég held að
það hafi verið vel útfært á endanum
en það vantar enn þá þennan
mannlega skala, tengingu við gang-
andi vegfarendur. Ef þarna koma
góðir bekkir, skjól og rými sem fólk
sækir í á milli húsanna mun starf-
semin eflaust eflast.“
Pálmar Kristmundsson, arkitekt
Hafnartorgsins, gaf ekki kost á við-
tali vegna þessa í gær.
Borgin vill breyt-
ingar á Hafnartorgi
Götur við Hafnartorg á forræði fasteignafélagsins Regins
Formaður skipulagsráðs telur torgið „kalt og napurt“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hafnartorg Skiptar skoðanir eru á hvernig tekist hefur til við Hafnartorg.
Aðstandandendur Hafnartorgs í
miðbæ Reykjavíkur og versl-
unarmenn taka þeim áskorunum,
sem upp hafa komið, með ró og telja
langtímahorfur góðar fyrir þennan
nýjasta hluta Kvosarinnar og nær-
liggjandi hafnarsvæði sem nú er í
uppbyggingu.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í yfirlýsingu sem Reginn fast-
eignafélag, eigandi Hafnartorgs,
sendi Morgunblaðinu vegna umfjöll-
unar blaðsins í gær um Hafnartorg.
Þar var rætt við veðurfræðing, arki-
tekt og umhverfissálfræðing sem
gengu um svæðið ásamt blaðamanni
og ljósmyndara blaðsins og höfðu
ýmislegt við hönnun svæðisins að
athuga, m.a. vindstyrk sem mynd-
ast í göngugötunni Reykjastræti og
hefði mátt afstýra með betri hönn-
un.
Í yfirlýsingunni er bent á að þeg-
ar Hafnartorgið var opnað á síðasta
ári hafi verslun í Kvosinni nánast
verið orðin útdauð og flest rými við
götur Kvosarinnar orðið að veit-
ingastöðum, krám eða hótelum.
Skortur hafi verið á húsnæði fyrir
„öflug vörumerki“ sem kynnu að
hafa áhuga og getu til að fá Íslend-
inga til að versla aftur í miðbænum.
Hins vegar hafi ýmsar hindranir
verið á leiðinni. Erlendum ferða-
mönnum sé ekki til að dreifa og inn-
lend verslun og þjónusta hafi al-
mennt sætt miklum takmörkunum.
„Kaupmenn á Hafnartorgi segja
staðsetninguna henta sér og al-
mennt ganga verslanir þeirra vel
þrátt fyrir ástandið. Hjá versluninni
Collections hefur mælst 100% aukn-
ing í sölu nú í desember, sam-
anborið við sama mánuð í fyrra.
Sömuleiðis hefur mikil veltuaukning
orðið hjá Michelsen úrsmið frá því
verslunin var flutt frá Laugavegi í
fyrra. Eigandi búðarinnar segir það
hafa verið hans mesta heillaskref í
rekstri að færa sig á Hafnartorg,“
segir m.a. í yfirlýsingu Regins.
Mikill stígandi í veltu
Þá sé mikill stígandi í veltunni hjá
H&M, H&M Home, Optical Studio
og COS þrátt fyrir fækkun ferða-
manna. Sömuleiðis hafi Maikai, sem
selur acai-skálar, gengið vel frá því
staðurinn var opnaður í júlí.
Haft er eftir Svövu Johansen, eig-
anda NTC, sem rekur verslunina
GK Reykjavík á Hafnartorgi, að
hún hafi óbilandi trú á því sem
verslunarsvæði og það sé eðlilegt að
tíma taki að byggja upp nýjan mið-
bæjarkjarna. Verslun GK hafi átt
marga frábæra mánuði frá opnun
og að íslenskir viðskiptavinir séu
mjög ánægðir með svæðið sem sé
með því flottara sem sést hafi í
Reykjavík.
Telja langtíma-
horfur góðar
Gagnrýni á Hafnartorg svarað
Morgunblaðið/Eggert
Reginn Höfuðstöðvar Regins.