Morgunblaðið - 18.12.2020, Blaðsíða 34
AFREKSÍÞRÓTTIR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Vinnufélagi hér á blaðinu hafði orð á
því við mig fyrir nokkru að þegar
hann fylgdist með íþróttaviðburðum
erlendis þá hefðu sigurvegarar af og
til orð á því í fjölmiðlum að þeir
hefðu verið „in the zone“. Benti
hann mér á að þetta mætti ef til vill
taka fyrir og reyna að varpa ljósi á
fyrir íþróttáhugafólk hvernig þetta
lýsir sér. Hér verður sýnd viðleitni í
þá áttina en með hjálp viðmælenda
sem hafa marga fjöruna sopið í af-
reksíþróttunum.
Í fljótu bragði má segja að við
þessar aðstæður skapist einhvers
konar hugarástand þar sem íþrótta-
maðurinn telur sig geta gengið á
vatni en lýsingarnar eru einnig á
þann veg að einbeitingin nái há-
marki.
„Þegar þetta næst er fullkomin
einbeiting hjá íþróttafólki sem ekk-
ert nær að trufla og skilar yfirleitt
ánægjulegri niðurstöðu. Einhverjir
hafa lýst tilfinningunni þannig að
þeim finnist hægjast á og því verði
auðveldara að bregðast við. Annars
vegar er talað um „zone“ eins og
hér á við en svo er einnig talað um
„flow.“ Til að komast í „flow“ þarf
verkefnið að vera krefjandi en
hvorki of auðvelt né of erfitt,“ sagði
dr. Hafrún Kristjánsdóttir sálfræð-
ingur þegar Morgunblaðið bað hana
um einhvers konar skilgreiningu á
fyrirbærinu.
Upplifa þetta allir?
Óskar Örn Hauksson er einn at-
kvæðamesti leikmaður í sögu Ís-
landsmótsins í knattspyrnu og
markahæsti leikmaður KR í efstu
deild frá upphafi. Leikstíll Óskars
er þess eðlis að hann hefur í gegn-
um árin átt það til að vera nánast
óstöðvandi í sókninni. Óskar er
einnig íþróttafræðingur og tjáði
Morgunblaðinu að hann hafi því velt
því fyrir sér hvað felst í „zoninu“.
„Þetta er ekki beinlínis flókið fyr-
irbæri. Þetta gerist ekki oft en það
er alveg greinilegt að maður hefur
átt leiki þar sem þetta gerist. Maður
platar einn andstæðing og svo plat-
ar maður annan. Það vindur upp á
sig. Oft er hugarfarið þannig á vell-
inum að menn vilja ekki gera mistök
en í þessu ástandi pælir maður ekki
einu sinni í því og finnst maður vera
óstöðvandi. Ég man eftir því að hafa
fundið þessa tilfinningu. Maður hef-
ur oft átt góða leiki en í þau skipti
sem maður hefur dottið í þennan gír
eru bara örfá,“ sagði Óskar og
bendir á að ef til sé þetta hugar-
ástand sem sumt íþróttafólk upplifi
aldrei.
„Þetta er sérstakt enda nokkuð
sem gerist ekki oft. Ég hef ekki
upplifað þetta oft og kannski eru
einhverjir sem upplifa þetta aldrei.
Þótt hægt sé að vinna með sjálfs-
traustið hjá íþróttafólki þá hef ég
ekki trú á að hægt sé að kalla þetta
fram.“
Umhverfisþættir útilokaðir
Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur
frá Akranesi, hefur náð inn á
stærsta sviðið í sinni íþrótt þegar
hún keppti á Opna breska og Opna
bandaríska meistaramótinu.
„Þegar maður kemst í „zonið“ þá
er ekkert utanaðkomandi sem nær
athygli þinni á neikvæðan hátt. Það
er sama hvað áhorfandi, meðspilari
eða andstæðingur gerir, það fer
ekkert í taugarnar á þér í þessu
ástandi. Þú ert ekki að pæla í nein-
um öðrum og hugsar bara um næsta
högg. Ég held að ég geti lýst þessu
þannig á sem bestan hátt.
Mér finnst ég geta gert allt og
ekkert geti stoppað mig. Ef þú
fékkst fugl á þessari holu á æfinga-
hring af hverju ættirðu þá ekki að
geta gert það aftur í keppni? Ef þú
fékkst fugl síðustu holu og af hverju
ekki á næstu holu líka? Svona hugs-
un kemur sjálfkrafa þegar vel geng-
ur en það er erfitt að þvinga hana
fram. Það er eitthvað sem þarf að
vinna með íþróttasaálfræðingi. Eftir
því sem þú verður betri og nærð
lengra, því oftar kemur þessi hugs-
un,“ sagði Valdís.
Fannst metstökkið ekki gott
Hafdís Sigurðardóttir úr UFA
hefur margoft sett Íslandsmet í
langstökki. Hún sagðist ekki vita
hvernig hún ætti að skilgreina það
þegar íþróttafólk er „in the zone“ en
deildi skemmtilegri dæmisögu með
lesendum
„Þegar ég keppti á EM utanhúss
árið 2016 var ég að ná mér eftir
meiðsli en hafði áður náð lágmark-
inu. Ég fór með því hugarfari að
njóta þess að keppa og hafa gaman
að þessu. Í raun var ég skíthrædd
um að rífa upp meiðslin en ég var að
reyna að komast inn á Ólympíu-
leikana 2016 og vildi því keppa. Ég
teiknaði broskarl á hendina á mér til
að minna mig á að hafa gaman að
þessu. Í mótinu fann ég að ég gat
stokkið mjög langt og var nálægt
því að komast í úrslit þótt ég næði
ekki risastökki. Þá kom sú upplifun
að draumurinn um að keppa á ÓL
væri farinn. Enn var tími til að
reyna við lágmarkið og ég fann mót
rétt fyrir utan Amsterdam og var
það síðasta tækifærið. Þá datt ég í
gírinn og fann hversu geggjuð til-
finning getur fylgt því. Þetta var
ekki stórt mót. Mér fannst ég eiga
völlinn og fann að allir horfðu á mig
eins og ég væri stórstjarna.
Ég náði nánast fullkomnu stökki
en gerði hárfínt ógilt. Starfsmenn
slógu á lengdina til gamans og það
var alveg við ólympíulágmarkið sem
var 6,70 metrar. Þarna fór ég í ein-
hvers konar „zone“. Ég endur-
upplifði stökkið og í næsta stökki
setti ég Íslandsmet og stökk 6,62
metrar. Ég náði því frábæru stökki í
raun en fann ekki fyrir því vegna
þess að ég var með hugann við fyrra
stökkið sem var svo miklu betra að
mér fannst. Þegar þeir höfðu mælt
komu tíðindin mér þar af leiðandi á
óvart því ég var svo upptekin af
fyrra stökkinu sem átti hug minn
allan. Metstökkið var líklega bara
aðeins styttra en hið ógilda en í hug-
anum þá virtist það alls ekki eins
gott. Ég var því bara 8 cm frá því að
komast á leikana í Ríó,“ sagði Haf-
dís en til eru sjónvarpsmyndir af
henni í þessari keppni sem notaðar
voru í heimildamynd sem var sýnd á
sjónvarpsstöðinni N4.
Þrotlaus vinna eykur líkurnar
Njarðvíkingurinn Logi Gunn-
arsson hefur átt langan og farsælan
feril í körfuknattleiknum og skoraði
fræga þriggja stiga körfu þegar
hann jafnaði á móti Tyrkjum á EM í
Berlín árið 2015. Logi er stuðkarl á
vellinum og á það til að raða niður
langskotunum
„Ég held að þetta tengist því að
fólk æfir ýmis atriði rosalega mikið.
Í mínu tilfelli eru það skotin. Maður
leggur mikinn metnað í það árum
saman og því fylgja miklar end-
urtekningar. Ég æfi ákveðin atriði
mjög oft og hef alltaf gert. Með því
býr maður til þann möguleika að
komast í „zonið“ og þegar það gerist
verður sjálfstraustið svo rosalegt að
það virðist engu máli skipta hvar á
vellinum maður tekur skot. Ég held
að sjálfstraustið komi vegna þess að
maður hefur gert þetta svo oft.
Stundum gengur manni einfaldlega
illa í leikjum og hittir nánast ekkert
en þegar maður kemst í „zonið“ þá
smellur allt saman. Þá trúir maður
því ekki að eitthvað geti farið úr-
skeiðis. Þetta er sambland af ein-
hverju hugarástandi og allri þeirri
vinnu sem þú hefur lagt á þig.
Stundum hugsa ég þetta þannig
að ég sé búinn að gera þetta svo oft
að nú sé ég að fá borgað til baka eft-
ir alla vinnuna. Þetta er því sálrænt
en þeir sem æfa mest detta líklega
oftast í „zonið“. Þetta er ekki til-
viljun. Körfuboltamenn eins og
Michael Jordan eða Kobe Bryant
skoruðu meira en 40 stig margoft á
ferlinum. Það er ekki að ástæðausu
heldur hafa þeir lagt á sig þvílíka
vinnu allan ferilinn. Þeir eins og
aðrir lentu líka í því að hitta illa en
það er svo stutt í að komast í „zon-
ið“ af því menn hafa lagt svo mikið
inn í bankann,“ sagði Logi Gunn-
arsson við Morgunblaðið.
Hugarástand sem ekki
er hægt að þvinga fram
Hvað gerist þegar íþróttafólk kemst í „zonið“? Hvernig lýsir það sér?
Morgunblaðið/Sigurður Unnar
Flinkur Óskar Örn Hauksson hefur
átt marga stórleikina.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Reynd Valdís Þóra Jónsdóttir hefur
keppt í mörgum heimsálfum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Methafi Nafn Hafdísar Sigurð-
ardóttur má finna í metabókunum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Skytta Ferill Loga Gunnarssonar í
körfunni er glæsilegur.
34 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 2020
England
Aston Villa – Burnley.............................. 0:0
Jóhann Berg Guðmundsson var ekki
með Burnley vegna meiðsla.
Sheffield Utd – Manch. Utd.................... 2:3
Staðan:
Liverpool 13 8 4 1 29:19 28
Tottenham 13 7 4 2 25:12 25
Southampton 13 7 3 3 25:18 24
Leicester 13 8 0 5 24:17 24
Everton 13 7 2 4 23:18 23
Manch.Utd 12 7 2 3 22:19 23
Chelsea 13 6 4 3 26:14 22
West Ham 13 6 3 4 21:16 21
Manch.City 12 5 5 2 18:12 20
Wolves 13 6 2 5 13:17 20
Aston Villa 11 6 1 4 21:13 19
Crystal Palace 13 5 3 5 19:18 18
Leeds 13 5 2 6 22:24 17
Newcastle 12 5 2 5 16:21 17
Arsenal 13 4 2 7 11:16 14
Brighton 13 2 5 6 15:21 11
Burnley 12 2 4 6 6:18 10
Fulham 13 2 3 8 12:22 9
WBA 13 1 4 8 10:26 7
Sheffield Utd 13 0 1 12 7:24 1
Rússland
Rostov – CSKA Moskva .......................... 1:3
Hörður Björgvin Magnússon lék allan
leikinn með CSKA og lagði upp mark, Arn-
ór Sigurðsson kom inn á 85. mínútu.
Staða efstu liða:
Zenit Pétursborg 41, CSKA 37, Spartak
Moskva 35, Sochi 33, Rostov 32, Dinamo
Moskva 30, Krasnodar 30, Krasnodar 30,
Lokomotiv Moskva 28, Rubin Kazan 28.
Danmörk
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit:
Köbenhavn – Midtjylland.................. (v) 6:7
Ragnar Sigurðsson var ekki í leikmanna-
hópi Köbenhavn.
Mikael Anderson kom inn á hjá Midtjyll-
and í hálfleik.
Fremad Amager – Bröndby .......... (frl.) 2:1
Hjörtur Hermannsson lék fyrstu 102
mínúturnar með Bröndby.
Ítalía
Roma – Torino .......................................... 3:1
Staðan:
AC Milan 12 8 4 0 27:13 28
Inter Mílanó 12 8 3 1 30:15 27
Napoli 11 8 0 3 26:9 24
Roma 11 7 3 1 27:14 24
Sassuolo 12 6 5 1 22:13 23
Juventus 11 5 6 0 21:10 21
Atalanta 11 5 3 3 22:17 18
Lazio 12 5 3 4 18:20 18
Hellas Verona 11 4 4 3 13:11 16
Udinese 11 4 2 5 13:14 14
Sampdoria 12 4 2 6 18:20 14
Cagliari 12 3 4 5 18:23 13
Bologna 12 4 1 7 18:24 13
Parma 12 2 6 4 12:19 12
Benevento 12 3 3 6 13:23 12
Spezia 12 2 5 5 17:25 11
Fiorentina 12 2 4 6 12:20 10
Genoa 12 1 4 7 12:24 7
Torino 12 1 3 8 20:30 6
Crotone 12 1 3 8 10:25 6
Þýskaland
Lemgo – Wetzlar ................................. 28:27
Bjarki Már Elísson skoraði átta mörk
fyrir Lemgo.
Danmörk
Ribe-Esbjerg – Lemvig....................... 31:22
Rúnar Kárason skoraði fimm mörk fyrir
Ribe-Esbjerg, Daníel Þór Ingason og
Gunnar Steinn Jónsson komust ekki á blað.
Skanderborg – Tvis Holstebro .......... 30:27
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði tvö mörk
fyrir Tvis Holstebro.
Svíþjóð
Skövde – Kristianstad......................... 28:23
Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði
ekki fyrir Skövde.
Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði
fjögur mörk fyrir Kristianstad og Teitur
Örn Einarsson tvö.
Ungverjaland
Pick Szeged – Veszprém .................... 24:26
Stefán Rafn Sigurmannsson lék ekki
með Pick Szeged vegna meiðsla.
Ingibjörg Sigurðardóttir, landsliðs-
kona í knattspyrnu, er í liði ársins í
norsku úrvalsdeildinni 2020 hjá
fréttastofunni NTB og styrktarað-
ilanum OBOS. NTB var í ár í fyrsta
skipti með einkunnagjöf fyrir úr-
valsdeild kvenna í norska fótbolt-
anum og þar hafnaði Ingibjörg í
sjötta til áttunda sæti af öllum leik-
mönnum deildarinnar. Ingibjörg
varð bæði meistari og bikarmeist-
ari með Vålerenga á tímabilinu.
Í liði ársins
í Noregi
Bjarki Már Elísson átti stórleik fyr-
ir Lemgo þegar liðið vann eins
marks sigur gegn Wetzlar á heima-
velli í þýsku 1. deildinni í hand-
knattleik í gær. Leiknum lauk með
28:27-sigri Lemgo en Bjarki skor-
aði átta mörk úr átta skotum, þar af
eitt úr vítakasti. Bjarki hefur skor-
að 92 mörk í fjórtán leikjum í deild-
inni á tímabilinu og er þriðji marka-
hæstur, á eftir þeim Viggó
Kristjánssyni, 95 mörk, og Robert
Weber, 96 mörk, sem hafa leikið
þrettán leiki. Lemgo er með 15 stig
í áttunda sæti deildarinnar.
Átta mörk úr
átta skotum
Ljósmynd/tbv-lemgo-lippe.de
Mark Bjarki Már er þriðji marka-
hæstur í þýsku 1. deildinni.
Marcus Rashford skoraði tvívegis
fyrir Manchester United þegar liðið
heimsótti Sheffield United í ensku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær.
Leiknum lauk með 3:2-sigri Man-
chester United en David McGold-
rick kom Sheffield yfir strax á 5.
mínútu. Manchester-menn létu ekki
slá sig út af laginu og tókst að snúa
leiknum sér í vil. Rashford hefur
verið iðinn við markaskorun á tíma-
bilinu en hann hefur nú skorað 12
mörk í 21 leik fyrir United í öllum
keppnum. United er í sjötta sæti
deildarinnar með 23 stig.
United kom til
baka í Sheffield
AFP
Hné Rashford er markahæsti leik-
maður United á tímabilinu.