Morgunblaðið - 18.12.2020, Qupperneq 12
Óvirk markaðssvæði Færri en 500 heimili og fyrirtæki
Fleiri en 500 en færri en 750
Heimild: Póst- og fjarskiptastofnun
Vestfi rðir
Hnífsdalur
Bolungarvík
Súðavík
Flateryi
Suðureyri
Patreksfjörður
Tálknafjörður
Bíldudalur
Þingeyri
Hólmavík
Norðurland
Hvammstangi
Grenivík
Ólafsfjörður
Laugar
Mývatn
Kópasker
Raufarhöfn
Þórshöfn
Austurland
Vopnafjörður
Seyðisfjörður
Eskifjörður
Fáskrúðsfjörður
Stöðvarfjöfður
Breiðdalsvík
Djúpivogur
Suðurland
Vík
Kirkjubæjarklaustur
Vesturland
Grundarfjörður
Ólafsvík
Hellissandur
Búðardalur
Suðurnes
Vogar
Póstnr. Staður Fjöldi
245 Sandgerði 685
250 Garður 597
340 Stykkishólmur 542
580 Siglufjörður 605
620 Dalvík 514
Póstnr. Staður Fjöldi
730 Reyðarfjörður 596
740 Neskaupstaður 617
780 Höfn 607
806 Bláskógabyggð 693
815 Þorlákshöfn 645
Staðir með fl eiri fyrirtæki og heimili en 500 en færri en 750
Samtals fjöldi heimila og fyrirtækja í póstnúmeri
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Fjörutíu og þrjú póstnúmer á Íslandi
eru skilgreind sem „óvirk markaðs-
svæði“ í nýrri ákvörðun Póst- og
fjarskiptastofnunar (PFS) þess efnis
að Pósturinn skuli vera alþjónustu-
veitandi á Íslandi til næstu 10 ára.
Skilgreiningin á óvirku markaðs-
svæði er sett fram til grundvallar út-
reikningi á því hver hreinn kostnað-
ur Póstsins er af þeim skyldum sem
á honum hvíla vegna útnefningarinn-
ar sem alþjónustuveitandi. Er það í
raun sá kostnaður sem skilgreindur
er sem alþjónustubyrði og mun rík-
issjóður bæta fyrirtækinu upp þann
kostnað. Íslandspóstur mun taka við
hlutverkinu frá og með áramótum en
hefur raunar, til bráðabirgða, sinnt
því allt þetta ár eða frá því að einka-
réttur fyrirtækisins á tilteknum teg-
undum póstþjónustu féll niður.
Þurfa meira fjármagn
Samgöngu- og sveitarstjórnar-
ráðuneytið tók ákvörðun um það
samhliða bráðabirgðaútnefningunni
fyrir yfirstandandi ár að Pósturinn
fengi 250 milljónir króna sem var-
úðarframlag vegna alþjónustubyrði
sinnar. Fyrr á þessu ári bárust þær
upplýsingar frá Póstinum að fram-
lagið þyrfti að vera nærri því tvöfalt
hærra, ef það ætti að standa undir
kostnaði fyrirtækisins. Heimildir
Morgunblaðsins herma að forsvars-
menn Póstsins telji að enn meira fé
þurfi að koma til vegna yfirstandandi
árs.
Við fyrrnefnt mat á því hvaða
svæði teljast virk markaðssvæði og
hver ekki ákvað PFS að miða við að
þau svæði teldust óvirk þar sem sam-
anlagður fjöldi fyrirtækja og heimila
er færri en 750. Í samráðsskjali sem
stofnunin hafði gefið út fyrr á þessu
ári vegna útnefningar Póstsins sem
alþjónustuveitanda var fyrst miðað
við að fjöldinn væri 500. Hrafnkell V.
Gíslason forstjóri PFS segir í samtali
við Morgunblaðið að mörkin hafi ver-
ið hækkuð um 50% eftir athuga-
semdir og tillögur frá Póstinum.
„Í upphaflegri tillögu var viðmiðið
500 og litum við þar til ákvörðunar
samkeppnisráðs nr. 42/1996 þar sem
óvirk markaðssvæði voru skilgreind
með þessum hætti. Við tókum hins
vegar tillit til sjónarmiða Póstsins
sem við töldum málefnaleg og því
voru mörkin hækkuð.“ Með hinu
breytta viðmiði færðust 10 póstnúm-
er eða staðir undir skilgreininguna
um óvirk markaðssvæði sem annars
hefðu fallið utan skilgreiningarinnar.
Það eru Sandgerði, Garður, Stykkis-
hólmur, Siglufjörður, Dalvík, Reyð-
arfjörður, Neskaupstaður, Höfn,
Bláskógabyggð og Þorlákshöfn. Þar
er Dalvík rétt ofan við fyrri mörkin,
eða með samanlagt 514 heimili og
fyrirtæki. Næst efri mörkum hins
nýja viðmiðs er svo Bláskógabyggð
með 693 fyrirtæki og heimili.
Skilgreina svæðin aðskilin
Athygli vekur að á listanum eru
allnokkur þéttbýli þar sem stutt er á
milli staða, má þar m.a. nefna Eski-
fjörð, Reyðarfjörð og Neskaupstað
en 15 km skilja fyrrnefndu bæina að
og 23 km þann fyrst nefnda og þann
síðastnefnda. Væru þessir þéttbýlis-
kjarnar skilgreindir sem eitt mark-
aðssvæði væri samanlagður fjöldi
fyrirtækja og heimila 1.685.
Þá má nefna að Sandgerði og
Garður eru skilgreind sem aðskilin
markaðssvæði en 7 km skilja þau að.
Væru þau talin sem eitt svæði væri
samanlagður fjöldi fyrirtækja og
heimila 1.282. Þá kemur einnig fram
í ákvörðun PFS að ákveðin markaðs-
svæði, sem eru í námunda við mun
stærri markaði, eru skilgreind sem
óvirk. Á það t.d. við um Þorlákshöfn
sem er í 29 kílómetra fjarlægð frá
Selfossi. Þar virðist farin önnur leið
en í tilfelli nokkurra póstnúmera á
Reykjanesi, t.d. 233 og 235 (Kefla-
víkurflugvöllur). Á þessum svæðum
eru annars vegar 69 fyrirtæki og
heimili og hins vegar 63 en eru þó
skilgreind sem hluti af virku mark-
aðssvæði vegna nálægðar við
Grindavík og mesta þéttbýlið í
Reykjanesbæ (póstnúmer 240, 260
og 262).
Spurður út í það af hverju PFS
skilgreindi þessa þáttbýliskjarna
ásamt fleirum sem aðskilin markaðs-
svæði en ekki sameinað segir Hrafn-
kell að ekki sé víst að póstlög gefi
kost á slíkri skilgreiningu.
„Við höfum hins vegar gert fyrir-
vara við þessa ákvörðun okkar og við
áskiljum okkur rétt, þegar rekstrar-
tölur Póstsins liggja fyrir, til þess að
breyta þessari skilgreiningu okkar.
Ef í ljós kemur að það sé hagræði í
deifingunni milli þessara staða
kunna þeir að falla út af listanum um
óvirk markaðssvæði.“
Bendir hann á að til mótvægis við
fyrirliggjandi mat PFS á mörkum
svæða utan virkrar samkeppni sé
gerð krafa um greiningu hreins
kostnaðar niður á svæði og að kostn-
aðargreiningin sjálf kveði endanlega
upp úr um hvort hreinn kostnaður sé
til staðar fyrir Póstinn við útburð í
tilteknu póstnúmeri.
Margir óvirkir markaðir
Póst- og fjarskiptastofnun skilgreinir 43 svæði á Íslandi sem óvirka markaði Matið kann að taka
breytingum þegar rekstrartölur Póstsins liggja fyrir Telja að ríkið þurfi að leggja fram meira fé
Morgunblaðið/Hari
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 2020
Viðburðarík fjölskyldusaga um ólgu
hernámsáranna á Seyðisfirði þegar
allt breyttist og lífsháskinn vofði yfir.
Kristín Steinsdóttir, höfundur Ljósu,
segir hér frá trúverðugum og skemmti-
legum sögupersónum af einstakri hlýju
og næmni.
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið 10–19 alla daga til jóla | www.forlagid.isLANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA