Morgunblaðið - 18.12.2020, Page 23
og spila. Golfferðir til Spánar
voru það allra skemmtilegasta frí
sem hún gat hugsað sér. Við fór-
um saman í þær nokkrar. Síðasta
ferðin var til El Plantio á Spáni í
október á síðasta ári. Við fengum
frábært veður, skipulagið var
einstakt og vellirnir alger draum-
ur. Ávallt haldið upp á það þegar
vel gekk en ef hlutir gengu verr
var gjarnan gert grín að því að
„Halli hörmung“ væri mættur
óboðinn í partíið – en svo var
gleðin tekin á ný og klúðrið
gleymt um leið. Við fórum oft í
sumarbústaðarferðir innanlands
gegnum árin, fyrst voru börnin
með en síðustu sumur var aðal-
málið að hafa golfsettin með. Það
var ávallt tekinn einn hringur á
dag – annars var dagurinn ónýt-
ur. Svo var farið í heita pottinn og
sungið. Dásamlegar minningar.
Herdís var mikil fjölskyldu-
manneskja. Mikilvægast af öllu
var að halda tengslum við sína
nánustu. Hún naut þess að bjóða
fjölskyldunni heim og hélt ótal
veislur. Það að hafa 30 manns í
mat vafðist ekki fyrir henni með-
an heilsan leyfði. Um síðustu jól
var hún umvafin fjölskyldunni og
vildi hún hafa allt samkvæmt
hefðinni. Um áramótin síðustu
vorum við Nonni boðin í kvöld-
verð líkt og síðustu áratugi. Í ár
verður það með öðru sniði.
Við Nonni kveðjum okkar
kæru vinkonu, Herdísi Hólm-
steinsdóttur, með söknuði og
þökk. Fjölskyldu hennar vottum
við okkar dýpstu samúð.
Sigrún og
Sigurjón Valdimar.
Elsku hjartans vinkona mín
Herdís er látin.
Við kynntumst í Hafnarfjarð-
arstrætó á leið í Flensborgar-
skóla fyrir tæpum 50 árum, þar
sem við vorum við nám í eitt ár.
Við lærðum saman, sungum,
skemmtum okkur og ortum ljóð
og vísur. Þarna var lagður grunn-
ur að löngu og djúpu vináttusam-
bandi sem varði alla tíð síðan.
Báðar lærðum við hjúkrun.
Dísa starfaði við geðhjúkrun og
gerði það af alúð og fagmennsku.
Margt var brallað í gegnum
tíðina. Minnisstæð eru partíin á
Brekkustígnum og síðar á Bjarg-
arstígnum þar sem þær Adda
heitin vinkona okkar bjuggu.
Baldur kom svo til sögunnar með
litla drenginn sinn hann Gest, svo
eignuðust þau saman Ásu og
Davíð Arnar.
Mikill samgangur var á milli
fjölskyldna okkar og svo ótal
margar samverustundir, matar-
boð, sumarbústaðaferðir og ég
tala nú ekki um golfferðirnar og
alltaf gaman.
Dísa var einstakur persónu-
leiki, gegnheil, vel gefin, klár,
skemmtileg, hlý með mikinn
húmor og orðatiltækin hennar
óborganleg. Rökföst var hún og
fylgin sér og með mikla réttlæt-
iskennd. Ég og fjölskylda mín
fengum svo sannarlega að njóta
þessara kosta hennar.
Í mörg ár höfðum við fyrir
venju að talast við á hverjum
sunnudegi milli klukkan 17 og 19.
Þetta voru okkar sérstöku vin-
konustundir og fátt ef nokkuð
mátti trufla þær. Síðustu mánuði
breyttust þessir fundir í daglegt
spjall sem var okkur báðum dýr-
mætt.
Allt sem Dísa tók sér fyrir
hendur gerði hún vel. Hún gerð-
ist mikill göngugarpur um tíma
og gekk á nokkur fjöll. Svo fyrir
nokkrum árum ákvað hún að
læra golf mér, systur hennar og
fleirum til mikillar ánægju. Hún
tók það auðvitað alla leið. Áttum
yndislegar samverustundir í golfi
hér heima og erlendis. Minnis-
stæð eru dömuboðin sem þær
systur héldu, þá var farið í golf og
síðan í mat og drykk til þeirra
systra á eftir. Dásamlegar stund-
ir.
Fyrir fimm árum greindist
Dísa með krabbamein, við tók
erfið lyfjameðferð sem reyndi
mikið á. Hún tók þessu sem og
öðru með æðruleysi, bjartsýni og
þrautseigju. Ákveðin í að lifa og
njóta eins og hægt var og það
gerði hún. Síðastliðið vor fórum
við í golf í Öndverðarnesinu.
Veðrið var yndislegt, sólin skein
og það var meira að segja logn.
Við vissum ekki þá að þetta var
síðasti golfhringurinn okkar sam-
an.
Síðasta ár var henni afar erfitt
en aldrei kvartaði hún og uppgjöf
var ekki til í hennar orðabók.
Alltaf hafði hún áhuga á hvað við
hin vorum að gera og fékk reglu-
lega skýrslu og myndir þegar
hún gat ekki verið viðstödd. Hún
naut þess að vera með þeim sem
voru henni kærastir, fjölskyldu,
börnum og barnabörnum, sem
hún lifði fyrir og var svo óend-
anlega stolt og ánægð með.
Við Rósmundur og fjölskylda
sendum fjölskyldunni allri okkar
innilegustu samúðarkveðjur,
minning um einstaka konu og vin
mun fylgja okkur um ókomin ár.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni
(Bubbi Morthens)
Kolbrún Sigurðardóttir.
Stundum verður maður þeirr-
ar gæfu aðnjótandi í lífinu að
kynnast mannveru sem er alveg
einstök á allan hátt.
Elsku Herdís Hólmsteinsdótt-
ir sem nú hefur kvatt þessa jarð-
vist var ein af þessum mannver-
um. Um leið og maður sá hana
var augljóst að hér var á ferðinni
manneskja sem gott var að kynn-
ast og hlusta á, já hún hafði sterk
áhrif. Herdís var besta vinkona
Öddu systur minnar og varð
gegnum Öddu góð vinkona mín.
Mannkostir hennar voru margir;
birtan sem stafaði frá henni þótt
hún væri dökk yfirlitum fór ekki
fram hjá neinum. Hlýtt og kær-
leiksríkt viðmótið áberandi.
Húmorinn djúpur og alltaf í há-
vegum hafður. Hláturmild og
skemmtileg. Tryggur vinur vina
sinna. Mannþekkjari var hún og í
þeim efnum fór ekkert fram hjá
henni. Þar af leiðandi hafði hún
allt til að bera til að verða fram-
úrskarandi geðhjúkrunarfræð-
ingur sem hún og gerði að ævi-
starfi sínu. Hún var alltaf að leita
eftir dýpri þekkingu og bæta við
sig námi til að geta þjónað skjól-
stæðingum sínum betur. Það
voru heppnir einstaklingar sem
komust undir hennar verndar-
væng.
Hjálpin sem hún veitti Öddu
systur minni þegar hún greindist
með krabbamein og þau ár sem
hún átti ólifuð var og er ómet-
anleg. Nú eru þær báðar farnar
úr sama sjúkdómi.
Systurdóttur minni, sem bjó
með þeim stöllum Öddu og Her-
dísi, hefur hún einnig reynst
styrkur gegnum árin.
Hjálpsemi hennar sem hún var
alltaf svo örlát á kynntumst við í
minni fjölskyldu, hvort sem það
voru börnin mín eða barnabörn.
Já hún hafði alltaf tíma fyrir alla
sem leituðu til hennar.
Þegar ég talaði við hana síðast
fyrir um það bil mánuði var það
æðruleysið sem einkenndi sam-
talið. Þakklætið fyrir lífið og fyrir
fjölskyldu sína, Ásu dóttur sína
og litlu ömmubörnin og prinsinn
hennar hann Davíð Arnar.
Mikið finnst mér heimurinn
missa mikið við andlát þessarar
elskulegu vinkonu. Ég kveð þig
elsku Herdís með söknuði.
Ég sendi Baldri, Ásu og Davíð
Arnari mínar innilegustu samúð-
arkveðjur. Minningin um Herdísi
Hólmsteinsdóttur lifir.
Guðbjörg Sigurjónsdóttir.
Herdís Hólmsteinsdóttir
hjúkrunarfræðingur er látin fyrir
aldur fram. Ég kynntist Herdísi
laust fyrir síðustu aldamót þegar
hún tók við starfi forstöðumanns
sambýlis fyrir geðfatlað fólk sem
rekið var á vegum Svæðisskrif-
stofu málefna fatlaðra í Reykja-
vík (SSR), þar sem ég starfaði
sem sálfræðingur og síðar sviðs-
stjóri. Herdís gerði það að kröfu
fyrir ráðningu sinni að geta sótt
handleiðslu. Úr varð að hún kom í
handleiðslu til mín. Frá upphafi
var reyndar aldrei ljóst hver var
að handleiða hvern en í þessum
tímum hófst áralangt samstarf
okkar Herdísar, gagnkvæmt
traust og vinátta. Ég lærði margt
af Herdísi og naut hennar skýru
sýnar á menn og málefni. Og þótt
við næðum ekki alltaf sömu nið-
urstöðu var gagnkvæmt traust
okkar og vinátta söm.
Herdís var glaðlynd og mætti
samstarfsfólki sínu og verkefnum
af jákvæðni og með opnum hug.
Hún var fagleg í allri sinni vinnu
en hún hafði mikla reynslu af
störfum á geðdeildum og þjálfun í
meðferð áður en hún réðst til
starfa hjá SSR. Hún bar virðingu
og umhyggju fyrir íbúum sam-
býlisins og starfsfólki sínu, sem
réttara væri að kalla væntum-
þykju. Herdís hafði einstakt og
næmt innsæi sem nýttist henni á
öllum sviðum, jafnt í stjórnun
sem í meðferðarstarfi. Þá var
Herdís mikil baráttu- og hug-
sjónakona sem sá fyrir sér mikla
uppbyggingu félagslegrar þjón-
ustu fyrir fólk með geðfötlun og
opnun geðheilsustöðva þar sem
fólk gæti sótt fyrstu línu aðstoð
með geðræn og sálræn vandamál.
Áhrif Herdísar á þróun fé-
lagslegrar þjónustu fyrir geðfatl-
að fólk liggja víða. Skipulag
hennar á starfsemi sambýlisins á
Hringbraut 8 (síðar Sóleyjargötu
39) varð fyrirmynd að annarri bú-
setuþjónustu. Þá vann hún ötul-
lega að skipulagi nýrra húsnæð-
isúrræða SSR fyrir geðfatlað
fólk. Þegar Herdís hóf störf hjá
SSR var ljóst að stór hluti geð-
fatlaðs fólks dvaldi á stofnunum
heilbrigðiskerfisins. Á vordögum
2003 réðst SSR í að gera úttekt á
fjölda geðfatlaðra Reykvíkinga
innan geðheilbrigðisþjónustunn-
ar sem gætu nýtt sér félagsleg
búsetuúrræði. Sú upplýsingaöfl-
un, sem Herdís vann, var und-
anfari úttektar á landsvísu sem
þáverandi félagsmálaráðherra
lét gera og sem varð grundvöllur
átaks í uppbyggingu félagslegra
húsnæðisúrræða fyrir geðfatlað
fólk, – Straumhvarfaverkefnis-
ins. Eftir að Herdís réðst til
starfa hjá Reykjavíkurborg var
velferðarsviðið fljótt að koma
auga á hæfileika hennar og fól
henni að byggja upp vettvangs-
geðteymi til stuðnings geðfötluð-
um íbúum í búsetuþjónustu, –
mikilvægt framfaraspor í fé-
lagslegri þjónustu.
Við Herdís áttum einnig langt
og ánægjulegt samstarf um
fræðslu og námskeið fyrir starfs-
fólk fötlunarþjónustunnar, bæði
innan SSR og utan. Það átti ekki
við Herdísi að ferðast með flugvél
svo við fórum mikið akandi. Voru
það ánægjustundir þegar við
geystumst um hringveginn á leið
austur í Hornafjörð eða norður í
land með glærurnar í farteskinu.
Í minningunni var alltaf gott
ferðaveður.
Það er með þakklæti og sökn-
uði að ég kveð tryggan vin og
samstarfskonu. Börnum Herdís-
ar og aðstandendum votta ég
samúð mína.
Halldór Kr. Júlíusson.
Einstök kona sem markaði
djúp spor í lífi svo margra er fall-
in frá. Mér er efst í huga þakklæti
fyrir þá einlægu vináttu sem
Herdís sýndi mér allt frá því við
kynntumst fyrst haustið 1982. Í
átta ár unnum við báðar í hluta-
starfi á deild 33C á geðsviði
Landspítalans. Ég man ekki ná-
kvæmlega hvernig okkar allra
fyrstu kynni bar að, en sennilega
hafa þau verið á vaktaskiptum,
þegar önnur okkar skilaði af sér
vaktinni og hin tók við. Í þá daga
unnum við oft um sömu helgar,
önnur á kvöldvakt og hin á morg-
unvakt. Mjög fljótt myndaðist á
milli okkar tilfinning um sam-
heldni og hlýju, sem lagði grunn-
inn að ómetanlegri vináttu. Við
þurftum líka oft að treysta hvor á
aðra og leita faglegra ráða hvor
hjá annarri.
Mér er til dæmis minnisstætt
þegar óveður geisuðu í borginni
að þá þurftum við ekki síður að
vera samhentar og treysta hvor á
aðra. Það var nefnilega ekki alltaf
á það treystandi að sú okkar sem
átti að taka við vaktinni kæmist á
réttum tíma til vinnu. Að hætti
Herdísar og hennar röggsemi
leystum við málið á milli okkar
tveggja. Sú okkar sem var í vinnu
og komst ekki heim stóð að sjálf-
sögðu vaktina áfram. Svona sög-
ur þekkja margir hjúkrunar-
fræðingar en fyrir mér vekja þær
notalegar minningar um sam-
starf okkar Herdísar.
Það var gott að eiga Herdísi
að, ekki bara þegar válynd veður
geisuðu um borgina, heldur og
ekki síður þegar gustaði um okk-
ur mannfólkið á lífsgöngunni.
Herdís hlustaði vel og var nösk á
líðan og lund viðmælenda sinna.
Þar fór saman fagleg færni og
náðargáfa Herdísar. Hvort
tveggja ræktaði hún vel og miðl-
aði fúslega til svo margra. Að
sumu leyti fór hún óhefðbundnar
leiðir í störfum sínum og lagði til
dæmis fyrir sig dáleiðslu með af-
ar góðum árangri. Þar naut hún
leiðsagnar Jakobs Jónassonar
geðlæknis, sem einnig var ein-
stakur maður og lærifaðir.
Eftir áralangt samstarf á
deildum Landspítala fengum við
báðar ný verkefni á nýjum vett-
vangi. Herdís varð deildarstjóri
og ég hóf minn kennsluferil við
Hjúkrunarfræðideild Háskóla Ís-
lands. Samstarf okkar hélt áfram
en í breyttri mynd. Herdís tók á
móti nemendum mínum í klín-
ískri geðhjúkrun og var sem fyrr
gjöful á þekkingu sína og
reynslu. Ekki spillti fyrir að Her-
dís átti auðvelt með að slá á létta
strengi og þá var oft kátt í höll-
inni.
Herdís fylgdist líka, vökulum
augum, með því sem fram fór á
fræðasviði geðhjúkrunar við
Hjúkrunarfræðideild Háskóla Ís-
lands. Hún kom á alla þá viðburði
sem hún mögulega gat, málstofur
og ráðstefnur. Þegar Herdís var
mætt á staðinn þá vissi ég að allt
myndi ganga vel. Með návist
hennar fann ég fyrir sömu ómet-
anlegu samstöðu eins og á árum
áður. Það er mikill missir að
slíkri konu, sem enn átti svo mik-
ið að gefa skjólstæðingum sínum
og kollegum. Það er sárt að missa
svo einstaka vinkonu sem Herdís
var, enda höfðum við styrkan
stuðning hvor af annarri frá
fyrstu stundu. Fyrir það er nú
þakkað af heilum hug.
Fjölskyldunni er vottuð hjart-
anleg samúð. Blessuð sé minning
Herdísar Hólmsteinsdóttur.
Jóhanna Bernharðsdóttir.
Herdís var teymisstjóri Vett-
vangsgeðteymis Reykjavíkur-
borgar frá stofnun þess 2010 þar
til hún lét af störfum vegna veik-
inda árið 2019. Teymið sinnir því
hlutverki að styðja notendur og
starfsfólk geðkjarnanna sem til-
heyra Reykjavíkurborg og er
samstarfsverkefni við geðþjón-
ustu Landspítala.
Herdís var frábær geðhjúkr-
unarfræðingur og fagmanneskja
fram í fingurgóma og leiddi upp-
byggingu teymisins frá upphafi.
Hún var með ómælda reynslu af
starfi með geðfötluðum og reynd-
ist notendum og starfsfólki í
teyminu ómetanlegur stuðning-
ur. Hún náði einstaklega góðu
sambandi við þá sem Vettvangs-
geðteymi sinnir og hún átti auð-
velt með að takast á við hvern
þann vanda sem kom upp og
leysti fagmannlega og með um-
hyggju. Hún hafði smitandi
ástríðu fyrir faginu og því að
auka lífsgæði einstaklinga með
geðraskanir. Hún var góður
vinnufélagi og hafði sínar skoð-
anir og var föst fyrir en réttsýn
og frábær málsvari fyrir notend-
ur þjónustunnar.
Herdís var frumkvöðull í
handleiðslu starfsfólks sem sinn-
ir stuðningi við geðfatlaða og
hafði einstaka yfirsýn yfir mála-
flokkinn eftir áralanga starfs-
reynslu og fékk Vettvangs-
geðteymið hvatningarverðlaun
Reykjavíkurborgar undir forystu
Herdísar árið 2014.
Eftir fráfall Herdísar hafa
teyminu borist margar kveðjur
frá fyrrverandi samstarfsfélög-
um hennar og eru þær lýsandi
fyrir eiginleika hennar og hvað
hún skilur eftir:
„Herdís var hjartahlý og ekk-
ert verkefni var of lítið eða of
stórt fyrir hana og hjarta hennar
brann fyrir fólki með geðsjúk-
dóma.“
„Hún var einstök, það var gott
að vinna með henni og hún var
góður hlustandi.“ „Ég leit á Her-
dísi sem vinkonu mína. Hún var
dásamleg manneskja.“ „Hún
gerði svo mikið fyrir mig og var
sú reynslumesta og besta mann-
eskja sem ég hef unnið með. Hún
gleymist ekki.“ „Herdís var frá-
bær og yndisleg að kynnast. Fag-
manneskja og gefandi að vinna
með henni.
Blessuð sé minning hennar
sem mun lifa.“ „Minnist hennar
með hlýhug og virðingu.“
Það er ljóst að minning og
þekking Herdísar mun lifa áfram
í stuðningi einstaklinga með geð-
raskanir og starfsfólk Vettvangs-
geðteymisins í dag minnist henn-
ar með virðingu og hlýhug og
mun gera sitt besta til að halda
hennar öfluga og faglega starfi
áfram um ókomna tíð.
Við kveðjum Herdísi með
miklu þakklæti og vottum fjöl-
skyldu hennar okkar innilegustu
samúð.
Fyrir hönd Vettvangsgeð-
teymis Reykjavíkurborgar,
Þóra Björk Bjarnadóttir,
sálfræðingur
og teymisstjóri.
Elsku vinkona mín er farin,
það er tómarúm og maður er dof-
inn.
Við Dísa ólumst upp í vest-
urbæ Kópavogs og gengum í
Kársnesskóla, síðan þurftum við
að sækja framhaldsskóla í aust-
urbæinn, Víghólaskóla, nú MK.
Frábærari vinkonu er vart
hægt að eignast, alltaf hress og
til í allt, sem dæmi þegar ég með
dags fyrirvara bað hana að
skreppa með mér til London fyrir
mörgum árum, já hún hélt það
nú, ekki málið, svona var hún
tilbúin að gera eitthvað skemmti-
legt.
Það er erfitt að hugsa til þess
að eiga ekki eftir að hringja eða
hittast og ræða málin, hlæja svo-
lítið og fá góð ráð, rifja upp allt
sem við brölluðum saman í gegn-
um tíðina.
Það er margs að minnast, sem
verður ekki talið upp hér, þyrfti
heila bók til þess, en lifir bara í
minningunni. Með þessum fátæk-
legu orðum kveð ég mína kæru
vinkonu og sendi allri fjölskyld-
unni innilegar samúðarkveðjur.
Hugur einn það veit,
er býr hjarta nær,
einn er hann sér of sefa.
(Úr Hávamálum)
Kristjana Laufey
Ásgeirsdóttir (Kidda).
Sumar minningar og stemn-
ingar frá löngu liðnum árum eins
og taka sig út úr röðinni. Þær
standast straumköst tímans og
mulningsvél framvindunnar,
fjarlægjast ekki né dofna í móðu
fortíðarinnar, heldur búa áfram
með manni ljóslifandi og ferskar.
Og sumt fólk lifir áfram hið innra
með okkur, þótt það kveðji, lýsir
þar upp og yljar.
Alveg sérstaklega á þetta við
núna um Herdísi Hólmsteins-
dóttur hjúkrunarfræðing. Frá
henni stafaði góðvild og glettni,
hún var raunsæ og ráðholl, sterk
og styðjandi. Nærvera hennar
var einkar hlý og hafði uppörv-
andi áhrif á allt umhverfi hennar.
Er ég henni afar þakklátur fyrir
kynnin og vináttuna. Ástvinum
hennar votta ég innilega hlut-
tekningu.
Magnús Skúlason.
Heyrumst á morgun, sagði
Herdís við mig tveimur sólar-
hringum fyrir andlátið.
Svo fór þó ekki því miður.
Nú er hún farin alltof fljótt.
Hún ætlaði að gera svo margt.
Njóta samveru með fjölskyld-
unni, sérstaklega yngstu barna-
börnunum, þeim Hólmsteini og
Ödu Maríu.
Hún ætlaði líka að njóta sam-
SJÁ SÍÐU 24
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 2020
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
EYJÓLFUR KRISTJÁNSSON
vélstjóri,
Engjadal 6, Innri-Njarðvík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
miðvikudaginn 16. desember.
Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju þriðjudaginn
22. desember klukkan 11. Í ljósi aðstæðna verða einungis
nánustu aðstandendur viðstaddir.
Guðrún Þorsteinsdóttir
Guðborg Eyjólfsdóttir Guðmundur K. Kristmundsson
Þorsteinn Eyjólfsson Harpa Ólafsdóttir
Kristján Eyþór Eyjólfsson Anna Signý Guðbjörnsdóttir
barnabörn og langafabarn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
INGIBJÖRG J. JÓNASDÓTTIR,
Bjarkarheiði 21, Hveragerði,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
sunnudaginn 13. desember.
Útförin fer fram frá Hveragerðiskirkju mánudaginn
21. desember klukkan 14. Í ljósi aðstæðna verða aðeins
nánustu ættingjar viðstaddir.
Sturla S. Þórðarson Ingibjörg Jones
Herdís Þórðardóttir Sigurður Egilsson
Jónas Þór Þórðarson
Ingibjörg Erna Þórðardóttir Sveinn Guðmundsson
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn