Morgunblaðið - 18.12.2020, Síða 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 2020
✝ Níelsa Magn-úsdóttir fædd-
ist 16.12. 1937 á
Jaðri í Stykkishólmi
og ólst þar upp.
Níelsa lést á Hrafn-
istu í Hafnarfirði
8.12. 2020.
Foreldrar Níelsu
voru Magnús Ísleifs-
son bifreiðarstjóri,
f. 3.1. 1907, d. 7.11.
1985 og Bergþóra
Þorgeirsdóttir húsmóðir, f. 28.4.
1914, d. 13.4. 2003.
Systur Níelsu eru Þórhildur
Magnúsdóttir, f. 30.11. 1941 og
Guðrún Erna Magnúsdóttir, f.
21.1. 1957.
Níelsa giftist 27.9. 1958 Jóni
Lárusi Bergsveinssyni vélfræð-
ingi, f. 13.8. 1936, foreldrar hans
voru Bergsveinn Jónsson hafn-
sögumaður, f. 10.3. 1899, d. 26.6.
ardóttur, þeirra börn eru: a) Ýr,
sambýlismaður hennar er Nicho-
las Þór, dóttir þeirra er Ronja
Nótt, b) Jökull, unnusta hans er
Eydís.
Níelsa lauk landsprófi frá
Stykkishólmi en stundaði síðan
nám í landbúnaðarskóla í Svíþjóð
og Húsmæðraskóla Reykjavíkur.
Níelsa var alla tíð virkur þátt-
takandi í félagsstörfum, meðal
annars í Kvenfélaginu á Álfta-
nesi, Kvenfélaginu Keðjan og í
stjórn Kvenfélagasambands Ís-
lands.
Níelsa vann alla sína tíð við
skrifstofu- og verslunarstörf og
þá lengst í Nýform í Hafnarfirði
og á skrifstofu Bessastaða-
hrepps.
Útförin fer fram frá Garða-
kirkju 18. desember 2020 klukk-
an 13.
Vegna aðstæðna verða ein-
göngu nánustu aðstandendur
viðstaddir en hægt verður að
nálgast streymi á:
https://promynd.is/nielsa/.
Virkan hlekk á streymið má
finna á:
https://www.mbl.is/andlat/.
1981 og Vilborg
Rögnvaldsdóttir
húsmóðir, f. 28.8.
1897, d. 19.9. 1972.
Börn Níelsu og
Jóns Lárusar eru: 1)
Bergþóra Jóns-
dóttir, f. 1959, gift
Þóri Gíslasyni,
þeirra sonur er Gísli
Jón, sambýliskona
hans er Lilja Rún,
þeirra börn eru
Stefanía Mist og Þórir Hafnfjörð.
2) Vilborg Jónsdóttir, f. 1961, gift
Daða Hilmari Ragnarssyni,
þeirra börn eru: a) Árný Lára,
gift Hans Werner, þeirra dætur
eru Íris Vilje og Vilborg Vilje, b)
Jón Ragnar, giftur Heru Guð-
laugsdóttur, þeirra synir eru Ís-
leifur, Fóki og Þrymur, c) Elsa
Sólveig. 3) Bergsveinn Jónsson, f.
1967, giftur Þórleifu Sigurð-
Okkar elskulega móðir Níelsa
Magnúsdóttir er fallin frá.
Við systkinin teljum okkur lán-
söm að hafa átt þessa mömmu.
Hún var einstök, alltaf tilbúin til
að hvetja okkur í öllu sem við tók-
um okkur fyrir hendur, einnig var
hún með eindæmum jákvæð og
glöð sem hafði mjög góð áhrif á
okkur öll sem voru henni náin.
Það er yndislegt að alast upp
við svona jákvætt viðmót, sem
mótaði okkur til að horfa á lífið í
jákvæðu og glöðu ljósi.
Mamma var glæsileg kona, hún
og pabbi voru fallegt par, góðir
vinir og mjög samheldin, enda bú-
in að þekkjast síðan úr barna-
skóla. Þessi vinskapur þróaðist og
þau giftust og hafa verið gift í 60
ár.
Vegna veikinda eyddi mamma
síðustu árunum á Hrafnistu, og
var það fastur liður hjá pabba að
fara til mömmu og sitja hjá henni
á hverjum degi þar sem hann
spjallaði um daginn og veginn og
hugsaði vel um hana.
Mamma var stolt af fjölskyld-
unni sinni og var óspör á að segja
okkur það, hún var mikil amma og
fannst ekkert eins skemmtilegt og
þegar við vorum öll saman í sum-
arbústað, jóla-, afmælis- eða kaffi-
boðum.
Síðasta veislan sem við vorum
öll saman ásamt systrum hennar
var síðastliðið sumar, 17. júní, þá
var hún orðin sárlasin en naut sín í
sólarblíðunni, horfði á langömmu-
börnin leika sér og spjallaði við
sína nánustu um lífið og tilveruna.
Mamma var mikið jólabarn og
það var mikilvægt að jólin væru
haldin hátíðleg ásamt því að fylgja
þeim gömlu hefðum sem hún hafði
tamið sér í gegnum tíðina.
Bakstur var mikilvægur hjá
henni og var það mjög mikilvægt
fyrir okkur að hjálpa til við að
baka allar þær óteljandi sortir af
smákökum sem hún átti upp-
skriftir að, ásamt ómissandi jóla-
brauðinu góða með hangikjöti sem
við borðuðum saman á jóladag og
drukkum hvítöl með.
Þessari baksturshefð hennar
mömmu verður haldið áfram og
ætlum við systkinin að kenna okk-
ar börnum og barnabörnum mik-
ilvægi þess að halda í sínar hefðir.
Nú mega jólin koma!
Okkur fannst þetta ljóð eftir
Kristján Hreinsson lýsa mömmu
vel.
Hjá mömmu lifði ljósið bjart
sem loga fékk á kerti.
Þess máttur lýsti myrkrið svart
og mína hugsun snerti.
Hún kvaddi okkar æviveg
svo ástrík fyrir skömmu.
En árum saman átti ég
indæl jól hjá mömmu.
Nú kemur jólakvöldið senn
með kalda, dökka skugga,
og ljós frá mömmu lifir enn,
hún lét það út í glugga.
Elsku mamma, þín verður sárt
saknað.
Þessi fallegu orð voru sögð við
okkur sem við látum fylgja með:
„Þeir lifa er munað er eftir.“
Hvíl í friði, elsku mamma, og
takk fyrir allt, með ást frá okkur
systkinunum.
Bergþóra Jónsdóttir,
Vilborg Jónsdóttir,
Bergsveinn Jónsson.
Elsku fallega amma mín.
Ég trúi því ekki að þú sért farin
og ég fái ekki að hitta þig aftur og
segja þér frá uppátækjum stelpn-
anna minna, nýjustu hugmynd-
inni minni og bara smáspjall um
allt og ekkert.
Þú varst amma mín í 39 ár,
mamma mömmu minnar í 59 ár
og ástargullið hans afa í yfir 60 ár.
Þú varst auðvitað mun meira en
þetta og dýrmæt fyrir fjölskyld-
una þína og vini.
Þú varst alltaf svo góð amma
og gerðir svo margt fallegt fyrir
mig sem ég verð ævinlega þakklát
fyrir og stolt yfir að segja dætrum
mínum frá þér.
Þú skilur eftir þig mikla gleði í
hjarta okkar allra og fallegar
minningar sem aldrei munu
gleymast.
Þú varst alltaf svo góð, um-
hyggjusöm, stolt, ánægð og
áhugasöm um fallega fólkið þitt.
Það gleður mig tilhugsunin um
hversu langt, fallegt og innihalds-
ríkt líf þitt var.
Takk fyrir allar góðu stundirn-
ar og takk fyrir að þú varst amma
mín – ég datt virkilega í lukku-
pottinn!
Þú lifir áfram í hjarta mínu.
Ástarkveðja, þín
Árný Lára Daðadóttir.
Elsku nafna mín hún amma,
uppáhaldsmanneskjan mín, hefur
kvatt okkur, ég veit að henni líður
betur þar sem hún er núna.
En amma var búin að vera veik
lengi, samt vildi ég óska þess að
ég hefði fengið að hafa þig lengur
hjá mér.
Ég mun ávallt halda fast í allar
minningarnar sem ég á um þig.
Öll skiptin sem þið afi biðuð eft-
ir mér með kókómjólk og snúð
fyrir utan skólann til að keyra mig
á fimleikaæfingu.
Öll skemmtilegu vídeókvöldin
okkar, og hvað þú söngst fallega
fyrir mig til að ég gæti sofnað.
Oft vorum við Jökull bæði hjá
þér í pössun og þá var sko fjör.
Sama hvað við vorum óþekk þá
hlóstu yfirleitt að okkur og við
hlógum mest þegar þú settir upp
reiðisvipinn þinn því að okkur
fannst hann ekki passa við þig því
þú varst alltaf brosandi.
Ég er svo stolt af því að hafa
verið skírð í höfuðið á þér og mun
varðveita minninguna um þig alla
mína ævi.
Þessa bæn kenndir þú mér og
minnir hún mig alltaf á þig.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sigurður Jónsson frá Presthólum)
Hvíl í friði elsku amma mín.
Þín
Elsa Sólveig Daðadóttir.
Elskuleg systir mín, Níelsa
Magnúsdóttir, er fallin frá eftir
erfið veikindi sem mörkuðu mjög
líf hennar hin síðari ár. Elsa var
elst af okkur systrum, Þórhildur í
miðjunni og ég yngst. Elsa var
elst en hún var minnst, lág í loft-
inu en samt svo stór. Ég segi stór,
því hún var svo drífandi og rösk til
allra verka og hún var blíð og hlý,
glaðlynd og jákvæð. Nonna sínum
var hún góð eiginkona, börnum
sínum þremur góð móðir sem og
barnabörnum og barnabarna-
börnum. Öll elskuðu þau Elsu
ömmu sem fylgdist svo vel með
öllu sem þau tóku sér fyrir hendur
og hvatti þau. Dætrum mínum
fylgdist hún líka vel með og spurði
alltaf hvað væri að frétta af þeim
og hvað þær væru að gera. Elsa
systir fæddist árið 1937 en ég
1957 og því tuttugu ára aldurs-
munur á okkur. Þar af leiddi að
við áttum ekki samleið í foreldra-
húsum; hún að fljúga úr hreiðrinu
þegar ég er að setjast í það. Ég á
því engar sameiginlegar minning-
ar með Elsu úr okkar uppeldi en
sama æskuheimilið áttum við á
Skólastíg 15 í Stykkishólmi og ól-
umst upp við sömu aðstæður hjá
ástríkum foreldrum.
Elsa og Nonni fluttu svo fljót-
lega suður og hafa búið allan sinn
búskap á höfuðborgarsvæðinu.
Þegar ég fór suður í menntaskóla
flutti ég til þeirra á Miðvanginn í
Hafnarfirði og var ég þá eins og
fjórða barnið á heimilinu enda
bara tveimur árum eldri en Berg-
þóra sem er elst af þeirra börnum.
Þó svo að yfirleitt byggjum við
Elsa fjarri hvor annarri kom hún
mikið að mínu lífi. Þegar ég
fermdist kom hún vestur og sá um
fermingarveisluna, þegar ég varð
stúdent var haldin veisla á heimili
Elsu og Nonna sem og brúð-
kaupsveisla okkar Pálma. Um
þær veislur sá Elsa enda lista-
kokkur og flink í allri framreiðslu.
Elsa var glæsileg kona, alltaf
svo fín og sæt og umhugað um að
líta vel út. Sama var að segja um
heimili hennar og Nonna, allt á
sínum stað. Það var gott að koma
til Elsu og Nonna, gott að finna
hvað stóru systur fannst vænt um
hreiðurdrútinn sem kannski kom
alveg óvart í heiminn, stóru systr-
unum kannski ekki til allt of mik-
illar gleði í fyrstu. Ekkert var
betra en að finna hlýtt faðmlag
hennar sem ég fékk að finna síð-
ast fyrir þremur vikum þegar ég
heimsótti hana á dánarbeðinn og
hún býsnaðist yfir því að ég væri
að koma suður á þessum tíma til
að heimsækja hana. Ég hefði vilj-
að geta átt meiri samleið með
elsku Diddu minni í gegnum lífið
en við áttum góða tíma saman og
fyrir það er ég innilega þakklát.
Ætíð mun ég minnast þín
elskulega systir mín,
brosið þitt svo blítt og kært
blik í augum skært.
Þín systir,
Guðrún Erna.
Elskulega móðursystir mín
Níelsa, hefur nú kvatt þessa jarð-
vist, Elsa eins og hún var alltaf
kölluð og stundum Didda frænka,
eins og mamma hafið kallað syst-
ur sína þegar hún var lítil. Þær
systur voru þrjár Elsa elst svo
kom Þórhildur (Dóda) og svo
mamma mín litla örverpið. Tutt-
ugu ár voru á milli mömmu og
Elsu og sextán á milli mömmu og
Dódu. Þegar mamma var nýfædd
voru þau Elsa og Nonni nýtrúlof-
uð og þegar þau gengu um Hólm-
inn með vagninn héldu margir að
þau væri komin með eitt lítið en
þá var það bara litla systir í vagn-
inum. Ég var svo lánsöm að Elsa
og Þórhildur hafa alltaf verið mér
afar kærar frænkur og svolítið
eins og auka ömmur, fyrir það er
ég þakklát.
Ég fékk að fara í ófáar sum-
arbústaðaferðirnar með Elsu og
Nonna, þá voru ég og Árný, Jón
Ragnar og Gísli Jón oftast með í
för. Það var alltaf gaman og Árný
leyfði mér að eiga hlut í ömmu
sinni og afa, já ég mátti eiga þau
með henni, það þótti mér ákaflega
vænt um. Svo var alltaf gaman að
koma í Norðurtúnið út á Álftanesi
og í minningunni var alltaf gott
veður og alltaf hægt að laumast í
saltpillur sem þau hjónin höfðu
keypt í Fríhöfninni í einni af Kan-
aríferðunum sínum, en þangað
fóru þau oft.
Það hefur alla tíð verið gott að
koma til Elsu og Nonna og þau
einstaklega samhent hjón. Elsa
var einstaklega góður kokkur og
bakaði góðar kökur. Ég man fyrir
nokkrum árum þegar ég kom
heim til þeirra, það var eftir að
þau fluttu á Hjallabrautina og þau
að baka smákökur, Elsa gerði
kökurnar og Nonni setti í ofninn
og fylgdist með kökunum því þá
átti Elsa orðið svolítið erfitt með
gang en auðvitað var ekkert hætt
að baka, bara fundin lausn á hlut-
unum.
Elsa var alltaf einstaklega
glæsileg og vel til höfð, var alltaf
svo fín og sæt. Ég kom oft í gegn-
um tíðina heim til hennar og litaði
augabrúnir og lakkaði neglurnar
og fleira, allt var tipp topp.
Ég man þegar ég flutti fyrir
þrettán árum út á Álftanes en
þangað hafði mér alltaf þótt gott
að koma til Elsu og Nonna sem
barn, þar var svo rólegt og gott að
vera. Þá sagði Elsa við mig að all-
ar ungar konur sem flyttu út á
Álftanes gengu í kvenfélagið. Ég
var nú ekki alveg á því tuttugu og
sjö ára en Elsa var kvenfélags-
kona eins og amma Begga heitin.
Fyrir nokkrum árum átti ég nota-
lega stund með Elsu og Vilborgu
þegar við fórum á jólafund kven-
félagsins, Það var svo gaman hvað
allar kvenfélagskonurnar voru
glaðar að sjá Elsu enda svo ynd-
isleg og var saknað úr kvenfélag-
inu. Ef ég geng einn daginn í
kvenfélagði mun ég svo sannar-
lega hugsa til hennar frænku
minnar.
Ég er ákaflega þakklát fyrir
Elsu frænku mína sem var mér
alltaf góð. Hún og Nonni hafa alla
tíð verið ákaflega stolt af sínu fólk
enda eiga þau frábær börn,
barnabörn og langömmubörn.
Elsku Nonni, Vilborg, Begga,
Beggi og fjölskyldur, ég votta
ykkur mína dýpstu samúð, skarð-
ið er stórt en minning um ynd-
islega, góða og brosmilda frænku
mun lifa um ókomna tíð.
Hvíli í frið elsku frænka
Þín
Margrét.
Níelsa
Magnúsdóttir
✝ SigurbjörgKristjánsdóttir
fæddist 18. apríl
1945 á Harrastöð-
um í Skagahreppi.
Hún lést í faðmi
fjölskyldunnar 27.
nóvember 2020.
Foreldrar Sig-
urbjargar voru
Fjóla Gísladóttir,
f. 5. júlí 1918, d. 5.
nóv. 1991, og
Kristján Guðmundsson, f. 2.
des. 1911, d. 16. apríl 1979.
Systkini Sigurbjargar eru
Guðmundur, f. 14. sept. 1937,
d. 2. maí 1977, Guðný, f. 18.
jan. 1941, Jóhanna Guðrún, f.
11. maí 1943, Jóna, f. 6. júlí
1948, Gísli, f. 7. nóv. 1949, og
Anna Margrét, f. 16. júní
1952.
Eiginmaður Sigurbjargar
var Magnús Jónasson skrúð-
garðyrkjufræðingur, f. 15. júlí
1944. Hann lést 8. júlí 2017.
Börn Sigurbjargar og
Magnúsar eru stúlka fædd og
látin 4. júní 1965, Anton, f. 19.
mars 1966, Jónas, f. 24. okt.
1968, Kristján, f. 4. feb. 1971,
Rut, f. 22. apríl 1972, Ingvar,
f. 21. maí 1980.
Barnabörn Sigurbjargar eru
20.
Sigurbjörg gekk
í barnaskólann á
Skagaströnd og
var í einn vetur í
unglingaskólanum
þar. Sigurbjörg
var hagyrðingur
mikill, orti ljóð og
kvæði og skrifaði
sögur alla sína tíð.
Önnur listsköpun
lá líka vel fyrir
henni, svo sem að
teikna og mála. . Sigurbjörg
stefndi á nám í snyrtifræði og
hafði áætlað að nema í Dan-
mörku, þegar hún kynntist
Magnúsi verðandi eiginmanni
sínum.
Sigurbjörg hóf störf 13 ára
í vist á Skagaströnd. Hún
vann síðan meðal annars eitt
sumar á hóteli í Hlíðardals-
skóla. Þegar Sigurbjörg var
17 ára gömul hóf hún störf á
elliheimilinu Grund. Síðar
starfaði hún á skrifstofu skatt-
stofunnar í Reykjavík. Sig-
urbjörg lagði stund á af-
greiðslustörf ýmiss konar,
meðal annars í IKEA og
Rafha. Þaðan lá leiðin yfir til
ÁTVR þar sem hún starfaði
allt til starfsloka eða í 20 ár.
Útför Sigurbjargar fór fram
7. desember 2020.
Elsku mamma, við söknum þín
mikið. Þótt það væri löngu vitað
að þessi stund væri nærri, þá er
maður aldrei tilbúinn. Söknuður-
inn er nístandi sár. Þú varst
löngu tilbúin í þitt ferðalag, enda
var þetta orðið þér allt mjög erf-
itt, og sárt var að horfa á þrek
þitt og lífsneista dvína. Við höfð-
um þegar kvatt þig einu sinni
þegar þú varst á líknardeildinni í
fyrra, en svo vaknaðir þú eins og
Þyrnirós, tilbúin til að taka út
þína inneign sem eftir var og við
önduðum aftur. Það var svo gott
að fá þig á nýjan leik og geta var-
ið aðeins meiri tíma með þér,
bara örstund enn. Heilsu þinni
fór þó hrakandi og með haustinu
sem leið gerðist það hratt. Lífs-
gæði þín voru orðin mjög skert
og erfitt var að óska í sjálfselsku
sinni eftir meiri tíma með þér.
Ekkert var þér jafn mikilvægt
og börnin þín og barnabörn og
það sýndir þú í öllu því sem þú
gerðir. Þær eru ófáar buxurnar
sem þú hefur stytt, göt sem þú
hefur bætt, tár sem þú hefur
þerrað og faðmlög sem þú hefur
veitt.
Þú varst alltaf til staðar og
hlustaðir og hvattir okkur áfram
með kærleika þínum. „Þú getur
þetta,“ er nokkuð sem þú hefur
sagt við okkur öll, bæði börnin
þín og barnabörn á einhverjum
tímapunkti í okkar lífi.
Í breyskleika okkar gátum við
alltaf leitað til þín, með hvað sem
var og hvenær sem var. Þú
dæmdir aldrei, heldur hlustaðir
og leiðbeindir, straukst okkur um
vanga og talaðir blíðlega. Eftir að
við urðum fullorðin hélstu áfram
að strjúka okkur um vangann,
enda óskaðir þú einskis frekar en
að líf okkar væri ríkt af hamingju
og velgengni. Ást þín var mikil og
umvefjandi.
Mamma, okkur fannst þú svo
vitur og klár, samdir krossgátur,
last endalaust af bókum, samdir
ógrynni af ljóðum og talaðir svo
fallegt mál. Þú blótaðir aldrei,
heldur lést okkur heyra það ef þú
heyrðir eitthvað slíkt frá okkur.
Enda varstu fáguð kona með list-
rænt hjarta, og fallegu ljóðin þín
munu ylja okkur um ókomna tíð.
Þú kenndir okkur mikilvægi
þess að við systkinin værum vinir
og styddum hvert annað, því ekk-
ert væri mikilvægara í lífsins
ólgusjó en að eiga hvert annað að.
Systkinin væru akkerið þegar á
reyndi, þar gætum við leitað
huggunar og skjóls. Þetta hlotn-
aðist þér í þinni barnæsku enda
voruð þið systkinin ætíð bestu
vinir og félagar.
Í æsku voru samverustundir
fjölskyldunnar við eldhúsborðið,
oft að spila.
Við gátum spilað tímunum
saman, og það fylgdi okkur inn í
fullorðinsárin. Þegar pabbi var
orðinn mjög veikur og þurfti á 24
tíma aðhlynningu að halda, þá
sýndi sig þessi samheldni eins og
svo oft áður, sem þú hafðir kennt
okkur.
Við hlúðum að honum, og svo
þér, og til að stytta okkur stundir
spiluðum við í íbúðinni ykkar að
Engjavöllum.
Elsku mamma, við eigum ótal
hjartnæmar og yndislegar minn-
ingar um einstaklega fallega
móður og kæran vin, sem munu
ylja okkur í söknuðinum sem við
finnum nú. Við viljum þakka þér
fyrir ferðalagið, samfylgdina,
samveruna og hið ómetanlega
veganesti sem við fengum frá
þér.
Megir þú hvíla í friði.
Börnin þín,
Anton, Jónas, Kristján,
Rut og Ingvar.
Sigurbjörg
Kristjánsdóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein.
Minningargreinar