Morgunblaðið - 18.12.2020, Page 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 2020
30 ára Eggert Óskar
ólst upp í Breiðholtinu
en býr í Árbænum í
dag. Eggert er rekstr-
arstjóri. Helsta áhuga-
mál Eggerts Óskars er
fótbolti en hann er
mikill Liverpool-
aðdáandi, enda besta liðið. Síðan hefur
hann mikinn áhuga á tónlist, spilum og
samveru með fjölskyldunni.
Maki: Dagný Ósk Gunnarsdóttir, f. 1987,
sölufulltrúi hjá Gólfefnavali.
Börn: Ármey Alba, f. 2013, Baldur Máni,
f. 2017 og Arnar Kári, f. 2019.
Foreldrar: Ólafur Gestsson, f. 1969, for-
stöðumaður PwC á Suðurlandi, og
Guðrún Hulda Waage, f. 1971, pósthús-
meistari í Borgarnesi.
Eggert Óskar
Ólafsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Láttu ekki hugleiðingar um fram-
tíðina skemma fyrir þér nútíðina. Gælu-
dýrin þín vita betur hvernig þér líður en
félagarnir.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert að eiga við fólk sem er erfitt
að ná til tilfinningalega, en þú getur það
ef þú reynir. Gott samtal við foreldri eða
eldri og reyndari manneskju yrði áhrifa-
ríkt.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú þarft að gefa tilfinningunum
smáfrí og velta hlutunum fyrir þér af
kaldri skynsemi. Hlustaðu eftir vísbend-
ingum í líkamanum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Gleði, rómantík, ánægja og hvers
kyns skemmtanir ráða ríkjum í dag. Það
er ekki ástæða til annars en að vera léttur
í lund og láta lífið leika við sig
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Allir hafa nokkrar lífsreglur sem þeir
fylgja. Varastu að láta tilfinningarnar
hlaupa með þig í gönur.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Ef þú vilt deila áhyggjum þínum
með einhverjum skaltu velja þér trún-
aðarvin af kostgæfni. Gefðu þér tíma til að
hugsa málið.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ef maður gefur ímyndunaraflinu laus-
an tauminn nógu lengi verður það raun-
verulegt.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú hefur þörf fyrir að bæta
þig og reyna að ná betri árangri. Ef ein-
hver vill létta undir með þér skaltu þiggja
það með þökkum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Skráðu hjá þér frumlegar hug-
myndir og hugsanir því þær eru undir-
staða fyrir arðbær verkefni sem munu
bera ávöxt á næstu mánuðum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Hugsaðu vandlega þinn gang
áður en þú hættir þér út í umræður um
viðkvæm persónuleg mál. Enginn er frið-
helgur og jákvæð gagnrýni getur verið
mjög uppbyggileg.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Að elska og vera elskaður er
það sem máli skiptir í lífinu. Nú ríður á að
grípa tækifærið.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Dagurinn byrjar hugsanlega ekki
sem skyldi en draumlyndi og gleði taka
völdin þegar á líður.
okkar lágu saman af tilviljun, en hann
var kvæntur konu frá Akureyri eins
og ég, og þannig kynntist ég honum.
Þetta ár í London nýttist mér vel og
ég held að ég hafi aldrei á ævinni farið
á jafn marga tónleika og á þessu ári,
sem var alveg dásamlegt.“
Eftir árið í London fór Bjarni heim
og kenndi við Tónlistarskóla Akureyr-
ar frá 1979-1982 en fluttist þá til
Reykjavíkur og hefur starfað óslitið
sem píanókennari og meðleikari við
sjálfur. Ég hafði kynnst konunni
minni Jónu Guðbjörgu Ingólfsdóttur
skömmu áður og hún kenndi líka fyrir
vestan þennan vetur. Þetta var okkar
fyrsta búskaparár.“
Árið eftir var Bjarni Þór í fullri
vinnu hjá flugfélaginu en svo fór hann
til London ári seinna og var í einka-
tímum í píanóleik hjá prófessor Philip
Jenkins, sem varð síðar yfirprófessor í
píanódeild Royal Scottish Academy of
Music and Drama í Glasgow. „Leiðir
B
jarni Þór Jónatansson
fæddist í Baldurshaga á
Stokkseyri 18. desem-
ber 1950, en ólst upp á
Eyrarbakka. Þar gekk
hann í barnaskóla og einnig í tónlist-
arskóla frá níu ára aldri. „Það var
mikil tónlist í kringum mig. Afi minn,
Ingjaldur Tómasson á Stokkseyri,
spilaði mikið á harmonium og söng og
ég lærði mikið af lögum. Síðar var
stofnaður tónlistarskóli á Eyr-
arbakka, svo tónlistin hefur fylgt mér
alla tíð.“
Bjarni Þór lauk landsprófi frá
Gagnfræðaskóla Selfoss 1965, því
næst lá leiðin í Menntaskólann á
Laugarvatni og varð hann stúdent
þaðan 1970. „Það lá beinast við að fara
á Laugarvatn og þar var mjög sér-
stakt og gott samfélag og ég tók mik-
inn þátt í sönglífi nemenda.“
Bjarni Þór var yfirleitt í vegavinnu
á sumrin á menntaskólaárunum en
1970 hóf hann nám í Tónlistarskól-
anum í Reykjavík og lauk þaðan pí-
anókennaraprófi árið 1975. Bjarni
hafði alltaf haft mikinn áhuga á tungu-
málum og fór því í Háskóla Íslands og
lærði bæði þýsku og ensku. „Ég lauk
við 3. stig í þýskunni en 1. stig í ensku
áður en tónlistin tók alveg við. Ég
kenndi þýsku um skeið stuttu síðar í
framhaldsskólum, bæði í MH og MS.“
Öll sumrin í Reykjavík vann Bjarni
Þór hjá Flugfélagi Íslands og síðar
einnig sem leiðsögumaður í Kulusuk á
Grænlandi. „Herdís Vigfúsdóttir kona
Valtýs Péturssonar listmálara var
aðalleiðsögumaðurinn í dagsferðunum
til Kulusuk á þeim tíma, en hún talaði
ekki þýsku og þar sem þýskumælandi
farþegar voru fjölmennir í þessum
ferðum var ég fenginn til að fara
með.“ Það endaði með því að Bjarni
Þór fór hátt í 100 ferðir til Kulusuk á
nokkrum sumrum. „Við vorum með
stígvélalager, því það var iðulega
snjór fram í júlí og enginn vegur
þarna og ekki gott fyrir ferðamennina
að komast leiðar sinnar á lakkskóm.“
Árið 1975-6 var Bjarni Þór skóla-
stjóri við Tónlistarskóla Neshrepps
utan Ennis á Hellissandi. „Hermína
Kristjánsson kennari minn benti mér
á þessa stöðu, og þetta var gífurlega
góð reynsla, því ég þurfti að kenna allt
söngdeild Nýja tónlistarskólans í
Reykjavík frá 1982, en Ragnar
Björnsson, fyrrverandi dómorganisti,
hafði þá stofnað skólann nokkrum ár-
um áður.
Bjarni Þór hefur lengi starfað sem
píanóleikari með fjölda kóra og ein-
söngvara, til dæmis var hann undir-
leikari Árnesingakórsins í Reykjavík í
rúman áratug samfellt. „Ég hef líka
átt langt og sérlega gefandi samstarf
við karlakvartettinn Út í vorið frá
árinu 1993 og hlaut þar starfsheitið
„yfirkvartari“ og eins hef ég unnið
mikið með sönghópnum 3 klassískar,
sem þær Björk Jónsdóttir, Jóhanna
V. Þórhallsdóttir og Signý Sæmunds-
dóttir skipa.“
Bjarni Þór var þrjú ár í orgelnámi
hjá Herði Áskelssyni við Tónskóla
þjóðkirkjunnar um miðjan 10. áratug
síðustu aldar og var í kjölfarið org-
anisti Grafarvogskirkju í eitt ár og
hefur leikið við kirkjulegar athafnir
nokkuð reglulega síðan.
Bjarni Þór er mikill skák-
áhugamaður. „Það líður varla sá dag-
ur að ég hugsi ekki eitthvað um skák.
Ég fór ekki að tefla að ráði fyrr en í
menntaskóla, en var síðar meðlimur í
Bjarni Þór Jónatansson tónlistarmaður – 70 ára
Fjölskyldan Bjarni Þór og Jóna, dæturnar Sigrún og Lilja og barnabarnið Dagný Heiða á sólríkum degi.
Tónlistin hefur fylgt mér alla tíð
Barnabörnin Hér er Bjarni Þór með Dagnýju Heiðu og Hrafnhildi Önnu.
30 ára Júlía ólst
upp í Reykjavík og
svo bjó hún erlendis
með fjölskyldunni í
þrjú ár í Bandaríkj-
unum. Júlía er heilsu-
markþjálfi, næringar-
og lífsstílsráðgjafi og
heilsukokkur og eigandi fyrirtækisins
Lifðu til fulls, sem hjálpar fólki við að
breyta um lífsstíl. Helstu áhugamál Júl-
íu eru eldamennska, hreyfing, útivist og
ferðalög.
Maki: Vilhjálmur Hendrik Karlson, f.
1984, tónlistarmaður.
Foreldrar: Halldóra Magnúsdóttir, sjálf-
stætt starfandi hjá Forever Living á Ís-
landi, og Magnús Gunnarsson, for-
stöðumaður í kirkju.
Júlía
Magnúsdóttir
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is