Morgunblaðið - 21.12.2020, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
ERT ÞÚ Í BYGGINGARHUGLEIÐINGUM?
VIÐ FRAMLEIÐUM EINNIG
Smáhýsi
Gestahús
Parhús
Raðhús
Sérbýlishús
Módula
Þaksperrur
Sökkla
www.huseining.is
sala@huseining.is
s: 686-8680
Verð frá 113.400 kr. pr/m²
Einbýlishús
Húseining býður upp á einstök og falleg einingarhús
sem hönnuð og framleidd eru á Íslandi fyrir íslenskar
aðstæður.
Sumarhús
Verð frá 135.800 kr. pr/m²
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Húsin sem lentu undir aurflóðunum
á Seyðisfirði eru öll, utan eitt, við
Hafnargötu. Á því svæði sem einu
nafni kallast Búðareyri. „Flóðin
gjörbreyta ásýnd þessa hluta bæj-
arins og tjónið er mikið,“ segir Vil-
hjálmur Jónsson
á Seyðisfirði,
bæjarstjóri þar
2011-2018 og nú
fulltrúi í sveitar-
stjórn Múlaþings.
Næst utan við
svæðið þar sem
skriðan féll er svo
þyrping húsa sem
kölluð hefur verið
Wathnestorfan,
kennd við Ottó
Wathne, síldarspekúlantinn norska,
sem var með umsvifamikinn rekstur
á Seyðisfirði undir lok 19. aldar.
Ekki þruma úr heiðskíru lofti
„Sé farið langt aftur þurfa ham-
farir eins og nú ekki að koma eins og
þruma úr heiðskíru lofti. Þó er eins
og hver eða önnur hver kynslóð fái
sinn skammt af svona nokkru og er
þá ekki endilega með dæmi frá fyrri
tíð á hraðbergi. Þegar horft er á
hlíðina þá hafa húsin verið byggð í
hana eða undir henni en náttúran
hefur tilhneigingu til að viðhalda því
formi sem er á fjallinu með skriðum
og þær þurfa því ekki að koma á
óvart, þótt svona atburðir komi með
löngu millibili,“ segir Vilhjálmur.
Varpað hefur verið fram að virða
megi tjónið á Seyðisfirði á einn
milljarð króna. Vilhjálmur segir þá
tölu vel geta staðist, en þó sé ekki
allt sem sýnist. Við nánari athuganir
komi yfirleitt meira tjón í ljós en
virðist í upphafi, til dæmis á ýmsum
innviðum. Þá verði sumt ekki metið
til fjár og í því sambandi nefnir Vil-
hjálmur Tækniminjasafn Austur-
lands, en hús þess og safnkostur
urðu eyðileggingu að bráð. Einnig
má nefna Silfurhöllina, Hafnargötu
28, sem reist var 1954. Í húsinu, sem
eyðilagðist, var fyrr á tíð rekin
kaupfélagsverslun en í seinni tíð t.d.
verkfræðiþjónusta, hárgreiðslustofa
og aðsetur þýðingamiðstöðvar utan-
ríkisráðuneytis.
Upphaf sjoppumenningar
Af öðru sem horfið er á Seyðis-
firði eftir skriðurnar er Hafnargata
34; Turninn eins og húsið hefur yfir-
leitt verið kallað. Það var flutt tilbú-
ið til landsins 1908 og hefur sett svip
á bæinn. „Turninn var vinsæll við-
komustaður seyðfirskra unglinga og
oft þröng á þingi. Má segja að Turn-
inn hafi markað upphaf sjoppu-
menningar á Íslandi. Þar var versl-
að með sælgæti, öl, tóbak og ýmiss
konar innflutta pakka- og dósa-
vöru,“ segir Þóra Guðmundsdóttir
arkitekt á Seyðisfirði í bókinni Af
norskum rótum. Þar er fjallað um
norskar byggingar á Íslandi, en
margar í þeim stílnum eru á Seyðis-
firði og flestar reistar í kringum
1900.
„Skaðinn er mikill,“ segir Þóra
Guðmundsdóttir í samtali við Morg-
unblaðið í gær. „Þó er bót í máli að
allar þessar byggingar höfðu verið
myndaðar, skráðar og mældar ná-
kvæmlega. Ég finn núna að uppgjöf
er fjarri bæjarbúum. Við hefjumst
því handa um endurreisn með þjóð-
arátaki. “
Breiðablik
Austurvegur 38
Tækniminjasafnið
og hluti vélsmiðju
Hafnargata 38
Tækniminjasafnið Hafnar gata 38 Turninn Hafnar gata 34 Breiðablik Austurvegur 38
Silfurhöllin
Hafnargata 30
Hafnargata 29
Framhús
Hafnargata 6
Hafnargata 8
Dagsbrún
Hafnargata 26 Skipasmíðastöðin
Hafnargata 31
Berlín
Hafnargata 24
Sandfell
Hafnargata 32
Turninn
Hafnargata 34
Föstudagur
18. desember kl. 15
Aurskriða úr Botnabrún tók
með sér tíu hús við Hafnargötu
Fimmtudagur
17. desember kl. 03
Aurskriða úr Nautaklauf tók
með sér hús við Austurveg
og fl utti um 50 metra
Búðará
Stöðvarlæ
kur
B o t n a b r ú n
Grunnkort/
Loftmyndir ehf.
Aurskriður
á Seyðisfi rði
Ásýnd bæjarins er
gjörbreytt eftir flóðið
Náttúran viðheldur forminu Uppgjöf fjarri bæjarbúum
Aðalbygging Tækniminjasafns
Austurlands á Seyðisfirði og
Skipasmíðastöðin, sem einnig
tilheyrir safninu, eru gjörónýtar.
„Sögulega er þetta mikilvægt
svæði,“ segir Kristín Huld Sig-
urðardóttir forstöðumaður
Minjastofnunar. Starfsfólk
stofnunarinnar fer austur innan
tíðar til að kanna aðstæður og
fyrr verður ekki hægt að svara
til um hvert tjónið sé.
Seyðfirðingar hafa á síðustu
árum margir fengið styrki úr
húsafriðunarsjóði til uppbygg-
ingar og lagfærslu á gömlum
húsum á svæðinu. Aðspurð seg-
ir Kristín sjóðinn ekki geta stað-
ið undir endurbyggingu á þeim
húsum sem skemmdust eða
eyðilögðust, en allir séu þó
boðnir og búnir að leggja lið.
Safnið ónýtt
MIKIÐ MENNINGARTJÓN
Vilhjálmur
Jónsson
Morgunblaðið/Eggert
Sár Skriðan er svartur flekkur í fjallinu og eyðileggingin er mikil og ljót.
Aurskriður á Austurlandi