Morgunblaðið - 21.12.2020, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 21.12.2020, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 2020 ✝ Ingibjörg Jó-hanna Jón- asdóttir fæddist á Hafragili í Lax- árdal 13. febrúar 1929. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 13. des- ember 2020. For- eldrar hennar voru hjónin Guðbjörg Jóhannsdóttir frá Bjarnastaðargerði í Unadal í Skagafirði, f. 22. júní 1893, d. 17. feb. 1950, og Jónas Sigurðsson frá Stóra- Vatnsskarði, f. 15. apríl 1883, d. 14. sept. 1962. Ingibjörg átti eina systur, Sigurbjörgu, f. 22. jan. 1923, d. 18. júní 1992. Hinn 19. október 1952 giftist Ingibjörg Þórði Snæbjörnssyni garðyrkjubónda, f. á Snærings- stöðum í Vatnsdal 19. okt. 1931. Foreldrar hans voru Snæbjörn Jónsson og Herdís Sigríður Em- ilía Guðmundsóttir sem bjuggu á Snæringsstöðum. Börn Immu og Þórðar eru: 1) Guðbjörg, f. Barnabarnabörn Immu og Þórðar eru orðin 21 talsins og eitt barnabarnabarnabarn. Ingibjörg ólst upp á Hafragili í Laxárdal fyrstu 15 árin. Imma eins og hún var ávallt kölluð gekk í farskóla einn mánuð hvern vetur eins og barna var siður á þeim tíma. Haustið 1944 flutti Imma að Hvammi í Lax- árdal með foreldrum sínum og systur, þar vann hún öll almenn bústörf með foreldrum sínum. Imma fór 1945 að Reykholti Borgarfirði í nám og var þar tvo vetur, haustið 1948 fór hún á Húsmæðraskólann á Löngu- mýri. Imma flutti um mitt árið 1950 í Hveragerði og hóf störf í Garðyrkjuskólanum á Reykjum. Þau hjón hófu síðan byggingu á gróðrarstöð við Heiðmörk í Hveragerði og sneru sér alfarið að garðyrkju 1963 og ráku garðyrkjustöðina til ársins 1980. Imma gekk snemma í Kvenfélag Hveragerðis, árið 1974 hóf hún störf hjá Heilsustofnun HNLFÍ og starfaði þar samfellt til árs- ins 2000. Ingibjörg verður jarðsungin frá Hveragerðiskirkju í dag, 21. desember 2020, klukkan 14. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða einungis ættingjar við- staddir. 16. apríl 1952, d. 30. júlí 2005, gift Birni Pálssyni. Börn þeirra eru: Eva gift Jóhanni Bjarka Júlíussyni, Íris gift Helga Mar Árnasyni og Björn Ívar í sambúð með Söndru Ósk- arsdóttur. 2) Sturla Snæbjörn, f. 18. nóvember 1954, í sambúð með Ingibjörgu Jones, börn hans eru: Sif gift Hlyni Elf- ari Þrastarsyni og Snorri. 3) Herdís, f. 5. maí 1958, gift Sig- urði Egilssyni, dætur hennar eru Henný Björg gift Gunnari Sveinssyni og Heiðrún Hafný gift Frey Vilhjálmssyni. 4) Jónas Þór, f. 6. apríl 1960. 5) Ingibjörg Erna, f. 1. ágúst 1962, gift Sveini Guðmundssyni, synir hennar eru Þórður giftur Auði Elísabetu Guðjónsdóttur, Anton Svanur giftur Hildi Þóru Sigfús- dóttur og Jóhann Ingi giftur Guðrúnu Theodóru Ponzi. Nú skilur leiðir um sinn, elsku yndislega mamma mín. Það er svo margs að minnast, náttúran dró þig alltaf til sín, orð þín um að dagurinn hefjist ekki fyrr en þú hefur dregið að þér súrefnið úr dalnum segir allt. Minningin er sterk, hversu snortin þú varst af kyrrðinni, ilminum og ferskleika lífsins við að dvelja í náttúrunni. Það eru svo margar myndir og minningar sem fara um hug- ann þessa dagana, minningar sem ylja og kalla fram ljúfa æsku. Yndislegar umræður og samskipti á efri árum og við farnar að haga okkur frekar sem vinkonur en mæðgur. Þú varst minn trúnaðarvinur, öll litbrigði lífs míns ræddi ég við þig, væntingar, vonbrigði, gleðin, hamingjan og vonir, yf- irferð á þjóðfélagsmálum, voru tekin og aðgerðir og aðgerða- leysi. Allt lék í höndum þér elsku mamma mín, matargerð, bakst- ur, handvinna, saumaskapur allt sem þú gerðir var bara hreinlega best í heimi. Þau voru ófá skiptin sem barn að ég fór í flottustu og nýjustu tískunni inn í stórviðburði lífsins míns, allt saumað af þér úr nýjustu Burda-blöðunum. Handbragð þitt var svo fagurt hvergi mátti felling sjást eða misræmi í einu eða neinu. Minningar um kleinubaksturinn þar sem fimm munnar borðuðu heitar kleinur jafnört og þær lentu á bakk- anum. Í byrjun míns búskapar var ég alltaf að spyrja um upp- skriftir að öll góðgæti þínu, svörin voru ávallt þetta er bara sitt lítið af hverju, engar upp- skriftir. En ég náði því sem þurfti með því að mæta með stílabók í heimsókn og skrifa niður magnið af hverju og einu jafnóðum og það fór í hræruna. Þér fannst gott að vera í góðum félagsskap en naust samt vel samverunnar með sjálfri þér. Ganga í fjörunni, fjallinu eða dalnum snerist ekki um hvort einhver kæmi með heldur þeg- ar þig langaði, þetta er ein- stakur og fallegur eiginleiki. Mamma mín var sterkur kar- akter, lifði alltaf mjög heilsu- samlegu lífi hvort sem litið er til matar eða hreyfingar. Á okk- ar heimili fengum við ekki hvítan sykur, alltaf púðursykur, fransbrauð var kallað „aum- ingjabrauð“ og var ekki keypt né bakað. Grænmeti var omega alls, það var óspart notað í hennar lífi, enda naut hún vel sem starfsmaður HNLFÍ í 26 ár þeirra kosta sem því fylgdu að geta verið þar í fæði í hádeg- inu. Alveg fram að Covid-tíma fórum við á sunnudögum á Heilsuhælið. Það er tákn um hversu vel hún naut þess að vera þar að þegar hún varð ní- ræð 13. feb. 2019 og allir staðir í heiminum stóðu henni til boða með fylgdarmönnum, að eftir nokkurra daga umhugsun valdi hún að dvelja fjórar vikur á Heilsuhælinu og yfir níræðis- afmælisdaginn sinn. Reyndar skellt hún sér til Kanaríeyja að þeirri dvöl lokinni og aftur nú í febrúar síðastliðnum ákvað hún að heiðra eyjuna með nærveru sinni. Það er þakkarvert og minningin er ljúf að mamma gat verið sér sjálfbjarga allt fram á síðustu mánuði. Hún bjó ein síðustu níu ár, eldaði hafra- grautinn sinn dag hvern og gæðamáltíðir tvisvar til þrisvar í viku. Þú verður ávallt fyrirmynd mín. Nú skilur leiðir um sinn elsku mamma mín, einhvers staðar, einhvern tímann aftur hittumst við á ný. Hvíl í friði, þín dóttir og tengdasonur, Herdís og Sigurður. Elsku mamma. Að setjast niður og rita minningargrein um þig er nokkuð sem maður hafi ekki leitt hugann að en þegar maður sest niður kemur margt upp í hugann, tryggur vinur og traust til að leita til með hlutina. Þar sem maður var í tónlistinni, að druslast heim með gítarmagnara, eða stóran bassamagnara, til að æfa sig, svo ég tali nú ekki um flyg- ilinn sem ég kom með heim, þá var alltaf til pláss fyrir þetta allt, og æfingarnar með mis- jöfnum árangri og umburðar- lyndið fyrir þessu var meira en ótrúlegt. Og helgarnar sem við áttum saman heima hjá þér í Hvera- gerði, sem voru margar eftir að ég flutti í Kópavog, voru alltaf jafn skemmtilegar. Að skiptast á sögum úr mannlífinu var allt- af áhugamál þitt og áhugi þinn á ferðalögum mínum um há- lendið eða hjólreiðaferðunum kallaði alltaf á kortasafnið sem var geymt hjá þér, sem við átt- um saman, og borið saman við ferðirnar ykkar pabba um land- ið og hálendið sem oft lágu saman við mínar þegar grannt var skoðað. Var ég stundum skammaður fyrir að hafa misst af stöðum og ekki veitt þeim nægilega athygli. Og áhugi þinn á ferðalögum mínum um heiminn og fram- andi staði vegna vinnu minnar og í fríum var takmarkalaus; maður byrjaði nánast á því að koma heim til þín með ferða- sögurnar áður en maður tæki upp úr ferðatöskunum. En nú tekur nýtt og annað við, það verður engin mamma til að heyra nýjar ferðasögur um hálendið eða hjólatúrana, engin mamma til að hlusta á frásagnir af ferðum um fram- andi staði sem maður á eftir að fara á, engin mamma til að segja sögur úr mannlífinu sem við eyddum helgunum yfir. Stundum kemur það fyrir, þegar maður á og sér fyrir sér ánægjulegar stundir í góðra vina hópi í nokkra daga á ferða- lögum, að maður kvíðir fyrir lokastundum samverunnar fyr- irfram. Í þínu tilfelli kvaddir þú bara of snemma, við áttum eftir að spjalla langtum meira saman um allt milli himins og jarðar áður en stundin kom. En svo kemur bara stundin, stundin sem maður hafði bara ekkert leitt hugann að, en sem betur fer áttum við yndislega stund saman í faðmi fjölskyld- unnar þegar þú kvaddir þennan heim. Megir þú hvíla í friði elsku mamma. Þú varst alltaf svo nærgætin og skilningsrík, umhyggjusöm og hjartahlý. Þú varst skjól mitt og varnarþing. Við stóðum saman í blíðu og stríðu, vorum sannir vinir. Mér þótti svo undur vænt um þig, elsku mamma mín. (Sigurbjörn Þorkelsson) Kveðja, Jónas. Elsku mamma mín, nú hefur þú kvatt þennan heim eftir stutt veikindi. Þú varst mynd- arleg húsmóðir í öllu sem þú tókst þér fyrir hendur, ég var ekki nema 16 ára þegar frum- burðurinn minn kom í heiminn, Þórður sem skírður var í höf- uðið á afa sínum. Ég bjó hjá ykkur pabba fyrsta árið með hann og reyndist þú honum sem önnur móðir, vildir taka þátt í öllu hvað hann varðaði, eins og að hann fengi hollasta matinn og góða næringu. Hann fór í nokkur ferðalög með ykk- ur pabba út á land, það fannst honum gaman og mikil upplifun enda áttuð þið stóran hlut í hjarta hans. Þú hafðir mikla ánægju af ferðum þínum vestur í Skötufjörð, komstu nokkrum sinnum til okkar að Borg. Ferð- in sem við tvær fórum saman á húsbílnum mínum norður í Skagafjörð sumarið 2017 í fimm daga á þínar heimaslóðir er ómetanleg í fjársjóð minning- anna, þær fjölmörgu sögur sem þú sagðir mér af þínum æsku- slóðum eru mér ómetanlegar. Að fá að upplifa þær með þér í því umhverfi sem þær gerðust í er fyrir mér dýrmætar minn- ingar. Árið 2016 fórum við Svenni ásamt Ágústu vinkonu þinni til Kanarí í hálfan mánuð, það var virkilega góð ferð og skemmtum við okkur vel sam- an. Þú varst þarna rétt að kom- ast upp á lagið og eftir dvöl þína á HNLFÍ og veisluhöld í tilefni níræðisafmælisins 2019 skelltum við okkur ásamt Svenna aftur til Kanarí og nú í þrjár vikur, við nutum þess með þér að liggja á ströndinni. Það átti vel við þig að vera í hlýja loftinu og sólinni. Nú fór dæmið að snúast við og í stað þess að við bæðum þig að koma með spurðir þú hvort þú fengir ekki að koma með til Kanarí í febrúar á þessu ári, jú jú sagði ég og nú var verið í heilan mán- uð. Þar héldum við upp á 91 árs afmælið þitt, þetta árið kom Jónas bróðir til okkar og naut samvista með okkur, auk þess sem Stulli bróðir sem þar hefur aðsetur átti með okkur góðar samverustundir. Það var ekki fyrr en 2018 sem þú tókst þá ákvörðun að nú væri kominn tími til að leggja niður þá hefð að bjóða allri fjöl- skyldunni í súkkulaði og köku- hlaðborð á aðfangadagskvöld. Þessum sið þínum hafðir þú haldið í tæp 70 ár. Það var sami metnaðurinn hjá þér í síðasta jólaboðinu, þú orðin 89 ára, borðið dúkalagt með sparidúkn- um, hlaðið kræsingum og heitu súkkulaði og sparistelli. Það verða óneitanlega sér- stök og allt öðruvísi þessi jól okkar Svenna, undanfarin átján ár höfum við fengið að njóta að- fangadagskvölds og gamlárs- kvölds saman. Fyrstu níu árin með ykkur pabba en síðustu níu árin eftir að hann dó höfum við notið samvista með þér. Nú verður enginn sem hefur á því skoðun þótt ég setji hnífana vinstra megin við diskana og enginn brýtur varlega saman jólapappírinn. Elsku mamma mín, nú er komið að leiðarlokum hjá okkur að þessu sinni, hafðu kæra þökk fyrir samfylgdina og allt. Hvíl í friði. Þín elskandi dóttir, Ingibjörg Erna. Þá er elsku Imma amma far- in frá okkur. Þótt sorgin sé þungbær þá er ég líka þakklát fyrir að hafa fengið að njóta hennar svona langt fram á full- orðinsár. Það verður undarleg tilveran án Immu ömmu. Við amma mynduðum ákaflega sterk og góð tengsl og sérstak- lega eftir að móðir mín, dóttir hennar, lést fyrir 15 árum og Imma langamma gekk dætrum mínum í ömmustað og var þeim jafn mikil fyrirmynd og hún hefur ávallt verið mér. Þegar fram líða stundir mun sorgin blandast hlýjum minningum sem við vorum svo duglegar að búa okkur til, ekki síst með heimsóknum hennar til okkar til Þýskalands og Lúxemborg- ar. Þá áttum við svo góðar og innilegar stundir, amma svo heilluð af litlum bæjum og borgum og missti sig svo í verslunum; sagðist vera stór- borgarpía í nýju pilsi og leð- urskóm. Síðan spilaði hún við okkur, langt fram á kvöld, neit- aði að hætta. „Eitt spil enn,“ sagði hún, gaf aldrei þumlung eftir og hló svo innilega þegar við sátum eftir sárar og ger- sigraðar. Hún sagði okkur líka frá sinni löngu ævi, frá æskunni og uppvextinum í Skagafirði þegar hún fékk nýjan spila- stokk ásamt systur sinni á hverjum jólum og þá var líka spilað „eitt spil enn“. Ekki voru mörg leikföngin í þá daga. Amma vildi líka ræða nútímann og framtíðina, landsins gagn og nauðsynjar, hafði sterkar skoð- anir og var vel inni í þjóðmál- unum alveg fram undir það síð- asta. Við eigum eftir að sakna ömmu, hennar skemmtilegu kímnigáfu og hlýju og bestu pönnukaka í heimi. En núna er amma á góðum stað með mömmu, vísast við spil og heit- ar rökræður um þjóðþrifamál. Íris Björnsdóttir. Elsku hjartans amma mín. Takk fyrir alla okkar samveru. 38 ár sem við áttum saman og það eru ekki fáar minningar sem kom upp í huga minn eftir allan þennan tíma. Ég gleymi aldrei göngu- túrunum okkar inn í dal saman þegar þú reyndir að þreyta mig í háttinn sem barn, sunnudags- máltíðirnar á heilsuhælinu, að- fangadagskvöldsboðin hjá þér og öll þau jól sem við áttum saman, svo eitthvað sé nefnt, allar þessar minningar sem þú hefur gefið mér elsku amma mín, mun ég varðveita og deila með langömmubörnum þínum. Ég veit í hjarta mínu að það var tekið vel á móti þér þegar þú féllst frá elsku amma, afi og Bugga heitin hafa tekið þétt um þig og varðveita þig, þú ert í góðum höndum, en það breytir því ekki að söknuður og sorgin er mikil en þetta verður allt í lagi elsku amma, við björgum okkur og við munum deila okk- ar minningum um þig og minn- ing þín mun alltaf lifa. Einn daginn elsku amma mun ég gera nákvæmlega eins pönnukökur og þú gerir, þrátt fyrir að nota þína uppskrift og fara eftir reglunum þínum að þrífa aldrei pönnukökupönnuna með sápu, aðeins vatni, og pannan er orðin svört á lit þá eru þær aldrei ömmupönnsur, en ég mun halda áfram að reyna og gera þær eins og þín- ar, einn daginn mun það takast. Mig langar elsku amma mín að láta sálm fylgja hér í lokin sem mér er afar kært um. Takk fyrir allt elsku amma mín, þín verður sárt saknað og ég elska þig afar heitt. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um réttan veg fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, Óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér (23. Davíðssálmur) Heiðrún Hafný Hafsteinsdóttir. Ingibjörg Jóhanna Jónasdóttir Maja varð snemma forystu- maður, við höfðum hennar ráð í starfi, leik og uppátækjum og snemma reyndist svo að ráð voru ómerk okkur sem yngri vorum hefðu þau ekki fengið jákvæðan dóm Maju. Það sópaði að henni í öllum störfum, hún varð vargur á hrífunni í ljánni, hún var með þeim skörpustu á skautum á Rimamýri, hún rak skörulega á eftir starfssystrum sínum inn- anhúss. Einhvern tíma var það að farið var að ræða í spekt um María Steinunn Gísladóttir ✝ María SteinunnGísladóttir fæddist 10. nóv. 1932. Hún lést 16. nóv. 2020. Útför Maríu fór fram 3. desember 2020. heimilishald og framtíðarhorfur. „Hvernig heimili viltu eiga?“ var spursmálið. Maja: „Ég held ég kjósi mér bara lítið heimili.“ Ásta, spaklega: „Nei, nei, Maja mín, það yrði alltof lítið fyrir þig að stjórna.“ Þetta varð fræg fundarnið- urstaða. Ég lenti stundum í stælum við hana um nafngiftir á kálfum og lömbum. Ég taldi þar til sérgreinar fyrir mig og krafðist ráðríkis. Hún nefndi mig „litla húsbóndann“ á því sviði og það var háðungarnafn. Hún fletti upp í ærbókinni og hóf að spyrja mig útúr sauð- burðinum. Þetta var sérgrein mín og ég stóðst öll próf. Hún lamdi mig í hausinn með bók- inni og kallaði mig „sérgreina- bandítt“, eða eitthvað þ.h. Það kom mér reyndar á óvart hve nafnkunnug hún var ánum. En það var auðvitað af því að hún hafði verið undanfari minn í gegningum, áður en ég óx til þeirra starfa. Þær voru miklir mátar hún og Lína í Látrum og kannski ekki alltaf gætnar í dómum eða gerðum og gat sviðið undan. Til jöfnunar einhvern tíma samdi ég á hana svívirðilegan rógburð og neri henni um nasir. Þetta vakti hlátur fyrst, en of- notkun olli reiði. Hún varð fox- vond, það var ekki venjulegt og mér fannst ég hafa unnið afrek og varð rígmontinn af. „Og börnin urðu stór,“ var á orði haft að gæfulega virtist Maju hafa tekist þegar hún var komin með Leif upp á síðuna. Hún hugði til starfa á Hvann- eyri meðan hann lyki námi. Einhver sagði henni að passa sig á því að verða sér ekki til skammar með fíflalátum. Hún svaraði því til að sér væri það engin vorkunn, að verða sér til skammar, en, sagði hún: „Ég vil alls ekki verða honum Leifi til skammar.“ Um búskap þeirra og störf má margt segja, en það læt ég öðrum eftir. Ég læt nægja að senda hér kveðjuna sem ég sendi þeim þegar þau urðu sextug. Maja og Leifur sextug 10.- 12.11. 1992. Þau sigla að baki sjötta áratuginn og sjórinn varla úfnari en var. Taka síðan albreiðasta bóginn í beitivindi manndómsævinnar. Enn má búast við að rísi röstin og rjúki áður nær til lendingar. Þeir sem hafa aflað vel í veri og vegið rétt á metaskálar ferðar mega löngum búast við að beri blómknapparnir ávöxt mestu garðar og fyrr en aftur lífsins hlunkast hleri má hlusta vel á þeirra leiðsögn. – Heyr. Alltof margra reynslugatan greri gagnlítið og þekkist ekki meir. Haldið þétt um skaut svo skektan lengi skríði drjúgt í kátum óska þey. Kæta má það konur bæði og drengi að koma um borð í ykkar trausta fley. Jóhannes Geir Gíslason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.