Morgunblaðið - 21.12.2020, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.12.2020, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 2020 Tilkynningar Skipulags- og byggingarful l t rúi Norðurþing / ketilsbraut 7-9 640 Húsavík Tillaga að deiliskipulagi fyrir heilbrigðis stofnanir á Húsavík og tillaga að breytingu á deiliskipulagi íbúðarsvæðis í Auðbrekku. Sveitarstjórn Norðurþings samþykkti á fundi sínum þann 1. desember s.l. að auglýsa til almennrar kynningar tillögu að deiliskipulagi fyrir heilbrigðisstofnanir á Húsavík auk tillögu að breytingu á deiliskipulagi íbúðarsvæðis í Auðbrekku á Húsavík. Tillaga að deiliskipulagi fyrir heilbrigðis stofnanir felur í sér mótun ramma um uppbyggingu mannvirkja á svæðinu undir og umhvers heilbrigðisstofnanir á Húsavík. Svæðið er nú þegar mikið til byggt, en þó stendur nú til að byggja upp 60 herbergja hjúkrunarheimili í brekkunni austur af núverandi heilbrigðis- stofnun og dvalarheimilinu Hvammi. Innan marka deiliskipulagsins er lóð fyrirhugaðs hjúkrunarheimilis auk lóða dvalarheimilisins og heilbrigðisstofnunar. Skipulagssvæðið er um 2,5 ha að atarmáli. Tillagan er unnin með hliðsjón af vinningstillögu í hönnunarsamkeppni vegna fyrirhugaðs hjúkrunarheimilis. Tillagan er sett fram í greinargerð á blaðstærð A4 og á uppdrætti á blaðstærð A2 Breytingartillaga deiliskipulags íbúðarsvæðis í Auðbrekku felur í sér lítilsháttar breytingu á mörkum skipulagssvæðisins sem muni fylgja lóðarmörkum Auðbrekku 6 og 8 að sunnanverðu í stað þess að ganga inn á opið óbyggt svæði austur af heilbrigðisstofnun. Breytingartillagan með greinargerð er sett fram á einu blaði í blaðstærð A2. Skipulagstillögurnar verða til sýnis á sveitar- stjórnarskrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9 á Húsavík frá 21. desember 2020 til 1. febrúar 2021. Ennfremur verður hægt að skoða tillögunar á heimasíðu Norðurþings (nordurthing.is). Þeim sem eiga hagsmuna að gæta er genn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar til mánudagsins 1. febrúar 2021. Skila skal skriegum athuga- semdum til sveitarstjórnarskrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9 á Húsavík eða í tölvupósti á nordurthing@nordurthing.is. Þeir sem ekki gera athuga semdir við tillögurnar teljast þeim samþykkir. Húsavík 14. desember 2020 Gaukur Hjartarson Skipulags- og byggingarfulltrúi Félagsstarf eldri borgara Seltjarnarnes Nú er komið jólafrí í námskeiðshaldi fram yfir áramót. Síðasti tími fyrir jól í jóga í dag kl. 10 fyrir íbúa Skólabrautar og kl. 11 fyrir íbúa utan úr bæ. Kaffikrókurinn er eingöngu opinn fyrir íbúa Skólabrautar. Virðum grímuskyldu og aðrar sóttvarnir. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bílar Nýr Ford Transit 18 manna BUS. Tilbúinn með mæli og leiðsögukerfi. Langt langt undir listaverði. Verð m.v. hópferðaleyfi 4.790.000,- án vsk. www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. Húsviðhald mbl.is alltaf - allstaðar Smá- og raðauglýsingar Þegar við miss- um nákominn þá spretta upp minn- ingarnar og á ég auðvitað fullt af þeim en sumar eru sérstakari en aðrar. Þegar ég var fjögurra ára var pabbi að hjálpa mér við að leysa þrautir þar sem átti að losa í sundur festingar, aldrei tókst mér það eins og honum og fannst mér því hann alveg einstaklega snjall auðvitað. Þegar ég var unglingur áttum við spjall saman um munnhörpu sem hann spilaði á fyrir mig og langaði mig mikið að læra líka, svo hann gaf mér hana svo ég gæti æft mig. Þegar ég var rúmlega tvítug og við ók- um upp á Skaga til að heimsækja afa og áttum góðar samræður á leiðinni. Á brúðkaupsdaginn minn þegar hann stoltur gekk með mig inn kirkjuganginn. Þegar hann kenndi mér tækniteiknun í Iðnskólanum og ég gat stolt sagt hinum nemend- unum að uppáhaldskennarinn þeirra væri sko pabbi minn og svo þegar hann og Rúna voru hjá okkur í Viktoríu og pabbi hjálp- aði mér að baka kleinur fyrir af- mælið hans Óðins. Þessar minn- ingar eru kannski ekki svo merkilegar en fyrir mér voru þær alveg einstakar, því þær voru eingöngu okkar elsku pabba. Ég hélt að þegar ég flytti aft- ur heim frá Kanada myndum við eiga fleiri svona einstakar stund- ir saman. En líf okkar fer ekki alltaf þá leið sem við kjósum og hann, sem nánast aldrei veiktist, náði sér ekki almennilega aftur eftir heilablóðfallið. Ég er þakk- lát fyrir þær stundir sem við átt- um og minningin um snjalla, stóra og sterka pabba minn lifir áfram. Kveðja, Sif. Elskaður pabbi minn. Mig langar að skrifa þér kveðju- og Ásmundur Jóhannsson ✝ Ásmundur Jó-hannsson fæddist 17. apríl 1941. Hann lést 2. desember 2020. Út- för hans fór fram 11. desember 2020. þakklætisbréf. Þótt ég viti að þú hefur ekkert farið og að lífið hefur engan endi þá er fráfall þitt sársaukafullt. Það er svo margt við lífið sem við ekki skiljum enda erum við komin hingað til þess að læra meira og ná þessari djúpu teng- ingu við okkur sjálf þar sem við eigum þá til meira til að gefa og þakka í stað þess að taka og ætl- ast til. Þú kunnir svo vel að gefa og varst svo nægur þér sjálfum. Það var svo margt við þig sem ég dáðist að og langaði að læra. Verandi stjúppabbi minn slóst þú ekkert af, hvorki varðandi kærleika, ást, stuðning, hlustun né hvatningu. Það voru mikil straumhvörf að fá þig inn í líf okkar Ingvars bróður. Það breyttist svo margt þegar þið mamma hófuð sam- band. Ingvar var sneggri en ég að átta sig á að þarna var komin stoð og stytta svo hann vatt sér bara beint í málið að tengjast þér tryggum böndum og af því sló hann ekkert, hann bara elsk- aði þig umsvifalaust og mun lík- legast umvefja þig og bjóða þig velkominn inn í eilífðina og án þess að hika þá veit ég að þið munuð ekki slá neitt af því partíi neitt á næstunni. Við Ingvar vorum lánsöm og líf okkar þriggja, mömmu, Ingv- ars og mín, stækkaði við það að hafa þig sem verndara, kennara og elskandi fjölskylduföður. Þú varst svo klár, úrræðagóð- ur og skemmtilegur með yfir- máta mikið jafnvægi og ham- ingju í hjarta. Það var bara nánast ekkert sem þú gast ekki leyst eða fundið út úr. Þið mamma bjugguð okkur öruggt heimili og sáuð til þess að fjöl- skyldan fengi rými til þess að vaxa og dafna. Stjúpsystkinin mín, Eva, Sif og Jói, eru öll með svo mikið frá þér; listræn, skap- andi og mannelskandi, og lill- urnar tvær, Dagmar og Ragn- heiður, eru svo yndisleg blanda af ykkur mömmu – fengu það besta – og ég veit að við munum öll gera okkar besta til þess að heiðra minningu þína. Það verður ekki auðveldur leikur að fylla það skarð sem nú er orðið enda elskaðir þú þitt og þína ofurheitt og óeigingjarnt. Það er svo margt sem kemur til mín þegar ég sit hérna og skrifa þér þessa stuttu kveðju, svo margt sem ég tók sem sjálf- sagt og kannski þakkaði ekki nógsamlega. En það verður nægur tími til þess að þakka og ég mun sjá til þess að gleyma engu og færa áfram þau andlegu auðæfi sem þú gafst mér. En hér eru nokkur minninga- brot af þeim stundum sem við áttum saman. Allar stundirnar sem þú hjálpaðir mér með allt frá vanskilningi á stærðfræði til eldunar- og bökunartipsa og saumavéla- og sníðaaðstoðar, andlegur stuðningur þegar mér fannst ég ekki geta svo margt, setja eyrnalokka í mig þegar ég klaufaðist, skutl út um hvippinn og hvappinn, sækja og senda og hjálpa í hvívetna, fyrst mig og svo ungana mína, smíða, hengja og teikna upp hitt og þetta sem mér datt í hug. Sníða herbergið mitt að mínum þörfum og sjá til þess að ég kæmist í allt það sem hugurinn þráði. Kenna mér að standa mig, standa með mér og gefa mér ráð um hvernig falleg kona ætti að bera sig, rauðar neglur og háir hælar, bein í baki með fallegt bros og ekki of mikið „makeup“ – yes sir. Langar spjallstundir um það sem enginn sér og fáir skynja eða skilja. Þegar mér datt í hug fyrir rúmum 30 árum að byrja að drekka sjeika og taka vítamín á sterum fannst þér það frábært. Þegar ég fór í gegnum langt ferli þar sem mér leið ekki nógu vel og tókst svo að finna leið til þess að líða miklu betur varst þú ekki bara áhugasamur um það sem ég hafði lært og gert heldur vildir þú prófa líka. Þú varst með opinn huga og áhugasamur um lífið og til- veruna og hvattir mig áfram. Þú sást til þess að fylla tilvist þína af tilgangi og gafst okkur hinum ómeðvitað kraft til þess að gera slíkt hið sama. Þú tókst ekkert þátt í að hlusta á að maður gæti ekki, neibb þú bara sagðir: Komdu, ég skal hjálpa þér. Þú settir ekki út á heldur hafðir skilning. Þú hlustaðir og þurrk- aðir tárin og vildir að allt yrði betra. Það var auðvelt að elska þig og dást að þér og því sem þú stóðst fyrir og ég dáðist að því hvernig þú elskaðir mömmu. Þú sýndir í öllu hvernig eiginmaður á að halda utan um fjölskylduna sína. Þú elskaðir litlu krílin og nenntir að argafjasast með litlu persónurnar, ungana í fjölskyld- unni. Þú áttir tíma ef mann vant- aði og maður kom ekki að tóm- um kofunum. Hanna Kristín Didriksen. Elsku Ási minn. Það er komið að kveðjustund. Það sem ég er þakklát fyrir að hafa ekki bara fengið að kynnast þér heldur fengið að hafa þig sem skápabba og það varstu svo sannarlega þrátt fyrir að við tengdumst engum blóðböndum. Sem bestu vinir mömmu og pabba voruð þið Rúna mjög oft með í ferð í já eiginlega öllu sem var gert, hvort sem var sumarbústaða- ferðir, utanlandsferðir eða veisl- ur. Og maður minn veislurnar sem þið Rúna hélduð voru alltaf bestar, tekið á móti manni eins og drottningin sjálf væri að mæta á svæðið með yndislegum mat og drykkjum. Þessi kvöld voru það skemmtileg að þegar ég og Dagmar vorum komnar á aldur til að geta farið í okkar eigin veislur völdum við samt iðulega að vera með ykkur og var þá okkar vinum bara boðið að koma til ykkar og vera með í partíinu, sem þeir þáðu yfirleitt alltaf vitandi það að þetta voru langbestu partíin. Þú varst mað- urinn sem kynntir mér blús og djass. Það var yndislegt að sitja með þér og hlusta á hvernig þú lýstir hvað var að gerast í laginu hverju sinni. Það er svo erfitt að skrifa þessi orð og hugsa til þess að við eigum ekki eftir að hittast aftur í þessu lífi en það er eig- ingirnin sem talar því skynsemin veit að það er svo gott að þú ert laus úr þessari prísund. En það hjálpar líka að vita til þess að þú ert kominn í góðan hóp af fólki sem hefur tekið vel á móti þér og að einn daginn hittumst við aftur. Bless Ási minn, það voru for- réttindi að fá þig í mitt líf. Elsku Rúna og fjölskylda, ég gæfi svo mikið fyrir að vera þarna hjá ykkur en ég vona að þið vitið að hugur minn er hjá ykkur. Sjöfn Gunnarsdóttir. Mig langar að minnast elsku vin- konu okkar, sem kvaddi alltof snemma. Okkar kynni eru ekki rosalega löng, en þau voru góð og skemmtileg. Einkenndust þau flest af ferðalögum, torfæru og rallíkrossi. Við vinkonur stóðum í ryki og mekki og öskruðum bílana upp brekkurnar og tókum stríðsdans, með gusum af hlátri og skömm- um. Ferðalögin tengdust flest tor- færunni og var draumur hennar að fara með okkur í Ameríku- hrepp á keppni. En því miður varð ekkert úr því. Ömmustelpurnar ásamt Birni Þór okkar litu svo upp til hennar og samband stelpnanna og þá að- allega Sölku Sjafnar var svo ein- stakt. Salka notaði hvert tæki- Margrét Björg Sigurðardóttir ✝ Margrét BjörgSigurðardóttir fæddist 14. febrúar 1958. Hún lést 26. nóvember 2020. Útförin fór fram 8. desember 2020. færi til að hringja í ömmu Möggu og leyfa henni að fylgj- ast með þegar amma Magga komst ekki lengur með í ferðalögin. Síðasta sumar mætti hún í Reyk- holt ásamt Geira sínum og auk þess líka á rallíkross, sem var ómetanlegt bæði fyrir hana og okkur. Elsku Magga var svo lánsöm að fá að sjá og knúsa nýjasta ömmuprinsinn sinn. Þú kemur alltaf til með að eiga stóran part í hjarta okkar, fal- lega, góða vinkona. Elsku Geiri, Hjörtur, Sibbi, Silja, Helga, Elli, Emma Rut, Salka Sjöfn, Hulda Margrét og Styrmir Þór, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Telma, Kjartan (Galdri) og Björn Þór. Elsku amma Steina. Takk fyrir alla umhyggjuna og takk fyrir að þykja svona vænt um mig og okkur mæðgurnar. Þín er sárt saknað. Yndislega rósin mín. Thelma og Birta. Elskuleg frænka mín hún Steina er látin. Ég minnist hennar sem glæsilegrar konu, með einstaklega hlýja nærveru og svo var hún líka svo skemmtileg. Ég sé hana í anda veltast um af hlátri út af ein- hverju sem var til umfjöllunar. Þær mamma mín og Steina voru systkinabörn og ólust þær upp á Vatnsleysu í Biskups- tungum í vestur- og austurbæ. Mikill samgangur var á milli Steingerður Þorsteinsdóttir ✝ SteingerðurÞorsteinsdóttir fæddist 2. febrúar 1926. Hún lést 28. nóvember 2020. Útför Stein- gerðar fór fram 11. desember 2020. bæjanna þannig að krakkahópurinn var eins og ein stór fjölskylda. Það segir margt um samband þeirra frænkna að þegar að þær byrjuðu að búa þá bjuggu þær í sama húsi á Laugavegi 147. Ég á því margar æskuminningar sem tengjast Steinu og fjöl- skyldu og ber þar hæst jólaboð- in sem þær héldu um áraraðir til skiptis á Rauðalæk og Álf- heimum. Einnig samverustund- ir í Mjólkursamsölunni þar sem að hún starfaði lengt af. Lífið fór ekki alltaf mjúkum höndum um Steinu. Það fékk hún að reyna þegar hún missti Guðna manninn sinn og síðar soninn Þorfinn sem lést langt fyrir aldur fram. Ég hef alltaf dáðst að hugrekki hennar og já- kvæðni þegar hún tókst á við þær raunir. Elsku Sigríður, Þorsteinn og fjölskyldur. Ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Kristín Hjálmarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.