Morgunblaðið - 21.12.2020, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 2020
JÓLASERÍUR
afsláttur
50%
Inni- og útiseríur
við Fellsmúla | 108 Reykjavík | OPIÐ ALLA DAGA
vinnukennari, en þau giftu sig 5.7.
1969 í Hvanneyrarkirkju og hafa því
verið gift í 52 ár. Foreldrar Rósu eru
hjónin Finnur Sveinsson frá Kols-
stöðum í Dölum (bróðir Ásmundar
myndhöggvara) og Jóhanna María
Kristjánsdóttir (Dannebrogsmanns)
frá Þorbergsstöðum í Dölum. Þau
voru bændur í Eskiholti í Borgar-
firði.
Börn Jóns og Rósu eru 1) Stefán,
f. 20.5. 1970, rafmagnsverkfræð-
ingur, kvæntur Kerry Reidy frá
Ástralíu, listakonu. Börn þeirra eru
Snædís Freyja, f. 2012, og Svava
Róisín, f. 2013. Þau eru bændur í
Gljúfri, Ölfusi. 2) Helga María, f.
22.11. 1971, framkvæmdastjóri og
bóndi á Brekku í Bláskógabyggð.
Hennar maður er Jóhannes Helga-
son, verktaki og bóndi, og þau eiga
börnin Jón Óskar, f. 1994; Finn, f.
1996; Rósu Kristínu, f. 2001, og Hildi
Maríu, f. 2008. 3) Þorbjörg Lilja, f.
29.4. 1973, sérkennari á Gili í Ölfusi.
Hennar maður er Stefán Magn-
ússon, markaðsstjóri Coca-Cola á
Íslandi, og þau eiga börnin Magnús
Baldvin, f. 1996; Jón Lárus, f. 1999;
Signýju Ólöfu, f. 2003, og Stefán
Gunngeir, f. 2008. Barnabörn Jóns
og Rósu eru því orðin tíu talsins.
Systkini Jóns eru Nína Áslaug, f.
14.12. 1946, kaupmaður á Akranesi;
Rannveig Margrét, f. 30.6. 1955,
viðskiptalögfræðingur á Bifröst í
Borgarfirði; drengur, f. 15.6. 1961,
d. 15.6. 1961, og Bergur Viðar, f. 5.5.
1963, doktor í lyflækningum í
Gautaborg í Svíþjóð.
Foreldrar Jóns eru hjónin Stefán
Jónsson, múrarameistari frá Vatns-
holti í Staðarsveit, Stefánssonar frá
Flögu í Vatnsdal, f. 6.6. 1916, d.
13.9. 1995, og Þorbjörg Lilja Jóns-
dóttir, Lárussonar, skipstjóra í
Stykkishólmi, húsfreyja, f. 10.9.
1923, d. 18.8. 2009. Þau bjuggu í
Vatnsholti á Snæfellsnesi og síðar í
Reykjavík.
Jón Lárus Hólm
Stefánsson
Sigríður Gísladóttir
húsfreyja á Harastöðum á Fellsströnd, Dal.
Sigurður Gíslason
bóndi á Harastöðum
á Fellsströnd, Dal.
Björnína Sigurðardóttir
húsfreyja í Stykkishólmi
Jón Jóhannes Lárusson
skipstjóri, stýrim. og verkamaður í Stykkishólmi
Þorbjörg Lilja Jónsdóttir
húsfreyja í Vatnsholti
síðar í Reykjavík
Kristín Guðmundsdóttir
vinnukona í Elliðaey og
húsfreyja í Stykkishólmi
Lárus Elíasson
vinnumaður í Elliðaey og daglaunam. í Stykkishólmi
Anna Guðmundsdóttir
húsfreyja á Þrándarstöðum í Eiðaþinghá, S-Múl.
Þorsteinn Jónsson
bóndi á Þrándarstöðum
í Eiðaþinghá, S-Múl.
Jónína Þorsteinsdóttir
klæðskeri og húsfreyja í
Vatnsholti í Staðarsveit, Snæf.
Jón Ólafur Stefánsson
bóndi í Vatnsholti í Staðarsveit, Snæf.
Ingibjörg Margrét Magnúsdóttir
húsfreyja á Flögu í Vatnsdal og víðar
Stefán Magnússon
bóndi á Flögu í Vatnsdal, Reykjavöllum, Skag. og víðar
Úr frændgarði Jóns Lárusar Hólm Stefánssonar
Stefán Jónsson
bóndi í Vatsholti,
Snæfellsnesi, síðar
múrarameistari í Reykjavík
„ÞÚ ÆTTIR AÐ NOTA STIGANN. ÉG
KIPPIST ALLTAF TIL ÞEGAR BJALLAN
GLYMUR.”
„MÁGUR ÞINN ER STRANDAÐUR Á
EYÐIEYJU.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að sitja saman í
súpunni!
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
MATURINN ER
TILBÚINN!
MATURINN ER
ÉTINN!
HVAR ER
MATURINN?
NÚ
SKILURÐU
HVERT ER
ERINDI YKKAR
HINGAÐ?
ÉG ÆTLA AÐ RÁÐAST Á
KASTALANN ÞINN OG FAGNA
SVO SIGRI MEÐ VEGLEGRI
ÁTVEISLU!
ÉG RÁÐLEGG ÞÉR AÐ GÆTA ÞÍN,
HERRA MINN! SIGURGANGA HANS
VIRÐIST ÓSLITIN!
ÉG TÓK
EFTIR ÞVÍ!
Á Boðnarmiði yrkir Indriði áSkjaldfönn og kallar „Þrá-
viðri“:
Kári argur blæs og blæs.
Bálviðrið er ekki næs.
Úthaldið er ekki slakt
átta sólarhringa í takt.
Ágúst H. Bjarnason er raunsær
og segir „ekkert er kyrrstætt“:
Líður senn að lifnar hér
lífs- og sálarkraftur.
Víst er þá að færast fer
fjör í leikinn aftur.
Ótrúlegt en satt? – Eyjólfur Ó.
Eyjólfsson yrkir:
Er eitt hundrað ára varð Sjana
allt gekk að hérlendum vana;
einn kófdrukkinn frændi
á kökurnar sprændi
og klerkurinn barnaði hana.
Anton Helgi Jónsson yrkir „Rit-
dómaralimru dagsins“: „Anna Lísa
biður menn að fara varlega með
orð“:
Þótt varúð sé viðhöfð í slúðrinu
þá valda samt orð mörgu klúðrinu:
Þær gellur má jarða
sem gráta með farða;
það getur sko vöknað í púðrinu.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir á
Sandi yrkir
Tilveran er fjári fín
í kófi
því undir kodda á ég vín.
í hófi.
Tryggvi H. Kvaran orti:
Þótt illur þyki andskotinn
og engir menn hann lofi
hann brenndi þó aldrei bæinn sinn
sem bóndinn á Stóra-Hofi.
Baldvin Halldórsson kvað:
Ellin herðir átök sín,
enda sérðu litinn.
Ævi-ferðafötin mín
fara að verða slitin.
Jóhanna Álfheiður Steingríms-
dóttir í Árnesi orti um kisu:
Í hretum eykur þor og þol
það sem hugur geymir
að þröstur kvaki og komi vor
kattarlúruna dreymir.
Og eftir Jóhönnu Álfheiði „Að
kveldi“:
Í hringiðu og hraða glaums
hrævareldar skína,
nú á landi hins ljósa draums
legg ég byrði mína.
Þegar Jón forseti var drengur
veiktist hann hættulega. Þá kvað
faðir hans, sr. Sigurður Jónsson á
Rafnseyri:
Guð hefur þig til gamans mér
gefið; – það má segja.
Sá sem öllu lífið lér
láti þig ekki deyja.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Þráviðri og varúð í slúðrinu