Morgunblaðið - 21.12.2020, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 21.12.2020, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 2020 Límtré úr íslensku greni er notað í burðarvirki og gólf brúar sem Landsvirkjun er með í smíðum. Límtrésbitarnir í nýju Þjórsárbrúna verða unnir úr íslensku sitkagreni í verksmiðju Límtrés-Vírnets á Flúð- um, en íslenskt timbur hefur reynst vel í burðarþolsprófum. Um er að ræða göngu- og reiðbrú yfir Þjórsá, rétt fyrir ofan Þjófafoss, sem tengir saman sveitarfélögin Skeiða- og Gnúpverjahrepp annars vegar og Rangárþing ytra hins veg- ar. Mun brúin vera fyrsta meiri hátt- ar mannvirkið sem gert er úr al- íslensku límtré. Þegar smíðinni lýkur verður fyrrnefndum sveitar- félögum afhent brúin til eignar. Skógræktin hefur nú þegar aflað alls þess timburs í Haukadalsskógi sem þarf til brúarsmíðinnar. Timbr- ið var sagað í sögunarmyllu Skóg- ræktarinnar í Þjórsárdal. Fyrstu fjalirnar voru fluttar úr Þjórsárdal 21. október til þurrkunar og frekari vinnslu hjá Límtré-Vírneti á Flúð- um. Stórt skref fyrir skógrækt Haft er eftir Trausta Jóhannssyni, skógarverði á Suðurlandi, á heima- síðu Skógræktarinnar, að með þessu sé stigið stórt skref fyrir skógrækt á Íslandi. Ánægjulegt sé að sjá ís- lenskt timbur notað í svona stórt verkefni, timbur sem stenst vel þær kröfur sem til þess eru gerðar. Brúarsmíðin er komin af stað og vinna við uppsteypu stöpla langt komin. Brúin er alls 102 metra löng timburbrú með steyptum stöplum og burðarbitum úr stáli. Þar fyrir ofan koma límtrésbitar og loks tvöfalt lag af timburklæðningu í brúargólfið. Ljósmynd/Einar Bjarnason Mörg tré Stafli af plönkum tilbúinn til að fara í pressuna hjá Límtré-Vírneti. Límtré úr íslensku greni í 102 metra brú STIGA ST5266 P 40 ár á Íslandi Hágæða snjóblásarar Fjölbreytt úrval Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is VETRARSÓL er umboðsaðili Gulltryggð gæði L augarnar í Rey k javí k w w w. i t r. i s Höldumbilinu og sýnum hvert öðru tillitssemi 2m Velkomin aftur Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Löggiltur heyrnarfræðingur Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Hljóðmagnarar Hljóðmagnari hentar vel þeim sem þurfa að heyra betur og er einfaldur í notkun. Þægilegt samskiptatæki. Með margmiðlunarstreymi tengist hann þráðlaust við sjónvarp og önnur tæki. Vekjaraklukka fyrir þá sem sofa fast eða heyra illa Að vakna á réttum tíma hefur aldrei verið auðveldara Vekur með ljósi, hjóði og/eða tirtingi svo að maður þarf ekki að sofa yfir sig. Verð frá kr. 19.800 Verð frá kr. 58.800 „Röðun og flokkun virkjanakosta gengur oft þvert á almenna skyn- semi og mikilvægar forsendur eru oftar en ekki gripnar úr lausu lofti.“ Þetta segir Guðni A. Jó- hannesson orkumálastjóri í jóla- erindi sínu til starfsmanna Orku- stofnunar. Hann segir einnig að æskilegt gæti verið að leggja rammaáætlun niður og efla stofn- anir sem fara með umhverfis- og skipulagsmál til þess að meta hugsanlega virkjunarkosti á skipu- lagsstigi. „Ég held við verðum að gera okkur ljóst að allt þetta ferli er orðið langur, erfiður draumur eða martröð. Það er kominn tími til þess að vakna upp frá þessu og finna nýjar leiðir,“ skrifar hann eftir að hafa rakið vinnu ramma- áætlunar frá árinu 2008. Guðni segir einnig í erindi sínu að frið- lýsing án tímamarka sé í raun al- varleg skerðing á rétti komandi kynslóða til þess að taka lýðræð- islegar ákvarðanir um mál á hverj- um tíma. Rammi ómarkviss  Orkumálastjóri vill rammaáætlun af Af tæknilegum ástæðum birtist ekk- ert Reykjavíkurbréf í sunnudags- blaði Morgunblaðsins. Skrifin vist- uðust ekki og glötuðust og þar sem þetta kom seint í ljós var ekki unnt að gera annað en sleppa bréfinu. Áskrifendur eru beðnir velvirðingar á þessu. Reykjavíkur- bréf féll niður

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.