Morgunblaðið - 21.12.2020, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 2020
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin WHO
kallaði eftir því í gær að ríki Evrópu
gripu til harðari aðgerða til þess að
koma í veg fyrir að hið nýja afbrigði
kórónuveirunnar, sem kom fram í
Bretlandi, dreifist víðar. Níu tilfelli
með afbrigðinu hafa nú greinst í
Danmörku, en auk þess hefur eitt
tilfelli greinst í Hollandi og eitt í
Ástralíu.
Belgía, Holland og Ítalíu bönnuðu
í gær allar flugferðir frá Bretlandi
vegna hins nýja afbrigðis kórónu-
veirunnar, sem dreifir sér mun
hraðar en önnur. Þá íhuguðu stjórn-
völd í Frakklandi og Þýskalandi al-
varlega að fylgja í fótspor þessara
ríkja.
Matt Hancock, heilbrigðisráð-
herra Bretlands, sagði í gær að nýja
afbrigðið dreifði sér „stjórnlaust“ og
að breska ríkisstjórnin leitaði allra
leiða til þess að koma böndum á af-
brigðið. Sagði Hancock hins vegar
einnig að það gæti reynst þrautin
þyngri að halda afbrigðinu niðri þar
til búið væri að bólusetja alla sem
þess þyrftu.
Nýjar og hertar sóttvarnaaðgerð-
ir tóku gildi á Bretlandi í gær vegna
afbrigðisins, en Boris Johnson for-
sætisráðherra kynnti þær á blaða-
mannafundi sínum síðdegis á laug-
ardeginum. „Ég verð því miður að
tilkynna ykkur að við getum ekki
haldið jólin líkt og áður var gert ráð
fyrir,“ sagði Johnson í ávarpi sínu,
en hinar hertu aðgerðir munu ná til
um 17,7 milljón manna, eða sem
nemur þriðjungi allra Englendinga.
Fólu þær meðal annars í sér að
nýtt viðbúnaðarstig var sett á fót,
en áður voru þrjú slík í gildi fyrir
landið í heild. Voru höfuðborgin
Lundúnir og mestallt suðaustur-
horn Englands sett á fjórða viðbún-
aðarstig frá og með miðnætti á laug-
ardagskvöldinu.
Ferðalög og jólaboð bönnuð
Hefur íbúum á þeim svæðum sem
eru undir fjórða viðbúnaðarstigi
verið gert að dvelja sem mest heima
við, og er þeim bannað að yfirgefa
svæðið. Þá mega íbúar þar ekki
hitta nema einn annan aðila sem
ekki deilir heimili með þeim, og þá
aðeins utandyra. Þá verða allir að
dvelja heima hjá sér á nóttunni.
Þá þurfti ríkisstjórnin að snúa við
fyrri ákvörðun um jólahald, en þar
var allt að þremur heimilum leyft að
blanda geði í allt að fimm daga í
kringum jólahátíðina, frá Þorláks-
messu fram til 27. desember. Það
leyfi hefur hins vegar verið aftur-
kallað og er nú íbúum á þeim svæð-
um sem falla undir fyrsta til þriðja
viðbúnaðarstig einungis leyft að
hitta fólk af einu öðru heimili, og þá
bara á sjálfan jóladag.
Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um
að „fresta jólunum“ virðist hafa
mælst fremur illa fyrir. Örtröð
skapaðist á öllum helstu lestarstöðv-
um Lundúna, þar sem margir íbúar
vildu yfirgefa borgina áður en hinar
hertu reglur tækju gildi. Þá sökuðu
ýmsir þingmenn Íhaldsflokksins
ríkisstjórnina um að hafa beðið þar
til þingið væri farið í jólafrí til þess
að setja hinar hertu reglur á.
Afbrigðið 70% meira smitandi
Var þar meðal annars vísað til
þess að Johnson sagði á þinginu á
miðvikudaginn að það myndi vera
„ómannúðlegt“ að aflýsa jólunum.
Susan Hopkins, yfirmaður ensku
heilbrigðisstofnunarinnar Public
Health England, sagði hins vegar
fjölmiðlum í gær að það hefði ekki
verið fyrr en á föstudaginn sem
stofnunin komst að þeirri niður-
stöðu að nýja afbrigðið væri allt að
70% meira smitandi en fyrri af-
brigði veirunnar. Hefði ríkisstjórnin
þá þegar verið látin vita af þessu
nýja mati heilbrigðisyfirvalda.
Sir Keir Starmer, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, gagnrýndi hins
vegar Johnson fyrir að hafa tekið
ákvörðunina allt of seint, og sagði
Starmer að ótti Johnsons við óvin-
sældir hefði þar ráðið úrslitum.
Sadiq Khan, borgarstjóri Lund-
úna, greindi hins vegar frá því að
sjúkrahús borgarinnar væru nú
undir sama álagi og þau voru þegar
fyrri bylgja faraldursins náði há-
marki í apríl. Þá hefði tilfellum
fjölgað mjög skarpt meðal barna og
unglinga á aldrinum 10-19 ára, en
ekki er vitað hvort nýja afbrigðið sé
valt að þeirri aukningu.
AFP
Karnabær Hertar sóttvarnaaðgerðir tóku gildi í Lundúnum í gær, og var varla hræða á ferli í Carnaby Street.
Nýja afbrigðið „stjórnlaust“
Nokkur ríki banna flugferðir frá Bretlandi Um þriðjungur Englands settur á
fjórða viðbúnaðarstig Skoska heimastjórnin lokar landamærunum að Englandi
Rannsóknarnefnd sjóslysa í Svíþjóð
lagði til fyrir helgi að banni við rann-
sóknum á flaki farþegaskipsins
Estóníu yrði aflétt. Skipið sökk á leið
sinni um Eystrasaltið frá Tallinn til
Stokkhólms í aftakaveðri árið 1994
og fórust 852. Er slysið næstmann-
skæðasta sjóslys í Evrópu á friðar-
tímum, á eftir Titanic-slysinu.
Ólöglegt er samkvæmt sænskum
lögum að raska ró svæðisins þar sem
skipið liggur, en samkomulag ríkir
milli Svíþjóðar, Finnlands og Eist-
lands um að svæðið verði skilgreint
sem grafreitur á hafi úti og er íbúum
þeirra ríkja óheimilt að kafa niður að
flakinu sem skilgreint er sem graf-
reitur.
Áður óþekkt gat á skrokknum
Hin opinbera skýring á slysinu er
sú að stafnhleri Estóníu hafi opnast í
óveðrinu þannig að sjórinn gat flætt
óhindrað inn á bíladekk skipsins,
sem aftur leiddi til þess að því
hvolfdi.
Í haust komu hins vegar fram nýj-
ar vísbendingar í heimildarmynda-
þætti á Discovery-rásinni, en höf-
undar hans létu ómannaðan kafbát
fara að flaki Estóníu, og fannst þá
fjögurra metra langt gat á skrokki
skipsins sem ekki var vitað um áður.
Tveir af höfundum þáttanna sæta
nú ákæru fyrir að hafa raskað graf-
helgi skipsins, og gætu þeir átt yfir
höfði sér allt að tveggja ára fangelsi.
Þátturinn hefur hins vegar orðið til
þess að þrýsta á um að ný rannsókn
á tildrögum slyssins verði gerð.
Mikael Damberg innanríkisráð-
herra sagði á blaðamannafundi á
föstudaginn að ekki stæði til að af-
nema lögin um grafhelgina, heldur
yrði skoðað hvernig hægt væri að
breyta þeim til að gera rannsóknar-
nefndinni kleift að kanna tildrög
slyssins að nýju.
Vilja rannsaka
sjóslysið að nýju
Nýjar upplýsingar um afdrif Estóníu
AFP
Estónía Þessi minnisvarði um slysið
er í Djurgården í Stokkhólmi.
Fríverslunar-
viðræður Bret-
lands og Evrópu-
sambandsins
voru sagðar
hanga á bláþræði
í gær, en undan-
þágur þær, sem
Bretar njóta
samkvæmt út-
göngusamningi
sínum, renna út eftir tíu daga.
Samninganefndir beggja funda
nú í Brussel, og er gert ráð fyrir að
viðræðurnar muni standa fram til
jóla. Enn hefur ekkert þokast
áfram milli Breta og sambandsins
varðandi fiskveiðimál, og sagði
Matt Hancock, heilbrigðisráðherra
Bretlands, að kröfur Evrópusam-
bandsins væru ósanngjarnar.
Heimildir AFP-fréttastofunnar
innan Evrópusambandsins sögðu
hins vegar að sambandið hefði lagt
fram sitt síðasta tilboð, og að bolt-
inn væri nú hjá Boris Johnson, for-
sætisráðherra Breta.
BRETLAND
Brexit-viðræður
hanga á bláþræði
Boris Johnson
Joe Biden, verð-
andi Bandaríkja-
forseti, var í gær
sagður íhuga
hvaða gagn-
aðgerða ríkis-
stjórn hans gæti
gripið til gegn
Rússum í refsi-
skyni fyrir eina
stærstu tölvu-
árás í sögunni.
Í síðustu viku kom í ljós að rúss-
neskir tölvuþrjótar hefðu náð að
setja kóða inn í forrit frá banda-
ríska tölvufyrirtækinu SolarWinds,
en það sér um netlausnir fyrir um
18.000 fyrirtæki og stofnanir.
Er áætlað að kóðinn hafi gert
hópnum kleift að komast að við-
kvæmum upplýsingum frá að
minnsta kosti 200 aðilum, þar á
meðal bandaríska fjármálaráðu-
neytinu og viðskiptaráðuneytinu,
sem og stofnuninni sem heldur utan
um kjarnorkuvopnabúr hersins.
BANDARÍKIN
Íhugar svör gegn
tölvuárás Rússa
Joe Biden
Sími 557 8866 | pantanir@kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími7.30-16.30
Full búð af
gæðakjöti fyrir
jólin og áramótin
Úrval af hangikjöti,
hamborgarhryggjum,
nautakjöti og villibráð