Morgunblaðið - 21.12.2020, Side 18

Morgunblaðið - 21.12.2020, Side 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 2020 ✝ Guðrún S.Kristjánsdóttir fæddist í Skuld á Eskifirði 7. desem- ber 1917. Hún lést 7. desember 2020, á 103 ára afmæl- isdaginn sinn, á hjúkrunarheim- ilinu Sóltúni. Foreldrar henn- ar voru hjónin Stef- anía Bjarnadóttir, f. 1886, d. 1954, og Kristján Jónsson, f. 1891, d. 1974. Systur Guðrúnar voru: Jóhanna, f. í Frakklandi og á Ítalíu í eitt ár. Árið 1957 var Guðrún skipuð í prófnefnd við sveinspróf í kjóla- saumi, hún sinnti því starfi til 1963. Guðrún vann á ýmsum stöðum í Reykjavík; á prjóna- stofunni Iðunni, á skrifstofum Ríkisspítalanna þar sem hún sá um mat og kaffi og í Vörðunni þar sem hún sá um viðgerðir á barnavögnum. Guðrún vann í Vörðunni til 75 ára aldurs. Guðrún var 95 ára þegar hún flutti í þjónustuíbúð aldraðra í Lönguhlíð 3 en vegna veikinda árið 2019 flutti hún á hjúkr- unarheimilið Sóltún. Útför Guðrúnar fer fram frá Háteigskirkju í dag, 21. desem- ber 2020, klukkan 15. Vegna að- stæðna verða aðeins nánustu að- standendur og vinir viðstaddir athöfnina. 1916, d. 2000, Jón- ína, f. 1920, d. 1992, og Ingibjörg, f. 1922, d. 2012. Guðrún ólst upp á Eskifirði, ung að árum fór hún til Reykjavíkur til að læra kjólasaum. Hún tók sveinspróf í kjólasaumi árið 1947. Árið 1948 réð Guðrún sig í vist hjá Alberti Guðmundssyni knattspyrnumanni og konu hans Brynhildi. Hún dvaldi með þeim Langri og góðri lífsgöngu Guðrúnar S. Kristjánsdóttur frá Skuld Eskifirði lauk á 103. af- mælisdegi hennar. Var hún ferðbúin í sína hinstu för. Minn- ingar sækja að. Alltaf tók Guð- rún frænka, en það var hún oft- ast kölluð hvort sem í hlut áttu börn og henni skyld eða óskyld, okkur með bros á vör þegar við komum í heimsókn og svo var tekið skrafl. Spilamennska var henni í blóð borin enda vinsæl tómstundaiðja fjölskyldunnar. Guðrún bar sig vel og tók því sem að höndum bar. Henni margt til lista lagt, hún las mikið og átti gott samfélag með íbúum Lönguhlíðar. Handavinna var hennar aðalsmerki, fjölmargar prjónaðar ungbarnapeysur fengu börn ættingja og vina að gjöf. Handbragðið var fullkomið og greinilegt að þarna var að verki manneskja með skýran huga. Guðrún fór ekki varhluta af erfiðleikum lífsins. Ýmis veik- indi settu strik í reikninginn en alltaf lánaðist henni að ná heilsu. Hún átti einnig margar gleði- stundir. Þótt hún eignaðist ekki eigin fjölskyldu átti hún þátt í lífi margra sem að henni stóðu. Hún fylgdist ánægð með velgengni barnanna, þau virtu hana og sýndu þakklæti sitt í verki. Vinnusemi einkenndi alla hennar ævi. 15 ára fór hún að heiman til að vinna fyrir sér. Eftir það kom hún heim í Skuld í fríum að hitta fjölskyldu og vini og lagði einnig hönd á plóg. Síðar lærði hún kjólasaum og var í prófnefnd Iðnskólans um árabil. Guðrún fékk tækifæri til að dvelja í Frakklandi og á Ítalíu sem var henni mikil upplifun. Lengst af vann hún í barnavöruversluninni Vörðunni við ýmislegt tengt saumaskap. Vináttu Vörðufjöl- skyldunnar átti hún óskipta alla tíð eins og raunar allra sem henni kynntust. Fyrst man ég eftir Guðrúnu á Rauðarárstíg í lítilli íbúð, gisting var boðin þeim sem þess þurftu og hiklaust gekk hún úr rúmi fyrir gesti sína. Útivist stundaði Guðrún og ferðuðust þær Halldóra Egg- ertsdóttir vinkona hennar oft um landið. Þórsmörkin var henni kærust. Frábært var að sjá hversu hrærð hún var þegar við Ívar fórum með henni þangað, þá hátt á tíræðisaldri. Á skóla- árum mínum passaði Guðrún oft Boga elsta son minn sem þá var á fyrsta ári. Hún lét m.a. útbúa stóra útdraganlega skúffu undir rúmið sitt. Bogi var oft nætur- gestur í skúffunni. Síðar horfði hann margoft á þættina um Nonna og Manna sem Guðrún tók upp á ásamt öðru efni sem börnin höfðu gagn og gaman af. Eiríkur náði líka sérstöku sam- bandi við frænku sína sem í seinni tíð einkenndist af bréfa- skiptum vegna búsetu hans er- lendis. Þegar hann heimsótti Ís- land var komið við í Lönguhlíð, skraflað og þeginn hádegisverð- ur. Þegar Eiríkur var lítill sagði hann vinum sínum að hún væri þriðja amma sín, mörg okkar geta eflaust tengt við það. Nýj- asta barnið í fjölskyldunni er sonur Eiríks og var Guðrún fyrir löngu búin að prjóna peysu fyrir Eika sinn. Hún vissi sem var að þegar aldurinn er yfir 100 ár er ekki á vísan að róa þegar barnið kæmi. Ingi Davíð undi sér best hjá frænku sinni og fljótlega settist Guðrún hjá honum, lék við hann og svo spiluðu þau. Þegar hann eignaðist svo dóttur fyrir nokkrum árum var hún skírð í höfuðið á Guðrúnu. Á 100 ára afmælinu hélt hún ógleym- anlega veislu. Þann dag var Guð- rún eins og drottning og naut þess að vera umvafin ættingjum og vinum sem hún hafði svo mik- ið gefið. Ég sendi nöfnu hennar Guðrúnu Völu og öllum þeim sem næst Guðrúnu stóðu hug- heilar samúðarkveðjur. Sjálf hef ég misst kæra móðursystur sem var mér betri en flestir aðrir. Drengirnir mínir og fjölskyldur þeirra minnast Guðrúnar frænku með hlýhug og virðingu og þakka fyrir sig. Meira: mbl.is/andlat Jóhanna Eiríksdóttir. Nú er komið að því að kveðja elsku Guðrúnu frænku. Guðrún mun alltaf eiga mikilvægan og merkilegan sess í mínu hjarta en ljúfari manneskja var vandfund- in. Ég minnist þess að hafa alltaf liðið eins og heima þegar ég kom í heimsókn til Guðrúnar frænku. Hvort sem það var sem lítill snáði að gista í skúffunni undir rúminu hennar eða sem fullorð- inn maður að heimsækja hana með stelpurnar mínar. Viðmótið alltaf vinalegt og hún glöð að sjá mann. Á svona tímamótum koma upp margar minningar, en ein stendur þó alltaf upp úr hjá mér. Guðrún var alltaf að hugsa um aðra og ég minnist þess þegar við Sara vorum að fara í langt ferðalag um Asíu að við vildum hitta á hana áður en við færum út. Hún var að verða níræð á þeim tíma sem við yrðum úti og vildum við því hitta hana og óska henni til hamingju með daginn. Það lá nú ekki fyrir á þessum tíma hvort hún yrði með veislu en henni þótti ómögulegt að við fengjum ekki að taka þátt ef að því yrði. Hún lét okkur hafa pen- ing til að fara fínt út að borða til að halda upp á afmælið hennar 7. desember 2007, sem við gerð- um og áttum ógleymanlega kvöldstund saman henni til heið- urs í Víetnam. Það kom síðan á daginn að við vorum ein sem fengum afmælisveislu sem gerði þetta svo sértakt. Takk fyrir allt. Ólafur Ágúst. Guðrún Kristjánsdóttir frænka mín er látin, 103 ára. Hún var dóttir Kristjáns Jóns- sonar á Eskifirði sem var móð- urbróðir minn og við því tengd nánum fjölskylduböndum. Mér er í fersku minni að á milli móð- ur minnar og bræðra hennar og þeirra fjölskyldna ríkti sérstakt hugarþel, sterkur og óbrotgjarn kærleikur sem einkenndi öll þeirra samskipti. Leiðir okkar Guðrúnar lágu þó ekki oft sam- an. Hún flutti ung að heiman, bjó lengst af í Reykjavík og kom ekki á Austurlandið nema sem gestur. En ég hitti hana ein- stöku sinnum og hún á skýran og afmarkaðan sess í minning- unni. Guðrún var hæglát mann- eskja og yfirveguð og henni fylgdi friður og væntumþykja. Ég ræddi stundum við hana, hún var hátt í þremur áratugum eldri en ég og ég leit upp til þessarar frænku minnar. Tilsvör hennar einkenndust af hógværð og þeirri háttvísi sem gjarnan fylgir þroskuðu fólki. Hún var sérlega barngóð og vék að okkur, sem yngri vorum, með hlýhug og vel- vild, alltaf tilbúin til að hlusta og greiða götu okkar ef hægt var. Ógleymanlegt er samkvæmið þegar Guðrún bauð í hundrað ára afmælið sitt. Þar sat hún, eftir heillar aldar vegferð, eins og ekkert væri sjálfsagðara, ræddi við fólk og skemmti sér, fylgdist með skemmtiatriðum og hafði skoðanir á mönnum og málefnum, skemmtileg og skýr. Það gladdi hana ósegjanlega mikið að fá að hafa vini og ætt- ingja hjá sér þetta kvöld. Hún var félagslynd og full af um- hyggju fyrir þeim sem henni þótti vænt um. Og nú er hún farin yfir móð- una miklu. Hún var einstök manneskja, hjartahlý og gefandi og ég kveð Guðrúnu frænku mín með þökk og virðingu. Blessuð sé minning hennar. Ragnar Ingi Aðalsteinsson frá Vaðbrekku. Með hjarta mitt fullt af þakk- læti skrifa ég nokkur minning- arorð um elsku Guðrúnu frænku og nöfnu. Guðrún var mér afar kær og ég sakna hennar sárt. Það var sterkur strengur á milli okkar og við áttum kærleiksríkt og fallegt samband alla tíð. Guð- rún kenndi mér margt og ég á henni margt að þakka. Guðrún var með stórt hjarta og væntumþykjan sem hún sýndi mér og mínu fólki var ein- stök. Hún vildi allt fyrir alla gera og var sérlega greiðvikin. Nærvera hennar var góð og nærgætni gagnvart fólki var mikil. Hún var jákvæð og hafði fallega sýn á lífið. Hún sagði mér að þótt hún hefði getað breytt einhverju á sinni löngu ævi hefði hún ekki viljað það. Hún var sátt með lífið eins og það var og eng- in eftirsjá. Við höfum alla tíð eytt miklum tíma saman, hún talaði oft um það að við værum heppnar að eiga hvor aðra að því þegar ég var lítil passaði hún mig og eftir að hún varð gömul þá hugsaði ég um hana. Það lék allt í höndunum á Guðrúnu. Hún tók sveinspróf í kjólasaumi með 1. einkunn. Þeg- ar Guðrún var yngri var hún dugleg að sauma á mig föt sem ég klæddist með miklu stolti. Guðrún var mikil hannyrðakona og allt sem hún gerði var fallegt. Í seinni tíð prjónaði hún mikið og nutu ættingjar og vinir góðs af því. Guðrún hafði gaman af því að spila á spil og að spila kross- gátuspilið Scrabble. Hún var klók spilakona og þótt andstæð- ingarnir í Scrabble væru iðulega mörgum tugum ára yngri en hún þá hafði hún oftar en ekki vinn- inginn. Guðrún náði háum aldri, dó á 103 ára afmælisdaginn sinn. Þrátt fyrir háan aldur var hún með flesta hluti á hreinu og það gat verið vandræðalegt þegar hún var að minna okkur yngra fólkið í fjölskyldunni á hitt og þetta. Alla tíð fylgdist hún með fólkinu sínu af áhuga og lét sér það varða. Einnig fylgdist hún vel með málefnum líðandi stund- ar. Elsku Guðrún frænka þú varst södd lífdaga og það var mikill friður yfir þér þegar þú kvaddir þennan heim. Ég er þakklát fyrir að hafa getað verið hjá þér og haldið í hönd þína á þeirri stundu. Minning þín mun lifa að eilífu í hjarta mínu. Þín Guðrún Vala Til minningar um elsku Guð- rúnu, frænku okkar. Hjartahlýrri manneskju var erfitt að finna en hún snerti við mörgum á sinni mögnuðu ævi. Ofar öllu var mikilvægt að láta öðrum líða vel og gera góðverk. Sú minning mun lifa og ýta und- ir það að við sem minnumst hennar látum gott af okkur leiða. Guðrún átti langa ævi, sem var ekki alltaf dans á rósum. Að fæðast inn í heim fyrri styrj- aldar, frostavetursins mikla og plágunnar var eflaust ekki auð- veldasta byrjunin en hún lét það ekki stoppa sig. Guðrún kunni því margar sögur af land og þjóð sem var gaman að fara yfir, oft- ast með spilastokk í hendi. Allt fram til síðasta dags lagði Guð- rún flesta í spilum, enda með heila öld af reynslu undir belt- inu. Við Guðrún áttum margar góðar stundir sem þurftu aldeilis ekki að vera flóknar. Þegar ég var yngri þá átti Guðrún alltaf spennandi spólu, sem var búið að skrifa nokkrum sinnum yfir. Spólurnar innihéldu yfirleitt eitthvert spaug, eins og ára- mótaskaup eða Spaugstofuna, en síðan var Nonni og Manni alltaf á sérstökum stað í skápnum. Veitingarnar voru svo mitt uppá- hald, brauð með arómati og osti rjúkandi heitt úr örbylgjuofnin- um. En Guðrún hefur ekki bara passað upp á mig, heldur var hún líka alltaf til staðar fyrir móður mína, Guðrúnu Völu Ólafsdóttir. Það var fallegt að fylgjast með þeirra sambandi, og aðdáunarvert að verða vitni að þeirra einstöku vináttu. Það verður sérstakt að halda ekki jólin með þér, og skutlast eftir gömlu konunni til að hefja fögnuðinn. Fyrir hönd okkar ástvina og ættingja, þakka ég þér fyrir það sem þú gafst okkur öllum. Hvíldu í friði, Guðrún frænka. Kristján Ingi Mikaelsson og Þóra Karen Ágústsdóttir. Elsku gull af hjarta lifir nú í öllu því bjarta. Í kertaljósi lést mig vita og veröld mína þú nú litar. Blíð, ljúf og góð á neikvæðri hlið aldrei stóð. Fegurð ég einungis sá á betri stað þú ert komin á. Lofaðir mér að þú verndir alla, alla þá í kringum þig sem kalla. Þú fallegi engill sem sálina mýkir lifir nú í dásamlegri veröld þar sem kyrrðin ríkir. Fallegasta sálin sem slökkti öll bálin. Varst alltaf svo fín, ég sakna þín. Diljá Mikaelsdóttir. Guðrún S. Kristjánsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR, Grænuhlíð 12, lést á Landspítalanum í Fossvogi 15. desember. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 23. desember klukkan 11. Vegna aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir en streymt verður frá athöfninni. Sjá https://www.mbl.is/andlat/minningar/utfarastreymi/ Gunnar Á. Harðarson Guðbjörg E. Benjamínsdóttir Steinunn Harðardóttir Guðrún Harðardóttir Árni Tryggvason og fjölskyldur Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og vinur, EINAR ÞÓR SIGURÞÓRSSON rafvirki, Háamúla í Fljótshlíð, lést miðvikudaginn 16. desember á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi. Útförin verður í Hlíðarendakirkju í Fljótshlíð miðvikudaginn 30. desember klukkan 13. Aðeins nánustu aðstandendur og vinir verða viðstaddir athöfnina en henni verður streymt á slóðinni: facebook.com/groups/utforeinars Auður Dóra Haraldsdóttir Katrín Einarsdóttir Valdimar Grétar Gunnarsson Haukur Þór Valdimarsson Sölvi Freyr Valdimarsson Atli Einarsson Harpa Kristjánsdóttir Egill Atlason Arnór Atlason Sara Atladóttir Freyr Friðriksson og fjölskylda Óskar Sveinn Friðriksson og fjölskylda ✝ Reynir H. Jóns-son fæddist 9. apríl árið 1931 á bænum Kringlu í Grímsnesi þar sem frænka hans Jódís Sigmundsdóttir stundaði búskap ásamt eiginmanni sínum Sigurjóni Gíslasyni og fjöl- skyldu. Reynir lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í Reykjavík 23. nóvember 2020. Foreldrar Reynis voru Anna S. Ámundadóttir, verkakona frá Kambi í Flóa, f. 14. maí 1907, d. 19. maí 1983, og Jón H. Frið- riksson verkamaður, f. 14. sept- ember 1904, d. 17. janúar 1990. Reynir ólst að mestu upp á Eyrarbakka þaðan sem hann lauk barnaskólaprófi. Að námu loknu hóf hann störf hjá Vega- gerð ríkisins og síðar starfaði hann við Írafossvirkjun. Reynir varð fyrir slysi við Írafossvirkjun árið 1951 og bar hann þess merki æ síðan. Stærstan hluta starfs- ævinnar vann hann hjá Raf- magnsveitum Reykjavíkur. Reyn- ir kvæntist 17. maí 1959 Jakobínu Guð- mundsdóttur, f. 16. júlí 1935, d. 12. nóv- ember 2008. Þau skildu. Synir þeirra eru: Bragi, f. 19. nóvember 1959, og Jón Emil, f. 10. ágúst 1961, d. 30. mars 1976. Eig- inkona Braga er Eulogia Medico, f. 15. október 1967. Sonur þeirra er Jón Emil, f. 26. ágúst 1997. Heimili Reynis í Reykjavík var lengstum á Þorfinnsgötu 12 og frá árinu 1998 í Lindarseli 4. Hann flutti á hjúkrunarheimilið Hrafnistu í Reykjavík í febrúar á þessu ári. Reynir var áhugamað- ur um bifreiðar og að ferðast um landið þar sem hann var mikill náttúruunnandi. Hann var hand- laginn og átti einkar gott með að vinna við tæki og vélar af ýmsum toga. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna og var hún gerð frá Fossvogskapellu 2. desember 2020. Reynir okkar hefur nú kvatt hið jarðneska líf. Við eigum margar góðar minningar frá samveru- stundum okkar. Efst í huga eru öll matarboðin, minningar frá því að amma var enn með okkur og bauð hópnum í pönnukökukaffi á sunnu- degi, áramótin saman í Teigagerð- inu og vikulegu boðin á miðviku- dögum. Já, alltaf var gaman hjá okkur og við höfðum öll unun af að sitja og ræða málin. Einnig þótti okkur gaman að ferðast um fallega landið okkar og þá var alltaf best að fara á Fordinum hans Reynis svo sem flestir gætu setið saman. Elsku Reynir, þú varst hinn besti bílstjóri og komst okkur á leiðar- enda hvert sem förinni var heitið. Við munum heldur aldrei gleyma ferðalögunum okkar til Siglufjarð- ar á Pæjumótið en þá fylgdu þrír karlmenn einni snót á fótboltamót og heimilislífið gat verið skrautlegt á köflum. Það var orðin hefð hjá okkur fjölskyldunni að kíkja í heimsókn til þín á Þorláksmessu með smá jólaglaðning. Besta gjöfin var samt eflaust samverustundin, að fá að vera saman og sjá fallega brosið þitt. Við munum sakna þess mikið og við munum kveikja á kerti og hugsa til þín yfir hátíðirnar. Þú varst einstakur maður, já- kvæður að eðlisfari og góðhjart- aður. Þú lést aldrei neinn bilbug á þér finna og varst harðduglegur. Það eru forréttindi að hafa fengið að kynnast þér. Þú varst stór hluti af lífi okkar og áttir þátt í að móta okkur á okkar yngri árum. Við minnumst þín með þakklæti, hlý- hug og söknuði. Megi gæfan þig geyma, megi Guð þær færa sigurlag. Megi sól lýsa þína leið, megi ljós þitt skína sérhvern dag. Og bænar bið ég þér, að ávallt geymi þig Guð í hendi sér. (Bjarni Stefán Konráðsson) Minning þín mun lifa áfram í hjörtum okkar. Barnabörn Lullu, Einar Daði, Guðný Helga og Elías Hlynur. Reynir H. Jónsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.