Morgunblaðið - 21.12.2020, Síða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 2020
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Ein aðferð til að fá það sem þú vilt
er að útiloka þann möguleika úr huganum
að þú fáir það ekki. Nýttu þér reynslu og
vitneskju annarra.
20. apríl - 20. maí
Naut Neikvæðni er viðhorf sem sýgur
ánægjuna úr líðandi stundu. Ef þú þarft að
beita einhvern hörku væri kannski ráð að
gera það í einrúmi.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Vinátta og heiðarleiki skipta
miklu máli í umgengni við aðra. En mundu
að sá er einn sem ræður og þú þarft að
læra að sýna auðmýkt í ákveðnum málum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er erfitt fyrir þig að lifa í núinu
án þess að vita hvað kemur næst. Nú
sérðu hvort gjörðir þínar færa þér árangur
eður ei.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Reyndu að halda þig á jörðinni og líta
á aðra sem jafningja. Gættu þess að slá
ekki aðra út af laginu með ákveðni þinni.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Oft skýtur hlutum upp í hugann án
þess að maður sé beint að hugsa um þá.
Best er að bregðast við með því að segja
sem minnst.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það verður ekki bæði sleppt og haldið
svo þú þarft að gera það upp við þig hvað
þú raunverulega vilt. Leggðu þitt af mörk-
um til samkomulags.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ef þú ert ekki í skapi til að
fara út meðal vina skaltu láta það eftir þér,
því það kemur dagur eftir þennan dag.
Hver sem efi þinn er er alltaf betra að fá
álit sem flestra.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Ástarsamband sem áður var
nokkuð stormasamt upplifir yndislega
blíðu í kvöld. Vertu sveigjanlegur og gam-
ansamur.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú ert hugsi þessa dagana og
finnst eitthvað vanta í líf þitt. Að finna sér
tíma til að sinna hugðarefnum sínum í ein-
rúmi er alger sæla.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú þarft að kunna að meta það
góða við vináttuna, því ekkert eigum við
að taka sem sjálfsagðan hlut.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Notaðu daginn til að spjalla við vini
þína. Spurðu krefjandi spurninga svo
hægt sé að varpa ljósi á málið.
40 ára Unnur Ylfa er
viðskiptafræðingur,
með MBA-gráðu og
starfar í áhættugrein-
ingu hjá Arion banka.
Helstu áhugamál henn-
ar eru utanvegahlaup,
götuhlaup, skíði, al-
menn útivera og hreyfing. Einnig spilar
hún badminton sem hún æfði og keppti í
á yngri árum.
Maki: Þröstur Bergmann, f. 1979, starfar
hjá Seðlabanka Íslands.
Börn: Andri Þór, f. 2006; Tinna, f. 2009,
og Daníel Árni, f. 2013.
Foreldrar: Birgitta Thorsteinson, f. 1957,
kennari og Magnús G. Benediktsson, f.
1958, viðskiptafræðingur og löggiltur
endurskoðandi.
Unnur Ylfa
Magnúsdóttir
um fólk og mannlíf.“ Þá var kominn
tími til að breyta til og hjónin festu
kaup á jörðinni Gljúfri í Ölfusi. „Ég
hélt að bændur græddu svo mikið,
en það var nú kannski ekki alveg
eins og ég hélt, en ég er mjög
ánægður með jörðina okkar og hér
hefur okkur liðið vel.“ Jón var skip-
aður hreppstjóri í Ölfusi, „rétt áður
en þessi störf voru lögð niður“, segir
hann. Hann náði sér í fasteignasala-
réttindi eftir að hann hætti mjólkur-
framleiðslu, og þau réttindi komu
sér vel. Hann var brautryðjandi í því
að leggja heitt vatn um austurhluta
Ölfussins og gera samninga við land-
eigendur. Sú reynsla varð til þess að
hann var beðinn um að gera sam-
bærilega samninga fyrir eigendur
hitavatnsréttinda varðandi hitaveitu
á Höfn í Hornafirði, sem hann og
gerði.
Jón er mikill félagsmálamaður og
hefur verið formaður Ungmenna-
sambands Dalamanna og Norður-
Breiðfirðinga, formaður í jarðanefnd
Dalasýslu, formaður í bygging-
arnefnd dvalarheimilis aldraðra í
Dalasýslu og var þar ráðunautur og
bjó í Búðardal næstu 11 árin. „Okk-
ur var afar vel tekið af Dalamönnum
og kynntumst við þar traustu og
jarðbundnu bændafólki, sem kunni
vel til verka í jarð- og búfjárrækt.
Við eigum þaðan góðar minningar
J
ón Hólm Stefánsson fædd-
ist 21. desember 1945 í
Stykkishólmi og ólst upp í
Vatnsholti í Staðarsveit að
hluta og í Reykjavík.
Hann var mjög hændur að föðurafa
sínum, Jóni Ólafi í Vatnsholti, og
man eftir að hafa fylgt honum víða
og hlustað á fullorðinna manna tal í
túninu heima. „Hann var mjög trú-
aður maður og mikill reglumaður og
síðan var systir hans, Rannveig
Margrét, líka á bænum og hún var
mjög músíkölsk og menningarleg.
Hún var alla tíð ógift, en hafði líka
mikil áhrif á mig og frá þeim fékk ég
trúna og áhuga minn á söng, en það
var alltaf sungið raddað heima í
Vatnsholti.“
Þegar æskan var að baki og kom-
inn tími til að finna sér vettvang í líf-
inu fór Jón í Bændaskólann á
Hvanneyri, og lauk þaðan B.Sc.-
prófi í búvísindum. En hann náði sér
í meira en menntun á Hvanneyri því
þar kynntist hann eiginkonu sinni
Rósu. „Ég kynntist henni á Hvann-
eyri, en hún var kennari við Hús-
mæðraskólann á Varmalandi. Það
voru alltaf boð á milli skólanna, en
ég leit ekkert á stelpurnar í þessum
boðum, bara á þessa sætu kennslu-
konu. Við vorum nokkrir strákar í
Hvanneyrarkvartettinum og það var
á þorrablóti á Brún í Bæjarsveit, þar
sem við sungum, að við Rósa náðum
saman.“ Jón segir að tveir félagar
hans hafi hermt eftir honum og náð
sér í kennslukonur. „Þetta var alveg
orðin aðferð,“ segir hann og hlær.
Hvanneyrarkvartettinn var vin-
sæll og kom víða fram á skemmt-
unum m.a. á vegum skólans bæði
innanlands og erlendis.
Þegar Jón útskrifaðist fóru hann
og Rósa vestur á Patreksfjörð í fjög-
ur ár þar sem hann varð ráðunautur
og framkvæmdastjóri hjá Búnaðar-
sambandi Vestfjarða og Ræktunar-
sambandi Vestur-Barðstrendinga.
„Ég var bara nýútskrifaður og 23
ára gamall og þetta var mikið álag
fyrir ungan mann, en ég sá t.d. um
hrútasýningar í öllum sveitar-
félögum í Ísafjarðar- og Barða-
strandarsýslum.“
Eftir fjögur ár sótti Jón um starf í
Dalasýslu, formaður náttúru- og
gróðurverndarnefndar Dalasýslu og
hrossaræktarsambands Dalasýslu
en þar var hann formaður nokkuð
lengi. Hann hefur setið í átta ár á
búnaðarþingi sem fulltrúi Sunnlend-
inga, verið formaður búnaðarfélags
Ölfushrepps og einnig austurveitu.
Þá er hann fulltrúi Bændasamtaka
Íslands í stjórn hagþjónustu land-
búnaðarins og átti sæti í sveitar-
stjórn Ölfushrepps. Þá var hann
einnig formaður Félags skógar-
bænda á Suðurlandi, en skógræktin
hefur átt hug þeirra hjóna síðustu
árin. „Við höfum ætlað milli 200 og
300 hektara undir skógrækt og er-
um búin að planta líklega hátt í
200.000 plöntum. Það er ótrúlegur
vöxtur í trjám hérna á Suðurlandi.“
Síðustu 20 árin hafa Jón og Rósa
rekið ferðaþjónustu á bænum undir
nafninu Gljúfurbústaðir ehf., auk
þess að rækta skóginn sinn.
Fjölskylda
Eiginkona Jóns er Rósa Signý
Finnsdóttir, f. 18.11. 1941, handa-
Jón Hólm Stefánsson bóndi á Gljúfri – 75 ára
Barnabörnin Neðri röð frá vinstri: Stefán Gunngeir; Snædís Freyja; Jón Hólm; Rósa Signý; Svava Róisín; Hildur
María. Efri röð frá vinstri: Signý Ólöf; Magnús Baldvin; Finnur; Jón Lárus; Jón Óskar; Rósa Kristín.
Alltaf raddaður söngur heima
Hjónin Jón Hólm og kona hans Rósa
hafa ræktað skóginn sinn í áravís.
Til hamingju með daginn
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
BATTERY
Borðlampi
fleiri litir
Frá 21.900,-
TAKE Borðlampi
fleiri litir –12.900,-
KABUKI
Gólflampi
29.000,-
Borðlampi
52.900,-
PLANET
Borðlampi
fleiri litir – 74.900,-
CINDY
Borðlampi
fleiri litir
32.900,-
BOURGIE
Borðlampi
fleiri litir
Frá 39.900,-
Jólagjöfin fyrir heimilið
Kartell
Lýstu skammdegið
uppmeð
30 ára Stefán Gunn-
ar ólst upp í Reykjavík
og bjó lengst af í smá-
íbúðahverfinu en er
nýfluttur í Garðabæ.
Stefán er ráðgjafi í
viðskiptagreind hjá
Expectus. Helstu
áhugamál hans eru fótbolti, en hann spil-
ar með liðinu Mídas með félögum sínum,
síðan er það golf, veiði og skemmtilegt
fólk.
Maki: Sigríður Katrín Stefánsdóttir, f.
1992, vinnur í tekjustýringu hjá Ice-
landair.
Barn: Theódór Páll, f. 2019.
Foreldrar: Jóhann Gunnar Stefánsson, f.
1964, framkvæmdastjóri og Sigrún Dóra
Jónsdóttir, f. 1966, kennari í Lindaskóla.
Stefán Gunnar
Jóhannsson
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is