Morgunblaðið - 23.12.2020, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.12.2020, Blaðsíða 4
Morgunblaðið/Eggert Seyðisfjörður Varðskipið Týr beindi geisla frá öflugum kastara upp í fjallið ofan við kaupstaðinn. Grannt er fylgst með ástandinu og hvort hætta er á frekari skriðuföllum. Mælingar eru gerðar á hverjum degi og svo verður áfram. Guðni Einarsson Viðar Guðjónsson Mælt er með því að viðhalda rým- ingu á ákveðnum svæðum í Seyðis- firði til 27. desember. Það er gert til öryggis vegna þess að spáð er úr- komu og hláku um jólin. Óvissustig almannavarna var enn í gildi á Aust- urlandi í gær vegna skriðuhættu og eins var hættustig á Seyðisfirði. Rýmingar voru í hluta bæjarins vegna skriðuhættu. Rigning og hláka um jólin „Það er ekki útlit fyrir mikla rign- ingu en það eru sprungur í hlíðunum eftir þetta veður, sem er ekki óal- gengt að myndist í miklum úrkomu- veðrum,“ sagði Harpa Grímsdóttir, hópstjóri ofanflóðavöktunar Veður- stofunnar. Hún segir að fylgst sé með því að allt sé stöðugt í kringum sprungurnar og hafa daglega verið gerðar mælingar. „Það er allt í rétta átt,“ sagði Harpa. Hún segir að vatnshæðar- mælar í borholum í Neðri-Botnun- um, ofan við kaupstaðinn, sýni að vatnið sé að sjatna. Þá dregur úr hreyfingum í hlíðunum. Meðan kalt er í veðri og úrkomulítið er talið að ástandið verði nokkuð stöðugt, þótt áfram geti verið hreyfingar í sjálfu skriðusárinu. „Við viljum fylgjast með þegar hlákan kemur um jólin og hvort eitt- hvað fer að hreyfast við það,“ sagði Harpa. Hún segir að nýr snjór liggi yfir svæðinu. Þótt ekki verði mikil rigning séu líkur á snjóbráðnun vegna þess að það geti hlýnað nokk- uð hressilega. Áfram verður fylgst með ástandinu yfir jólin. Aðgerðarstjórn á Austurlandi er í sambandi við íbúa á svæðunum sem áfram verða rýmd og mun aðstoða þá við að finna sér íverustaði þar til þeir geta aftur farið heim til sín. Unnið verður að hreinsun á svæð- um þar sem það er talið öruggt. Það er m.a. til að lágmarka tjón sem get- ur orðið fari brak og lausamunir að fjúka, samkvæmt tilkynningu al- mannavarna. Varðskipsmenn af Tý ætluðu að aðstoða við hreinsunina í gær og í dag verður þyrla Landhelg- isgæslunnar til taks. Stærsta skriðan í þéttbýli Stóra skriðan á Seyðisfirði 18. des- ember er sú stærsta sem fallið hefur á þéttbýli á Íslandi, samkvæmt grein á síðu Veðurstofunnar. Uppsöfnuð úrkoma á svæðinu 14.-18. desember var 569 mm og hefur aldrei mælst meiri úrkoma á jafn stuttum tíma á Íslandi og þessa fimm daga á Seyð- isfirði. Til samanburðar er rigning í Reykjavík í meðalári 860 mm. Sárið eftir stóru skriðuna er allt að 20 metra hátt. Svo virðist sem það nái djúpt niður í setlög sem ekki hef- ur hrunið úr í árþúsundir. Sérfræð- ingar Veðurstofunnar telja mikil- vægt að auka vöktun á fjallinu. Skiljanlega viðkvæmt ástand „Ég er vongóður um að þetta sé búið í bili,“ sagði Jens Hilmarsson, lögregluvarðstjóri og vettvangs- stjóri á Seyðisfirði í viðtali við blaða- mann Morgunblaðsins á staðnum. Björgunarsveitarmönnum og öðr- um sem staðið hafa í eldlínunni frá því hamfarirnar urðu hefur verið skipt út fyrir óþreyttan mannskap. Einnig komu nýir menn inn í vett- vangsstjórn m.a. frá slökkviliði og björgunarsveitum. Þeir munu standa vaktina þar til aðrir taka við milli jóla og nýárs. Jens kvaðst almennt vera ánægð- ur með þær aðgerðir sem gripið var til. Allir viðbragðsaðilar og Veður- stofan hefðu unnið mjög vel í aðdrag- anda stóru skriðunnar og eftir að hún féll. „Mér finnst að bæjarbúar hafi brugðist hárrétt við öllu sem við báðum um, rýmingum og öðru,“ sagði Jens. Hann kvaðst skilja til- finningarnar sem hellast yfir bæjar- búa í kjölfar hamfaranna. „Ástandið er viðkvæmt og það væri skrítið ef svo væri ekki.“ Úrkoma og hláka eru í kortunum um jólin  Ástandið á Seyðisfirði vaktað  Rýmingar til 27. desember 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2020 GRÍPANDI VERK „Sterk skáldsaga um harm og syndir á árunum eftir landnám. Full af dulúð og göldrum ...“ Bryndís Silja Pálmadóttir / Fréttablaðið LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið 10–19 alla daga til jóla | www.forlagid.is Dansk julegudstjeneste i Domkirken er desværre aflyst i år pga. COVID-19 restriktioner. Ambassaden opfordrer alle interesserede til at følge julegudstjenesten direkte fra Riskov Kirke kl. 13.45 islandsk tid den 24. december 2020 på DR1. Danmarks Ambassade ønsker alle en glædelig jul. Viðar Guðjónsson Oddur Þórðarson Ráðherrar í ríkisstjórninni voru að vonum slegnir yfir eyðileggingunni sem blasti við þeim er þeir komu á Seyðisfjörð í gærmorgun, þar sem stórar aurskriður féllu í síðustu viku. Eftir að hafa séð eyðilegging- armátt skriðanna með eigin augum og hlustað á frásagnir bæjarbúa og viðbragðsaðila segjast ráðherrar staðráðnir í að styðja við Seyðfirð- inga. „Það er auðvitað alltaf sláandi að sjá svona með eigin augum,“ sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra við blaðamann á staðnum í gær. „Við erum auðvitað búin að sjá fréttamyndir, eins og öll þjóðin höf- um við bara verið að fylgjast með.“ Mikið verk fram undan „Það er mikið verk fram undan og það er mjög mikilvægt að það verði ráðist í það hratt og örugg- lega,“ sagði Katrín og bætti því við að umhverfisráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, hefði átt sam- ræður við sveitarstjóra um flóða- og skriðuvarnir á svæðinu. „Það eru menningarminjarnar sem ég veit að menningarmála- ráðherra er að skoða með Minja- stofnun. Það skiptir auðvitað máli að það verði ráðist í þetta og að það verði stuðningur fyrir íbúana, bara andlegur stuðningur.“ Sigurður Ingi Jóhannsson, sam- göngu- og sveitarstjórnarráðherra, tók í sama streng og forsætisráð- herra þegar hann lýsti aðkomunni á Seyðisfirði í gærmorgun. „Það er auðvitað erfitt að sjá þetta. Þetta er ógnvekjandi,“ sagði Sigurður. Spurður hvort ríkisstjórnin ætl- aði að taka þátt í uppbygging- arstarfi var Sigurður fljótur til svars: „Já, ég held að það sé enginn vafi í okkar huga og ég held ég geti alveg sagt við Seyðfirðinga að allir Íslendingar standi á bak við þá í þessu. Við munum fara hratt í það sem þarf að gera, það þarf að fara í hreinsun.“ Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, var einnig spurður hvaða tilfinningar vöknuðu við að koma til Seyðisfjarðar. „Það er bara sláandi að sjá þetta. Það er eins og hér hafi rosalegar hamfarir átt sér stað: hús á hliðinni, grjót og drulla yfir öllu, flóð.“ Morgunblaðið/Eggert Forsætisráðherra Katrín Jakobsdóttir sýndi Seyðfirðingum samhug í gær. Ráðherrar slegn- ir yfir aðkomunni  Stjórnvöld taka þátt í uppbyggingu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.