Morgunblaðið - 23.12.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 23.12.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2020 Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga VILTU LÆRA SILFURSMÍÐI, TÁLGUN EÐA TRÉRENNSLI? Fjölmör stuttnáms í handve g keið rki. Skráning og upplýsingar á www.handverkshusid.is Það hefur sýnt sig að íslenska þjóðin stendur saman, sýnir stuðning og samhug eftir bestu getu. Hægt er að leggja framlög inn á reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119 S. 551 4349, 897 0044, maedur@simnet.is Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur JÓLASÖFNUN Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Markmiðið er að það verði gengið frá þessu í byrjun janúar. Í framhald- inu hefst niðurrif og hreinsun á svæð- inu,“ segir Runólfur Ágústsson, sem stendur að baki Þorpinu vistfélagi. Félagið fékk á dögunum sam- þykkt kauptilboð í brunarústirnar við Bræðraborg- arstíg og er það nú í fjármögnun- arferli. Félagið hyggst hefja hreinsun og upp- byggingarstarf eins fljótt og auðið er, en talið er að kostnaður við verkið sé hátt í millj- arður króna. Bruninn á Bræðraborg- arstíg fyrr árinu varð til þess að þrennt lést, en rústirnar hafa staðið ósnertar allt frá þeim tíma. Lóðirnar sem um ræðir eru við Bræðraborg- arstíg 1 og 3. Húsnæði fyrir femínista Að sögn Runólfs gera plön ráð fyr- ir að reist verði hús í anda svokall- aðra Baba yaga-systrahúsa, sem ver- ið hafa að ryðja sér til rúms síðustu ár. Þannig fá eldri konur tækifæri til að búa í sameiginlegu húsi innan eig- in veggja, en sérstök áhersla verður lögð á femínisma, gagnkvæma umönnun og sambærileg lífsviðhorf. „Þetta er í raun viðbót við búsetu- úrræði fyrir eldra fólk. Í stað þess að fólk flytji á stofnun þá skapar það sér búsetuvalkost á eldri árum með sam- bærilegum hópi. Í þessu tilviki hafa femínistar stuðning hvor frá annarri. Þarna fá þær tækifæri til að búa í litlum tveggja herbergja íbúðum með mikilli sameign,“ segir Runólfur og bætir við að hugmyndin hafi kviknað út frá úrræðum félagsins fyrir ungt fólk. Byggja 26 nýjar íbúðir „Við höfum verið með sambærilegt úrræði í Gufunesi fyrir ungt fólk. Í kjölfarið nálguðust margar konur okkur og óskuðu eftir því að búið yrði til úrræði fyrir eldri konur,“ segir Runólfur og að vel komi til greina að byggja fleiri úrræði sem þessi síðar. Þannig komi allt eins til greina að byggja deililausn fyrir karla með sambærilegt lífsviðhorf. Aðspurður segir hann að byggðar verði 26 íbúðir á lóðinni við Bræðraborgarstíg. Þá verði þær á viðráðanlegu verði. „Tekjumódelið er þannig að þessar konur sem búa vítt og breitt um bæ- inn losa um húsnæðið sitt með hlut- deild í þessari sameign. Verðið er ekki orðið klárt, en fermetraverðið verður aldrei lágt á þessum stað enda mikil sameign. Þetta verður þó á við- ráðanlegu verði.“ Að sögn Runólfs eru vonir bundn- ar við að húsakosturinn verði kominn í gagnið undir lok árs 2022. „Skipu- lagsmyndin gæti tekið ár og svo upp- byggingin um ár að því gefnu að allt gangi upp. Það er algjört forgangs- atriði að fjarlægja þessar hræðilegu rústir og reisa þennan reit aftur til vegs og virðingar.“ Hyggst byggja íbúðir fyrir eldri femínista  Nýtt búsetuúrræði  Litlar íbúðir með mikilli sameign Morgunblaðið/Eggert Bræðraborgarstígur Vonir eru bundnar við að endurreisn hefjist fljótlega. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Tekið verður á móti skráðum gestum í jólafögnuð Hjálpræðishersins í Reykjavík sem verður á aðfangadag milli klukkan 11:30 og 15 í nýjum húsakynnum á Suðurlandsbraut 72. Þrír salir eru í húsinu og með hólfa- skiptingu þeirra er hægt að taka á móti fjölda fólks þannig að allra sótt- varnareglna er gætt. Boðið verður upp á lambalæri og annað tilheyrandi í mat og gestir leystir út með jólagjöf. Vænst er um 300 manns til þessarar samverustundar. Húsið vekur athygli Framkvæmdum við hina nýju byggingu Hjálpræðishersins í Soga- mýrinni, innst við Suðurlandsbraut, lauk síðsumars. Síðustu mánuðir hafa því verið teknir í að koma fjölbreyttri starfseminni á nýjum stað í gang. Alls er húsið, sem er að hluta til á tveimur hæðum, um 1.500 fm að flat- armáli og vekja burstir og kvistar þess efalítið athygli vegfarenda sem leið eiga hjá. Samanlagður kostnaður við bygginguna er um 900 milljónir kr., sem er nærri andvirði þeirra eigna sem Hjálpræðisherinn átti og selur. Í nýja húsinu er aðalskrifstofa Hjálpræðishersins. Einnig eru þar, auk salarkynna, kaffi- og matstofa, þar sem fólk getur keypt sér næringu og loks aðstaða fyrir velferðarstarf. Næring, hreinlæti og virðing Daglega leitar til Hjálpræðishers- ins fólk sem vantar næringu, skjól og stuðning. Sú aðstoð er veitt í sam- ræmi við gildi hersins. „Súpa, sápa og frelsi eru okkar kjörorð og kjarni starfsins. Slíkt vís- ar til þeirra grunnþarfa sem við sinn- um fólki með, það er næring, hrein- læti og virðing. Að hér séu sturtur og að fólk sem er á götunni geti þrifið sig rímar við þetta,“ segir Ingvi Skjald- arson flokksforingi. Þau Ingvi og Hjördís Kristinsdóttir, eiginkona hans, sem er kapteinn og svæðisfor- ingi Hjálpræðishersins á Íslandi, hafa lengi verið virk í starfinu sem er öflugt. Trúarsamkomur eru á hverj- um sunnudegi kl. 14 en einnig má nefna starf með innflytjendum, að- stoð við börn með heimanám og starf með eldri borgurum. Jólafögnuðurinn er nú í Sogamýri  Hjálpræðisherinn í Reykjavík tekur á móti fólki á aðfangadag  Fyrstu jólin í nýju húsi innst á Suðurlandsbraut  300 gestir fá lambalæri og jólagjöf  Súpa, sápa og frelsi kjörorð nú sem fyrr Morgunblaðið/Kristinn Magnússson Forysta Ingvi Kristinn Skjaldarson flokksleiðtogi og Hjördís Kristinsdóttir, eiginkona hans, kapteinn og svæðisforingi Hjálpræðishersins á Íslandi. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Reisulegt Arkitektúr húss Hjálpræðishersins vekur eftirtekt margra. Nytjamarkaðir Hjálpræðishersins á Íslandi heita einu nafni Hertex og eru starfræktir við Hrísalund á Akureyri og í Reykjavík í Garða- stræti 6 og Vínlandsleið 6-8 í Graf- arholtshverfi. „Starfsemi mark- aðanna er mikilvægur þáttur í starfi okkar. Nokkur hagnaður hef- ur verið af starfseminni ár hvert og peningar sem þannig aflast fara beint í velferðarstarf okkar,“ segir Hannes Bjarnason kapteinn. „Störfum í verslunum okkar er meðal annars sinnt af sjálfboða- liðum, sem stundum eru fólk sem hefur verið á vondum stað og ein- angrað, til dæmis vegna veikinda eða örorku. Að fá hlutverk við hæfi og tilgang í lífinu gefur fólki ótrú- lega mikið. Oft hafa störf hjá okk- ur verið upphaf þess að fólk kemst aftur til virkrar þátttöku í sam- félaginu sem er mjög ánægjulegt.“ Vöruúrvalið hjá Hertex er fjöl- breytt. Þar má nefna fatnað, bús- áhöld, myndir, bækur, geisladiska og margvísleg listaverk. „Okkur berast margir dýrgripir,“ segir Hannes. „Einnig fáum við alltaf í nokkrum mæli húsgögn, jafnvel heilu búslóðirnar. Þetta er ómet- anlegt og ánægjulegt þegar ágóð- inn af sölunni nýtist til hjálpar- starfs.“ Margir dýrgripir berast HERTEX MIKILVÆGUR ÞÁTTUR Í STARFI HJÁLPRÆÐISHERSINS Morgunblaðið/Sigurður Bogi Markaður Hannes og Alexandra Guðmundsdóttir í versluninni við Vínlandsleið. Runólfur Ágústsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.