Morgunblaðið - 23.12.2020, Síða 30

Morgunblaðið - 23.12.2020, Síða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2020 Hetja frá Húsum er horfin.Hún var tekin í mis-gripum og er kominlangt í burtu frá heima- högunum. Eftir situr Björg ang- istarfull og einsetur sér að finna bestu vinkonu sína. Björg og for- eldrar hennar komast fljótt á snoðir um hvar Hetju gæti verið að finna en þau fara á mis við hana og í kjölfarið hefst æsispennandi atburðarás sem við fáum upplifa bæði frá sjónar- horni Bjargar og Hetju. Lesandinn veit því hvað kom fyrir Hetju og í hvaða raunum hún lendir, sem eykur spennuna til muna. Hetja er fyrsta bók Bjarkar Jakobsdóttur, en hún hefur leikið, skrifað og leikstýrt leikritum um árabil. Fram hefur komið í viðtölum við Björk, sem sjálf er í hesta- mennsku, að henni hafi þótt vanta að íslenski hesturinn fengi verðskuldað pláss í barna- og unglingabókum. Ákvað hún að bæta úr og hampa honum sem sannri hetju í þessari öðruvísi örlaga- og spennusögu sem fjallar um einstaka vináttu merar og unglingsstúlku sem báðar eru alveg að verða fullorðnar. Strax í upphafi sögunnar er sterk- lega gefið í skyn að Björg eigi erfitt upp- dráttar félagslega og þegar líður á kemur í ljós að hún er á ein- hverfurófi og þarf að takast á við ýmsar áskoranir sem því fylgir. Það er sérlega ánægjulegt að fá stúlku á einhverfurófi sem aðalsögupersónu í barna- og unglingabók og Björk tekst vel að koma því að hvernig skynjun hennar á um- hverfinu og upplifun af samskiptum við annað fólk getur verið öðruvísi en jafnaldra hennar. Þá tekst Björk á einstakan hátt að hleypa lesandanum inn í hugarheim Hetju og lýsir hún tilfinningum hennar og atferli af næmni og þekk- ingu. Maður fyllist samúð með henni og gleymir því stundum að hún sé meri án þess þó að upplifa hana sem mannlega. Sem er mjög jákvætt. Þrátt fyrir að hesturinn sé í aðal- hlutverki í sögunni þá höfðar hún alls ekki bara til hestafólks, enda tekst höfundi vel að útskýra helstu hugtök sem koma fyr- ir á einfaldan hátt þannig að leikmaður skilur þokkalega vel. Þá er skemmtilegt hvernig höfundur leikur sér með ís- lenskuna eins og þeg- ar Hetja upplifir ein- hestaleika og hestaheppni. Það eru svona smáatriði sem gefa til kynna að hver einasta setning í sög- unni sé úthugsuð. Bókin er mynd- skreytt með gull- fallegum teikningum eftir Freydísi Kristjánsdóttur sem kemur vel til skila dramatískri upplifun Hetju af hálendinu þegar hún ríður nánast hvíldarlaust í áttina heim. Hetja er frábær bók sem rígheld- ur lesandanum frá upphafi til enda og fer með hann í gegnum allan til- finningaskalann. Óhætt er að mæla með henni fyrir alla aldurshópa, bæði þá sem þekkja til hesta- mennsku og alla hina sem vita ekki hvernig skjóttur hestur lítur út eða til hvers múll er notaður. Öðruvísi spennusaga um einstaka vináttu Morgunblaðið/Árni Sæberg Höfundurinn „Hetja er frábær bók sem rígheldur lesandanum frá upphafi til enda og fer með hann í gegnum allan tilfinningaskalann. Óhætt er að mæla með henni fyrir alla aldurshópa,“ segir gagnrýnandi um bók Bjarkar. Barnabók Hetja bbbbb Eftir Björk Jakobsdóttur. Myndir: Freydís Kristjánsdóttir. JPV forlag, 2020. innb., 218 bls. SÓLRÚN LILJA RAGNARSDÓTTIR BÆKUR Tveir ungir myndlistarmenn, Berg- ur Nordal Gunnarsson og Kristín Helga Ríkharðsdóttir, sem leggja stund á framhaldsnám um þessar mundir, hlutu í gær styrki úr Styrktarsjóði Guðmundu Andrés- dóttur myndlistarmanns. Afhending styrkjanna fór fram í Listasafni Ís- lands. Ráðstöfunarfé sjóðsins eru raunvextir af höfuðstól og ákvað stjórn sjóðsins að ráðstafa að þessu sinni tveimur milljónum króna, einni milljón til hvors styrkþega. Alls bár- ust 13 umsóknir um styrki en út- hlutað er úr sjóðnum á tveggja ára fresti. Bergur Nordal Gunnarsson er fæddur 1995 og lauk BA-gráðu frá myndlistardeild Listaháskóla Ís- lands vorið 2019. Hann stundar nú framhaldsnám við Myndlistar- akademíið í Vín, í málaradeild. Er það fjögurra ára nám sem lýkur með magister-gráðu. Bergur er ekki staddur á landinu og tók Hjalti bróð- ir hans við styrknum. Kristín Helga Ríkharðsdóttir fæddist árið 1993 og lauk hún námi til BA-gráðu frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2016 og stundar nú nám við Steinhardt- háskóla í New York og stefnir á að ljúka með meistaragráðu í myndlist í desember á næsta ári. Samkvæmt skipulagsskrá Styrkt- arsjóðs Guðmundu Andrésdóttur er markmið hans „að styrkja og hvetja unga og efnilega myndlistarmenn til náms“. Sjóðurinn styrkir mynd- listarmenn til framhaldsmenntunar og er æskilegt að umsækjendur hafi lokið BA-gráðu í myndlist eða sam- bærilegu námi. Stjórn sjóðsins er skipuð innkaupanefnd Listasafns Ís- lands, sem gætir sjóðsins og velur stjórnin enn fremur styrkþegana úr innsendum umsóknum. Stjórnin er skipuð þeim Ásrúnu Kristjáns- dóttur, Haraldi Jónssyni og Hörpu Þórsdóttur, forstöðumanni Lista- safns Íslands, sem er formaður stjórnar. Guðmunda Andrésdóttir (1922- 2002) var einn fremsti myndlistar- maður þjóðarinnar. Samkvæmt erfðaskrá hennar var stofnaður styrktarsjóður í hennar nafni sem er í vörslu Listasafnsins. Guðmunda tilheyrði þeirri kynslóð listamanna sem á sjötta áratug síðustu aldar ruddi abstraktlistinni hér braut. Það var innan þessa tjáningarforms sem Guðmundu tókst að þróa mjög svo persónulega listsköpun, sem gerir framlag hennar til samtímalistar á Íslandi einstakt og áhrifamikið. Samkvæmt erfðaskrá sinni arfleiddi hún Listasafn Íslands, Listasafn Háskóla Íslands og Listasafn Reykjavíkur að fjölda listaverka. Bergur og Kristín hlutu styrkina Morgunblaði/Arnþór Birkisson Afhending Frá afhendingu styrkjanna. Þá hlutu Kristín Helga Ríkharðs- dóttir og Bergur Nordal Gunnarsson en Hjalti bróðir hans veitti viðtöku.  Veitt úr Styrktarsjóði Guðmundu Myndlistarkonan Guðný Rósa Ingi- marsdóttir hefur verið valin til þess að halda yfirlitssýningu á verkum sínum á Kjarvalsstöðum næsta haust. Guðný Rósa sýnir þá verk sín í sýningarröð á Kjarvalsstöðum þar sem sjónum er beint að ferli starf- andi listamanna sem þegar hafa með fullmótuðum höfundareinkennum sett svip sinn á íslenska listasögu. Guðný Rósa fetar þar í fótspor Sig- urðar Árna Sigurðssonar – en sýn- ingin á verkum hans, ÓraVídd stendur nú yfir á Kjarvalsstöðum, Ólafar Nordal, Haraldar Jónssonar og Önnu Líndal. Verkin á sýningunni spanna rúm- lega 20 ára feril Guðnýjar en hún hefur á ferli sínum leitað í umhverfi sitt og reynsluheim til innblásturs. Hún hefur unnið í fjölbreytta miðla, líkt og hljóð og skúlptúra en papp- írsverk hafa verið fyrirferðarmikil á ferlinum. Verkin einkennast, eins og segir í tilkynningu frá Listasafni Reykjavíkur, af nákvæmni og fín- leika en eru viðfangsefnin eru oftar en ekki einlæg og persónuleg. Guðný er fædd í Reykjavík árið 1969. Hún stundaði nám í Mynd- listar- og handíðaskóla Íslands og lauk framhaldsnámi við L‘Ensav La Cambre í Brussel og í HISK í Ant- werpen í Belgíu en hún hefur lengi verið búsett og starfað þar í landi. Guðný Rósa hefur sýnt verk sín á einkasýningum hér á Íslandi og víðs vegar um Evrópu. Verk hennar má finna í opinberum söfnum í Frakk- landi, Belgíu, Slóveníu og Íslandi. Sýningarstjóri og ritstjóri sýn- ingaskrárinnar er Ólöf Kristín Sig- urðardóttir, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur. Yfirlit yfir feril Guðnýjar Rósu  Sýning á Kjarvalsstöðum á næsta ári Morgunblaðið/Einar Falur Listakonan Guðný Rósa Ingimars- dóttir á einni sýninga sinna í Hverf- isgalleríi sem hún starfar með.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.