Morgunblaðið - 23.12.2020, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 23.12.2020, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2020 Elsku pabbi. Þetta er svo skrýtið að þú sért ekki meðal okk- ar lengur, ég trúi því varla. Ég hélt þú gætir jafnvel orðið hundrað ára, en kannski ekki eftir slysið. Þú varst svo sterkur. Þú varst stór persóna, vinsæll og vinur vina þinna. En nú eru það bara minningarnar sem lifa með okkur sem söknum þín líka sárt. Núna þessa dagana reikar hug- ur minn mikið aftur til æskuár- anna. Þá fyllist ég þakklæti og stolti yfir því að hafa alist upp í sveit og eiga þig og mömmu sem foreldra. Bærinn heima var endalaus leikvöllur með brekkunum og klettum fyrir ofan. Lækjum til að stífla eða veiða síli og margt fleira. Þú gast verið ljúfur og góður. En líka harður og strangur. Sem mér fannst stundum óþægilegt. En það gekk náttúrlega mikið á. Þið mamma voruð að byggja upp myndarlegt kúabú nánast alveg frá grunni. Það vantaði allan húsa- kost á Þorláksstaði þegar þið ákveðið að fara þangað og lítið var um ræktað land. Það var mikið að gera og þú leyfðir okkur krökk- unum mjög fljótt að taka þátt í léttum bústörfum, þótt hendur Bjarni Kristjánsson ✝ Bjarni Krist-jánsson fæddist 26. júlí 1946. Hann lést 13. desember 2020. Útför Bjarna fór fram 22. desember 2020. væru litlar og fætur stuttir. Það varð skylda að mæta í fjós á kvöldin þegar maður hafði aldur til og færi sér ekki að voða. Ég man vel eftir einu skipti sem ég slasaði mig á hendi. Þú skoðaðir mig inni í stofu hjá mömmu, já það kom stundum upp í þér sjálfskipaður læknir og varst viss um að ég væri nú bara farinn úr axlarlið þannig að þú gerðir þig líklegan til að rífa strákinn bara í liðinn aftur. Nei, þá fannst mömmu nú nóg um og þú skyldir fara með strákinn á slysó. En svona varst þú, vildir græja sem mest sjálfur, sama hvað. Held þú hafir samt aldrei reynt að sauma okkur systkinin, en krafðist þess eiginlega að taka sauma úr þegar sár voru gróin. Þú hafðir yndi af söng og söngst mikið við mjaltir. Í trak- tornum sat oft systir mín með þér þegar hún var lítil og trallaði með þér. Hestamennskan var þér í blóð borin og þú vildir örugglega gera okkur öll börnin þín að hesta- mönnum. Ég held við höfum öll byrjað okkar hestamennsku fyrir framan þig í hnakknum. Þá vorum við ekki há í loftinu og oft búin að týna stígvélunum þegar heim var komið úr reiðtúr. Þegar við vorum orðin aðeins hærri í loftinu og sæmilega reiðfær settir þú okkur svo á bak krefjandi hrossum ef þú treystir okkur. Hringjarinn í Reynivalla- kirkju. Þú varst stoltur af að vera hringjari í kirkjunni á meðan þú hafðir það embætti. Þú vildir hringja hraustlega og gerðir allt- af svo ég viti. Ég man eftir einu skipti þegar kirkjan var orðin þétt setin, alveg að líða að messu og komin værð yfir fólkið. Þá byrjuðu klukkurnar af þvílíku afli að fólk hrökk í kút, svo litlu mátti muna að einhver hjörtu stopp- uðu. Þá ímyndaði maður sér að þú værir farinn að sveifla þér í klukkunum eins og einhver strákpjakkur. En það gat verið stutt í grallarann hjá þér, ef þannig lá á þér. Pabbi, þú varst nagli og mátt vera stoltur af ævistarfi þínu. Nú ertu frjáls og starfskrafta þinna hefur verið óskað í draumaland- inu. Hvíl í friði og guð varðveiti þig. Jón. Sem krökkum fannst okkur Bjarni vera mikill töffari, sem hann og var. Við munum þegar Bjarni keypti gamla Land Rover- inn hans pabba og gerði hann að flottasta Land Rover sveitarinn- ar. Hækkaði hann upp, klæddi hann hátt og lágt að innan, þann- ig að úr varð glæsibíll. Hann var duglegur að fara með okkur litlu strákana með sér ýmislegt sem hann var að snattast. Við munum þegar við fórum á 17. júní í Mos- fellssveitina og hittum þá fyrst kærustuna hans, hana Unni. Bjarni og Unnur fluttu svo heim 1970 og tóku við kúabúinu. Okkur fannst það mjög merkilegt og spennandi. En nokkrum árum seinna ákvað pabbi að hætta að vera prestur og fluttu þau mamma í bæinn. Þá fluttu Unnur og Bjarni yfir á Þorláksstaði sem höfðu verið í eyði í nokkur ár. Þar byggðu þau allt upp af miklu harðfylgi næstu árin. Þarna kom það sér vel hve handlaginn Bjarni var, en hann gat gert nán- ast allt. Guðmundur kom mikið á Þorláksstaði og aðstoðaði við bú- skapinn þegar fjölskyldan gerði sér dagamun. Valdimar sem hef- ur búið erlendis sl. áratugina, gerði sér og ferð á haustin ein- ungis til þess að fara í smala- mennskuna með Bjarna inn að Stíflisdal. Það voru líflegar og skemmtilegar ferðir. Bjarni hafði umsjón með okkar hestum með- an hann hafði aðstöðu til. Okkur eru minnisstæðir sleppitúrarnir, sem við fórum með Bjarna og strákunum hans sl. 20 árin. Þetta var orðin sú helgi ársins sem okkur hlakkaði mest til. Hans verður sárt saknað í þessum ferðum. Bjarni hætti með kúabú- ið 2008. Nokkrum árum áður höfðu hann og Unnur skilið. Hann breytti fjósinu í hesthús og sneri sér alfarið að því sem hon- um fannst skemmtilegast, tamn- ingu og þjálfun hrossa. Þá þegar hafði þróast hjá honum „vinátta“ við „vin“ sem jókst með árunum, sem má segja að hafi þróast út í óvinskap. Því þessi „vinur“ vill nefnilega taka stjórnina. Því fór svo að hann þurfti bara að horfa fram á veginn, það þýddi ekki að hugsa um það sem væri liðið. Hann flutti í Mosfellsbæinn, þar sem hann stundaði hestatamn- ingar af fullum krafti. Þangað kíkti Guðmundur oft í kaffi. Allt- af var gott að leita til hans með alls kyns ráð og það fram á síð- asta dag. Valdimar og Bjarni töl- uðu oft saman í síma, en Bjarni mundi alltaf símanúmerið hans, þó svo þrettán tölustafir væru, en hann var einstaklega minnugur. Sumardagurinn fyrsti 2019 líður okkur fjölskyldunni hans seint úr minni. Hann var að þjálfa hest sem var nánast fulltaminn, eitt augnablik, féll af baki og var lam- aður upp að hálsi eftir það. Já- kvæðnin og hressleikinn sem ein- kenndi hann alla tíð kom honum þá vel. Hann sýndi ótrúlegt æðru- leysi og yfirvegun og kvartaði aldrei. Og ávallt var stutt í húm- orinn. Okkur fannst hann trúa því fram undir það síðasta að hann gæti gengið út og komist á hest- bak aftur. Bjarni var mikill bóndi, hestamaður og náttúrubarn. Maður sem tók sjálfan sig ekki of hátíðlega og tók öðrum eins og þeir voru. Við trúum því að nú sé hann frjáls og þeysist um grænar grundir í Sumarlandinu á gæð- ingunum sínum með öllum vinun- um sínum og bróður sem farnir eru á undan. Kristján, Jón, Runólfur, Guð- rún, Ágúst, Þórunn, Christina, Inga Rún, Runólfur, Kristófer Logi og Kolbrún Lind. Guð gefi ykkur styrk. Minning um góðan mann lifir. Valdimar og Guðmundur. Þegar ég var að alast upp í Hækingsdal í Kjós var mikill samgangur á milli fjölskyldu okk- ar og Reynivallafjölskyldunnar í leik og starfi. Kynntist ég því snemma mörgum systkinunum frá Reynivöllum, þegar ég fór sjálfur að taka þátt í bústörfum sem var við ungan aldur á þeim árum og skiptust menn á aðstoð við ýmis bústörf á báða bóga. Lengst og best hefur sambandið verið við bændurna í hópnum, Bjarna Kristjánsson og Halldór bróður hans, sem hófu búskap á Reynivöllum á meðan foreldrar þeirra bjuggu þar og faðir þeirra þjónaði sem prestur. Eftir að Kristján fór á eftirlaun var þeim bræðrum gert að flytja af jörð- inni. Þurftu þeir þá að finna sér annað jarðnæði ef þeir ætluðu að stunda búskap áfram eins og hugur þeirra stóð til. Flutti Hall- dór í Stíflisdal í Þingvallasveit þar sem hann býr enn af mynd- arskap með Guðrúnu konu sinni. Bjarni hins vegar fékk jörð hinumegin við Laxá, það er á Þor- láksstöðum í Kjós, þar voru þá engar byggingar og allt land í órækt. Hóf Bjarni þegar í stað ræktun og uppbyggingu á jörð- inni af ótrúlegum dugnaði og út- sjónarsemi ásamt fjölskyldu sinni og fáir hefðu leikið það eftir. Kom upp bráðarbirgðaíbúðarhúsnæði, síðan fjósi og þá íbúðarhúsnæði og ræktaði upp túnin og bústofn- inn. Bjarni hafði lag á skepnum og auga fyrir ræktun, hvort sem það voru hross, kýr eða kindur. Á sama tíma aðstoðaði hann sveit- unga sína við smalamennsku, ásetning eða hvað annað sem þurfti að gera auk þess að reka sitt bú. Á ég ótrúlegar margar minningar þar sem við smöluðum saman á hinum ýmsu stöðum, meðal annars í Stíflisdalssmali og Brynjudalssmali, og þegar Bjarni var með í för vissi maður að partí- ið gat ekki klikkað. En Bjarni átti auðvelt með að fá fólk til að gleðj- ast með söng eða sögum. Oft voru með í för synir hans eða bræður. Á fjöllum er gott að kynnast fólki vel en Bjarni hafði góða nærveru og dugnað í fyrirrúmi. Er mér efst í huga þakklæti fyrir góð kynni og góðar minningar um langan tíma. Veit ég, núna þegar Bjarni er kominn í sumarlandið, að þar verður riðið út á góðum gæðingum, sagðar sögur og sungið með þeim sem á undan hafa farið. Að lokum votta ég börnum hans, systkinum og öðr- um aðstandendum mína dýpstu samúð. Hörður Guðbrandsson og fjölskylda. Aðfangadagur jóla Streymt er upptöku fyrir aðfangadag sem tekin var upp í báðum kirkjum með tónlistarflutningi og töluðu máli frá leikmönnum og prestunum. Sr. Gunnar Sigurjónsson og sr. Sunna Dóra Möller flytja hugleiðingar. Sr. Helga Kolbeinsdóttir og sr. Karen Lind Ólafsdóttir lesa ritningarlestra. Formenn sóknarnefnda Margrét Loftsdóttir og Andrés Jónsson flytja bænir. Sr. Bolli Pétur Bollason ber fram blessunarorð í lok stundarinnar. Einsöngvarar: Einar Clausen og Ágústa Sigrún Ágústsdóttir. Kristín Lárusdóttir leikur á Selló. Félagar úr kór Hjallakirkju syngja. Í lok stundarinnar er sungið „Heims um ból“ sem er samræmdur flutningur úr báðum kirkjum. Organistar eru Lára Bryndís Eggertsdóttir og Sólveig Sigríður Einarsdóttir. Þennan dag munu sr. Gunnar og sr. Bolli mæta í kirkjurnar ásamt organistunum klukkan 18 til að flagga í Digraneskirkju og Hjallakirkju og „kannski“ lesa guðspjallið og syngja „Heims um ból“. Því verður ekki streymt Gamlársdagur Sr. Gunnar Sigurjónsson og sr. Sunna Dóra Möller lesa ritningarlestra, biðja bæna og flytja stuttar hugleiðingar. Sólveig Sigríður Einarsdóttir, organisti og Einar Clausen, söngvari sjá um tónlist fyrir stundina. Jólin í Digranes- og Hjallakirkju 2020 Boðið verður upp á streymi sem hægt er að sjá á heimasíðum kirknanna www.digraneskirkja.is eða www.hjallakirkja.is eða Facebook

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.