Morgunblaðið - 23.12.2020, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 23.12.2020, Blaðsíða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2020 Hér eru birt tvö ósamstæð brot úr bókinni. Einelti í Grafarvogi Ef mér fannst ég vera útundan í Hveragerði veturinn áður hefði ein- hver þurft að pikka í öxlina á mér og segja: You aint seen nothing yet! Í Hamraskóla fékk ég nefnilega að kynnast því fyrir alvöru hvað það þýðir að vera út- undan. Þetta var hverfi sem ég þekkti ekki og í ofanálag þá fannst mér Reykjavík vera stór og ógnvekj- andi borg. Borg óttans. Það verður að hafa það hugfast að ég hafði ein- ungis búið í Hveragerði og á Bifröst fram að þessu. Ég var bara landsbyggðardrengur og breytingin var því svakaleg. Árgangurinn minn í Hamraskóla var stór. Þrír troðfullir bekkir á með- an að í Hveragerði voru tveir bekkir, H- og Ö-bekkur með allt að helmingi færri nemendum í hvorum bekk. Mér fannst þetta yfirþyrmandi fjöldi í Hamraskóla. Þessir krakkar höfðu líka flestir verið saman í skóla alla ævi og mér fannst erfitt að reyna að komast inn í hópinn. Ég kynntist samt alveg strákum í skólanum og auðvitað stofnuðum við hljómsveit sem hét Peace. Við kom- umst meira að segja lengra en bara að gefa hljómsveitinni nafn því við náðum að halda tónleika í skólanum. Með mér í bandinu voru tvíbura- bræður sem heita Bergur og Hjálm- týr Sandholt, Skorri hét trommarinn, minnir að sá fjórði hafi heitið Hilmar, ég spilaði á gítar og söng. Ég kunni reyndar ekki á gítar þannig að við skulum frekar segja að ég hafi sungið með gítar hangandi framan á mér. Svo fékk strákur sem heitir Júlli það veigamikla hlutverk að vera umboðs- maður sveitarinnar. Júlli umboðs- maður var reyndar rekinn síðar, en ekki fyrir að hafa samið illa fyrir bandið, heldur þótti okkur hann ekki vera nógu duglegur að mæta á æfing- ar. Eins og umboðsmaður hafi átt eitthvert erindi á hljómsveitaræf- ingu! Hann tók það eðlilega mjög nærri sér en við hittumst fyrir ekki svo löngu síðan og þá voru sárin gró- in og honum þótti þetta bara fyndið. Á þessum aldri voru strákarnir byrjaðir að vera með smá gelgju- stæla. Farnir að spá í hverju þeir klæddust, setja gel í hárið og rollon undir hendurnar. Ég var hins vegar svo barnalegur að ég vildi bara helst leika mér heima með leikföng. Ég hafði líka byrjað í söng- og leiklist í Borgarleikhúsinu nokkru áður og elskaði það þannig að í raun var ég bara leiklistarlúði sem vildi leika sér í Playmo. Einu sinni þegar strákarnir úr Hamraskóla voru að hanga heima hjá mér ákvað ég að reyna að fá þá til að hverfa aftur til barndóms. Ég lagði spilin á borðið og sagði: „Strákar. Viðurkennið það. Okkur finnst öllum gaman að leika í Playmo. Af hverju förum við ekki bara í Playmo?“ Ég hélt í mér andanum eftir að hafa lagt þetta til en viti menn, ég hafði rétt fyrir mér. Auðvitað fannst þeim gam- an að leika sér í Playmo. Þeir hugs- uðu í það minnsta: „Æi, fuck it, ger- um þetta,“ og svo bara sátum við á gólfinu og lékum okkur í Playmo þangað til þeir þurftu að fara heim að borða. Þeim fannst þetta fáránlega gaman og ég var auðvitað í skýjunum að þurfa ekki að leika mér einn í Playmo. Ég er alltaf að átta mig betur og betur á því að ég var mjög barna- legur krakki og ég held að hluti ástæðunnar sé sá að ég átti engan eldri bróður. Þá meina ég bróður sem var nálægt mér í aldri en slíkt verður oft til þess að menn þroskast jafn- hliða bróður sínum sem er kannski nokkrum árum eldri. Ég átti bara Hansa og Bjögga sem voru orðnir fullorðnir menn á þessum tíma og svo auðvitað Söru systur mína en það hafði ekki sömu áhrif þó við höfum alltaf verið mjög náin systkini. Í Grafarvogi uppgötvaði ég veggjakrot og sá að það var eitthvað thing. Ég man eftir að hafa séð stráka með brúsa á lofti að graffa ein- hver tögg á veggi. Ég man líka eftir að hafa séð mann frá Reykjavíkur- borg þrífa veggjakrotið í burtu nokkrum dögum síðar. Þetta vakti hjá mér forvitni og ég byrjaði að pæla í þessu og teikna einhverjar graffpælingar. Ég var mikið einn á þessum tíma og eftir því sem leið á veturinn fór ég að vera meira og meira útundan. Það fór að bera meira á stríðni hinna strákanna í minn garð sem ég tók mikið inn á mig. Fjölskyldan fór til Flórída um páskana 2007. Það var gott að kom- ast í burtu því þó ég ætti mína spretti í skólanum fannst mér ég ekki lengur tilheyra hópnum í skólanum. Einn daginn þegar við vorum á rúntinum í Orlando sá ég búð sem heitir Ecko Unltd en það er fata- merki með nashyrning í lógóinu. Um leið og ég sá merkið þá heimtaði ég að við færum inn í þessa búð því það var hreinlega eins og verið væri að toga mig þangað inn. Þegar ég gekk inn í búðina var ég kominn í himnaríki. Þarna var rapp- tónlist á fullu blasti, neonljós í lofti og á veggjum, rappkeðjur með spinner- felgum sem voru geymdar í gler- borði. Fyrir þá sem muna eftir versl- uninni Exodus við Hverfisgötu þá var þetta sú búð á hestasterum. Það sem var enn betra var að foreldrar mínir samglöddust mér svo mikið að hafa fundið þetta himnaríki að ég fékk að kaupa nánast allt sem mig langaði í. Ég keypti mér durag-klút, speglasól- gleraugu, gullkeðjur, derhúfur og jakka sem var í extra large fullorð- insstærð! Við erum að tala um jakka sem náði mér niður fyrir hné og auð- vitað þurfti að bretta ermarnar hressilega upp. Af hverju keypti ég svona stóran jakka? Ég var bara að herma eftir Akon, Snoop Dogg og Samma úr Hveragerði. Ég fékk mér líka spinnerfelgur og hringa og stutt- buxur sem voru auðvitað eins og ökk- lasíðar buxur á mér. Þegar ég gekk klyfjaður með troðfulla poka út úr búðinni var ég harður á því að þetta væri besti dagur lífs míns. Ég klæddi mig í svakalega múnd- eringu áður en við fórum út að borða um kvöldið. Var í öllu hvítu. Hvítum risastórum bol, hvítri hettupeysu með graffmynstri, hvítum skóm og með hvíta derhúfu. Til að gera þetta enn betra þá var ég með stór spegla- sólgleraugu á andlitinu og spinner- keðju um hálsinn sem náði mér vel niður fyrir nafla. Við fórum á Outback sem er steik- húsakeðja í Orlando en fyrir utan staðinn stóðu þrír svartir gæjar með sama fatastíl og ég. Þeir hrópuðu upp yfir sig þegar þeir sáu litla drenginn í alltof stóru fötunum og hrósuðu mér í hástert fyrir gott outfit. Ég stækkaði andlega um svona 40 sentimetra við viðurkenninguna frá þessum sjúk- lega svölu náungum og vissi að ég væri að gera eitthvað rétt. Þegar við vorum að fara út á flug- völl í Orlando til að fljúga aftur heim þyrmdi yfir mig í bílnum á leiðinni. Í gleðinni yfir nýju fötunum, fylgihlut- unum og viðurkenningunni frá þess- um þremur svörtu strákum fyrir ut- an Outback-steikhúsið hafði ég gleymt því að raunveruleikinn heima á Íslandi væri enn sá sami. Mig lang- aði ekki aftur í skólann og ég brotn- aði saman. Lokaður inni í fangaklefa Ég rankaði við mér undir morgun og þegar ég segi ranka við mér þá var ég í raun ekki að vakna heldur bara að komast út úr blakkátinu. Það var allt í hálfgerðri móðu og ástæðan fyr- ir því var einföld, ég var ekki með gleraugun mín. Samt sá ég nógu vel til að átta mig á því að ég var alls ekki heima hjá mér. Allir veggirnir í þessu rými voru kremhvítir, upp við einn vegginn var einhvers konar rúmbæli með þunnri, ljósblárri, plastklæddri dýnu. Næst kom ég auga á dökkbláa hurð úr stáli með litlum glugga fyrir miðju ofar- lega og því fór ekki á milli mála hvar ég var. Ég var ekki heima hjá mér, ég var ekki einu sinni inni á heimili. Ég var í fangaklefa en ég hafði ekki hug- mynd um af hverju. Síminn minn var auðvitað hvergi nærri frekar en gler- augun mín enda eru allir persónu- legir munir teknir af þeim sem vist- aðir eru í fangaklefa. Það hafði ég séð í bíómyndum og var þarna að upplifa á eigin skinni. Ég byrjaði að berja á hurðina þar til litla opið á klefahurðinni ofan- verðri var opnað. Fyrir utan stóð lög- reglukona sem sagði mér að hætta að hamast á hurðinni og fara aftur að sofa. Ég sagðist vilja vita hvað ég hefði gert af mér og af hverju í fjand- anum ég væri lokaður inni í fanga- klefa. Hún sagðist ekki hafa upplýs- ingar um það og skipaði mér ítrekað að fara aftur að sofa en ég gaf mig ekki, sagðist ekki fara að sofa fyrr en ég vissi hvað ég hefði gert af mér. Á endanum nennti lögreglukonan ekki lengur að hlusta á rausið í mér og lét sig hverfa án þess að segja mér nokk- uð. Um leið og hún lokaði litla opinu á hurðinni aftur fékk ég hálfgert kvíða- kast. Þó mér liði eins og ég væri kom- inn með fulla rænu þá var ég það auð- vitað alls ekki. Ég var ennþá kaf- dópaður þó ég væri ekki lengur í blakkáti þannig að ég hugsaði engan veginn skýrt. Það kom ekki til greina að sætta mig við að fá engin svör um hvað ég hefði gert af mér þannig að ég ákvað að láta heyra í mér af fullum þunga. Ég tók bláu dýnuna af rúminu í klef- anum, lagði hana á gólfið fyrir fram- an hurðina, kom mér fyrir á dýnunni með lappirnar upp á miðja hurð og byrjaði að sparka í hana af öllu afli. Aftur og aftur. Bara til að fá athygli og ég ætlaði ekki að hætta fyrr en einhver kæmi. Ég sparkaði og spark- aði í svona hálftíma eða þar til allir í klefunum í kring voru orðnir brjál- aðir á mér. Þá áttaði ég mig á því að þetta væri ekki að fara að bera nokk- urn árangur svo ég hætti og fór aftur að sofa. [...] Leiklistarlúði sem vildi leika sér í Playmo Bókarkafli | Árni Páll Árnason, sem notar lista- mannsnafnið Herra Hnetusmjör, vakti fyrst at- hygli árið 2014 og ekki leið á löngu þar til hann var á allra vörum. Sólmundur Hólm rekur sögu hans í bókinni Herra Hnetusmjör – hingað til. Blakkát Herra Hnetusmjör í gleð- skap í Kópavogi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.