Morgunblaðið - 23.12.2020, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2020
Full búð af fallegu
aðhaldi undir jólafötin
SCALLOP
aðhaldssamfella frá Magic
Heldur vel við maga og bak. Samfellan er
flegin að framan en styður vel við brjóstin.
Laugavegi 178,105 Rvk. | Sími 551 3366 | www.misty.is
Opið Þorláksmessu 23. des. 10-20 | Lokað á aðfangadag
Stærðir S-XXL
Verð 16.650,-
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
Það eru engin tímamörk á
skiptimiðunum frá okkur
Hafðu það huggulegt
heima um jólin
Lyfjafyrirtæki, þar á meðal Pfizer og Moderna, skoða nú
hvort bóluefni virki gegn nýju afbrigði kórónuveir-
unnar. Afbrigðið greindist í Bretlandi á dögunum en vís-
bendingar eru um að það sé 70% meira smitandi en fyrri
afbrigði. Af þessum sökum vinna lyfjarisar um heim all-
an nú að því að kanna hvort bóluefni hafi tilætluð áhrif.
Talið er að það taki um tvær vikur hið minnsta að
kanna hvort bóluefni virki gegn afbrigðinu, en prófanir
eru þegar hafnar. Í tilkynningum frá Pfizer og Moderna
kemur fram að niðurstöðurnar verði kunngerðar innan
fárra vikna. Forstjóri Pfizer, Ugur Sahin, lét hafa eftir
sér að ekkert benti til þess að bóluefni fyrirtækisins
myndi ekki virka gegn afbrigðinu. Fyrirtækið þyrfti þó
að minnsta kosti tvær vikur til að skera endanlega úr um
það.
Bóluefni Pfizer er byggt á svokallaðri RNA-tækni,
sem jafnframt þýðir að auðvelt er að gera smávægilegar
breytingar á bóluefninu. Þannig getur fyrirtækið í raun
þróað „nýtt“ bóluefni á um sex vikum.
„Það er kannski helsta fegurðin við RNA. Við getum
strax útbúið bóluefni sem virkar gegn nýjum afbrigðum
af veirunni. Við gætum því útbúið nýtt bóluefni á um sex
vikum þó að slíkt þyrfti auðvitað að fara í gegnum
ákveðið ferli,“ var haft eftir Sahin. aronthordur@mbl.is
Geta framleitt nýtt bóluefni
AFP
Bólusetning Vel hefur gengið að bólusetja Bandaríkjamenn síðustu vikuna.
Óljóst hvort bóluefni virkar gegn nýju afbrigði veirunnar
Tæknirisinn Apple stefnir á fram-
leiðslu sjálfkeyrandi bifreiða fyrir
árið 2024. Þá bindur fyrirtækið vonir
við að ný tækni við þróun rafhlaða
muni veita fyrirtækinu samkeppnis-
forskot, en bifreiðarnar verða raf-
knúnar. Þetta herma heimildir
fréttastofu Reuters.
Verkefnið ber heitið „Titan“ og
hófst árið 2014 þegar vinna við hönn-
un bifreiða Apple var sett af stað.
Verkefnið hefur tekið lengri tíma en
upphaflega var ráðgert en nú er útlit
fyrir að markmiðið sé í augsýn. Þró-
unin hefur verið hröð undanfarið ár,
en talið er að fjöldaframleiðsla geti
hafist eftir þrjú til fjögur ár. Áætl-
anir tæknirisans hafa ekki verið
gerðar opinberar en samkvæmt
fréttamiðlum vestanhafs hefur þró-
unin gengið vonum framar upp á síð-
kastið.
Helsta markmið Apple er að fram-
leiða rafhlöður sem eru talsvert
ódýrari en þær sem fyrir eru á mark-
aðnum. Þá er allt gert til að gera bif-
reiðarnar eins langdrægar og kostur
er. aronthordur@mbl.is
Bifreiðar Apple á
markað árið 2024
Vinna við þróun
sjálfkeyrandi bifreiða
hefur gengið mjög vel
AFP
Forstjórinn Tim Cook forstjóri
Apple leggur áherslu á verkefnið.
Á stjórnarheimilinu í Berlín gætir
pirrings og óánægju vegna seina-
gangs framkvæmdastjórnar Evr-
ópusambandsins við að tryggja nógu
mikið af bóluefni. Hefur vakið sér-
staka gremju að ESB þáði ekki allt
það bóluefni sem stóð til boða frá
fyrirtækjunum Pfizer og BioNTech.
Þetta muni að óbreyttu hafa í för
með sér að bólusetningar muni hefj-
ast síðar en til dæmis í Bandaríkj-
unum og Bretlandi og taka lengri
tíma. Það gæti haft í för með sér að
veiran verði enn að herja á íbúa
meginlands Evrópu næsta haust og
fram á næsta vetur með tilheyrandi
takmörkunum á samkomum og um-
svifum.
Stjórnvöld gera sér grein fyrir því
að sú staða sé pólitískt eitur og hefur
því verið settur kraftur í að útvega
meira bóluefni en ESB hefur samið
um, hvað sem líður fyrri fyrirheitum
um að bandalagið semdi fyrir hönd
allra til marks um samstöðuna innan
þess.
Seinagangurinn í ESB varð þegar
í vor tilefni til aðgerða þegar Þýska-
land, Frakkland, Ítalía og Holland
mynduðu eins konar bólusetning-
arbandalag og sömdu um rúmlega
400 milljón skammta bóluefnis við
AstraZeneca. Í þýska tímaritinu Der
Spiegel kom fram að þessi samn-
ingur hefði fyrst og fremst átt að
skapa þrýsting á ESB vegna þess að
lítið gerðist í Brussel.
Í Der Spiegel er því haldið fram
að bak við tjöldin vinni þýsk stjórn-
völd að því hörðum höndum að út-
vega meira bóluefni frá Moderna og
Pfizer og BioNTech. BioNTech er
þýskt fyrirtæki og hefur vakið mikla
athygli fyrir hvað vel hefur gengið
að þróa bóluefni í samstarfi við lyfja-
framleiðandann Pfizer. Á fimmtu-
dag ræddi Angela Merkel, kanslari
Þýskalands, meira að segja við Öz-
lem Türeci og Ugur Sahin, forkólfa
BioNTech, á fjarráðstefnu og lofaði
fyrirtækið í hástert. Að mati Spiegel
geta skilaboðin ekki verið skýrari:
Kanslarinn hafi tekið bólusetningar í
sínar hendur. kbl@mbl.is
AFP
Grímuklæddur kanslari Angela Merkel, kanslari Þýskalands, setur upp
grímu á þingi. Reiði gætir í Berlín út af seinagangi ESB að útvega bóluefni.
Merkel tók málin
í sínar hendur