Morgunblaðið - 23.12.2020, Side 27
ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Sjö karlar og þrjár konur koma til
greina í kjörinu á íþróttamanni ársins
2020 hjá Samtökum íþróttafrétta-
manna. Atkvæðin hafa verið talin og
ljóst hvaða íþróttafólk hafnaði í efstu
tíu sætunum. Úrslitin verða opinber-
uð 29. desember.
Um leið kusu samtökin þjálfara
ársins 2020 og lið ársins 2020 en nú er
jafnframt skýrt frá því hverjir fengu
flest atkvæði í þeim kosningum, þrír
efstu í hvoru kjöri.
Þau tíu sem koma til greina eru í
stafrófsröð:
Anton Sveinn McKee sundmað-
ur keppti í nýrri alþjóðlegri atvinnu-
mannadeild í Ungverjalandi. Anton
vann tvær greinar í deildinni fyrir lið
sitt Toronto Titans. Setti hann Norð-
urlandamet bæði í 100 og 200 metra
bringusundi í 25 metra laug og tví-
bætti metið í 200 metrunum. Varð
hann þar með fimmti íslenski sund-
maðurinn frá upphafi til að setja
Norðurlandamet. Tími Antons í 200
metra bringusundi er sá áttundi besti
í heiminum frá upphafi í 25 metra
laug. Anton Sveinn er á meðal tíu
efstu í kjörinu í annað sinn.
Aron Pálmarsson handknatt-
leiksmaður er í stóru hlutverki hjá
Barcelona sem varð bæði spænskur
meistari og bikarmeistari. Er liðið
komið í undanúrslit Meistaradeild-
arinnar 2020. Aron skoraði 10 mörk
og gaf níu stoðsendingar í sigur-
leiknum gegn heims- og ólympíu-
meisturunum Dönum á EM og var
valinn maður leiksins. Aron er á með-
al tíu efstu í kjörinu í áttunda sinn en
hann var kjörinn íþróttamaður ársins
2012.
Bjarki Már Elísson handknatt-
leiksmaður varð markakóngur þýsku
1. deildarinnar þegar deildinni lauk í
apríl. Skoraði Bjarki 217 mörk fyrir
Lemgo í 27 leikjum. Er hann þriðji
Íslendingurinn sem verður marka-
kóngur í þýska handboltanum.
Bjarki hefur haldið áfram að raða inn
mörkum fyrir Lemgo á nýju tímabili
og er sá þriðji markahæsti með 92
mörk í 14 leikjum. Bjarki var í lands-
liði Íslands sem lék á EM í Svíþjóð í
byrjun árs. Bjarki er á meðal tíu
efstu í fyrsta sinn.
Glódís Perla Viggósdóttir
knattspyrnukona var í stóru hlut-
verki hjá íslenska landsliðinu sem
vann sér sæti í lokakeppni EM 2022
eftir að liðið hafnaði í 2. sæti í sínum
riðli í undankeppninni sem lauk í
byrjun desember. Glódís var lykil-
maður í vörn Rosengard sem endaði í
2. sæti í sænsku úrvalsdeildinni. Var
Glódís tilnefnd sem besti varnar-
maður deildarinnar og var kjörin sjö-
undi besti leikmaður deildarinnar í
vali Damallsv Nyheter. Glódís er í
annað sinn á meðal tíu efstu.
Guðni Valur Guðnason kringlu-
kastari stórbætti á árinu 31 árs gam-
alt Íslandsmet í kringlukasti þegar
hann kastaði 69,35 metra á móti í
Laugardal. Hefði lágmarkatímabilið
fyrir Ólympíuleikana verið opið þeg-
ar Íslandsmetið var sett væri Guðni
kominn með keppnisrétt inn á leik-
ana í Tókýó. Metkastið skilaði honum
1.232 stigum samkvæmt stigatöflu
Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins
sem er stigahæsta afrek Íslendings
frá upphafi. Guðni Valur átti fimmta
lengsta kast kringlukastara í heim-
inum á árinu 2020. Guðni er á meðal
tíu efstu í kjörinu í fyrsta sinn.
Gylfi Þór Sigurðsson knatt-
spyrnumaður var í lykilhlutverki hjá
landsliðinu sem lék tvo leiki í umspili
fyrir EM 2021. Gylfi skoraði bæði
mörkin í 2:1-sigri á Rúmeníu í fyrri
leiknum í umspilinu og skoraði einnig
markið í Ungverjalandi í síðari um-
spilsleiknum en þar höfðu Ungverjar
betur 2:1. Gylfi lék með Everton í
ensku úrvalsdeildinni og hefur skor-
að tvö mörk í deildinni á þessu ári.
Gylfi hefur ekki átt fast sæti í byrj-
unarliðinu en er þó af og til fyrirliði
liðsins. Gylfi er í tíunda sinn á meðal
tíu efstu og var kjörinn íþróttamaður
ársins 2013 og 2016.
Ingibjörg Sigurðardóttir knatt-
spyrnukona var fastamaður í vörn ís-
lenska landsliðsins sem vann sér sæti
í lokakeppni EM 2022 eftir að liðið
hafnaði í 2. sæti í sínum riðli í und-
ankeppninni. Ingibjörg var kjörin
leikmaður ársins í Noregi en Våler-
enga varð bæði norskur meistari og
bikarmeistari. Ingibjörg er á meðal
tíu efstu í fyrsta sinn.
Martin Hermannsson körfu-
knattleiksmaður varð bæði þýskur
meistari og bikarmeistari með Alba
Berlín. Varð Martin þar með fyrsti
Íslendingurinn sem verður Þýska-
landsmeistari í íþróttinni. Martin
skoraði 14,0 stig og gaf 4,5 stoðsend-
ingar að meðaltali í úrslitarimmunni
og var valinn maður leiksins í bikar-
úrslitaleiknum þar sem hann skoraði
20 stig. Martin leikur nú með Val-
encia, einu sterkasta liði á Spáni sem
er einnig í sterkustu Evrópukeppn-
inni, Euroleague. Martin er í fjórða
sinn á meðal tíu efstu.
Sara Björk Gunnarsdóttir
knattspyrnukona var fyrirliði ís-
lenska landsliðsins sem vann sér sæti
í lokakeppni EM 2022 eftir að liðið
hafnaði í 2. sæti í sínum riðli í und-
ankeppninni. Sara varð einnig leikja-
hæsta landsliðskona Íslands frá upp-
hafi á árinu og hefur alls leikið 136
A-landsleiki. Sara varð þýskur meist-
ari og bikarmeistari með Wolfsburg
áður en hún hafði félagaskipti yfir til
stórliðsins Lyon í Frakklandi. Með
Lyon varð hún bikarmeistari og lék
síðustu þrjá leiki liðsins í Meistara-
deild Evrópu og skoraði í úrslita-
leiknum þegar Lyon varð Evrópu-
meistari. Sara hefur ratað inn á ýmsa
lista hjá erlendum fjölmiðlum yfir
bestu knattspyrnukonur heims og
var ein þriggja sem tilnefndar voru
sem bestu miðvallarleikmenn í
Meistaradeildinni í kjöri UEFA.
Sara er á meðal tíu efstu í níunda
sinn og var kjörin íþróttamaður árs-
ins 2018.
Tryggvi Snær Hlinason körfu-
knattleiksmaður hefur fest sig í sessi
hjá Zaragoza á Spáni sem komst í
undanúrslit í Meistaradeild Evrópu
2020. Er á meðal tuttugu framlags-
hæstu leikmanna í deildinni með 9,4
stig að meðaltali og sex fráköst að
jafnaði. Tryggvi skaraði fram úr hjá
íslenska landsliðinu á árinu með tæp
18 stig og 12 fráköst að meðaltali.
Tryggvi átti stórleik í sigurleiknum
gegn Slóvakíu í febrúar þegar hann
skoraði 26 stig, tók 17 fráköst og
varði átta skot. Tryggvi er í fyrsta
sinn á meðal tíu efstu.
Þjálfararnir þrír
Arnar Þór Viðarsson stýrði
U21 árs landsliði karla í knattspyrnu
sem vann sér sæti í lokakeppni EM.
Elísabet Gunnarsdóttir var val-
in þjálfari ársins í úrvalsdeild kvenna
í knattspyrnu í Svíþjóð eftir að
Kristianstad náði sínum besta
árangri frá upphafi og leikur í Meist-
aradeild Evrópu í fyrsta sinn.
Heimir Guðjónsson stýrði
karlaliði Vals sem varð Íslandsmeist-
ari í knattspyrnu.
Liðin þrjú
Kvennalið Breiðabliks í knatt-
spyrnu varð Íslandsmeistari.
U21 árs landslið karla vann sér
sæti í lokakeppni EM í knattspyrnu.
A-landslið kvenna vann sér sæti
í lokakeppni EM í knattspyrnu.
Tíu efstu í kjörinu árið 2020
Samtök íþróttafréttamanna kjósa íþróttamann ársins í 65. sinn Fjórir nýliðar á listanum í ár
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sund Anton Sveinn McKee,
atvinnumaður hjá Toronto Titans.
Morgunblaðið/Hari
Handknattleikur Aron Pálmarsson,
leikmaður Barcelona.
Ljósmynd/HSÍ
Handknattleikur Bjarki Már
Elísson, leikmaður Lemgo.
Ljósmynd/@_OBOSDamallsv
Knattspyrna Elísabet Gunn-
arsdóttir stýrir Kristianstad.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Knattspyrna Glódís Perla Viggós-
dóttir, leikmaður Rosengård.
Ljósmynd/ÍSÍ
Frjálsar Guðni Valur Guðnason,
kringlukastari úr ÍR.
Morgunblaðið/Eggert
Knattspyrna Gylfi Þór Sigurðsson,
leikmaður Everton.
Morgunblaðið/Eggert
Knattspyrna Ingibjörg Sigurð-
ardóttir, leikmaður Vålerenga.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Körfuknattleikur Tryggvi Snær
Hlinason, leikmaður Zaragoza.
Morgunblaðið/Hari
Körfuknattleikur Martin
Hermannsson, leikmaður Valencia.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Knattspyrna Sara Björk
Gunnarsdóttir, leikmaður Lyon.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Knattspyrna Arnar Þór Viðarsson,
stýrði U21 árs liðinu.
Ljósmynd/@havnarboltfelag
Knattspyrna Heimir Guðjónsson
stýrir Val.
Morgunblaðið/Eggert
Knattspyrna Leikmenn Breiðabliks fagna
marki á Íslandsmótinu í sumar.
Ljósmynd/Szilvia Micheller
Knattspyrna Íslenska landsliðið fyrir
leikinn gegn Ungverjalandi.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Knattspyrna Leikmenn U21 árs liðsins fagna
marki í undankeppni EM á árinu.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2020