Morgunblaðið - 23.12.2020, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 23.12.2020, Qupperneq 36
Magnesíum Sleep baðflögurnar Innihalda magnesíum klóríð, og róandi ilmkjarna- olíurnar lavender og kamillu. Baðflögurnar leysast auðveldlega upp í vatni og er upptakan í gegnum húðina örugg og áhrifarík og því er tilvalið að fylla á magnesíum birgðirnar með því að bæta flögunum út í baðið, heita pottinn eða fara í magnesium fótabað til að endurnæra líkamann eftir erfiðan dag. Magnesium Sleep húðmjólkin inniheldur magnesíum til að hjálpa þreyttum vöðvum að ná slökun ásamt lavender og kamillu til að undirbúa líkamann fyrir væran svefn. Það er tilvalið að bæta Magnesium Sleep inn í svefnrútínuna og bera á húðina fyrir svefninn. Magnesíum húðmjólkin smýgur auðveldlega inn í húðina og getur auðveldað líkamanum að ná slökun, betri svefngæðum til að endurnæra sig fyrir nýjan dag. Fæst í stórmörkuðum og apótekum Magnesium Sleep Gefðu gjöf sem gefur! Söngkonan Jó- hanna Guðrún heldur Þorláks- messutónleika í beinni frá Garða- kirkju í kvöld kl. 20 ásamt gítarleik- aranum Davíð Sig- urgeirssyni. Ætla þau að skapa nota- lega jólastemningu og flytja sín uppá- haldsjólalög í fal- legum útsetningum fyrir gítar og söng. Streymið er að- gengilegt í gegnum vafra í hvaða nettengda tæki sem er og má varpa því í sjónvarp í gegnum tæki á borð við Chromecast eða AppleTV. Jóhanna sendi fyrir skömmu frá sér plötuna Jól með Jóhönnu og mun eflaust flytja einhver lög af henni. Jóhanna og Davíð halda tónleika í Garðakirkju í kvöld í streymi MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 358. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Samtök íþróttafréttamanna birta í dag lista yfir þá ein- staklinga sem höfnuðu í tíu efstu sætunum í kjörinu á Íþróttamanni ársins sem samtökin standa nú fyrir í 65. sinn. Meðlimir samtakanna hafa þegar kosið en úrslitin verða kynnt hinn 29. desember. Í Morgunblaðinu í dag má sjá hvaða tíu einstaklingar höfnuðu í efstu sæt- unum í kjörinu þetta árið en þar eru fjórir íþróttamenn sem ekki hafa áður verið á meðal tíu efstu. Einnig er birt í blaðinu hvaða þrír þjálfarar höfnuðu í efstu sæt- unum og hvaða þrjú lið. »27 Fjórir íþróttamenn í fyrsta skipti á meðal tíu efstu í kjöri samtakanna ÍÞRÓTTIR MENNING hafi sagan verið gefin út í bókarformi og bókin oft verið endurútgefin. „Mér vitanlega er þetta fyrsta litprentunin og þýðing mín er úr frumtextanum en ég styðst líka við þýðingar Árna Óla og Ýmis Más Corneliussonar.“ Hann bætir við að sagan um Dísu hafi alla tíð notið mikilla vinsælda og gaman sé að geta boðið bókina í lit og í stærra broti en áður hafi verið gert. „Börn nútímans hafa alist upp við sjónvarp, bækur og myndir í lit og við höfum það í huga.“ Huginn Þór segir að í undirbúningi sé útgáfa á Alfinni álfakóngi og verið sé að skoða aðrar sögur eftir Rotman. Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Þetta eru tímamótaverk,“ segir Huginn Þór Grétarsson, útgefandi hjá Óðinsauga, um nýjar útgáfur á barnabókunum Stúlkunni í turninum eftir Jónas Hallgrímsson og Dísu ljósálfi eftir Hollendinginn Gerrit Theodoor Rotman. Óðinsauga útgáfa hefur lagt áherslu á að endurútgefa gamlar, sí- gildar ævintýrabækur, „setja þær í endurnýjun lífdaga í nútímabúningi“, segir Huginn Þór. Hann segist lengi hafa velt fyrir sér útgáfu á verkum eftir Jónas Hallgrímsson og hafi hreinlega fallið fyrir Stúlkunni í turn- inum. Tenging Jónasar við H.C. And- ersen hafi verið sérstaklega áhuga- verð. Þeir hafi verið samtímamenn á sömu slóðum og umgengist sama fólkið. „Ég sé ekki betur en Jónas hafi verið heillaður af ævintýrum H.C. Andersens.“ Dagný Kristjánsdóttir fjallar um Stúlkuna í turninum í bók sinni Bóka- börn. Íslenskar barnabókmenntir verða til og bendir á að mikið hafi ver- ið skrifað um hana. Vísar meðal ann- ars í BA-ritgerð Söndru Bruneikaité við Háskóla Íslands 2003. Huginn Þór segir að þessi skrif hafi sannfært sig um að ástæða væri til að gefa bók- ina út að nýju enda hafi hún ekki komið út í myndskreyttri útgáfu síð- an 1942 og sé ófáanleg. „Þá kom sag- an út í átta síðna bók myndskreyttri af Fanneyju Jónsdóttur og tími er kominn til að ævintýri þjóðskáldsins væri aðgengilegt fyrir börn, en nýja útgáfan er 30 myndskreyttar blaðsíð- ur í lit.“ Brautryðjandi Huginn Þór segir að G.T. Rotman hafi verið talinn einn af brautryðj- endum teiknimyndasögugerðar í Hol- landi. Sögur hans hafi birst í dag- blöðum og verið gefnar út í nokkrum löndum, þar á meðal hafi Alfinnur álfakóngur, Dvergurinn Rauðgrani og Dísa ljósálfur komið út á íslensku. Morgunblaðið hóf birtingu á teikni- myndasögunni Ljósálfurinn litli eftir G.T. Rotman í þýðingu Árna Óla blaðamanns 9. nóvember 1927. Sög- unni var lýst sem barnasögu í 112 myndum og voru birtar 12 myndir hverju sinni, þær síðustu 5. febrúar 1928. Huginn Þór segir að sama ár Í endurnýjun lífdaga  Dísa ljósálfur og Stúlkan í turninum í litprentuðum útgáfum Morgunblaðið/Eggert Útgefandi Huginn Þór Grétarsson með bækurnar hjá Óðinsauga. Dísa ljósálfur Úr frumútgáfunni.Dísa ljósálfur Úr nýju útgáfunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.