Lögmannablaðið - 2020, Qupperneq 8

Lögmannablaðið - 2020, Qupperneq 8
8 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 02/20 Af kostnaði og hjarðhegðun Jón Magnússon tók fyrstur til máls og taldi sérstakt að málið skyldi fara í þennan farveg þar sem um lítilfjörlega ástæðu hefði verið að ræða gagnvart fyrrverandi formanni félagsins. Hann sagði að ef gagnaðilinn hefði haft svipaðan kostnað af málinu og Lögmannafélag Íslands þá þýddi það að sá málskostnaður sem að hann fékk tildæmdan, upp á 2.213.000 krónur, hefði hvergi dugað til að hann ræki málið skaðlaust. Hann velti fyrir sér hvort það væri afsakanlegt að leggja þannig á sjó með mál gagnvart félagsmanni og baka honum slík meiriháttar útgjöld, í máli sem að aldrei hafði átt að fara af stað með. Jón Steinar Gunnlaugsson sagði að það væri með þungum huga að hann tæki til máls á þessum aðalfundi. Hann hefði verið félagi í Lögmannafélaginu um áratuga skeið, verið formaður þess um tíma og það hefði átt þá hug hans og hjarta. Hann spurði hvað hefði orðið um önnur mál sem úrskurðarnefnd hefði tekið fyrir í kjölfar þess að stjórn hefði kært og hvort að fella ætti þau niður í kjölfar Hæstaréttardómsins. ÁTÖK Á AÐALFUNDI Skömmu fyrir aðalfund LMFÍ, sem haldinn var um miðjan maí síðastliðinn, féll dómur Hæstaréttar í máli nr. 30/2019 (Lögmannafélag Íslands gegn Jóni Steinari Gunnlaugssyni). Málið fjallaði um áminningu sem úrskurðarnefnd LMFÍ veitti félagsmanni en sá höfðaði í kjölfarið mál til ógildingar ákvörðuninni. Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði því að ógilda ákvörðunina og sýknaði Lögmannafélagið. Niðurstaða málsins í Landsrétti var aftur á móti sú að félagið hefði ekki haft lagaheimild til þess að bera fram kvörtun fyrir úrskurðarnefnd og var úrskurður nefndarinnar því felldur úr gildi. Í Hæstarétti komst meirihluti að sömu niðurstöðu og Landsréttur en í sératkvæði tveggja dómara var talið að staðfesta ætti dóm héraðsdóms. Líflegar umræður spunnust um málið á aðalfundinum þar sem félagsmenn tókust á. Þá var upplýst að heildarkostnaður félagsins af málferlunum hafi verið 10.763.000 krónur. Hér verður stiklað á stóru úr umræðunni. Jón Magnússon

x

Lögmannablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.