Lögmannablaðið - 2020, Blaðsíða 20
20 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 02/20
LÖGMENNSKAN
Á TÍMUM
KÓRÓNUNNAR
Allt tekur enda og í byrjun maí færðist starfsemi dómstólanna
í eðlilegt horf á ný þótt áfram sé lögð áhersla á að nýta
tæknilausnir s.s. við fyrirtökur mála, og sendingu gagna,
til að takmarka samneyti á milli manna. Lögmannablaðið
tók púlsinn á lögmönnum, velti fyrir sér hvort þeir hefðu
fundið fyrir breytingum á tímum kórónunnar, hvort þær
verði varanlegar og hvað taki við.
Áskoranir
Lögmenn stóðu frammi fyrir sömu áskorunum og þorri
þjóðarinnar í byrjun Covid; að fara heim með verkefnin eða
starfa áfram í hálftómum skrifstofum þar sem síminn þagði
og engir tölvupóstar bárust. Þeir sem þjóna einstaklingum
fundu helst fyrir samdrætti en lögmenn sem þjónusta
fyrirtæki síður. Í samtali við lögmenn kom fram að þótt
verkefnastaðan hefði minnkað þá hefðu margir nýtt tímann
til að vinna upp verkefni sem hefðu verið í bið vegna anna.
Þeir lögmenn sem ekki voru búnir að tileinka sér
fjarfundartækni og fjarvinnu gerðu það á einum degi og
væntanlega mun Covid verða til þess að fjórða iðnbyltingin
komi á meiri hraða í líf lögmanna en áður var talið. Á sama
tíma og umferðarþunginn jókst á götum borgarinnar í
byrjun maí fór svo allt á fullt hjá lögmönnum.
Hvað tekur við?
Norska lögmannafélagið áætlar að velta lögmannsstofa þar
í landi minnki um þrjá milljarða norskra króna á árinu
vegna Covid kreppunnar, eða um 15% miðað við fyrri ár.
Þá hefur 8% fulltrúa á lögmannsstofum þegar verið sagt
upp störfum og 14% hafa fengið tilkynningu um að þeim
verði sagt upp. Ekkert slíkt virðist vera uppi á teningnum á
Íslandi þar sem allir viðmælendur Lögmannablaðsins, sem
eru starfandi lögmenn, höfðu ekkert heyrt af uppsögnum
á íslenskum lögmannsstofum. „Lögmenn eru ekkert að
barma sér, flestir líta á þetta sem tímabundið ástand sem
varir í mesta lagi fram á haust,“ sagði einn þeirra.
Misjafnt var hvað lögmenn sem eru með erlenda viðskiptavini
sögðu um stöðu mála. Einn sagði mörg verkefni hafa farið
á ís en fullsnemmt væri að segja að þau hefðu horfið.
Hann bjóst við að sumarið yrði rólegt en þó væru erlendir
fjárfestar að vakna til lífsins á ný og væntanlega yrði með
haustinu allt komið í fullan gang. Annar lögmaður, sem
sinnir sérhæfðum hópi erlendra viðskipavina sagðist ekki
hafa fundið fyrir samdrætti.
Síðastliðnar vikur hafa lögmannsstofur, eins og raunar allt samfélagið,
legið í Covid 19 dvala þar sem símar hljóðnuðu og fyrirspurnir og dagleg
vandamál hurfu í skugga heilsukvíða vírusar sem breytt hefur
heimsmyndinni tímabundið, að minnsta kosti.