Lögmannablaðið - 2020, Blaðsíða 16
16 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 02/20
UM ENDUR-
UPPTÖKU
DÆMDRA
SAKAMÁLA
1. Með lögum nr. 62/1994 fengu ákvæði Mann-
réttindasáttmála Evrópu lagagildi hér á landi að meðtöldum
þeim viðaukum sem við hann höfðu verið gerðir og taldir
eru upp í 2. gr. laganna. Efnisreglur sáttmálans eru
tilgreindar í fylgiskjali. Sáttmálinn og lögfestir viðaukar
og breytingar á honum innihalda samkvæmt því lagareglur,
rétt eins og aðrar settar lagareglur hér á landi. Meðal þessara
lagareglna eru reglur um Mannréttindadómstól Evrópu,
skipun dómara við hann, málsmeðferð fyrir dóminum og
dómsúrlausnir. Eftir gildistöku laganna nr. 62/1994 hafa
verið lögfestir viðaukar við sáttmálann, svo sem sjá má í
lagasafni. Rétt er að taka fram að breytingar sem gerðar
kunna að vera á sáttmálanum eða viðaukar við hann fá
ekki lagagildi hér á landi fyrr en þeir hafa verið lögfestir
sérstaklega.
2. Greinargerð sem fylgdi lagafrumvarpinu um lögfestingu
MSE er afar ítarleg. Í inngangi hennar kemur fram að fimm
manna nefnd hafi undirbúið frumvarpið, en formaður
hennar var Ragnhildur Helgadóttir fyrrverandi ráðherra.
Aðrir nefndarmenn voru Björn Bjarnason alþingismaður,
Eiríkur Tómasson lagaprófessor, Markús Sigurbjörnsson
lagaprófessor og Ragnar Aðalsteinsson hrl. Þar kemur
fram nefndin hafi komist að niðurstöðu um að „... rétt væri
að leggja til að mannréttindasáttmáli Evrópu yrði lögtekinn hér
á landi, en sú niðurstaða var einkum byggð á því að lögfesting
sáttmálans yrði til að auka réttaröryggi.“
3. Í 1. gr. MSE skuldbinda aðildarríkin að mann réttinda-
sáttmálanum sig til að tryggja þau réttindi sem þar er kveðið
á um hverjum þeim sem dvelst innan yfirráðasvæðis þeirra.
Um þetta segir í greinargerðinni:
Á SÍÐUSTU MISSERUM HAFA ÁKVÆÐI MANNRÉTTINDASÁTTMÁLA EVRÓPU (MSE) VERIÐ TIL
SÉRSTAKRAR SKOÐUNAR HÉR Á LANDI AF ÝMSUM TILEFNUM. TIL STÓÐ AÐ FJALLA UM ÝMIS
ÁLITAEFNI SEM ÞEIM TENGJAST Á MÁLSTOFU Á LAGADEGINUM Í MARS SL., SEM EKKERT
GAT ORÐIÐ AF. HÉR STENDUR EKKI TIL AÐ ELTA ÓLAR VIÐ ALLT SEM Á BORÐ HEFUR VERIÐ
BORIÐ Í ÞESSUM EFNUM, EN ÉG HELD AÐ ÞAÐ GETI VERIÐ GAGNLEGT AÐ FARA YFIR
NOKKUR ATRIÐI TIL AÐ VARPA LJÓSI ÞÝÐINGU ÞESSA SÁTTMÁLA GAGNVART ÖÐRUM
RÉTTARHEIMILDUM Í LAGAKERFI OKKAR.
RAGNAR HALLDÓR HALL LÖGMAÐUR SKRIFAR