Lögmannablaðið - 2020, Side 10

Lögmannablaðið - 2020, Side 10
10 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 02/20 Ekki æskilegt að vera í málaferlum við félagsmenn Berglind Svavarsdóttir formaður Lögmannafélagsins tók undir með Jóni Magnússyni að ekki væri æskilegt að félagasamtök væru í málaferlum við félagsmenn sína. Í þessu máli þá hefði það þó verið lögmaðurinn sjálfur sem hefði höfðað mál til ógildingar á úrskurði úrskurðarnefndar lögmanna. Héraðsdómur hafi sýknað Lögmannafélagið með dómi í maí 2018 en lögmaðurinn hafi áfrýjað dóminum til Landsréttar og þar hafi Lögmannafélagið tekið til varna. Landsréttur hefði snúið dómi héraðsdóms við og talið að Lögmannafélagið gæti ekki átt neina aðild að kvörtunum til úrskurðarnefndar. Stjórn félagsins hefði svo beðið um og fengið áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar: „Það var mat stjórnar félagsins að það væri nauðsynlegt að fá endanlega niðurstöðu í það hvort Lögmannafélagið hafi á grundvelli 1. mgr. 27. gr. laga um lögmenn heimild til þess að skjóta málum til úrskurðarnefndarinnar“ sagði Berglind. Berglind svaraði spurningu Jóns Steinars á þá leið að stjórn félagsins hefði beint nokkrum málum til úrskurðarnefndar en í dómi Hæstaréttar hefði verið sérstaklega tiltekið að ekki væri útilokað að félagið kynni að hafa lögvarða hagsmuni af því að skjóta málum til hennar. Af taumhaldi og lærdómi máls Reimar Pétursson tók næstur til máls en hann var formaður stjórnar Lögmannafélagsins sem tók ákvörðun um að beina málinu til úrskurðarnefndar á sínum tíma. Reimar sagði að í siðareglum lögmanna, sem væru samþykktar af félagsmönnum, væri mælt fyrir um að lögmenn ættu að sýna dómstólum virðingu í ræðu og riti. Þetta væri regla sem að hefði umtalsverða þýðingu og ætti skírskotun í hefðbundnum kenningum um hlutverk lögmanna sem þjóna réttarins: „Ef það myndi nú tíðkast almennt að lögmenn kæmu fyrir dómstóla og færu þar með báli og brandi, væru þar með dónaskap og stæla í garð dómara, þá held ég að það sé ljóst að það myndi nú fljótlega breytast það viðhorf sem okkur myndi mæta þegar við kæmum inn í dómsalinn,“ sagði hann. Reimar sagði að í samþykktum Lögmannafélagsins kæmi fram að það væri hlutverk stjórnar að hafa eftirlit með því að siðareglum væri fylgt. Í lögum um lögmenn segði ennfremur að Lögmannafélagið setji sér samþykktir og þar kæmi einnig fram að félagið kæmi fram fyrir hönd lögmanna gagnvart dómstólum. Berglind Svavarsdóttir Reimar Pétursson

x

Lögmannablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.