Lögmannablaðið - 2020, Qupperneq 9

Lögmannablaðið - 2020, Qupperneq 9
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 02/20 9 Jón Steinar lýsti yfir áhyggjum sínum af Lögmannafélaginu, sem að hefði í seinni tíð þróast í þá átt að vilja verða eins konar hugsanalögregla yfir lögmönnum. Það ætti að vera öllum lögfræðingum ljóst að það lagaumhverfi sem gildi um Lögmannafélagið takmarki heimildir þess gagnvart félagsmönnum. Hann sagði það auk þess skoðun sína að hjarðhegðun hefði lengi hefði verið annmarki á starfi íslenskra fjölskipaðra dómstóla: „Það eru alltaf allir sammála! Hvernig getur það verið?“ spurði hann. Jón Steinar sagði það blasa við að þegar fyrrverandi formaður félagsins hefði fengið afhenta einkapósta milli hans og umrædds dómara þá hefði öll stjórnin samþykkt samhljóða að bera þá undir úrskurðarnefndina, jafnvel þótt engin heimild væri í lögum fyrir úrskurðarnefnd að taka fyrir svona erindi. „Málið var borið undir úrskurðarnefnd og þar sátu einhverjir þrír lögspekingar og þeir urðu allir sammála um að taka málið fyrir og áminna mig fyrir þetta þó að því væri auðvitað teflt þar fram að það væri engin heimild til þess,“ sagði Jón og kvaðst hafa þótt skelfilegt að fylgjast með þessari hjarðhegðun innan Lögmannafélagsins. „Í guðs bænum hættið að leiða Lögmannafélagið inn á það að verða þessi hugsanalögregla. Formaðurinn sagði það áðan að það væri mikið barist fyrir því að fá breytt lögum [um heimildir félagsins]. Þær breytingar ganga út á það að herða stjórntök félagsins á félagsmönnum. Hvaða þörf er á því? Við erum búin að reka þetta félag áratugum saman án þess að það hafi verið til þess önnur heimild en heimild til þess að vísa því til sýslumanns að svipta menn málflutningsrétti þegar sérstaklega stendur á.“ Jón Steinar sagði að tveir af þeim þremur sem veittu áfrýjunarleyfið í Hæstarétti hefðu síðan verið settir í fimm manna dóm til þess að dæma málið að efni til. Þeir hefðu synjað því að víkja sæti þótt þess væri krafist á þeim grundvelli að þeir hafi verið búnir að taka afstöðu til sakarefnisins. Þessir tveir væru honum vel kunnir sem Jón Steinar Gunnlaugsson sérstakir óvildarmenn hans. Fyrirfram hefði hann ekki búist við því að fá hlutlausa málsmeðferð hjá dómurum við meðferð á málinu en sem betur fer hefði dómstóllinn komist að þeirri niðurstöðu sem hlaut að vera eðlileg væru menn á annað borð að dæma eftir lögfræðilegum sjónarmiðum en ekki persónulegri afstöðu til málsaðila. Reykjavík • London Suðurlandsbraut 4, 3. hæð, 108 Reykjavík Sími 414 4100 · Fax 414 4101 · www.law.is

x

Lögmannablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.