Lögmannablaðið - 2020, Page 21
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 02/20 21
¨¨¨¨¨¨
Stólum rúllað heim
„Við vorum rosalega vel undirbúin enda búin að
tileinka okkur áður fjarfundi og pappírslausa skrifstofu,
sem eykur gríðarlega framleiðni. Við þurftum ekki að
gera annað en að flytja skrifstofustólana heim þaðan
sem starfsmenn hafa unnið síðustu vikur.“
Lögmaður
¨¨¨¨¨¨
Bjartsýnn til langs tíma
„Efnahagskerfið á Íslandi er lítið og því dýnamískt. Það
teygir sig miklu hraðar upp og niður en stærri hagkerfi.
Þetta verður erfitt tímabundið en ég er mjög bjartsýnn
til langs tíma.“
Lögmaður
¨¨¨¨¨¨
Engin handabönd lengur
„Hjá mér hefur engin breyting orðið í verkefnastöðu.
Það sem hefur breyst er að ég hef lært á fjarfundi og
nú tekur enginn í höndina á mér lengur.“
Lögmaður
Ennþá frost á fróni
Lögmenn voru sammála um að fjármálastofnanir tækju
engar afdrifaríkar ákvarðanir nú en með haustinu kæmi
sá tími hjá fyrirtækjum þar sem hagræðingarsamrunar,
fjárhagsleg endurskipulagning og gjaldþrot ásamt stofnun
nýrra fyrirtækja tæki við: „Lögmenn vinna í kringumstæðum
þar sem er hreyfing og þótt að allt sé í frosti nú, og enginn
að taka afdrifaríkar ákvarðanir, þá á ég ekki von á öðru
en að það breytist með haustinu,“ sagði lögmaður í
fyrirtækjageiranum. Annar lögmaður sagði sína stofu ekki
vera að búa sig undir ragnarök: „Við erum ekki að búa
okkur undir holskeflu mála og erum frekar bjartsýnir að
þetta sé tímabundið ástand.“
Norskir lögmenn fjalla um Covid
Í 3. tbl. Advokatbladet kemur fram að réttarríkið standi
frammi fyrir sinni stærstu áskorun frá heimstyrjöldinni síðari.
Norska lögmannafélagið kom í byrjun Covid ástandsins í
veg fyrir að sett yrðu neyðarlög í landinu sem hefðu veitt
ríkisstjórninni of mikil völd á kostnað Stórþingsins. Þá
gagnrýndu þarlendir lögmenn að dómstólar lögðu niður
munnlegan málflutning í nokkrar vikur m.a. í ljósi þess að
matvöruverslanir voru opnar.
Haldnar voru ráðstefnur á vefnum til að aðstoða sprota-
fyrirtæki og smáfyrirtæki sem misstu tekjur sínar á einni
nóttu. Þá stofnuðu verjendur sérstakan Facebook hóp til
að miðla upplýsingum um hvernig þeir gætu aðstoðað
skjólstæðinga sína í fangelsum landsins sem fengu ekki
notið mannréttinda vegna ástandsins. Nánari upplýsingar
eru á www.advokatbladet.no
Mynd af forsíðu Advokatbladet