Lögmannablaðið - 2019, Qupperneq 13

Lögmannablaðið - 2019, Qupperneq 13
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/19 13 færi miklu betur á því að sleppa slíku þó að menn kynnu að líta stórt á sig. Mönnum liði að jafnaði betur þannig. Í kjölfar samskiptanna sendi dómarinn bréf til formanns Lögmannafélagsins og sagðist hafa átt í „óskemmtilegum samskiptum“ við þennan félagsmann í Lögmannafélaginu. Dómarinn taldi að háttsemi lögmannsins hlyti að fara á svig við siðareglur lögmanna en gerði þó engar kröfur um að félagið myndi aðhafast. Í kjölfarið hófst málsmeðferð innan Lögmannafélagsins gagnvart félagsmanni sínum sem endaði með því að félagið kvartaði yfir lögmanninum til úrskurðarnefndar lögmanna. Í úrskurði nefndarinnar var lögmanninum svo veitt áminning. Sú ákvörðun var borin undir dómstóla og var ógilt í Landsrétti (Lrd. 511/2018) en málið hefur hlotið áfrýjunarleyfi í Hæstarétti. Hins vegar má nefna samskipti dómara og lögmanns sem lýst er í nýlegum dómi Landsréttar en málið er í grunninn barnaverndarmál (Lrd. 373/2019). Í héraðsdómi hafði gjafsóknarkostnaður, þar með talin þóknun lögmanna tveggja aðila, verið ákveðin 450.000 krónur til hvors um sig að meðtöldum virðisaukaskatti. Héraðsdómari rökstuddi þessa málskostnaðarákvörðun með því að lögmenn hefðu í ljósi ákvæða barnaverndarlaga hvorki haft viðhlítandi lagarök né málefnalegar ástæður út frá lagalegum eða siðferðilegum skyldum sínum sem lögmenn til að reka málið með þeim hætti sem gert var. Varnir sem settar hefðu verið fram undir rekstri þess hafi ekki verið raunhæfar miðað við atvik málsins. Þá sagði einnig í forsendum dómsins að gjafsóknarkostnaður væri greiddur úr ríkissjóði sem fjármagnaður væri með skattfé vinnandi fólks. Þóknanir til lögmanna ættu að miða að því að þjóna hagsmunum barna sem í hlut ættu en ekki hagsmunum lögmanna af því að reka mál allt til enda þegar ljóst væri að sá málarekstur færi beinlínis í bága við þá frumhagsmuni barna sem lögunum væri ætlað að vernda. Í þessu ljósi sagði dómarinn blasa við að umgengni dómara og lögmanna um þessa sjóði væru skorður settar, sem út frá áðurnefndum verndarhagsmunum bæri að virða í hvívetna. Í framhaldi af uppkvaðningu héraðsdóms áttu sér stað tölvupóstsamskipti milli dómarans og lögmanna þar sem annar þeirra spurði dómarann hvernig hann ætti að bera sig að við hagsmunagæslu fyrir skjólstæðinga sína í ljósi forsendna héraðsdóms. Í svarpósti dómarans segir meðal annars: „ ...lögmenn geta ekki haldið því fram gagnvart gagnaðila, umbjóðendum sínum eða gagnvart dómnum að þeim leyfist að nálgast þessi mál með rörsýn. Lögmaður sem nálgast þessi mál með það eitt að leiðarljósi að ganga erinda umbjóðanda síns getur ekki haldið því fram að hann sé að vinna innan ramma siðareglna. Þvert á móti er að mínu mati augljóst að lögmönnum ber, í riti og ræðu, að gæta staðfastlega að hagsmunum þeirra barna sem í hlut eiga. [...] Ég hygg að reyndir lögmenn sem hafa Þegar almenningur hugsar um samskipti lögmanna og dómara kemur bandarískt réttarkerfi og mýgrútur bíómynda vafalaust upp í hugann. Í SIÐAREGLUM DÓMARA ERU ENGIN SÉRSTÖK ÁKVÆÐI UM SAMSKIPTI VIÐ LÖGMENN ÞÓ ALMENN ÁKVÆÐI REGLNANNA EIGI VIÐ UM LÖGMENN EINS OG AÐRA.

x

Lögmannablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.