Lögmannablaðið - 2019, Qupperneq 23

Lögmannablaðið - 2019, Qupperneq 23
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/19 23 Geir Gestsson útskrifaðist frá Háskóla Íslands árið 2003 og úr meistaranámi við Erasmus háskólann í Rotterdam árið 2004. Hann fékk réttindi til þess að flytja mál fyrir héraðsdómstólum árið 2006 og fyrir Hæstarétti Íslands árið 2015. Hann hefur unnið hjá Mörkinni lögmannsstofu allt frá árinu 2004. Geir, ásamt Fanney Rós Þorsteinsdóttur var fyrstur íslenskra málflytjenda til þess að flytja munnlega mál fyrir yfirdeild (Grand Chamber) Mannréttinda- dómstóls Evrópu þann 9. október sl. Við málflutninginn aðstoðaði hann Védís Eva Guðmundsdóttir, lögmaður á Mörkinni lögmannsstofu. FYRSTU ÍSLENSKU MÁLFLYTJENDURNIR HJÁ GRAND CHAMBER – GEIR GESTSSON Það sátu 17 aðaldómarar í málinu og 3 varadómarar, frá mismunandi aðildarríkjum. Yfirdeildin var skipuð forseta dómsins, varaforseta, auk forseta hinna mismunandi undirdeilda. Þá sat í yfirdeildinni landsréttardómarinn fyrir Ísland þrátt fyrir að hann hafi einnig setið í undirdeildinni, þegar málið var dæmt. „Ég verð að játa að það kom mér svolítið á óvart að sjá að dómari sem átti hlut í að dæma mál fyrir undirrétti sæti einnig í málinu á áfrýjunarstigi. En þetta er víst formregla hjá yfirdeildinni, þ.e. að landsréttardómarinn fyrir undirdeild sitji áfram í málinu á áfrýjunarstigi“ segir Geir. Honum fannst einnig áhugavert að forseti réttarins kallaði lögmenn aðila á skrifstofu sína nokkrum mínútum fyrir málflutninginn, til að kynna sig og fara yfir helstu formsatriði fyrir málflutninginn. Þau væru nokkur svo vægt væri til orða tekið, en það hefði þó verið mjög heppilegt að þau hefðu verið kynnt fyrir lögmönnum skriflega á fyrri stigum málsmeðferðarinnar. Hvað varðar málsmeðferðina fyrir yfirdeildinni var óskað áfrýjunarleyfis í lok janúar 2019. Málið var svo flutt munnlega í október 2019. Þannig að málsmeðferðin í heild sinni tók bara rúma níu mánuði og var í raun mjög skilvirk. Geir segir að þetta skýrist helst af því að það séu svo fá mál sem fara til yfirdeildarinnar eða um 5% af þeim

x

Lögmannablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.