Lögmannablaðið - 2019, Page 31
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/19 31
Þá stóðust aðeins 4 þeirra 11 þátttakenda af fyrri
námskeiðum sem ekki höfðu lokið fyrri hluta þess með
fullnægjandi hætti, prófi að þessu sinni eða 36,4%. Allir
þeir 10 þátttakendur sem skráðir voru á síðari hluta
námskeiðsins, 5 konur og 5 karlar, luku þeim hluta með
fullnægjandi árangri.
Á fyrra réttindanámskeiði ársins 2019 útskrifuðust 27
þátttakendur – 13 karlar og 14 konur. Alls hafa því 37
lögfræðingar lokið prófraun til öflunar réttinda til
málflutnings fyrir héraðsdómstólum á árinu 2019, 19 konur
og 18 karlar.
Kynjahlutfall þeirra 1.116 lögfræðinga sem lokið
hafa námskeiði til öflunar málflutningsréttinda fyrir
héraðsdómstólum frá því núgildandi kerfi komst á árið
2000, er tiltölulega jafnt, en alls hefur 601 karl lokið
réttindanámskeiðinu eða 53,9% á móti 515 konum sem
svarar til 46,1%.
Ingimar Ingason
Grafið sýnir kynjahlutfall útskrifaðra þátttakenda á námskeiði til öflunar málflutningsréttinda á árabilinu 2000 – 2019.