Lögmannablaðið - 2019, Page 35

Lögmannablaðið - 2019, Page 35
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/19 35 réttinda dómstólnum sem öll tengjast ágreiningi um skipun dómara við Landsrétt og yfirdeild dómstólsins mun fjalla um í febrúar í máli Guðmundar Ástráðssonar gegn íslenska ríkinu. Þá megi rekja fjölda áfellisdóma á hendur ríkinu í tjáningarfrelsismálum að nokkru leyti til lögbundins fyrirkomulags og dóma Hæstaréttar um ábyrgð blaðamanna á ummælum viðmælenda sem nú hefur verið horfið frá. Loks virðist fjöldi mála sem tengist efnahagsbrotum að nokkru leyti lúta að álitaefnum um hæfi dómara. Kjartan sagði að það færi eftir aðstæðum hverju sinni hvort íslenskir dómstólar gætu sjálfir brugðist við vanda sem skapaðist í réttarkerfinu í tengslum við beitingu Mannréttindasáttmálans. Þegar um væri að ræða álitamál um hæfi dómara til að sitja í málum og nýja dóma frá Mannréttindadómstólnum þar sem hugsanlega væru gerðar ríkari kröfur en áður þekktust væri þetta tiltölulega auðvelt: Þá gætu íslenskir dómstólar einfaldlega tekið strax mið af þessum dómum við túlkun matskenndra hæfisreglna íslenskrar réttarfarslöggjafar. Í öðrum málum væri þetta hins vegar flóknara, eins og í málum sem lúta að tvöfaldri Það er niðurstaða Reimars að dómstólar megi mjög gjarnan huga að hlutverki sínu við vernd mannréttinda. Mikil fjölgun íslenskra dómsmála fyrir MDE Kjartan Bjarni Björgvinsson tók næstur til máls og sagði alltaf ástæðu til þess að hafa áhyggjur af fjölda dómsmála frá Íslandi fyrir Mannréttindadómstólnum, óháð fjölda málanna. Mannréttindi væru grundvallargildi í réttarkerfinu og samfélaginu öllu og því væri eðlilegt að gera ríkar kröfur til þess hvernig dómstólar leystu úr álitefnum sem tengdust Mannréttindasáttmála Evrópu. Í erindi sínu fór Kjartan yfir tölfræði frá árunum 2009-2018, með ákveðnum fyrirvörum, enda væru þessar upplýsingar ekki alltaf aðgengilegar og skýrar. Á þessu tíu ára tímabili hafa 236 kærur borist frá Íslandi, 167 hafa verið samþykktar og teknar til efnismeðferðar, 21 efnisdómur hefur fallið og 15 áfellisdómar. Á árunum 2009-2013 var allt með nokkuð kyrrum kjörum og Ísland töluvert á eftir hinum Norðurlöndunum í fjölda innsendra kæra. Á árunum 2014 og 2015 hafi innsendum kærum frá Íslandi þó byrjað að fjölga hratt og árið 2018 hafi Mannréttindadómstóllinn skráð 51 nýtt mál frá Íslandi sem gerir Ísland langhæst allra Norðurlandanna miðað við útgefna tölfræði dómstólsins. Það sem af er árinu 2019 bíður 71 kæra afgreiðslu (bráðabirgðatölur). Hvaða ráðstafana er hægt að grípa til? Kjartan Bjarni sagði þennan mikla fjölda að miklu leyti skýrast af kerfislægum vandamálum, þar sem eitt tiltekið mál leiðir til ítrekaðra mála fyrir Mannréttindadómstólum. Ágætt dæmi um slíkt birtist í fjölda málum fyrir Mann- Á ÁRUNUM 2014 OG 2015 HAFI INNSENDUM KÆRUM FRÁ ÍSLANDI ÞÓ BYRJAÐ AÐ FJÖLGA HRATT OG ÁRIÐ 2018 HAFI MANNRÉTTINDADÓMSTÓLLINN SKRÁÐ 51 NÝTT MÁL FRÁ ÍSLANDI SEM GERIR ÍSLAND LANGHÆST ALLRA NORÐURLANDANNA... Fanney Birna Jónsdóttir, Kjartan Bjarni Björgvinsson og Reimar Pétursson.

x

Lögmannablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.