Iðjuþjálfinn - 01.01.2019, Blaðsíða 64
64
Guðrún Árnadóttir II Grein 2019 Málþing LSH Box 1
Þjónustuferli iðjuþjálfunar geðsviðs við Hringbraut
Andri Vilbergsson, Erla Dürr Magnúsdóttir, Gunnhildur Kristjánsdóttir, Guðjón Benediktsson,
Edda Rán Jónasdóttir og Elisa Helena Saukko
Inngangur: Iðjuþjálfun geðsviðs við Hringbraut tekur á móti sjúklingum frá göngudeild geðsviðs
við Hringbraut og móttökudeild geðsviðs við Hringbraut. Þrír iðjuþjálfar vinna í þremur teymum
á göngudeild geðsviðs, tveir á móttökudeildum og einn á blandaðri móttöku- og göngudeild.
Algengustu greiningar þeirra sem nýta sér þjónustu iðjuþjálfa eru eftirfarandi: Geðlægðarlota,
endurtekin geðlægðarröskun, fælnikvíðaraskanir, blandnar kvíða- og geðlægðarraskanir og
sértækar persónuraskanir.
Markmið: Útbúa þjónustuyfirlit til að gera þjónustu skilvirkari og íhlutun markvissari.
Aðferð: Upplýsingar fengnar úr Sögu um algengi greininga. Mikið var haldið af fundum þar sem
þjónusta iðjuþjálfa á geðsviði var rædd í þeim tilgangi að fá yfirsýn yfir þá þjónustu sem veitt er
og æskilegt væri að veita. Auk yfirlitstöflu var ákveðið að útbúa flæðirit sem næði yfir
upplýsingarnar.
Niðurstöður: Það er sameiginleg ákvörðun iðjuþjálfa á geðsviði LSH að notast við þjónustuferli
MOHO (Model of Human Occupation) til að stýra þjónustu þeirra. Því verði notast við matstæki
sem samræmast hugmyndafræði MOHO eins og kostur er. Þó eru sum matstæki skráð í
yfirlitstöfluna sem falla ekki undir þá hugmyndafræði sem nauðsynlegt er fyrir iðjuþjálfa á
geðsviði að nota svo sem A-ONE, Barthel og MMSE. Þjónustuyfirlitið var einnig sett upp sem
flæðirit yfir þjónustu þar sem mismunandi framsetning upplýsinga getur náð til fleiri aðila.
Ályktun: Skerpa þarf á notkun þjónustuferlis MOHO og notkunar matstækja sem taka mið af
þeirri hugmyndafræði. Einnig þarf að samræma skráningu í Sögu milli iðjuþjálfa.