Iðjuþjálfinn - 01.01.2019, Blaðsíða 90
90
Guðrún Árnadóttir II-grein2019 Malþing: Box II
Gagnreynd íhlutun: Rannsóknir á þyngingarábreiðum og þyngingarvestum
Guðrún Jóhanna Benediktsdóttir, Hrefna K. Óskarsdóttir, Sonja Ólafsdóttir og
Laufey Þ. Sigurðardóttir
Inngangur: Á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans (BUGL) koma börn til iðjuþjálfa með
ýmiskonar vanda, svo sem ódæmigerða skynúrvinnslu, kvíða, ADHD og einhverfu. Iðjuþjálfar
veita meðal annars meðferð og ráðgjöf um notkun þyngingarábreiða og þyngingarvesta.
Rannsóknir hafa sýnt að ábreiðurnar geta haft róandi áhrif á börn með ofangreindar greiningar,
veitt þeim öryggi og dregið úr kvíða.
Markmið: Að skoða hvort gagnreyndar rannsóknir sýni að þyngingarábreiður og þyngingarvesti
stuðli að örvun skynjunar og hafi þannig áhrif á líðan, hegðun og frammistöðu barna.
Aðferðir: Leit í gagnagrunnum náði til ritrýndra og óritrýndra greina frá 2009 – 2018.
Gagnagrunnar voru OTDBASE, OTseeker, Medline, CINAHL og Cochrane. Leitarorðin voru meðal
annars: Weighted blanket therapy, weighted blanket and sleep, weighted vest in school, deep
pressure and ADHD, weighted blanket and occupational therapy og sensory processing disorder.
Niðurstöður: Skoðaðar voru 15 greinar og stuðst við níu þeirra. Rannsóknastyrkur þeirra er I, III,
IV og V. Rannsóknir hafa sýnt fram á að þyngingarábreiður hafi jákvæð áhrif á líðan og kvíða hjá
börnum og unglingum. Notkun þyngingarábreiða og þyngingarvesta efldu einbeitingu barna og
einnig dró úr sjálfsörvandi hegðun.
Ályktun: Efla þarf rannsóknir á áhrifum þyngingarábreiða og þyngingarvesta til að ráðgjöf
iðjuþjálfa verði markvissari og tryggt sé að unnið sé eftir gagnreyndum aðferðum.